Morgunblaðið - 29.05.2006, Side 23

Morgunblaðið - 29.05.2006, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 23 UMRÆÐAN SNEMMA í vor þegar ég fór að huga að sumarleyfum starfsfólks sá ég fram á það að líklega þyrfti að skikka fólk til að taka stutt sum- arfrí. Mér leist satt best að segja ekkert á blikuna og því varð ég svo fegin þegar mér voru kynntar þær leiðir að fá danska hjúkrunarfræð- inga í afleysingar. Þá um leið lækk- aði blóðþrýstingurinn hjá mér og ég var viss um að allir kæmust í frí. En þetta örþrifaráð er því mið- ur skammtímaráð og mun aðeins virka yfir hásumarið. Mannauður Landspítala – há- skólasjúkrahúss (LSH) er mikill og þeim sem mæta á vaktina við hvaða aðstæður sem er ber að launa vel. Það er hins vegar nauð- synlegt fyrir alla að taka frí og of- ur skiljanlegt að vilja ekki fórna því til að bjarga starfseminni. Það kemur heldur engum til góða, hvorki starfsfólkinu né stofnuninni, að fólk vinni sleitulaust þar til það brennur út og verður óvinnufært af þreytu. Annars horfi ég á umræðuna að undanförnu sem tvíþætt mál. Í fyrsta lagi að við fáum erlent vinnuafl til sumarafleysinga vegna þess að íslenskt hefur ekki fengist og í öðru lagi hvað er verið að borga fyrir það. Yfir 200 hjúkrunarfræðingar starfa utan heilbrigðisstofnana og LSH hefur auglýst 35 sinnum á þremur mánuðum, sem litlu eða engu hefur skilað. Það er mikið áhyggjuefni að hjúkrunarfræðingar skili sér ekki til starfa á LSH. Ég sé hins vegar ekki að það skili neinu til þeirra sem þar starfa að krækt sé í fólk fyrir utan með gylliboðum, hvort sem það er ís- lenskt eða erlent. Eðli málsins samkvæmt vilja hjúkrunarfræð- ingar á LSH fá sinn hluta af kök- unni eftir strit og púl undanfarna mánuði. Það má þó ekki gleyma að íslenskir verktakar hafa unnið á LSH í allan vetur án þess að rætt hafi verið um það eða laun þeirra sérstaklega. Aðlögun og tungumálakunnátta þeirra hjúkrunarfræðinga sem væntanlegir eru til landsins hefur komið til tals. Eftir því sem ég get komist næst er þetta mjög vant starfsfólk á sínu sviði sem getur nánast gengið beint til starfa. Flestar deildir LSH byggja sum- arafleysingar sínar á hjúkr- unarnemum sem eru frábær starfs- kraftur, en þurfa samt meiri aðlögun en vanir hjúkrunarfræð- ingar, þótt erlendir séu. Við vitum einnig að flestir Skandinavar tala fleiri en eitt tungumál, t.d. ensku eða annað Norðurlandamál eins og við Íslendingar og því held ég að samskiptin verði ekki vandamál. Nú þegar starfa um 50 erlendir hjúkrunarfræðingar á LSH og hafa þeir flestir fallið vel að starfsem- inni. Skortur á hjúkrunarfræðingum hefur verið mikið ræddur í vetur og í því samhengi talað um að út- skrifa þurfi fleiri. Ég tek undir það sem eitt langtímaverkefnanna til að fjölga í stéttinni og því er nauðsyn- legt að byrja strax í haust að taka fleiri inn í námið. En ég veit að starfandi hjúkrunarfræðingar hafa áhyggjur af því hvernig þeir geti sinnt fleirum en nú þegar koma. Ég hef þó fulla trú á því að hjúkr- unarfræðideildir háskólanna muni vinna að skipulagningu verknáms hjúkrunarnema þ.a. það gangi upp að mennta fleiri. Að auki tel ég að vanir hjúkrunarfræðingar sem sinna skildu sinni á háskólasjúkra- húsi taki nemum opnum örmum, sem fyrr. Að þessu gefnu er bolt- inn hjá yfirvöldum, því endurskoða þarf fjárveitingar til þess að fjölg- un nema geti orðið að veruleika. Starfsmannavelta innan hjúkr- unar er mér hugleikið efni og veld- ur áhyggjum. Allt of margir hjúkr- unarfræðingar hætta eftir u.þ.b. fimm ár í klínísku starfi, sem hefur í för með sér skort á vönu fólki til kennslu nýliða. Þetta eitt og sér er stórmál og al- varlegur vítahringur. Það er mín skoðun að forysta FÍH hafi stigið heldur óvarlega til jarðar með því að bera saman laun verk- taka og launþega á þann hátt sem gert var. Þær samanburð- artölur sem birtar voru hafa bókstaflega gert allt vitlaust á mínum starfsvettvangi. Þær eru hins vegar enn óstaðfestar af yf- irstjórn LSH, enda hefur enginn samn- ingur við starfs- mannaleigu verið und- irritaður ennþá. Góð samskipti eru mik- ilvæg í hjúkrun og stuðla að starfs- ánægju og öryggi sjúklinga, en atburðir síðustu daga hafa skaðað samskiptin innan LSH og spillt vinnufriði. Hvað er hægt að gera? Ég tel að fram- undan sé stórt samstarfsverkefni allra hjúkrunarfræðinga, stjórn- enda LSH, forystu FÍH og hjúkr- unarfræðideilda háskólanna að ógleymdum stjórnvöldum sem halda fast um krónusekkinn. Stjórnendur LSH þurfa að skoða alla möguleika varðandi umbun og bætt starfsumhverfi innan spítalans til að auka starfsánægju og halda í það góða fólk sem þar starfar. Framtíðarlausnir verða að fela í sér krafta íslenskra hjúkrunarfræð- inga með góða þjálfun, í viðunandi vinnuumhverfi og fá borgað í takt við menntun og framúrskarandi vinnuframlag. FÍH ber mikla ábyrgð í forsvari kjaramála fé- lagsmanna, en ekki síður sem sam- einingarafl þeirra. Hjúkrunarfræð- ingar eru upp til hópa jákvæðir og mjög metnaðarfullir í starfi. Þeir skila vinnunni sinni vel og vilja vinna sameinaðir að uppbyggingu. Ég tel að innan LSH séu ótrúlega miklir persónukraftar sem hægt er að virkja og nýta, stofnuninni, ís- lensku heilbrigðiskerfi og hjúkr- unarfræðingum öllum til heilla. Hjúkrun! Hvað þarf til? Erla Dögg Ragnarsdóttir fjallar um málefni hjúkrunarfræðinga ’Stjórnendur LSH þurfaað skoða alla möguleika varðandi umbun og bætt starfsumhverfi innan spítalans til að auka starfsánægju og halda í það góða fólk sem þar starfar.‘ Erla Dögg Ragnarsdóttir Höfundur er hjúkrunardeildarstjóri á skurðsviði LSH.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.