Morgunblaðið - 29.05.2006, Page 22
22 MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Félagar í Vildarþjónustu
fá 50%afslátt
hjá Flugfélagi Íslands
Skoðaðu sumartilboð Vildarþjónustu Sparisjóðsins á spar.isFí
t
o
n
/
S
Í
A
ÉG HORFÐI á Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva um dag-
inn. Mér finnst gaman að horfa á
þetta því þetta er, eins og margir
Íslendingar eru örugglega sammála
mér um, mjög góð af-
þreying. Hins vegar er
stórhættulegt að taka
keppnina alvarlega.
Undanfarin ár hefur
ekki skipt neinu máli
hver vinnur keppnina,
annaðhvort var sig-
urverarinn frægur fyr-
ir keppnina eða hann
var það ekki. Yfirleitt
var fólk búið að
gleyma honum nokkr-
um vikum eftir keppn-
ina. Þrátt fyrir þetta
virðist það skipta
miklu máli hver vinnur, eða nei, það
skiptir eiginlega enn meira máli
hvaða þjóð fær stigin sem eru í
boði. En það skiptir þuli RÚV
meira máli hver gefur löndum stig.
Ekkert fer meira í taugarnar á
mér en rasismi og þá sérstaklega á
meðan alevrópsk keppni stendur yf-
ir. Af hverju er það einasta sem
þulur RÚV getur talað um hvaða
austantjaldsþjóðir eru að skora?
Væri ekki skemmtilegra að fá að
vita meira um þátttakendurna en
reyna að tala illa um þá? Eins og í
öðrum keppnum þar sem mörg
lönd, eða já, lið taka þátt ætti þul-
urinn að minsta kosti að reyna að
vera hlutlaus. Það má vel vera að
einhver þjóð kjósi vinaþjóð sína, en
til hvers þessa endalausa umræðu
um það hvaða þjóðir halda saman?
Auðvitað myndi ég gefa vinum mín-
um stig þegar þeir eru að keppa í
einhverju, hvað er að því? Mörg
lönd í Austur-Evrópu eru mjög ung
en eiga sér svipaða sögu og þar með
menningu.
En, nei, þá er talað um hvað
gömlu kommúnista ríkin héldu
ennþá saman, svona eins og þau
væru að halda upp á það að hafa
lent í sameiginlegum
hörmungum. Þulurinn
átti það meira að segja
til að grípa fram fyrir
hendurnar á dóm-
nefndinni, vegna þess
að honum fannst að
hann vissi betur hver
mundi fá hæstu stigin
frá hverjum.
Þótt Rússland,
Bosnía-Herzegóvína
og Rúmenía fengju
stig frá mörgum þjóð-
um (þau enduðu í 2. til
4. sæti) talaði þulurinn
aðeins um það hversu mikið bræða-
bandalag það væri þegar þau fengu
stig frá löndum í Austur-Evrópu.
Þegar Svíþjóð gaf Finnlandi og
Danmörku stig sagði hann ekkert
um vinaþjóðir, sameiginlega sögu
eða menningu, heldur sagði hann
ekki neitt! Er ekki jafn mikil sam-
staða í Norður-Evrópu og í Austur-
Evrópu? Finnst okkur þetta ekki
eiginlega frekar leiðinlegt, að það
sé ekki? Erum við kannski bara öf-
undsjúk út í þessar þjóðir sem
leggja allt sitt fram í þessari
keppni, sem þau mega loksins taka
þátt í? Mig langar að benda á að
það búa ekki lengur bara Íslend-
ingar í þessu landi.
