Morgunblaðið - 17.05.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 35
Sjálfstæðisfélag
Kópavogs
Viðtalstími
frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Í dag, miðvikudaginn 17. maí kl. 17-18, verður
viðtalstími á kosningaskrifstofu Sjálfstæðis-
félaganna í Kópavogi í Hlíðasmára 19 með
Gunnsteini Sigurðssyni bæjarfulltrúa sem skip-
ar 2. sæti á lista sjálfstæðismanna fyrir kom-
andi sveitarstjórnarkosningar.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Stofnfundur
Stofnfundur nýs stéttarfélags MATVÍS sem
stofnað er upp úr Matvæla- og veitingasam-
bandi Íslands verður á Hótel Holti, Þingholti,
miðvikudaginn 17. maí kl. 19.30.
Félagar í MATVÍS eru hvattir til að mæta.
Auglýsing
um deiliskipulag í Leirár- og Melahreppi,
Borgarfjarðarsýslu
Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 og í samræmi við
auglýst aðalskipulag Leirár- og Melahrepps,
er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu
að breytingu á deiliskipulagi fyrir frístundahús,
gæludýragrafreit, rafstöð og hafbeitarstöð í
landi Hafnar, Leirár- og Melahreppi, Borgar-
fjarðarsýslu. Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun frí-
stundahúsa í Ölveri um 5 lóðir og Móhól um
12 lóðir. Á tillögunni er einnig gert ráð fyrir
gæludýragrafreit ásamt þjónustubyggingu,
endurbyggingu á rafstöð og hafbeitarstöð.
Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmál-
um liggur frammi hjá oddvita á Eystri-Leirár-
görðum frá 17. maí 2006 til 14. júní 2006 á
venjulegum skrifstofutíma.
Þeim, sem telja sig hafa hagsmuna að gæta,
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytinguna. Skal þeim skilað skriflegum til
oddvita, Marteins Njálssonar, Eystri-Leirár-
görðum, fyrir 28. júní 2006 og skulu þær vera
skriflegar. Þeir, sem ekki gera athugasemd inn-
an tilgreinds frests, teljast samþykkir tillög-
unni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Ólafur K. Guðmundsson.
Aðalfundur
Félag íslenskra kafara heldur aðalfund miðviku-
daginn 31. maí nk. kl. 20.00 í Dalsal á Grand hót-
el í Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundastörf.
Kosning stjórnar.
Önnur mál.
Stjórnin.
Tilkynningar
á
Mat á umhverfisáhrifum -
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á
umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat
á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.
Breytingar á fiskeldi Salar Islandica ehf.,
í sjókvíum í Berufirði.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig
að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar:
www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 17. maí
2006.
Skipulagsstofnun.
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
er hér með auglýst tillaga að breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík.
Ellingsenreitur, Mýrargata 26.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Elling-
senreits vegna lóðarinnar að Mýrargötu 26.
Breytingin nær einungis til lóðarinnar að
Mýrargötu 26 og er gerð til að auka svigrúm
og auðvelda framkvæmdir við umferðarstokk
neðanjarðar undir nýrri Mýrargötu. Bygginga-
reitur á lóðinni er færður til um 3 metra til
norðurs frá Mýrargötu að lóðamörkum við
ónefnda götu norðan lóðarinnar.
Að öðru leyti gilda skilmálar og kvaðir sem
samþykktir voru þann 14. apríl 2005 í borgar-
ráði Reykjavíkur með deiliskipulagi Ellingsen-
reits.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 17. maí til og með 28. júní
2006. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu
sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við tillöguna skal skila
skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu-
lagsfulltrúa) eigi síðar en 28. júní 2006.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 17. maí 2006
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um
Hafnarfjörð og margvíslega starfsemi á vegum sveitar-
félagsins hjá þjónustuveri bæjarins í síma
585 5500 og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is.
