Morgunblaðið - 17.05.2006, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.05.2006, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SEM barn hafði ég ekki gaman af brúðum og eina brúðuleikhúsið sem ég sá var Baldur og Konni. Fullorðin hef ég heillast, kannski þess vegna mest af þeirri tegund brúðuleikhúss þar sem brúðustjórnandi er sýnilegur, að horfa á mann og brúðu; sjá hvernig andi hans eins og hverfur úr líkamanum og flytst inn í brúðuna, sjá manninn tæmast, líkjast hylki eða andlits- lausum skugga sem þögull hreyfir strengi lif- andi brúðunnar – og vita þó af einbeitingunni, orkunni, tilfinningu hugsunarinnar sem er þarna í skugganum, eða hvað? Það gerði mig líka andaktuga í sýningu Bernds Ogrodnik og að sjá umgengni hans milli atriða við brúð- urnar og leikmunina, hve mjúkum, hægum höndum hann fór um þau, hvernig hann eitt sinn strauk undurblítt yfir einn leikmuninn, eftir örlítið hnjask, svona eins og til að hugga hann. Bernd birtist okkur spilandi á banjó sitjandi á heljarstóru hnattlíkani máluðu í brúnum, grænum, bláum vatnslitum. Á þessum hnetti gerist svo einnig fyrsta verkið, þar birtast pínulitlir rauðir skór, fingur stinga sér í skóna og úr verða fætur; trékúla milli annarra fingra og úr verður haus „Grindahlauparans“, sem gerir tilraunir til að hlaupa yfir heimsálfur, óttast að dýfa fæti í úthafið, rennir sér yfir norðurpólinn, lendir klofvega yfir grindina, úff það var sárt! En eftir það opnast hnötturinn, skiptist upp í þrjá hluta, og í þeim eru geymd- ar allar brúðurnar og leikvellir fyrir hinar ör- sögurnar eða ljóðin sjö sem hann segir fyrir hlé um fegurð, drauma, æsku og elli, frels- isþrána, grimmd, eyðileggingarhvöt mannsins og dauða. Ótrúlegt að sjá hvernig persóna og ævintýri, gleði og sorg spretta nánast upp úr engu, verða til úr hendi, nokkrum fingrum, einni slæðu. Í „Fegurðarskyni“ verður brúðan hins veg- ar til úr brúðuleikaranum öllum. Hann situr með hana, slæðubrúðuna sem er hann, í fang- inu; undan rauðum klúti fætur hans, berir að ökkla, hnefi upp úr klúti með klút, á milli fingra augu úr tré: Hún rigsar um konan, horf- ir í spegil, henni bregður, nefið á henni lengist, ó, ó, henni vex skegg, þvílík gæfa! Og áfram umbreytist hún, hin höndin núna í kónguló, marglyttu, fisk og loks fagran fugl sem flýgur burt. Viðkvæmnislegri, ljóðrænni eru slæðubrúð- urnar „Móðir og dóttir“: tvær hendur, tvær slæður, tvær grímur (margar grímur). Og úr verður undursamleg einföld saga allra alda um fæðingu, umönnun og ást, barnið sem vex úr grasi og annast síðan hina eldri í elli og dauða. Svo eru þarna strengjabrúður, klassískt stef í brúðuleikhúsi; „Frelsi“, nakin brúðan berst við brúðustjórnandann fyrir frelsi sínu, hún hegg- ur á hvíta höfuðstrenginn, lífsþráðinn, hún deyr. Einnig Bunrakubrúður eins og í „Draumi drengsins“, nokkurs konar brúðu- leikhús í brúðuleikhúsi, þar sem leik- fangahestur verður lifandi og fer með sofandi drenginn í ferðalag og mikil er furða hans og tregi þegar hann vaknar. Og blómálfurinn í „Ráninu“, stjórnað af örsmáum stöngum, feg- urð hans er svívirt, hann brotnar undan of- beldinu, bæklast. Þvílík hreyfingalist. Seinni hluti sýningarinnar samanstendur af þremur lengri verkum: „Ástarsögu“ fingra- brúða, brúðkaupi, hjónabandi, mikilli gam- ansögu; „Einari Einarssyni“ sem einnig er gamansaga úr viku í lífi nútímamanns sem býr einn með ketti. Verk byggt inn í kassa leik- sviðs, strengjabrúður með lýsingu og hljóð- effektum; og „Trúarstökki“ sem Bernd hefur sagt í viðtali „að fjalli um að manneskjan hafi alltaf val, hann sýni lítinn mann sem hlaupi í átt að ljósinu, komi að hyldýpi og þurfi að taka ákvörðun um hvort hann eigi að stökkva“. Eitthvað gerðist í því verki sem hindraði skiln- ing, andstæðan milli mannsins fasts í snún- ingshjóli og mannsins sem hleypur varð ekki skýr, hreyfingar brúðanna