Morgunblaðið - 17.05.2006, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 27
UMRÆÐAN
AÐ UNDANFÖRNU hefur at-
hygli okkar verið beint að hönnun
með ýmsum hætti. Nýir íslenskir
hönnuðir koma fram á sjónar-
sviðið, kennsla hefur verið aukin í
faginu og hönnunarvettvangur
tók til starfa á síðasta ári. Gaman
væri ef Ísland yrði í framtíðinni í
hópi þeirra nágrannaríkja okkar
þar sem hönnun á sér jafnríka
hefð og í Danmörku
og Finnlandi en þar
eru nöfn Alvars Aalto
og Arne Jacobsen
órjúfanlega tengd
þessu sviði.
Samtímis hefur átt
sér stað öllu óheilla-
vænlegri þróun sem
stefnir í voða því orð-
spori sem frumleg og
vönduð hönnun
ávinnur sér. Eftirlík-
ingar af þekktum
hönnunarfyr-
irmyndum (e.: design
icon) flæða yfir hinn vestræna
heim, flestar framleiddar í Kína.
Því er nauðsynlegt fyrir hönnuði,
framleiðslu- eða umboðsaðila og
aðra er starfa við hönnun, að gefa
gaum þeirri réttarvernd sem
hönnuðum stendur til boða. Jafn-
framt er mikilvægt að hinn al-
menni neytandi sé á varðbergi og
hafni því að kaupa eftirlíkingar.
Sumir leiða ekki hugann að því að
framleiðendur eftirlíkinga not-
færa sér með ólöglegum hætti
orðspor og viðskiptavild hönnunar
sem tekið hefur langan tíma og
fjármuni að þróa og markaðs-
setja.
Allri sköpun er veitt rétt-
arvernd með einhverjum hætti.
Flestar listgreinar, svo sem tón-
list, ritlist, myndlist og kvik-
myndagerð, nýta sér eingöngu þá
vernd sem veitt er með höfund-
arrétti. Nytjalist hefur lengi notið
verndar samkvæmt höfundalög-
um, bæði hér landi og erlendis. Í
framkvæmd hefur húsgagnahönn-
un í hvað ríkustum mæli nýtt sér
þessa vernd, nefna má þýska
dóma frá 8. áratug síðustu aldar
um höfundaréttarvernd nokkurra
þekktra hönnunarfyrirmynda og
brot á henni með sölu eftirlíkinga.
Erlendis hafa hin seinni ár gengið
dómar um vernd annarra nytja-
hluta svo sem Mini Maglite vasa-
ljós Tony Maglica og Vola blönd-
unartæki Arne Jacobsen. Fyrir
nokkru staðfestu tveir héraðs-
dómar hér á landi höfundarrétt-
arvernd yfir tveim þekktum stól-
um, annars vegar Bombo
(þekktastur sem barkollur), sem
er hannaður af Stefano Giov-
annoni og framleiddur af Magis
spa á Ítalíu, og hins
vegar Tripp Trapp
barnastólnum sem
hannaður er af Peter
Opsvik og fram-
leiddur af Stokke AS
í Noregi.
Það eru ekki ein-
göngu eftirlíkingar af
húsgögnum sem
flæða yfir Vest-
urlönd. Framleið-
endur tískufatnaðar
og fylgihluta hafa
orðið fyrir barðinu á
þessum iðnaði. Í
þessum tilvikum er aðstaðan iðu-
lega sú að þekkt vörumerki hafa
áunnið sér viðskiptavild almenn-
ings. Eftirlíkingar af slíkum varn-
ingi eru framleiddar í stórum stíl,
stundum sem falsanir undir
þekktu vörumerki en í öðrum til-
vikum er eingöngu líkt eftir varn-
ingnum án þess að hann sé
merktur með tilteknu vörumerki.
Í fyrra tilvikinu er um að ræða
brot á vörumerkjarétti en í því
síðara getur verið um að ræða
brot á hönnunarvernd.