Á Íslandi býr fólk frá mörgum
þjóðum sem ég tel vera mjög já-
kvætt því það gerir landið ríkara,
ríkara af hugmyndum, sögu og
menningu. Yfirleitt er mjög vel tek-
ið á móti mér persónulega, en hvort
það er vegna þess að húðin mín er
hvít, hárið á mér er ljóst og augun
blá veit ég ekki, og mig langar helst
ekkert að vita það. Mér þykkir
mjög leitt að sjónvarpsefni í beinni
útsendingu, sem ég hef haft gaman
af í mörg ár, fékk mig til að skrifa
þessa grein til þess að benda á að
rasismi er mun algengari en flestir
gera sér grein fyrir, en er þess
vegna ekki minna tilgangslaus. Það
er ekki lengur skemmtun þegar
manni líður eins og maður sé lagður
í einelti af sjónvarpsþul, þegar mað-
ur er að skemmta sér á laugardags-
kvöldi.
Ísland fékk ekki að taka þátt í
keppninni í ár og ég held að mörg-
um hafi fundist það leiðinlegt. Silvía
er frábær eins og hún er, en við
megum ekki gleyma að hún er
skálduð persóna. Eins mikið og hún
tók þetta með stæl þá var hún einn-
ig að gera grín að þessu. Og Lordi,
hljómsveitin sem vann keppnina
þrátt fyrir fyrri frægð, sýndi allri
Evrópu að í þessari keppni á allt að
vera leyfilegt, en bara á meðan við
tökum þetta með smá brös á vör og
glampa í auga.
Kærar alþjóðlegar kveðjur.
Söngvakeppnin
Korinna Bauer fjallar
um Evrópusöngvakeppnina ’Ekkert fer meira í taugarnar á mér en
rasismi og þá sérstaklega
á meðan alevrópsk
keppni stendur yfir.‘
Korinna Bauer
Höfundur er fæddur í Austurríki,
með BA-gráðu í íslensku fyrir erlenda
stúdenta og BA-gráðu í þýsku og
vinnur sem sölu- og þjónustufulltrúi.
NÝLEG grein verkfræðinnar er
heilbrigðisverkfræði þverfagleg
grein þar sem aðferðum verkfræð-
innar er beitt á mannslíkamann til
að leysa mismunandi vandamál til-
komin vegna veikinda eða slysa,
eða einfaldlega til að bæta lífsgæði
og öryggi okkar allra.
Framsækin verkfræði
Við uppbyggingu verkfræðináms
við Háskólann í Reykjavík var
ekki bara horft á daginn í dag
heldur var rýnt í framtíðina og
greint hvaða greinar væru í mest-
um vexti í heiminum. Það blasti
við að heilbrigðistæknin, og þar
með heilbrigðisverkfræðin, væri
einstaklega framsækin grein sem
mikil þörf væri fyrir, bæði hér
heima og erlendis. Vöxtur heims-
framleiðslu heilbrigðitækniafurða
hefur að meðaltali verið u.þ.b. 8%
á ári nú um a.m.k. tveggja áratuga
skeið. Þetta er með því mesta sem
gerist í iðnaðinum í heiminum í
dag.
Sérstaða heilbrigðis-
verkfræðinnar
Heilbrigðisverkfræðin hefur
nokkra sérstöðu innan verkfræð-
innar. Heilbrigðisverkfræðingar
þurfa í starfi sínu að samþætta
þekkingu á mannslíkamanum og
verkfræðilegum aðferðum. Und-
irstöðugreinar heilbrigðisverkfræð-
innar eru stærðfræði, eðlisfræði og
lífeðlisfræði, og það er einmitt líf-
eðlisfræðin og starfsemi mannslík-
amans sem setur heilbrigðisverk-
fræðina í nokkra sérstöðu miðað
við aðrar greinar verkfræðinnar.
