Morgunblaðið - 17.05.2006, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
EINAR K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra
telur að ekki eigi að heimila útlendingum beinan
aðgang að íslenskum fiskveiðirétti. Hann segir
að yfirlýsingar Halldórs Ásgrímssonar, forsætis-
ráðherra og formanns Framsóknarflokksins, á
ráðstefnu tímaritsins The Economist, í fyrradag,
komi ekki á óvart. Halldór sagði að rétt væri að
breyta lögum sem kæmu í veg fyrir fjárfestingar
útlendinga í íslenskum sjávarútvegi. Einar segir
að Halldór hafi sett fram sömu sjónarmið á Við-
skiptaþingi fyrr í vetur.
Ekki á stefnuskrá
ríkisstjórnarinnar
Aðspurður um fyrrgreind ummæli segir Ein-
ar: „Ég er þeirrar skoðunar að það sé ekki tilefni
til þess í fyrirsjáanlegri framtíð að taka til end-
urskoðunar afstöðuna til þess að útlendingar eigi
fiskveiðirétt á Íslandsmiðum. Hins vegar árétt-
aði forsætisráðherra að þetta væri ekki á stefnu-
skrá núverandi ríkisstjórnar og að þetta væri
mál sem kæmi fyrst til athugunar á næsta kjör-
tímabili. Ég er alveg sammála honum um það
mat að þetta sé ekki á dagskrá núverandi rík-
isstjórnar.“
Inntur eftir því hvort þetta komi þá að hans
mati alls ekki til álita, segir Einar: „Ég tel að
það eigi ekki að heimila útlendingum beinan að-
gang að íslenskum fiskveiðirétti. Það eru rúmar
heimildir til óbeinnar eignaraðildar útlendinga
að íslenskum útgerðum og það hefur sýnt sig að
þær eru ekki mikið nýttar. Ég tel því að það sé
engin knýjandi þörf í þessum efnum.
Íslendingar hafa verið að fjárfesta í útgerðum
erlendis og það er ekkert sem kallar á að við bú-
um til einhverja gagnkvæmni í þeim efnum. Út-
lendingar hafa sóst eftir bæði fjármunum og
þekkingu Íslendinga í útgerðum og það eru eng-
ar slíkar þarfir sem kalla á í okkar tilvikum. Við
sjáum að það er mikil eftirspurn eftir eignaraðild
Íslendinga og fjármagni Íslendinga inn í íslensk-
ar útgerðir. Sú þekking sem útlendingar eru að
leita eftir frá Íslendingum er þar af leiðandi til
staðar hér á landi.“
Útlendingar eigi ekki
fiskveiðiréttindi hér
STARFSMENN Glitnis sem taka þátt í Reykjavíkur-
maraþoni 2006 hinn 19. ágúst nk. munu styrkja ýmis
góðgerðarsamtök í kjölfar nýbreytni sem kynnt var í
gær af hálfu Glitnis. Bankinn heitir á þá starfsmenn
sem taka þátt í hlaupinu og áheitin renna til góðgerð-
arsamtaka að vali viðkomandi starfsmanns. Starfs-
mennirnir ákveða sjálfir hversu langt þeir hlaupa en
Glitnir mun greiða 3 þúsund kr. fyrir hvern kílómetra.
Framlag Glitnis vegna þess sem hleypur heilt mara-
þon nemur alls 126 þúsund kr., 66 þúsundum vegna
hálfmaraþons og 30.000 kr. vegna 10 km hlaups.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, hefur ákveðið
að hlaupa fyrir Blátt áfram. Starfsmenn hlaupa einnig
m.a. fyrir MS-félagið, Hjartavernd og Blindrafélagið. Á
myndinni er Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, í
startholunum þótt enn séu þrír mánuðir í keppnina.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hlaupa til góðs í maraþoni
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
GUÐFRÍÐUR Lilja Grét-
arsdóttir, forseti Skák-
sambands Íslands undanfarin
tvö ár, var á aðalfundi sam-
bandsins um helgina einróma
endurkjörin til eins árs.
Nokkur breyting varð þó á
stjórn sambandsins, í sam-
ræmi við þá áherslu að leggja
sérstaka rækt við landsbyggð-
ina á nýju starfsári.
