Morgunblaðið - 17.03.2006, Qupperneq 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
TÍUNDI áratugurinn er hinn nýi níundi ára-
tugur,“ kvað vera þema myndbandsins við
lagið „Til hamingju Ísland“ en tökur á mynd-
bandinu fóru fram í Loftkastalanum á mið-
vikudag. Litadýrð búninganna mun vera mikil
og allt að því blindandi. Eins og alþjóð er
kunnugt er það Silvía Nótt sem flytur lagið í
Evróvisjónkeppninni sem fram fer í Aþenu
hinn 18. maí næstkomandi og þá fæst úr því
skorið hvort framlag Íslendinga kemst áfram í
lokakeppnina. Fjöldi fólks kom að gerð mynd-
bandsins en þar má nefna Íslenska dansflokk-
inn og þá kumpána Pepe og Romario. Leik-
stjóri er Gaukur Úlfarsson en hann samdi
einnig textann við lagið ásamt Silvíu Nótt.
Eftirvinnsla er þegar hafin og reiknað er
með að myndbandið verði frumsýnt hér á landi
um miðjan næsta mánuð. | 62
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Litadýrðin allt að því blindandi
JÓHANNA Pálmadóttir, sauðfjárbóndi á Akri
í Húnavatnssýslu, tók sæti á Alþingi í gær í
forföllum Sturlu Böðvarssonar samgöngu-
ráðherra. Þetta er í fyrsta skipti sem Jóhanna
tekur sæti á Alþingi en forfeður hennar eru
ekki alveg ókunnir þingstörfum.
Faðir Jóhönnu, Pálmi Jónsson, sat á Alþingi
frá 1967–1995. Hann var landbúnaðarráðherra
á árunum 1980–1983. Jón Pálmason, afi Jó-
hönnu, sat einnig lengi á þingi eða frá 1933–
1959. Hann var forseti Sameinaðs þings og
landbúnaðarráðherra um tíma. Þeir feðgar
voru bændur á Akri eins og Jóhanna.
Þá sat langalangafi Jóhönnu, Jón Pálmason
bóndi í Sólheimum og Stóradal, einnig á Al-
þingi um tíma, en hann var alþingismaður V-
Húnvetninga og sat á þingi 1863 og 1865.
Jóhanna sagði í samtali við Morgunblaðið að
sér litist vel á nýja vinnustaðinn. Þar hefði ver-
ið tekið sérstaklega vel á móti sér. „Það er
mikið um að vera og gaman að taka þátt í
þessu,“ sagði Jóhanna, en umræður á fyrsta
þingdegi hennar voru fjörugar. Rædd var sú
nýja staða sem er upp komin í varnarmálum
og umræðu lauk um hin umdeildu vatnalög.
Jóhanna sagðist ekki hafa komið í þinghúsið
frá því byggt var við það. „Ég skondraðist
stundum hingað inn sem krakki þegar ég átti
erindi við pabba. Þá var Jakob húsvörður á Al-
þingi og hann hafði ofan af fyrir mér meðan ég
beið eftir pabba. Það eru orðin nokkuð mörg ár
síðan,“ sagði Jóhanna og bætti við að það rifj-
uðust upp gamlar og góðar minningar við að
koma í þinghúsið.
Jóhanna sagðist ekki hafa tekið neina
ákvörðun um hvenær hún tæki til máls á Al-
þingi. Það hefði komið upp með litlum fyr-
irvara að hún tæki sæti á þingi og þess vegna
hefði hún ekki haft mikinn tíma til að undirbúa
sig.
Jóhanna sagði að hún hefði ekki tekið
ákvörðun um hvort hún myndi sækjast eftir
sæti ofar á lista sjálfstæðismanna í norðvest-
urkjördæmi fyrir næstu kosningar. „Ég á eftir
að skoða þau mál miðað við þær forsendur sem
þá verða, en vissulega er þetta spennandi,“
sagði Jóhanna.
Jóhanna á Akri fetar í fótspor
pabba, afa og langalangafa
Morgunblaðið/Ásdís
Jóhanna Pálmadóttir á Alþingi í gær. Fyr-
ir aftan hana er Guðjón A. Kristjánsson.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
OLÍUFÉLÖG hækkuðu verð á eldsneyti í gær
og í fyrradag. Lítrinn af bensíni kostar nú al-
mennt 114,90 til 115 krónur í sjálfsafgreiðslu
hjá stóru olíufélögunum þremur og lítrinn af
dísilolíu 113 krónur. Ástæðan fyrir verðhækk-
uninni er sögð hækkun á heimsmarkaðsverði á
eldsneyti og staða krónunnar gagnvart Banda-
ríkjadal.
Verð á eldsneyti hefur ekki hækkað hjá
Orkunni og Atlantsolíu. Hjá Orkunni kostar
bensínlítrinn 111,60 krónur og dísilolíulítri
110,60 krónur. Hjá Atlantsolíu kostar bensín
111,70 krónur lítrinn og dísilolía 110,80 krónur.