Í flestum tilvikum eru aðrar
reglur en lög um höfundarrétt
betur til þess fallnar að vernda
hönnun fatnaðar þó dæmi séu um
það erlendis frá að slík hönnun
hafi verið talin njóta höfundarétt-
arverndar. Flestir þekkja reglur
um vörumerkjavernd og fyrirtæki
eru í auknum mæli farin að gefa
því gaum að vernda vörumerki
sín með skráningu. Hönn-
unarvernd hefur ekki verið jafn-
mikill gaumur gefinn. Hönn-
unarvernd var fyrst lögleidd hér
á landi árið 1993 en ný lög um
hönnun tóku gildi árið 2001.
Hönnunarréttur tekur til útlits
vöru eða hluta vöru sem ræðst af
einstökum þáttum eða skreytingu
vörunnar, einkum línum, útlínum,
litum, lögun, gerð og/eða efni. Til
að öðlast hönnunarrétt þarf að
skrá hönnun hjá Einkaleyfastofu
en með nýju lögunum var felld úr
gildi óskráð hönnunarvernd er
unnt var að öðlast í tíð eldri lag-
anna.
Nokkur þróun hefur orðið á er-
lendum vettvangi sem miðar að
því að hönnunarréttur gildi í öðr-
um ríkjum en heimalandi rétthafa
með sama hætti og er um vöru-
merkjarétt. Íslenskir rétthafar
geta skráð hönnun í einstökum
ríkjum en að auki geta þeir með
einni umsókn nýtt sér annars
vegar alþjóðlega skráningu hönn-
unar í ríkjum sem eru aðilar að
svokölluðum Genfarviðauka við
Haag sáttmálann frá 1925 (aðild-
arríki nú 19) og hins vegar á
grundvelli reglugerðar Evrópu-
sambandsins frá 2002 skráðan eða
óskráðan hönnunarrétt sem gildir
í öllum ríkjum sambandsins.
Af þessu sést að hönnuðir og
framleiðendur hafa, sé rétt á mál-
um haldið, úrræði til að vernda
hönnun sína og til að gæta réttar
síns vegna eftirlíkinga af henni,
einnig erlendis. Virk vernd er
meðal forsendna þess að þessi
grein geti vaxið og dafnað í fram-
tíðinni. Það er vissulega gaman
að sitja á Sjöu Arne Jacobsen í
kaffistofum opinberra bygginga í
Reykjavík en ekki væri síðra að
húsgögn íslenskra hönnuða
myndu í auknum mæli í leiðinni
gleðja augu safnagesta meðan
þeir hvíla lúin bein.
Réttarvernd hönnunar
Erla S. Árnadóttir
fjallar um hönnun ’Af þessu sést aðhönnuðir og fram-
leiðendur hafa, sé rétt á
málum haldið, úrræði til
að vernda hönnun sína og
til að gæta réttar síns
vegna eftirlíkinga af
henni, einnig erlendis.‘
Erla S. Árnadóttir
Höfundur er hæstaréttarlögmaður
hjá LEX.
BIÐLISTAR eða biðraðir eru
þekkt fyrirbæri á mörgum sviðum
mannlegra þarfa, mismunandi þrá-
lát og nauðsynleg. Dæmi um bið-
lista, sem eru horfnir, eru biðraðir
hjá bankastjórum og eftir að fá leyfi
til að flytja inn óskemmdar kart-
öflur. Dæmi um biðlista, sem virðast
ekki hafa myndast, er að komast að
hjá tannlækni, eða augnlækni í
„leysiaðgerð“ til að ráða bót á sjón-
skekkju. Dæmi um biðlista, sem
hafa styst, er eftir
heyrnartækjum.
Dæmi um biðlista,
sem enn þrífast og
dafna, er að komast
að í hjartaþræðingu,
liðskiptaaðgerðir,
augasteinaskipti,
greiningu á geð-
röskun barna, tækni-
frjóvganir, fá vist á
öldrunarstofnunum,
og að komast að til að
stjórna landinu.
