Morgunblaðið - 17.03.2006, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 55
DAGBÓK
Ísafnaðarheimili Laugarneskirkju verður ásunnudag haldið málþing um hag geðfatl-aðra. Að málþinginu standa Laug-arneskirkja, Geðhjálp, Vin; athvarf Rauða
kross Íslands fyrir geðfatlaða, Þjónustumiðstöð
Laugardals og Háaleitis og Heilsugæslan í Lág-
múla.
Meðal þeirra sem til máls taka er Sigursteinn
Másson, formaður Geðhjálpar: „Í erindi mínu mun
ég ræða um framtíðarsýn mína á málefni geðfatl-
aðra. Þar lít ég fyrst og fremst til þeirrar stefnu
sem orðin er áberandi í starfi Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar og hjá mörgum vestrænum
ríkjum, að afstofnanavæða þá þjónustu sem veitt
er,“ segir Sigursteinn.
„Í afstofnanavæðingu felst ekki einkavæðing
þjónustunnar, heldur grundvallarbreyting á gerð
hennar og uppstokkun frá því sem nú er. Hún felur
í sér að auka jafnrétti og auðvelda aðgengi að þjón-
ustu og að innleiða nýja hugsun um mannréttindi,
sjálfsákvörðunarrétt fólks og mannlega reisn.
Ég sé fyrir mér að í framtíðinni muni verða til ný
stétt fagfólks; persónulegir liðveitendur. Það er
fólk sem vinnur fyrir hina fötluðu og veiku á dag-
legum vettvangi, virkjar þá til samfélagslegrar
þátttöku: atvinnuþátttöku og félagslegrar virkni.
Liðveitendur muni aðstoða við allt frá innkaupum
og þrifum til skriffinnsku hjá trygginga- og bóta-
stofnunum. Með þessu verður sú þjónusta samþætt
sem nú er í boði í mörgum aðskildum kerfum. Þjón-
ustuna þarf að einfalda og setja í það horf að hún sé
veitt á forsendum hins fatlaða, jafnvel allan sólar-
hringinn ef þörf krefur. Þetta snertir ekki aðeins
geðsjúka heldur alla fatlaða og þegar upp er staðið
felst ekki í þessu viðbótarkostnaður fyrir þjóðfélag-
ið, heldur er þetta þjóðhagslega hagkvæmt. Það
myndi skapa mikinn auð, í ýmsum skilningi, fyrir
samfélagið að virkja hér á landi þúsundir ein-
staklinga sem í dag eru óvirkir í samfélaginu vegna
þess að þeir njóta ekki eðlilegar þjónustu miðað við
fötlun sína.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri setur
málþingið. Þá tekur til máls Guðbjörg Sveinsdóttir,
forstöðukona hjá Vin, og fjallar um rannsókn sem
unnin var á vegum Rauða krossins og Geðhjálpar á
þjónustuþörf geðsjúkra. Svanur Kristjánsson pró-
fessor heldur erindi sem aðstandandi geðfatlaðs
einstaklings og fulltrúi geðfatlaðra ávarpar fund-
inn. Þá mun Kristján Kristjánsson, KK, taka lagið
fyrir þinggesti.
Í lok málþings verða pallborðsumræður og tekið
við fyrirspurnum úr sal.
Málþingið er sem fyrr segir á sunnudag og hefst
kl. 12.30 og eru fundarlok áætluð kl. 14.30. Þingið
er öllum opið og ókeypis.
Heilbrigðismál | Málþing um geðfatlaða í safnaðarheimili Laugarneskirkju á sunnudag
Hagur og framtíð geðfatlaðra
Sigursteinn Másson
fæddist í Reykjavík
1967. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð
1988. Hann stundaði
nám í blaðamennsku
við FJEE-stofnunina í
París 1994 og leggur nú
stund á nám í uppeldis-
og menntunarfræðum
við Háskóla Íslands.
Sigursteinn starfaði við fréttamennsku og
sjónvarpsþáttagerð hjá Íslenska útvarps-
félaginu til ársins 2000 og við almannatengsl
til 2002. Hann var kjörinn formaður Geð-
hjálpar árið 2000 og formaður ÖBÍ árið 2005.
Sambýlismaður Sigursteins er Caio Namur
Milreu liðveitandi.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 e6 4. Rf3 Bd6 5.
e4 dxe4 6. Rxe4 Bb4+ 7. Bd2 Bxd2+ 8.