óljósar, umbún- aðurinn of mikill, aðeins fagur dimmur helgi- hljómurinn í lýsandi hljómskálinni verður eftir í huganum af því verki. Reyndar hreifst ég ætíð meir af þeim verk- um þar sem umbúnaðurinn var lítill, því um- búnaðurinn, leikhljóðin fjarlægja. Þau rjúfa sambandið við brúðuleikarann og undrið mikla sem á sér stað milli hans og brúðunnar; svipta mig þeirri ró, mildi og hlýju sem mér er vagg- að í og hrekja mig út úr tímanum langa, þeim forna og nýja, sem brúðuleikarinn hefur gefið mér. Undur einfaldleikans LEIKLIST Þjóðleikhúsið Brúðuleiksýning eftir Bernd Ogrodnik. Brúðuleikari, brúðugerð, leikmynd og tónlist: Bernd Ogrodnik. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Lýsing Páll Ragnarsson. Þjóð- leikhúsið, Kassinn, sunnudagur 14. maí kl. 17. Umbreyting – ljóð á hreyfingu „Ótrúlegt að sjá hvernig persóna og ævintýri, gleði og sorg spretta nánast upp úr engu, verða til úr hönd, nokkrum fingrum, einni slæðu,“ segir gagnrýnandi. María Kristjánsdóttir LANDSBÓKASAFN Íslands – háskólabókasafn í sam- vinnu við Listahátíð í Reykjavík og Eddu – útgáfu opnar á morgun, fimmtudag, sýninguna Myrkraverk og mis- indismenn – Reykjavík í íslenskum glæpasögum. „Við drögum fram borgarmynd íslenskra glæpasagna frekar en að rekja sögu íslenskrar glæpasagnaritunar,“ segir Katrín Jakobsdóttir íslenskufræðingur, einn að- standenda sýningarinnar. „Sýningin er Reykjavíkur- miðuð og hefst á árinu 1932 með bókinni Leyndardómar Reykjavíkur. Svo tökum við stikkprufur alveg til ársins 2005 og reynum að sýna þær borgarmyndir sem birtast í sögunum.“ Lilja Gunnarsdóttir, ljósmyndari og teiknari, útbýr myndskreytingar við texta sem Katrín hefur samið um hverja sögu: „Þær bækur sem birta einna sterkastar lýs- ingar á borginni fengu að vera með, sér í lagi þær sem lýsa allt annarri Reykjavík en við verðum flest vör við hversdagslega,“ segir Lilja. „Sumar lýsingarnar koma skemmtilega á óvart og sýna allt annan reykvískan raun- veruleika en var á hverjum tíma.“ Undirheimar Reykjavíkur verða til „Það eru mjög ólíkar borgarmyndir sem við höfum fundið í glæpasögunum; margar Reykjavíkur,“ bætir Katrín við. „Íslenskir glæpasagnahöfundar eiga það sammerkt að þeir reyna að búa til trúverðugar sögur og þá skiptir máli að hafa trúverðugt sögusvið líka. Íslensku undirheimarnir virðast hafa orðið til mjög snemma í bók- menntunum en mismunandi hvernig höfundar nota sam- tímann sem sögusvið. Í elstu bókinni er Reykjavík lýst á ævintýralegan hátt sem mikilli stórborg með fjallháum stórhýsum, bílastraumi og mannþröng, en á þessum tíma bjuggu aðeins um þrjátíu þúsund manns í borginni. Höf- undar draga ýmist upp mynd af Reykjavík sem lastabæli eða draumalandi. Sumir nota alla borgina sem sögusvið og aðrir halda sig niðri í Austurstræti. Sumir tjá út- hverfin sem eyðibyggðir og aðrir sem lifandi hverfi. Svo má finna skemmtilegar endurtekningar, til dæmis er sumarbústaðabyggðin fyrir utan borgina vinsælt sögu- svið líkamsmeiðinga, þangað sem fólk er dregið, barið og skilið eftir. Það er líka algengt að Reykjavík virðist sam- ansafn af sveitamönnum, sem komnir eru saman í ein- hverri stórborg og ráða ekki alveg við það.“ Vetrarborgin í teiknimyndasögu Á sýningunni eru 20 myndskreyttir flekar þar sem sögusviði hverrar bókar eru gerð skil og sett í sagn- fræðilegt samhengi við Reykjavík þess tíma. Til viðbótar við framlag Katrínar og Lilju hefur Halldór Baldursson myndlistarmaður unnið myndskreytingar við Vetrar- borgina, bók Arnaldar Indriðasonar. Halldór kaus að nota myndasöguformið og vinnur myndverk úr hundr- uðustu hverri síðu bókarinnar. Hann ber þannig niður með skipulögðum en þó tilviljanakenndum hætti í sögu- þræði bókarinnar, eins og Katrín kemst að orði: „Það er mjög spennandi að sjá lokaútkomuna. Hann hefur búið til persónur Erlendar og félaga sem er skemmtilegt að sjá. Ég hef fengið að kynnast því að Erlendur er persóna sem á sér stað í hjörtum þjóðarinnar og allir eiga sinn Erlend.