Nýir inn í stjórn sambands-
ins eru þeir Karl Gauti Hjalta-
son úr Taflfélagi Vest-
mannaeyja og Tryggvi Leifur
Óttarsson úr Taflfélagi Snæ-
fellsbæjar en aðrir stjórn-
armenn eru Óttar Felix
Hauksson úr Taflfélagi
Reykjavíkur, Björn Þorfinns-
son úr Taflfélaginu Helli,
Bragi Kristjánsson úr Skák-
deild KR og Helgi Árnason úr
Skákdeild Fjölnis.
Guðfríður Lilja segir að góð
stemning hafi ríkt á fundinum
og mikil sátt hafi ríkt um störf
stjórnar á undanförnum ár-
um. Þrátt fyrir það tilkynnti
hún að næsta starfsár yrði lík-
ast til hennar síðasta sem for-
seti sambandsins. Í samtali
við Morgunblaðið dró hún þó
aðeins úr yfirlýsingu sinni.
„Maður á nú aldrei að vera
með neinar yfirlýsingar, en ég
hef sagt að ef manni tekst
ekki á þremur árum að koma
þeim hlutum í verk sem mað-
ur vill koma í verk, þá leggur
maður sig ekki nógu mikið
fram. Ástæðan fyrir því að ég
bauð mig nú fram aftur var
einfaldlega sú að það eru
ennþá tiltekin verkefni sem ég
vil sjá að gerist,“ segir Guð-
fríður Lilja og nefnir þar m.a.
skákkennslu í grunnskólum
sem sé lykillinn að vexti skák-
arinnar til framtíðar. „Það
hefur verið mikil umræða um
skák í skólum og skólastarfi
og nú eru ýmsir möguleikar
að opnast þar, það verður að
tryggja að það verkefni festist
í sessi til frambúðar.“
Miklar væntingar
Framundan hjá Skák-
sambandinu er Ólympíu-
skákmótið í Tórínó á Ítalíu
sem hefst á sunnudag. Karla-
og kvennasveit verður send út
og segist Guðfríður vænta
mikils af karlaliðinu en þar
gefur Jóhann Hjartarson aft-
ur kost á sér. „Hann er nátt-
úrlega stigahæsti skákmaður
Íslands frá upphafi og hefur
þá sérstöðu að hann er einn af
örfáum skákmönnum sem
virðast aldrei gleyma neinu.
Flestir ryðga mjög fljótlega ef
þeir eru ekki alltaf að tefla en
Jóhann hefur sýnt það og
sannað að hann er ennþá al-
veg ótrúlega sterkur.“
Aðrir sem eru í karla-
sveitinni eru Hannes Hlífar
Stefánsson, Helgi Ólafsson,
Henrik Danielsen, Þröstur
Þórhallsson og Stefán Krist-
jánsson.
Guðfríður Lilja segist jafn-
framt vera spennt fyrir
kvennasveitinni en þar á hún
sæti sjálf. „Ég geri mér vonir
um að við náum allavega góðu
sæti í okkar flokki. Þetta er
mjög skemmtileg sveit og
sterkasta kvennasveit sem Ís-
land hefur sent í keppni,“ seg-
ir Guðfríður Lilja en ásamt
henni eru í sveitinni Lenka
Ptácníková, Guðlaug Þor-
steinsdóttir og Sigurlaug
Kristjánsdóttir.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir endurkjörin forseti Skáksambands Íslands
Líklega síðasta árið sem forseti
Morgunblaðið/Árni Torfason
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands.
HÉRAÐSDÓMUR Reykja-
ness dæmdi í gær leigubílstjóra
til að greiða 15 þúsund kr. sekt
fyrir að hringja ekki í lögreglu
eftir að hann hafði ekið á
drukkinn mann við skemmti-
staðinn Players í febrúar sl.
Tók bílstjórinn hinn slasaða
upp í bílinn, keyrði hann á
slysadeild og lét sig síðan
hverfa. Maðurinn var fótbrot-
inn.