Dxd2 Rf6 9. Bd3 0-0 10. 0-0 Rbd7 11.
Had1 Dc7 12. De3 b6 13. Rxf6+ Rxf6
14. De5 De7 15. Hfe1 Bb7 16. c5 Hfd8
17. Bc4 Rd5 18. Rg5 bxc5 19. dxc5 Df6
20. Dxf6 Rxf6 21. Kf1 a5 22. Hxd8+
Hxd8 23. He3 Hd4 24. Hb3 h6 25. Rxf7
Hxc4 26. Hxb7 Hxc5 27. Rd8 Hc1+ 28.
Ke2 Hc2+ 29. Kf3 e5 30. Re6 e4+ 31.
Kg3 Rh5+ 32. Kh4 g6 33. g4
Staðan kom upp í fyrstu deild í
seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga
sem fram fór fyrir skömmu í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Alþjóðlegi
meistarinn Jón Garðar Viðarsson
(2.307) hefur lítið teflt opinberlega
undanfarin ár en hann tekur að jafnaði
þátt fyrir Skákfélag Akureyrar á Ís-
landsmóti skákfélaga. Jón hefur æðru-
lausan skákstíl þar sem mikil seigla í
erfiðum stöðum er áberandi. Í þessari
stöðu hafði hann svart gegn sænska
stórmeistaranum Stellan Brynell
(2.493) en hvítur hafði þjarmað hægt
og sígandi að svörtum þar til að nú var
svo komið að líf riddara svarts á kant-
inum hékk á bláþræði. Jón hélt ró sinni
og lék 33. ... e3! 34. gxh5 hvítur hefði
orðið mát eftir 34. fxe3 Hxh2#. 34. ...
g5+ 35. Rxg5? Hvítur gat fengið jafnt
tafl með því að leika 35. Kg3! e2 36.
Hg7+! Kh8 37. He7 e1=D 38. He8+
Kh7 39. Rxg5+. 35. ... exf2? Svartur
hefði átt að taka riddarann þar sem
eftir 35. …hxg5 ynni svartur eftir 36.
Kxg5 exf2 og eftir 36. Kg3 e2 stæði
svartur vel að vígi. Eftir textaleikinn
nær hvítur að þráskáka. 36. Hb8+ Kg7
37. Hb7+ Kg8 38. Hb8+ Kg7 39. Hb7+
Kg8 og jafntefli samið.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
85 ÁRA afmæli. 27. mars nk. verð-ur Björg Hallvarðsdóttir,
Höfðagrund 10, Akranesi áttatíu og
fimm ára. Af því tilefni býður hún öll-
um vinum og ættingjum að njóta af-
mælisins með henni og þiggja veitingar
í Kirkjuhvoli á Akranesi sunnudag-
inn19. mars kl. 16.
80 ÁRA afmæli. 19. mars nk. verð-ur áttræður Hafsteinn Þor-
geirsson. Í tilefni þess verður hann
með heitt á könnunni fyrir vini og
vandamenn, í golfskálanum í Hvera-
gerði frá kl. 15.
70 ÁRA afmæli. Á morgun, 18mars, verður sjötug María B.
Sveinsdóttir, Jörfa, Álftanesi. Af því
tilefni býður hún og eiginmaður henn-
ar Bjarni V. Guðmundsson ættingjum,
vinum og samferðafólki að gleðjast
með þeim og þiggja léttar veitingar í
samkomusal íþróttahúss Álftaness á
milli kl. 17 og 20 á afmælisdaginn.
„Multi“ vandræði.
Norður
♠--
♥ÁKG643
♦DG3
♣Á974
Vestur opnar á „multi“ tveimur tígl-
um (sem sýnir veika tvo í öðrum hvor-
um hálitnum), og norður á að segja
næst með spilin að ofan. AV eru á
hættu, en NS utan hættu.
Hvaða sögn myndi lesandinn velja?
Það sýnist óhætt að slá því föstu að
litur vesturs sé spaði. Með tilliti til þess
er ekki fráleitt að stökkva í fjögur
hjörtu, enda þarf litla hjálp á móti til að
það geim vinnist.
