Morgunblaðið - 29.05.2006, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ég hef mjög einfaldan húmor.
Hlutur kvenna ísveitarstjórnumlandsins jókst um
tæplega fjögur prósentu-
stig samkvæmt niðurstöð-
um kosninganna um
helgina. Hlutur kvenna í
sveitarstjórnum landsins
er nú um 35,9%, en var
32% eftir síðustu sveitar-
stjórnarkosningar. Þar
áður var hlutur kvenna um
28% í sveitarstjórnum
landsins.
Alls var kosið um 529
sveitarstjórnarsæti í ár.
Samkvæmt niðurstöðum
helgarinnar náðu 339 karlar sæti í
sveitarstjórnum og 190 konur.
Hlutur kvenna er þar með 35,9%
eins og áður sagði.
En lítum á einstaka landshluta.
Á höfuðborgarsvæðinu var kosið
um samtals 70 sveitarstjórnar-
sæti. Í kosningunum um helgina
náði þar alls 41 karl sæti í sveit-
arstjórn og 29 konur. Hlutur
kvenna þar er því um 41,4%.
Á Suðurnesjum var kosið um
samtals 39 sveitarstjórnarsæti. Í
kosningunum um helgina náðu
þar 24 karlar inn í sveitarstjórn og
15 konur. Hlutur kvenna þar er
því um 38,4%.
Á Vesturlandi var kosið um
samtals 68 sveitarstjórnarsæti.
Niðurstaða kosninganna var sú að
alls 44 karlar náðu inn í sveitar-
stjórn og 24 konur. Hlutur kvenna
þar er því um 35,2%.
Á Vestfjörðum var kosið um
samtals 58 sveitarstjórnarsæti.
Þar náðu samtals 37 karlar inn í
sveitarstjórn og 21 kona. Hlutur
kvenna þar er því 36,2%.
Á Norðurlandi vestra var kosið
um samtals 45 sveitarstjórnar-
sæti. Þar náðu samtals 30 karlar
inn í sveitarstjórn og 15 konur.
Hlutur kvenna þar er því um
33,3%.
Á Norðurlandi eystra var kosið
um samtals 100 sveitarstjórnar-
sæti. Alls 67 karlar náðu þar inn í
sveitarstjórn og 33 konur. Hlutur
kvenna þar er því 33%.
Á Austurlandi var kosið um 61
sveitarstjórnarsæti. Þar náðu
samtals 38 karlar inn í sveitar-
stjórn en 23 konur. Hlutur kvenna
þar er því 37,7%.
Á Suðurlandi var kosið um sam-
tals 88 sveitarstjórnarsæti. Þar
náðu samtals 58 karlar inn í sveit-
arstjórn og 30 konur. Hlutur
kvenna þar er því um 34%.
Framför hjá litlum
sveitarfélögum
Þegar Ólafur Þ. Harðarson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, er beðinn að út-
skýra þessar tölur, segir hann að
litlar breytingar hafi orðið á hlut
kvenna í sveitarstjórnum á höfuð-
borgarsvæðinu frá árinu 1994.
Frá þeim tíma hafi hlutfallið þar
verið í kringum 40%.
Ólafur segir hins vegar að hlut-
fall kvenna í sveitarstjórnum utan
höfuðborgarsvæðisins hafi rokkað
á bilinu 30 til 35% á sama tímabili,
þ.e. frá 1994 og fram til dagsins í
dag. „Meginbreytingin nú er sú að
það er veruleg framför hjá litlum
sveitarfélögum, utan höfuðborg-
arsvæðisins, þar sem talan er nú
um 35%.“ Til samanburðar hafi
hlutfall kvenna í stjórnum þessara
sveitarfélaga verið um 20% frá
árinu 1994.