Eldsneytisverð hefur hækkað um tæpar
fimm krónur frá því í upphafi mánaðarins hjá
stóru olíufélögunum. Þetta jafngildir u.þ.b. 4%
hækkun á rúmum hálfum mánuði.
Eldsneytis-
verð hækkar
SMÁBÍLAR eru oft kallaðir konubílar, hvort
sem um er að ræða karllæga fordóma eða
raunverulegar óskir kvenna um sparneytinn
og nettan bíl sem smýgur auðveldlega um
þröngar götur og í óhentug borgarstæði.
En hvað er það sem konur eiginlega vilja
þegar smábíll er annars vegar? Blaðakon-
urnar Ingveldur Geirsdóttir, Anna Sigríður
Einarsdóttir og Kristín Heiða Kristinsdóttir
leituðu svara við leyndardómnum og í bíla-
blaði Morgunblaðsins í dag fjalla þær um þrjá
smábíla sem þær segja að séu kannski dæmi-
gerðir konubílar. | B4
Konur dæma
konubíla
FYRIRLIÐI landsliðs Úganda í knattspyrnu,
Andrew Mwesingwa, leikur með Eyjamönn-
um í Landsbankadeildinni í sumar.
Mwesingwa er 22 ára gamall og hefur gert
þriggja ára samning við ÍBV. Hann hefur
leikið með SC Villa í heimalandi sínu og jafn-
framt verið fyrirliði þess liðs. Valsmenn
munu einnig hafa haft áhuga á leikmann-
inum. | C1
Fyrirliði landsliðs
Úganda til Eyja
FORSVARSMENN Norðuráls
eru reiðubúnir að flýta undirbún-
ingi að álveri í Helguvík á Reykja-
nesi í ljósi breyttrar stöðu í at-
vinnumálum á svæðinu eftir að
tilkynnt var að varnarlið Banda-
ríkjanna væri á förum.
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og stjórn-
unarsviðs hjá Norðuráli, sagði í
segir erfitt að segja til um hvort
hægt sé að flýta henni. „Þetta er
undir því komið að til sé orka til af-
hendingar,“ segir hann.
Einkum hefur verið rætt um
orkumál við Hitaveitu Suðurnesja
en einnig hafa farið fram viðræður
við Landsvirkjun og Orkuveitu
Reykjavíkur um framkvæmdirnar.
Ragnar segir að ef hægt sé að flýta
afhendingu orku sé Norðurál tilbú-
ið að vinna með samstarfsaðilum
sínum að því að flýta undirbúningi.
og mun vinna með fulltrúum rík-
isstjórnar, viðkomandi sveitarfé-
laga, orkufyrirtækjanna og öðrum
sem að því koma til þess að leita
leiða til að mæta þessum breyttu
aðstæðum,“ segir Ragnar og stað-
festir að nú þegar hafi verið rætt
við fulltrúa Reykjanesbæjar um
hvort hægt sé að flýta undirbúningi
álversins.
Gert hefur verið ráð fyrir því að
gangsetning fyrsta áfanga álvers-
ins gæti orðið árið 2010 en Ragnar
samtali við Morgunblaðið að í gær
hefði verið farið yfir stöðuna ásamt
Reykjanesbæ, Hitaveitu Suður-
nesja og verkfræðistofunni HRV,
sem eru samstarfsaðilar Norðuráls
að verkefninu, auk Fjárfestingar-
stofunnar.
„Við gerum ráð fyrir að skrifað
verði undir helstu samninga þar að
lútandi á næstu vikum. Í ljósi þess-
ara tíðinda er Norðurál reiðubúið
að flýta undirbúningi að byggingu
álvers í Helguvík eins og kostur er
Norðurál endurmetur stöðuna varðandi fyrirhugað álver í Helguvík
Vilja flýta undirbúningi
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
MOKVEIÐI hefur verið við Snæfellsnes það
sem af er marsmánuði og er stemningunni líkt
við ævintýri.
Sigurður R. Gunnarsson, hafnarvörður á
Rifi, segir að mikill afli hafi verið hjá dragnót-
arbátum og bendir á að alls hafi 1.332 tonnum
verið landað það sem af er mánuðinum miðað
við 792 tonn á sama tíma í fyrra. Dæmi eru um
að einstakir bátar hafi aukið afla sinn um tæp-
lega 100 tonn milli ára, að sögn Sigurðar.
Pétur Bogason, hafnarvörður í Ólafsvík, seg-
ist ekki muna eftir öðrum eins aflabrögðum í
janúar og febrúar síðan hann kom til Ólafs-
víkur fyrir 40 árum og það geri elstu menn ekki
heldur. | 14
Mokveiði við
Snæfellsnes
♦♦♦
♦♦♦