En það er aldrei á vísan að róa þegar
„multi“ á í hlut:
Norður
♠--
♥ÁKG643 V/AV
♦DG3
♣Á974
Vestur Austur
♠108 ♠ÁK9763
♥D109752 ♥8
♦K865 ♦Á9742
♣K ♣6
Suður
♠DG542
♥--
♦10
♣DG108532
Spilið er frá Reykjavíkurmótinu í
tvímenningi á laugardaginn. Þvert of-
an í væntingar norðurs var litur vest-
urs hjarta, svo það gaf ekki góða raun
að hoppa í fjögur hjörtu, eins og sumir
gerðu. Sex lauf standa hins vegar.
Slemman var sögð á tveimur borðum, í
öðru tilfellinu eftir rólega innákomu á
tveimur hjörtum:
Vestur Norður
Austur Suður
2 tíglar * 2 hjörtu Pass
3 lauf
Pass 4 spaðar * Pass
6 lauf
Pass Pass
Pass
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Víti til varnaðar
FISKVEIÐILÖGGJÖFIN rann úr
greipum löggjafans í krumlur kvóta-
braskara, sem nýttu hana til þess að
skapa mesta óréttlæti Íslandssög-
unnar!
Hljóta „vatnalögin“, sem nú eru til
umfjöllunar á Alþingi sömu örlög?
Hugsið málið, ekkert liggur á.
Vatnið er nátengt andrúmsloftinu.
Hver „á“ það?
Sigmar Hróbjartsson,
Brautarási 10, Reykjavík.
Góði velvakandi
SEM tíður farþegi með Flugleiðum,
blöskra mér gífurleg þrengslin og
viðurgjörningur allur við okkur far-
þega í flugvélum félagsins. Öllu hef-
ur hrakað.
Farþegar fá matarbakka, sem
þeir verða að glíma við í öllum
þrengslunum, og vill þá maturinn,
sem samanstendur oftast af seigri
kjúklingabringu og glerhörðum
brauðsnúð, og kökubita á stærð við
eldspýtnastokk, eða einhverri núðlu-
kássu fyrir grænmetisæturnar, fara
eitthvað allt annað en í munninn á
farþeganum. Fólki er boðið lítið
plastglas af einhverjum svaladrykk
til að renna niður matnum. Á eftir er
borið fram te og hálfkalt bragðlaust
kaffisull. Farþegar, sem eru í hátíða-
skapi, og vilja gera sér dagamun,
geta fengið keyptan bjór í pínulitlum
dósum á þrjú hundruð krónur, þrátt
fyrir að landhelgin sé víðs fjarri.
Einnig geta farþegar, sem eru í
meiri háttar hátíðaskapi, keypt sér
sterka drykki og vín í litlum umbúð-
um, svo að þeir verði sér nú ekki til
skammar með drykkjulátum.
Allt þetta væri mögulegt að fyr-
irgefa, ef borið væri fram gott kaffi
og stærri kökubiti, sem er það besta
á bakkanum. Það kastar nú fyrst
tólfunum, þegar farþegar þurfa að
punga út tugþúsundum króna til við-
bótar við rándýran farseðilinn, ef
svo illa vill til, að þeir veikist, og
þurfi að flýta heimferðinni til þess að
bera ekki beinin á ókunnri strönd.
Ef ég væri beðinn að gefa Flug-
leiðum einkunn, á skalanum einn til
tíu, gæfi ég þeim einn.
Tíður farþegi.
Handprjónuð húfa tapaðist
SL. þriðjudag, 14. mars, tapaðist
hvítur taupoki með rauðri hand-
prjónaðri húfu á leið frá SVR í
Lækjargötu til suðurs að Íslands-
banka. Skilvís finnandi vinsamlegast
skili henni í Iðu í Lækjargötu, SVR
við Hlemm eða hringi í síma 552
3423.
Guðríður.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
120-140 fm íbúð í Fossvogi óskast
fyrir ákveðinn kaupanda.
Nánari upplýsingar veitir
Kjartan Hallgrímsson
ÍBÚÐ Í FOSSVOGI ÓSKAST
ÆTLI konan sé með átta hendur?
Þótt ólíklegt sé kann svo að virð-
ast af þessari mynd, sem tekin var
á sýningu taiko-trommara í hinum
japanska hópi TAO, sem sýndi ný-
verið í Zürich í Sviss.
Sýningin er á ferð um heiminn
um þessar myndir og þykir mikið
sjónarspil, eins og myndin gefur
til kynna. Er þar lögð áhersla á
trommuslátt í óvenjulegum bún-
ingi.
Trommað af
lífs og sálar
kröftum
AP