Dæmi um biðlista,
sem hefur verið að
myndast, er að fá að
reisa fleiri álver í
landinu og afla raf-
orku til þess.
Eins og sjá má á
þessari upptalningu,
getur varla verið gam-
anmál að vera skipað
til sætis á sumum
þessara biðlista, að
ekki sé talað um að
neyðast til að bíða
nauðsynlegrar heil-
brigðisþjónustu miss-
erum og árum saman.
Ýmislegt má læra af
því að kanna, hvers
vegna biðlistar, sem
áður voru til staðar,
eru það ekki lengur.
Hvers vegna t.d. eru
ekki lengur biðraðir
eftir lánsfé? Hvers
vegna er langur bið-
listi eftir að fá skipt um augastein,
en unnt að komast fyrirvaralítið í
„leysiaðgerð“ til að laga skekkju á
sjón og losna við gleraugu? Hvers
vegna tekur mörg ár að bíða eftir að
fá gert við lið í hné, en unnt að kom-
ast nánast samdægurs til tann-
læknis? Hvernig stendur á að börn í
brýnni neyð vegna geðraskana fá
ekki greiningu, sem er lykill að
meðferð, sem getur ráðið úrslitum
um lífshamingju þeirra og framtíð?
Ég hef sjálfur ekkert skyn-
samlegt svar við þessum spurn-
ingum. Ég veit að peningaleysi er
borið við. En er það eitt og sér góð
og gild skýring? Það þarf ekkert
meira fé til að hafa að jafnaði undan
í læknisaðgerðum, á meðan biðlist-
arnir sjálfir lengjast ekki. Biðlistar,
sem ekki lengjast, en eru engu að
síður óhóflega langir, bera að
margra hyggju vott um slóðaskap,
skipulagsleysi og virðingarleysi fyr-
ir þeim, sem þurfa að líða fyrir slík
vinnubrögð.
Ef biðlistar lengjast hins vegar
stöðugt, anna þeir, sem hafa tekið á
sig þær skyldur að sjá fólki fyrir
læknishjálp, greinilega ekki verk-
efnum sínum. Þá koma peningar
vitaskuld við sögu. En verður þá
ekki að horfast í augu við slíkt? Eða
á að láta þá, sem hingað til hafa beð-
ið í 2 ár eftir læknisaðgerð, bæta
smátt og smátt við þann tíma, uns
biðin verður 3 ár og síðan 4?
Hvað með gamla fólkið, sem bíður
eftir vist á elliheimilum? Á að láta
það bíða á spítölum og taka þar
pláss frá spítalasjúklingum – eða
bíða bjargarlítið heima, þar til for-
lögin rýmka fyrir því
eða þurrka það beinlínis
út með öðrum hætti?
Eins og áður er tekið
fram, hef ég ekkert
skynsamlegt svar við
þessum spurningum,
sem kemur ekki að sök,
þar sem ég er hvort eð
er ekki hafður með í
ráðum. Mig langar þó
að koma á framfæri
hugmynd, sem kvikn-
aði, þegar upp fyrir mér
rifjaðist erindi, sem
flutt var í Ríkisútvarp-
inu fyrir réttum 10 ár-
um um lærdómsmann-
inn dr. Guðmund
Finnbogason, lands-
bókavörð (1873-1944). Í
erindinu var vísað í rit-
ið Stjórnarbót eftir
Guðmund, sem kom út
árið 1924.
Síðasti kafli ritsins
Stjórnarbót nefnist
„Friðslit“. Þar varpar
Guðmundur fram þeirri
hugmynd, að þjóð-
arleiðtogar og aðrir
þeir, sem tækju þátt í
að segja öðrum þjóðum
stríð á hendur, yrðu
sjálfir skyldaðir til að
vera óbreyttir liðsmenn
þess hers, sem færi
fyrstur gegn óvininum.