“ Lilja bætir við: „Í því fólst ein stærsta áskor- unin í myndskreytingunum, því þeir sem þekkja bæk- urnar sem við tökum fyrir hafa gert sér ýmsar hug- myndir um þær og sögupersónurnar. Ég forðast því að reyna að setja nýtt andlit á söguhetjurnar, koma þeim á mynd án þess þó að skemma fyrir fólki þeirra eigin hug- myndir.“ Umsjónarmaður sýningarinnar er Emilía Sigmars- dóttir. Bókmenntir | Borgarmynd Reykjavíkur í glæpasögum Myrkur miðbær og vara- samir sumarbústaðir Skuggaleg götumynd Reykjavíkur sem morar í leynilegum spilavítum og drykkjubúllum. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Sýningin Myrkraverk og misindismenn – Reykjavík í ís- lenskum glæpasögum verður í Landsbókasafninu til 31. ágúst og opin á afgreiðslutíma safnsins. ÚTVARPSMAÐURINN og rithöf- undurinn Garrison Keillor hefur skemmt bandarískum hlustendum í rúm þrjátíu ár með útvarpsþætti sínum A Prairie Home Companion. Þátturinn blandar saman tónlist og gamansögum og er ávallt fluttur fyrir framan áhorfendur í beinni út- sendingu. Í gærkvöldi var þátturinn fluttur frá stóra sviði Þjóðleikhúss- ins fyrir framan íslenska áhorf- endur og sendur út beint á Rás 2. Blaðamaður náði að spjalla við Keillor skömmu áður en þátturinn fór í loftið í gærkvöldi. Hvernig gengur undirbúning- urinn? „Við vinnum að þættinum alveg fram á síðustu stundu. Þátturinn hefst klukkan átta og ég býst við að ég verði ennþá að skrifa hann í kringum sjöleytið.“ Vinnurðu alltaf þannig? „Ég hef verið að gera þetta í þrjátíu og tvö ár og af einhverjum ástæðum virðist ég aldrei ætla að geta unnið fram í tímann. Öllu er ýtt fram að síðustu metrunum. Ég held að ég byrji aldrei að skrifa þáttinn fyrr en í mesta lagi tveimur dögum fyrir útsendingu.“ Af hverju ákvaðstu að gera þátt- inn hérna? „Ég á íslenskan vin í Bandaríkj- unum sem kemur alltaf hingað á sumrin. Hann hefur verið að reyna að fá mig til að heimsækja Ísland í mjög langan tíma en ég hef alltaf sagt honum að ég hefði alls ekki tíma til þess þar sem ég væri stöð- ugt að vinna. Þá stakk hann upp á því að ég skyldi þá einfaldlega vinna hérna á Íslandi og flytja þátt- inn hingað. Og það var það sem ég gerði.“ Hver er meginhugmyndin á bak við þennan þátt? „Í þættinum eru sameinaðir mis- munandi hlutir eins og brandarar, sögur og tónlistarflutningur í eitt og sama atriðið. Í kvöld reynum við líka að bæta við örlítilli fræðslu um Ísland fyrir bandarísku hlustend- urna. Þetta snýst þannig um fjöl- breytni og að setja mismunandi hluti saman. Enn fremur snýst þátturinn um útvarpið sjálft. Í Bandaríkjunum er útvarpið að koma sterkt inn aftur. Útvarpið er mjög sterkur miðill og það er meðal annars vegna þess að það getur far- ið hvert sem er. Það hentar vel fólki við vinnu, við ferðalög, við að hjóla, við að ganga, við ýmiss konar leikfimi og við annað sem fólk gerir á laugardögum. Það er hægt að taka útvarpið með í næstum hvað sem er. Það sem við erum að reyna að gera er að bjóða bandarískum hlustendum upp á eitthvað sem er ólíkt öllu öðru. Fréttirnar eru alltaf á sínum stað og allar tónlistarteg- undirnar hafa sína ákveðnu stöð. Við sameinum allt þetta í eina sýn- ingu með lifandi tónlistarflutningi og við bætum síðan við gríni og höf- um auk þess áhorfendur sem lífga upp á stemninguna.“ Finnst þér mikilvægt að hafa áhorfendur? „Já, tvímælalaust. Þegar maður er með uppistand er mjög mik- ilvægt að hafa eitthvert fólk fyrir framan sig. Það er tilgangur uppi- stands, gamanmál er hlutur sem hlegið er að. Ef það er ekki hlegið að því þá er ekki hlegið að því.“ Menning | Þjóðleikhúsið hýsti í gær einn vinsælasta útvarpsþátt Bandaríkjanna Brian Velenchenko Útvarpsmaðurinn snjalli Garrison Keillor. Máttur útvarpsins Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.