Inntur eftir skýringum á því
hvers vegna hlutfall kvenna hafi
hingað til verið almennt lægra ut-
an höfuðborgarsvæðisins, segir
hann: „Þjóðfélagsbreytingar eiga
sér yfirleitt fyrst stað í borgar-
samfélaginu, en dreifbýlið fylgir á
eftir – mishratt.“
Katrín Anna Guðmundsdóttir,
talskona Femínistafélagsins, seg-
ir aðspurð um hlut kvenna í kosn-
ingunum að það sé gott að sjá að
hlutur þeirra sé að fara aðeins upp
á við. „En þetta er auðvitað ekki
nóg. Það var ljóst strax þegar
prófkjörin voru búin að það
stefndi í það að hlutur kvenna yrði
svipaður og áður. Það hefur
greinilega gengið eftir.“
Spurð hvers vegna hún telji að
það skipti máli að hlutur kynjanna
sé sem jafnastur í stjórnum sveit-
arfélaganna segir hún: „Konur
eru helmingur þjóðarinnar, sem
þýðir að ef við ætlum að hafa virkt
lýðræði í landinu, verða konur að
hafa jafn mikil völd og karla og
koma að ákvarðanatöku í sama
mæli og þeir.“
Stefanía Óskarsdóttir stjórn-
málafræðingur tekur í sama
streng: „Það er lýðræðisleg krafa
að fulltrúarnir endurspegli marg-
breytileikann í þjóðfélaginu. Því
er mikilvægt að konur komi að því
að móta samfélagið með jafn
sterkum hætti og karlar.“
Konur eru í meirihluta í nokkr-
um sveitarstjórnum landsins,
samkvæmt niðurstöðum helgar-
innar. Þær eru í meirihluta á Sel-
tjarnarnesi, í Garði, í Vogum, í
Grundarfirði, í Höfðahreppi, í Að-
aldælahreppi, í Rangárþingi
eystra, á Vopnafirði, í Hornafirði,
í Hörgárbyggð og í Skútustaða-
hreppi, en í tveimur síðastnefndu
sveitarfélögunum kom enginn
framboðslisti fram, og því fór þar
fram óhlutbundin kosning.
Í fimm sveitarfélögum er engin
kona í sveitarstjórn, þ.e. í Eyja-
og Miklaholtshreppi, í Grímseyj-
arhreppi, í Svalbarðshreppi, í
Djúpavogshreppi, og í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. Í þremur fyrr-
nefndu hreppunum fór fram
óhlutbundin kosning.
Fréttaskýring | Hlutur kvenna eykst
Hlutur kvenna
er um 35,9%
Auka hlut sinn í minni sveitarfélögum
Hlutur kvenna jókst um helgina.
Hlutur kvenna á framboðs-
listum var alls um 44%
Hlutur kvenna á framboðs-
listum fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar um helgina var 44%.
Þetta hlutfall var 41% í kosning-
unum 2002 og 38% í kosning-
unum 1998. Konur leiddu 22%
þeirra lista sem í framboði voru
um helgina, samanborið við 20%
í kosningunum 2002, að því er
fram kemur á vefnum kosning-
ar.is. Konur voru 32% fulltrúa í
sveitarstjórnum eftir síðustu
kosningar en eru nú um 35,9%.
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur úrskurðað þrjá karl-
menn á þrítugsaldri í gæsluvarðhald
fram til föstudagsins 2. júní nk.
Mennirnir eru grunaðir um alvarleg-
ar misþyrmingar á þremur karl-
mönnum í húsi í miðbæ Akureyrar
sl. fimmtudag, þar sem m.a. var
klippt framan af fingri karlmanns
með garðklippum.
Lögreglan á Akureyri óskaði eftir
því að mennirnir myndu sæta varð-
haldi til 6. júní en dómurinn taldi
gæsluvarðhald fram á föstudag
nægja. Mennirnir hafa áður komið
við sögu lögreglunnar fyrir ofbeldis-
og fíkniefnabrot.
Árásarmenn í
gæsluvarðhaldi
til föstudags
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði í
nógu að snúast aðfaranótt sunnu-
dags. Mikill fjöldi fólks var saman
kominn í miðbæ Reykjavíkur og var
ölvun áberandi, sem endranær.
Skemmtanahald fór þó nokkuð frið-
samlega fram að undanskilinni lík-
amsárás sem átti sér stað undir
morgun í Hafnarstræti, þar þurfti að
flytja karlmann slasaðan á slysadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Fjórir voru handteknir í kjölfarið,
grunaðir um aðild að árásinni, en
ekki er ljóst hvort játningar liggja
fyrir. Rannsókn er í höndum lögregl-
unnar í Reykjavík og heldur áfram.
Einnig voru ellefu ökumenn stöðv-
aðir vegna gruns um ölvun við akst-
ur.
Erill hjá lögreglu
á kosninganótt
♦♦♦
♦♦♦
LÖGREGLAN á Vík í Mýrdal
handtók tvo karlmenn vegna brota
gegn fíkniefnalöggjöfinni á Kirkju-
bæjarklaustri í fyrrinótt. Í báðum
tilvikum fannst lítilræði af fíkniefn-
um sem talin eru hafa verið til eigin
nota.
Mennirnir voru færðir á lög-
reglustöð til yfirheyrslu en sleppt
að henni lokinni og málin teljast
upplýst.
Tveir teknir
með fíkniefni