Lögreglan leitaði bílstjórans
í kjölfarið og hafði til stuðnings
símanúmer hans sem birst
hafði á farsíma hins slasaða en
lítið gekk í fyrstu að hafa uppi á
honum. Stóð lögreglan sam-
býliskonu hans að því að segja
ósatt um að hún þekkti hann
ekki en síðan viðurkenndi hún
hið sanna. Hafði maðurinn þá
ekki viljað láta ná í sig. Gaf
hann síðan þær skýringar að
hann hefði ekki haft vit á því að
tilkynna slysið á sínum tíma.
Málið dæmdi Ólöf Péturs-
dóttir dómstjóri. Verjandi
ákærða var Guðmundur Ingvi
Sigurðsson hdl. og sækjandi
Guðmundur Siemsen, fulltrúi
lögreglustjórans í Kópavogi.
Slasaði
mann og
stakk af
FRAMKVÆMDASTJÓRI RÚV
hljóðvarps, Dóra Ingvadóttir, útilok-
ar ekki að hægt verði að láta óstofn-
uðu Pólyfónfélagi
í té afrit allra not-
aðra hljóðritana
Pólýfónkórsins
sem starfaði á ár-
unum 1957 til
1989. Hið óstofn-
aða félag hefur
skorað á mennta-
málaráðherra og
forráðamenn
RÚV að bjarga
upptökum á efni kórsins frá glötun
og óskað þess að fá afrit hljóðritana
til útgáfu úrvals.
Dóra bendir hins vegar á að ekk-
ert erindi í þessa veru hafi borist
RÚV frá hinu óstofnaða félagi og
ekki sé til fjármagn hjá RÚV til að
bjarga efni Pólýfónkórsins frá glöt-
un. Starfsmenn RÚV séu nú af veik-
um mætti að bjarga allra elsta efni
útvarpsins af lakkplötum sem eru
frá því fyrir tíð Pólýfónkórsins. RÚV
eigi ennfremur útgáfurétt á mörgu
sem hljóðritað er, m.a. með Pólýfón-
kórnum. Hins vegar hafi ekki verið
vandamál að semja um hlutina á
sanngjörnum kjörum í tilvikum sem
þessum. Það sé þó vinnslan á efninu
yfir á stafrænt form sem geti verið
dýrasti þátturinn, hún útheimti gíf-
urlega vinnu í sumum tilvikum.
Til að hið óstofnaða Pólýfónfélag
fái afrit af hljóðritununum væri því
einfaldast að félagið greiddi fyrir af-
ritunarvinnuna, að sögn Dóru. Hún
telur að mjög mikið efni með kórnum
sé til hjá RÚV og meðal þess sem
þurfi að gera sé að kanna umfang
efnis sem til er en það útheimti einn-
ig talsverða vinnu.
Hljóðritanir
Pólýfónkórs
kannaðar
Dóra Ingvadóttir
ÞÓ NOKKUR fjöldi hefur sýnt
áhuga á því að leigja ríkisjarðirnar í
Selárdal í Arnarfirði sem landbún-
aðarráðuneytið auglýsti til leigu fyrr
í mánuðinum.
Að sögn Níelsar Árna Lund, skrif-
stofustjóra í landbúnaðarráðuneyt-
inu, hafa fá tilboð verið send inn en
mikið hefur verið hringt og spurt um
jarðirnar.
Níels sagði að bæði hefðu aðilar
sem tengdust svæðinu og aðilar sem
hefðu lítið sótt það heim sýnt áhuga
á því, enda um miklar náttúruperlur
að ræða.
Umsóknarfrestur rennur út þann
15. júní, en jarðirnar verða leigðar út
í 50 ár í senn.
Selárdalur
vekur áhuga
♦♦♦
EINAR Kr. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra
tekur þó fram að hann sé sammála forsætisráð-
herra um það að þessi mál hljóti ávallt að vera til
umræðu.
„Og auðvitað geta aðstæður breyst í einhverri
framtíð sem ég sé ekki á þessari stundu. Sem
dæmi, þá höfum við verið að taka tiltekin skref.
Til dæmis liggur nú fyrir Alþingi frumvarp sem
er á lokastigum afgreiðslu þar sem opnað er á
heimildir útlendinga til að fjárfesta í íslenskum
fiskmörkuðum. Ég flutti það frumvarp, þannig
að einhver hefði sagt að þar hefði komið vel á
vondan, en ég tel hins vegar að þar gegni öðru
máli og að það sé sjálfsagður hlutur.“
Ávallt til umræðu