Fjölbreytt atvinnutækifæri
Og hvað gera svo heilbrigð-
isverkfræðingar? Sem dæmi þá
hanna þeir gervilimi, ýmis raftæki
til að bæta heyrn heyrnarskertra
og háþróuð tæki sem notuð eru á
skurðstofum sjúkrahúsa. Einnig
taka þeir þátt í ólíkum mælingum
á starfsemi líkamans. Sem dæmi
um tæki sem heilbrigðisverkfræð-
ingar hafa tekið þátt í að hanna og
smíða eru ígræðanleg hjartastuð-
tæki, tæki sem þó nokkrir Íslend-
ingar ganga með í brjóstinu. Heil-
brigðisverkfræðingar beita
raförvun á einstaklinga til að bæta
vöðvastarfsemi sem annars væri
ekki til staðar vegna lömunar, sem
og greina burðarþol beina með þrí-
víddar tölvulíkönum. Þeir þróa
tæki til læknisfræðilegrar mynd-
gerðar og aðferðir til að bæta
sjúkdómsgreiningu. Einnig hafa
heilbrigðisverkfræðingar verið eft-
irsóttir í stjórnun fyrirtækja og
sjúkrahúsa. Þessi dæmi sýna að
heilbrigðisverkfræðingar vinna
gjarnan í teymum
ólíkra sérfræðinga
innan heilbrigðisvís-
indanna, svo sem
lækna, sjúkraþjálf-
ara, eðlisfræðinga
og taugavísinda-
manna.
Af þessum fáu
dæmum ætti að vera
ljóst að viðfangsefni
heilbrigðisverkfræð-
inga eru afskaplega
fjölþætt, enda er
nám þeirra þverfag-
legt en um leið með örugga fót-
festu í verkfræði. Hvað þessir
verkfræðingar fást við fer, eins og
svo oft, eftir frumkvæði þeirra,
áræðni og hugmyndaflugi. Ísland í
dag er fullt tækifæra fyrir fram-
sækna verkfræðinga og heilbrigð-
istæknin er nú þegar öflug og er
ekki annað að sjá en að heilbrigð-
isverkfræðingar eigi eftir að taka
þátt í því starfi og síðast en ekki
síst skapa ný sóknarfæri.
Heilbrigðistækniiðnaður á Ís-
landi er í fyrirtækjum eins og Öss-
ur, Viasys (áður Taugagreining),
Medcare (áður Flaga), Kine og
fleirum. Mikill vöxtur hefur verið í
þessum fyrirtækjum undanfarin
ár. Tilvera þeirra sýnir að á Ís-
landi er að mörgu leyti gott að
setja af stað fyrirtæki í þessari
grein. Samkeppnisforskot Íslands
má hinsvegar enn bæta töluvert og
þar kemur m.a. Háskólinn í
Reykjavík til sögunnar.
Við Háskólann í Reykjavík er
boðið upp á framsækið nám í iðn-
aðar-, rekstrar-, fjármála- og heil-
brigðisverkfræði auk hugbún-
aðarverkfræði. Greinar sem eru
heilbrigð viðbót við þau svið verk-
fræðinnar sem nú þegar er lagt
stund á hér heima.
Heilbrigðisverkfræði;
verkfræði mannslíkamans
Haraldur Auðunsson og
Þórður Helgason fjalla um
nýmæli innan verkfræðinnar
’Heilbrigðisverkfræð-ingar þurfa í starfi sínu
að samþætta þekkingu á
mannslíkamanum og
verkfræðilegum aðferð-
um.‘
Haraldur Auðunsson
Höfundar starfa við tækni- og verk-
fræðideild Háskólans í Reykjavík.
Þórður Helgason
ÉG TÓK tvo leigubíla í dag sem,
ásamt bið á Umferðarmiðstöðinni,
varð tilefni þessara
hugrenninga. Ef ég
verð ber að misskiln-
ingi, vona ég að les-
endur virði mér það til
vorkunnar að ég þigg
ekki kaup fyrir að lesa
ekki lagafrumvörp,
eins og sumir virðast
gera.