„Af þeim, er þjóðin fær
í hendur vald til að
senda borgarana út í baráttu upp á
líf og dauða, virðist ekki með neinni
skynsemd minna heimtandi en að
þeir séu sjálfir reiðubúnir að færa
þá fórn, er þeir krefjast af samborg-
urum sínum...“. Rétta svarið við
skipunum þeirra þjóðarleiðtoga, er
sjálfir vilja sitja óhultir bak við fylk-
ingar, er: „Farið á undan, vér mun-
um fylgja“. (Sjá ritið „Hugur ræður
hálfri sjón“ bls. 85-96, Háskóla-
útgáfan, Rvík, 1997).
Er þessi hugmynd dr. Guð-
mundar Finnbogasonar svo galin,
þótt hún hafi ekki enn komið að því
gagni, sem henni var upphaflega
ætlað?
Alþingi fer með löggjafarvald og
fjárveitingarvald og veitir ríkis-
stjórnum umboð. Hvernig væri, að
allir þeir, sem hefðu einhvern tíma
setið á Alþingi, yrðu skyldaðir til að
skipa ávallt öftustu sæti á öllum
þeim biðlistum, sem alþingismenn
og umboðsmenn þeirra véla um? Þá
myndu þeir komast síðastir að, þeg-
ar á læknishjálp eða sjúkrahúsvist
þarf að halda, og komast síðastir að
á elliheimili, og yrðu þar lengst allra
að deila herbergi og snyrtiaðstöðu
með öðrum.
Þessi tillaga kann að líta nokkuð
hranalega út við fyrstu sýn, en mér
segir hugur, að við samþykki henn-
ar myndu biðlistar hverfa, nánast
eins og dögg fyrir sólu – og allir
verða jafnir og samferða. Öðru eins
Grettistaki hafa alþingismenn lyft,
þegar þeir hafa sjálfir þurft á því að
halda.
Það eru óskráð lög, að skipstjóri
fari síðastur frá borði, sökkvi skip
hans. Ætti það sama ekki að gilda
um alþingismenn, ef það „velferð-
arkerfi“, sem þeir stýra og hafa
sjálfir skapað – sekkur undan eigin
þunga?
Biðlistar – Þeir
fyrstu verði síðastir
Eggert Hauksson
fjallar um biðlista
Eggert Hauksson
’Það eru óskráðlög, að skipstjóri
fari síðastur frá
borði, sökkvi
skip hans. Ætti
það sama ekki að
gilda um alþing-
ismenn, ef það
„velferðarkerfi“,
sem þeir stýra
og hafa sjálfir
skapað, sekkur
undan eigin
þunga?‘
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Í grein eftir mig undir heitinu
„Orka handa álverum“ sem
birtist í Morgunblaðinu 16. maí
hefur brenglast – úr mínum
penna – setning sem blaðið not-
ar sem tilvísun í ramma. Rétt
átti setningin að vera svona:
„Við eigum ekki að þurfa að
vera bangin í viðsjálum heimi
orkuframboðs og orkuverðs.
En í því skyni þarf lang-
tímastefnu; ekki aðeins um ál-
ver heldur ekki síður um aðrar
þarfir, þ.m.t. vegna nátt-
úruverndar.“
Athugasemd frá
Þorkeli Helgasyni
orkumálastjóra
Í 75 ár hefur Dethleffs verið í fararbroddi í gerð framúrskarandi hjólhýsa
og nú á afmælisárinu eru það viðskiptavinirnir sem fá afmælisgjöfina:
100.000 kr. inneign í nýju fortjaldi frá Isabella sem fylgir hverju nýju
Dethleffs hjólhýsi.
Nýtt Dethleffs hjólhýsi
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
með 100.000 kr. afmælisgjöf til þín
Umboðsmaður á Akureyri:
Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2