Morgunblaðið - 17.05.2006, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 17.05.2006, Qupperneq 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. www.xf.is www.f-listinn.is TUGIR manna ganga á fjöll í nágrenni Reykjavíkur klukkan sex að morgni þessa vikuna áður en þeir mæta til vinnu. Ferða- félag Íslands stendur fyrir göngunum sem eru ókeypis. Í gær var lagt á Vífilsfell, 655 metra hátt fjall við Sandskeið, í þoku og logni. Langstærstur hluti göngufólksins eru kon- ur og sumir ætla sér í göngu alla dagana. Þá vekur athygli að margir taka upp farsímann og hringja þegar komið er á toppinn til að vekja fjölskylduna. | 24 Árrisulir göngugarpar Morgunblaðið/Eyþór BYGGINGAVERKTAKAR á höf- uðborgarsvæðinu virðast nú halda að sér höndum í kaupum á lóðum fyrir framtíðaruppbygg- ingu íbúðarhúsnæðis, en vinna áfram ótrauðir að verkefnum sem þeir eru þegar komnir af stað með. Þeir verktakar sem Morgun- blaðið hafði samband við í gær staðfestu að erfiðara væri fyrir þá að fjármagna nýjar framkvæmdir með bankalánum. Þeir sem fjár- magna með öðrum hætti stað- festa einnig að verra aðgengi al- mennings að háum bankalánum vegna húsnæðiskaupa og hækk- andi vextir á lánunum geti haft einhver takmarkandi áhrif. „Verkefnastaðan hjá okkur er þannig að við erum búnir að fjár- magna þau verkefni sem við erum að fara í. En það er farið að þrengjast um hjá bönkunum. Þró- unarverkefni eiga ekki upp á pall- borðið hjá þeim,“ segir Jörundur Jörundsson, framkvæmdastjóri hjá Risi. Hann segir það liðna tíð að verktakar fái bankalán til að fjármagna hugmyndir um upp- byggingu sem hefjist eftir 4–5 ár, þar sem eftir sé að vinna deili- skipulag. „Fyrir einu til tveimur árum seldist allt, sama hvar það var, og lítill verðmunur var hvort sem keypt var nýtt eða notað. Það er kannski það sem mun breytast núna, staðsetningar munu skipta meira máli,“ segir Jörundur. Nálgast eðlilegt ástand Ekki er samt hægt að tala um að verktakarnir séu að fara í ein- hverja lægð, segir Snorri Hjalta- son, eigandi Trésmiðju Snorra Hjaltasonar. „Ég held að það sé frekar að við séum að fara í átt að eðlilegu ástandi í þjóðfélaginu. Það hefur ekki verið eðlilegt ástand undanfarið.“ Snorri staðfestir að hann hiki e.t.v. meira í dag en undanfarið áður en hann kaupir lóð eða hefur nýtt verkefni frá grunni. Þeim verkefnum, sem þegar hafi verið ráðgerð, verði þó haldið áfram af fullum krafti og þau dugi fyr- irtækinu næstu 2–3 árin, engin ástæða sé til mikilla ráðagerða um það sem á eftir komi strax. Markaðurinn að róast „Mín skoðun er sú að mark- aðurinn sé að róast eitthvað, en fyrirtækið okkar stendur það vel að við framleiðum þá bara og leigjum út ef ekki gengur að selja. Við höldum ótrauðir áfram og höfum sterka trú á íslensku at- vinnulífi,“ segir Snorri. „En eins og ástandið er í dag sé ég ekki ástæðu til að rjúka til og kaupa lóðir á uppsprengdu verði, ég hef trú á því að lóðaverðið muni breytast.