Ég hélt að sam-
keppnislög væru til að
gæta hagsmuna neyt-
enda. En ég fæ ekki
séð að það þjóni hags-
munum neytenda að
hafa enga hugmynd
um, hvað það kostar að
taka leigubíl, fyrr en
komið er á áfangastað
og lesið er af ein-
hverjum uppskrúf-
uðum mæli, sem neyt-
andin hefur ekki
minnstu hugmynd um
hvernig virkar.
Í núverandi kerfi gengur maður að
fyrsta bíl í röð lausra bíla í trausti
þess að maður greiði sama gjald og
bílstjórinn, sem er 7. í röðinni, rukk-
ar.
Með nýja kerfinu gengur maður á
röðina og spyr hvað væntanlegur túr
muni kosta.
Ef 10. bílstjórinn í röðinni segir að
hann taki túrinn fyrir 1.000 kr.
minna en sá næstlægsti, en annað
kemur á daginn, þegar lesið er af
mælinum, hvar stendur neytandinn
þá? Ef maður neitar að borga, hótar
bílstjórinn að kalla til lögreglu, svo
maður lætur undan og borgar, enda
er ferlið búið að taka þvílíkan tíma að
maður er að missa af flugvélinni.
Ef samkeppnislögin gera vænt-
anlega breytingu nauðsynlega, finnst
mér að það þurfi að endurskoða þau.
Nýlegt dæmi um fáránleika þess-
ara laga er, þegar viðmiðunartaxti
FÍH fyrir tónlistarflutning við jarð-
arfarir var flokkaður sem ólögleg
samráð. Viðmiðunartaxtinn var
byggður á launataxta FÍH og var
gott viðmið fyrir neytendur til að
átta sig á hvort þeir væru að fá þjón-
ustuna á undir- eða yfirverði. Þetta
dæmi er samt alls óskylt því, sem við
blasir með leigubílana, vegna þess að
menn hafa yfirleitt ein-
hverjar óskir um flytj-
endur tónlistar við jarð-
arfarir og sé of dýrt að
uppfylla óskirnar hafa
menn möguleika á að
slá eitthvað af þeim (t.d.
að nota bara organist-
ann og kórinn).
„Flytjendur“ í þessu
tilfelli geta ekki kallað á
lögreglu og bent á ein-
hvern mæli, ef þeir ætla
að flutningi loknum að
rukka meira en um var
samið í upphafi.
Samkeppnislögin
virðast í sumum til-
fellum koma í veg fyrir
hagræðingu. Flestum
er í fersku minni, þegar
SAS var sektað um 500
milljónir sænskra króna
fyrir að semja við annað
flugfélag um að sitja
eitt að flugi til eins
áfangastaðar gegn því að hitt félagið
sæti eitt að flugi til annars staðar.
Bæði flugfélögin höfðu áður flogið í
samkeppni til beggja krumma-
skuðanna. Hver heilvita maður sér
auðvitað að það er auðveldara að
lækka verð þegar viðskiptin aukast.
Með þessari „brotlegu“ aðgerð hefðu
bæði fyrirtæki og neytendur átt að
hagnast.
Fyrir neytendur á litlum markaðs-
svæðum getur í sumum tilfellum ver-
ið neikvætt að mörg fyrirtæki séu að
troða niður skóinn hvert af öðru, sem
í slíkum tilfellum leiðir gjarnan til
hærra verðs og lakari þjónustu og
getur í sumum tilfellum orsakað að
þjónustan leggist af.
Sem leikmanni sýnist mér að það
kunni að vanta undanþáguákvæði í
samkeppnislögin (sem e.t.v. væru þá
háð einhvers konar verðlagseftirliti).
Ég skora á þingmenn að gera und-
antekningu og láta skynsemina ráða.
Eru samkeppnis-
lögin ólög?
Þórhallur Hróðmarsson
fjallar um samkeppnina
á leigubílamarkaðinum
Þórhallur Hróðmarsson
’Ég skora áþingmenn að
gera undantekn-
ingu og láta
skynsemina
ráða.‘
Höfundur er kennari á eftirlaunum.