Morgunblaðið - 19.05.2006, Blaðsíða 23
Reykjanesbær | Fulltrúar þriggja
þekktra ferðaþjónustufyrirtækja
leggja Íslendingi ehf. lið við upp-
byggingu og rekstur Víkingaheima á
Fitjum í Njarðvík. Skrifað var undir
samninga um aðkomu fyrirtækjanna
í verkefninu við víkingaskipið Ís-
lending í gær en skipið verður mið-
punktur sögusýningar um ferðir vík-
inga. Stefnt er að opnun
sýningarinnar um mitt næsta ár.
Víkingaskipið hefur verið í vörslu
Reykjanesbæjar síðustu árin.
Stjórnendur bæjarins hafa unnið að
framgangi hugmynda um uppbygg-
ingu Nausts Íslendings í Víkinga-
heimum á Fitjum. Í húsinu á jafn-
framt að vera sögusýning um ferðir
víkinga yfir Atlantshafið og byggir
hún meðal annars á munum sem
Reykjanesbær hefur fengið að láni
hjá frægri víkingasýningu Smith-
sonian-stofnunarinnar í Wash-
ington. Þriðji þátturinn er kynning á
öðrum söfnum í landinu.
Ríkisstjórnin ákvað sl. haust að
styðja þetta verkefni með samtals
120 milljóna króna framlagi á sex ár-
um. Í gær undirrituðu fulltrúar Ice-
landair, Bláa Lónsins hf. og Kynn-
isferða samninga við Íslending ehf.
til fimm ára um fjárhagslegan stuðn-
ing við verkefnið og samstarf að
markaðsmálum. Steinþór Jónsson
verkefnisstjóri segir að samning-
arnir séu afar mikilvægir, bæði fjár-
hagslegur stuðningur en ekki síður
að þessi öflugu fyrirtæki skuli vilja
stuðla að þessari uppbyggingu og
nýta hana. Metur hann að verðmæti
samninganna sé um 30 milljónir kr.,
þegar allt sé talið. Áður hefur Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar skrifað undir
viljayfirlýsingu við Reykjanesbæ um
aðkomu að Víkingaheimum, meðal
annars með aðstöðu til að kynna
sýninguna í flugstöðinni.
Eykur áhuga ferðafólks
Búið er að móta landið sem Vík-
ingaheimar ná yfir með stórum mön-
um og útbúin hefur verið landfylling
þar sem Naust Íslendings á að rísa.
Steinþór segir að áfram sé unnið að
undirbúningi málsins og segir að
bygging hússins sjálfs hefjist í sum-
ar eða haust og að stefnt sé að opnun
um mitt næsta ár.
„Það er flott framtak að fara út í
þetta verkefni og tengja það við aðra
ferðaþjónustu. Þannig er hægt að
auka áhuga ferðafólks á ferðum um
svæðið,“ segir Gunnar Már Sig-
urfinnsson, framkvæmdastjóri
markaðs- og sölumála hjá Ice-
landair. Framlag Icelandair felst í
fjárstuðningi og markaðssamstarfi,
meðal annars með kynningu á mörk-
uðum félagsins erlendis. Hefur fé-
lagið hug á að bjóða upp á sérstakar
ferðir með viðkomu í Víkinga-
heimum sem kynntar verða á sölu-
skrifstofum þeirra erlendis auk þess
að tengja Víkingaheima öðrum vin-
sælum áfangastöðum. „Það skiptir
miklu máli að geta boðið upp á af-
þreyingu utan Reykjavíkur. Allar
nýjungar á því sviði styðja okkar
starfsemi,“ segir Gunnar Már.
Bláa Lónið hf. styður verkefnið
með markaðsráðgjöf og sameig-
inlegri markaðssetningu. Kynning-
arefni um Víkingaheima verður m.a.
komið á framfæri við gesti Bláa
Lónsins auk þess sem sérstök kynn-
ingarsíða verður á heimasíðu Bláa
Lónsins. Upplýsingum um Víkinga-
heima verður komið á framfæri í
kynningarefni sem afhent er erlendu
fjölmiðlafólki sem heimsækir Bláa
Lónið í stórum stíl.
Kynnisferðir eru leiðandi í skipu-
lögðum ferðum á vinsæla ferða-
mannastaði og fram kemur í frétta-
tilkynningu um samningana að
fyrirtækið vilji með framlagi sínu
styðja við frekari uppbyggingu
ferðaþjónustu á Reykjanesi.
Þrjú ferðaþjónustufyrirtæki styðja
uppbyggingu Víkingaheima
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Víkingaheimar Steinþór Jónsson verkefnisstjóri kynnir samstarfssamningana, f.v. Gunnar Marel Eggertsson
skipstjóri Íslendings, Gunnar Már Sigurfinnsson frá Icelandair, Árni Sigfússon bæjarstjóri, Magnea Guðmunds-
dóttir hjá Bláa Lóninu, Þráinn Vigfússon frá Kynnisferðum og Elín Árnadóttir hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Reykjanesbær | Gengið hefur verið frá samn-
ingi milli Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf.
og Sældar ehf. um byggingu þess síðarnefnda á
nýju útibúi fyrir Glitni í Reykjanesbæ. Nýja
útibúið verður staðsett við Hafnargötu 91-93 í
Reykjanesbæ, þar sem fiskimjölsverksmiðja
var áður. Útibúið er núna neðar við Hafnargöt-
una.
Útibú Glitnis verður á jarðhæð og er hús-
næðið um 400 fermetrar. Byggingarfram-
kvæmdir hefjast nú í maí og eru verklok áætluð
að ári liðnu. Áætlað er að útibúið verði flutt í
nýja húsnæðið í ágúst á næsta ári.
Að sögn Unu Steinsdóttur, útibússtjóra
Glitnis, þá er þessi staðsetning mjög góð fyrir
bankann „Við teljum að til framtíðar séum við
mjög vel staðsett hér í miðju bæjarfélagsins.
Mikil uppbygging í Innri-Njarðvík, Grænási og
nú við Nesvelli og Nikkelsvæðið, færi okkur
nær þeim kjarna. Við erum sannfærð um að
þessi staðsetning og þetta nýja útibú eigi eftir
að hugnast okkar viðskiptavinum mjög vel. Í
gamla daga þegar „Gúanóið“ var og hét og
vinnslan var þar í fullum gangi, þá var talað um
peningalyktina sem þaðan barst. Það er því
kannski við hæfi að þarna rísi nú banki – lykt-
arlaus þó með öllu,“ er haft eftir Unu í frétta-
tilkynningu.
Samið um byggingu nýs útibús Glitnis
Nýr staður Útibú Glitnis verður á „gúanólóð-
inni“ á mörkum Keflavíkur og Njarðvíkur. Á bak
við rísa íbúðarblokkir.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2006 23
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Það er gott að
rækta garðinn sinn ...
Glæsilegur blaðauki um garðinn fylgir
Morgunblaðinu föstudaginn 2. júní.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Meðal efnis er:
• Garðhúsgögn
• Heitir pottar
• Sólpallar og girðingar
• Styttur og gosbrunnar
í garðinn
• Nýjar trjátegundir
• Góð ráð við garðvinnu
• Gróðurhús og plöntur
• Umfjöllun um mosa
og fífla
Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16 þriðjudaginn 30. maí.
!
"
#
!
$
!
!" #
%
$
&
'
$
%
"&
(
'
%
#
)
&
)
)
* !
"*
" +"
, -+