“ Stærstu verktakafyrirtækin lenda ekki í sömu erfiðleikum og smærri verktakar við fjármögn- un. Eyjólfur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðs- sviðs hjá Íslenskum aðalverktök- um, segir að fyrirtækið sé ekki háð því að taka lán á íbúðir í smíðum og sé því minna háð bönkunum. Verulegu máli skipti einnig að þau verkefni sem þegar séu komin í gang séu vel staðsett. Byggingaverktakar halda að sér höndum í lóðakaupum Fjármögnun fram- kvæmda erfiðari Morgunblaðið/Ásdís Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is SILVÍA Nótt mætti ekki á sameiginlegan blaðamannafund sem Norðurlöndin héldu í Aþenu í gærmorgun. Jónatan Garðars- son, fulltrúi íslenska hópsins, las yfirlýs- ingu þar sem kom fram að Silvía væri veik en undir eftirliti læknis og allt yrði gert til að koma henni til heilsu aftur. Bergþóra Jónsdóttir, blaðamaður Morg- unblaðsins, sem er stödd í Grikklandi, seg- ir Silvíu veika vegna þreytu og álags. „Hún hefur verið undir ofboðslegu álagi; mikil ásókn fjölmiðlafólks er í hana þar sem hún hefur sýnt sig. Á blaðamanna- fundinum á sunnudagskvöldið, sem var fjölsóttasti blaðamannafundur sem söngv- ari í þessari keppni hefur haldið fram að þessu, var mikil ásókn í hana og allir vilja vita hver Silvía Nótt er. Ég hef það eftir fólki úr íslenska Evróvisjónhópnum að það sé þreyta og álag sem sé að fara með hana,“ segir Bergþóra. | 44 Þreyta og álag í Aþenu Silvía Nótt og Sigga Beinteins í Aþenu. Morgunblaðið/Eggert LANDSPÍTALI háskólasjúkrahús (LSH) mun taka afstöðu til launaályktunar hjúkrunarfræðinema á lokaári við Há- skóla Íslands síðar í vikunni, að sögn Önnu Stefánsdóttur, hjúkrunarforstjóra LSH. Nemarnir sendu hjúkrunarforstjóra og sviðsstjórum LSH ályktun síðastliðinn mánudag. Í útskriftarhópnum eru um 75 nemar, að sögn talsmanns nemanna. Í ályktuninni segir m.a. að nemarnir hafi samþykkt að ráða sig ekki til starfa á LSH gegn lægri launum en sem nema launaflokki 02 í stofnanasamningi. Sam- kvæmt samningnum skulu nýútskrifaðir hjúkrunarfræðinemar fara í flokk 01 með 2,5% álagi vegna fjögurra ára náms. Það gerir 205 þúsund krónur á mánuði. Rök hjúkrunarfræðinemanna eru að flokkur 01 eigi við alveg óvant fólk, en þau sem útskrifist úr HÍ hafi öll unnið á LSH og búi því að talsverðri reynslu. Þau fara því fram á launaflokk 02 í krafti starfsreynslu sinnar, sem þýðir um 10 þúsund krónum hærri mánaðarlaun. Erlendir hjúkrunarfræðingar LSH hefur nýlega fengið þrjá hjúkr- unarfræðinga erlendis frá til starfa og átta til viðbótar eru á leiðinni. Auglýst var eftir hjúkrunarfræðingum bæði í Sví- þjóð og Danmörku í vor og fengust nokk- ur viðbrögð, að sögn Önnu Stefánsdóttur. 40–50 hjúkrunarfræðingar, af tíu erlend- um þjóðernum, hafa unnið hjá LSH und- anfarin ár. Þeir sem lengst hafa starfað hér eiga tíu ára starf að baki. Hjúkrunar- fræðinemar vilja fá starfs- reynslu viðurkennda ALÞJÓÐLEG tónlistar- og listahátíð verður haldin í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi helgina 9.–11. júní. Það er Raf- ræn Reykjavík sem stendur að hátíðinni en félagsskapurinn hef- ur verið iðinn við að kynna landsmönnum raftónlist und- anfarin misseri og verður sú tón- listarstefna í forgrunni á hátíð- inni. Meðal þeirra listamanna sem fram koma á hátíðinni eru Mad- ness, Hermigervill, Gus-Gus, Sometime, Reykjavik Swing Orchestra, Frank Murder, Mr. Silla, Sebestian Tellier, Daedel- us, Judith Juillerat, Misc., Ada, Ellen Allien & Apparat. Þá munu margir af efnilegustu hönnuðum landsins sýna og selja varning, auk þess sem Nýlistasafnið hyggst skipuleggja ýmsa við- burði, s.s. vídeólistasýningu og ljósmyndasýningu. | 43 Daedelus kemur fram á hátíðinni. Raftónlistar- hátíð í Árnesi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.