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi Miðbæjar,
Reitur R2, Hafnarfirði
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi sínum þann 25. apríl 2006,
að auglýsa til kynningar breytingu á
deiliskipulagi Miðbæjarreits 2 í samræmi við
25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 m.s.br.
Breytingin felur í sér að heimiluð er ca 315 fm
stækkun á lóðinni nr. 1. við Linnetsstíg.
Heimilt er að reisa á lóðinni 5 hæða byggingu
allt að 460 fm að grunnfleti. Stigahús og
svalir mega ná allt að 3 m út fyrir bygg-
ingarreit að aftanverðu. Á framhlið skal
5. hæðin vera inndregin. Byggja skal 2ja
hæða bílakjallara undir húsinu sem tengist
fyrirhuguðum bílakjallara undir húsinu sem
tengist fyrirhuguðum bílakjallara við hlið
lóðarinnar. Gert er ráð fyrir að aðkoma
bílakjallarans sé um sameiginlega aksturs-
rampa utan lóðarinnar Linnetsstígur 1.
Deiliskipulagið verður til sýnis í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 16. maí
2006-13. júní 2006. Nánari upplýsingar eru
veittar á umhverfis- og tæknisviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytinguna og skal þeim skilað skriflega til
umhverfis- og tæknisviðs Hafnarfjarðarbæjar,
eigi síðar en 27. júní 2006. Þeir sem ekki gera
athugasemd við breytinguna teljast samþykkir
henni.
Umhverfis- og tæknisvið Hafnarfjarðar.
Styrkir
auglýsir eftir umsóknum um styrki
Umsækjendur þurfa að hafa verið nemendur í
Tónlistarskólanum á Akureyri og vera í eða
hyggjast sækja framhaldsnám í tónlist.
Í umsókninni skal koma fram námsferill
og framtíðaráform.
Umsóknin berist Tónlistarskólanum á Akureyri,
Hvannavöllum 14, 600 Akureyri,
merkt Þorgerðarsjóður, fyrir 26. maí 2006.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Minningarsjóður
Þorgerðar S. Eiríksdóttur
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Raðauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
100 ára afmæli
Í FRÉTT í blaðinu um 100 ára af-
mæli Donalds Brander sendikenn-
ara í gær, vantaði uppl. um heim-
ilisfang hans, fyrir þá sem vilja
senda honum heillaóskir og er beðist
velvirðingar á því. Heimilisfang er:
Donald Brander
Findlay House
Seafield Street, Edinburgh, EH67
Scotland
Gjáin fór í gilið
ÞAU mistök urðu við vinnslu korts
með greininni Rímnaskáldið góða,
sem birtist í síðustu Lesbók, að
Hvítabjarnargjá, sem er framan í
Heggstaðanesi, var sýnd innan við
Reyki. Þar er reyndar Hvítabjarnar-
gil, en svipvindurinn, sem hvolfdi
skipi Sigurðar Bjarnasonar, kom úr
gjánni framan í nesinu. Beðizt er
velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
OPINN fyrirlestur verður í
Bratta, Kennaraháskóla Íslands í
dag, miðvikudaginn 17. maí kl.
16.15-17.15. Fyrirlesari er Elsa
Sigríður Jónsdóttir lektor við
KHÍ.
Í fyrirlestrinum verður sagt frá
rannsóknum á aðlögun fjöl-
skyldna að nýju samfélagi.
Annars vegar verður greint frá
niðurstöðum rannsókna höfundar
á högum erlendra fjölskyldna sem
sest hafa að hérlendis og þar sér-
staklega beint sjónum að gengi
barna í skólum.
Hins vegar verður skýrt frá
rannsókn sem höfundur gerði á
rannsóknarmisseri sínu í háskóla
í Bandaríkjunum þar sem hann
reyndi á eigin skinni hvernig var
að vera útlendingur. Tekin voru
viðtöl við sjö fjölskyldur sem sest
höfðu að í Bandaríkjunum til að
stunda nám.
Fyrirlestur um aðlögun að nýju samfélagi