Morgunblaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 25
Við erum yfir okkur ham-ingjusöm með þannglæsilega árangur semvið náðum nánast yfir
línuna,“ sagði Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs (VG).
Hann sagði það gríðarlega breyt-
ingu fyrir flokk að fá sína fyrstu
fulltrúa kjörna í sveitarstjórnir í
stórum sveitarfélögum, eins og VG
gerði nú víða á landinu.
„Það er gaman og glæsilegt að fá
tvo menn bæði á Akureyri og í
Reykjavík og vera með tæp 30% í
Dalabyggð. Ef til vill er ennþá mik-
ilvægari sá sigur að fá fyrst mann
kjörinn í Kópavogi, Hafnarfirði,
Árborg, Akranesi og í Mosfellsbæ
og á mörgum fleiri stöðum. Að
mínu mati er að hefjast nýr kafli í
uppbyggingu okkar hreyfingar.“
Hvað varðar pólitísk áhrif úr-
slitanna á landsvísu sagði Stein-
grímur að VG væri að stimpla sig
inn með mjög afgerandi hætti sem
þriðja stærsta stjórnmálaflið í
landinu. Fylgi VG í velflestum
stóru sveitarfélögunum væri upp á
12 –15%. „Við erum að verða til
sem sveitarstjórnarafl af þessum
styrkleika og erum þar með að
færa okkur nær því að vera í raun
með fylgi á sveitarstjórnarstiginu
nálægt því sem við erum að mælast
í skoðanakönnunum á landsvísu og
ætlum okkur að sjálfsögðu að
landa í næstu kosningum.“
Steingrímur taldi að hin svo-
nefnda „tveggja turna kenning“
hefði beðið skipbrot í þessum kosn-
ingum. „Ef við skoðum bilið á milli
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
og svo milli okkar og Samfylkingar
þá sýnist mér í fljótu bragði að það
sé lengra á milli Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks en milli okkar og
Samfylkingar,“ sagði Steingrímur.
Árangur VG hlýtur að teljast
vinstri- og umhverfisverndar-
sveifla, að mati Steingríms. „Það er
enginn vafi á að okkar einörðu
áherslur í umhverfismálum, and-
ófið við hina trylltu og brjáluðu
stóriðjustefnu og okkar róttæku fé-
lagslegu áherslur, voru að skora í
þessum kosningum. Þetta er, held
ég, óumdeilanlega sterkasta sveifl-
an í kosningunum.“
Steingrímur kvaðst ekki vera í
nokkrum vafa um að úrslit sveit-
arstjórnarkosninganna gætu verið
upptaktur að því sem gæti gerst í
fyrirhuguðum alþingiskosningum
að ári.
„Andrúmsloftið í landinu er
svona, það hef ég skynjað mjög
sterkt á ferðalögum í aðdraganda
kosninganna. Sjálfstæðisflokknum
tókst með því að bleikja sig upp og
láta lítið fyrir sér fara að sleppa
betur en ella hefði orðið. Tilraunir
Framsóknarflokks til að breiða yfir
nafn og númer og þykjast vera
eitthvað annað en ríkisstjórn-
arflokkur mistókust hins vegar.
Það er enginn vafi á að menn voru
öðrum þræði að refsa stjórnar-
flokkunum og það bitnaði meira á
Framsókn. Ég er geysilega bjart-
sýnn á framhaldið og vildi fá kosn-
ingar sem fyrst. Ríkisstjórnin er
stórkostlega löskuð og í raun búin
að vera með þessu. Forysta hennar
er í molum eftir þennan dag.
Vegna aðstæðna í samfélaginu,
óvissunnar í efnahagsmálunum og
ólgunnar sem undir niðri er og
birtist talsvert í þessum kosn-
ingum, þá þurfum við að kjósa
strax. Það verður mikill hörm-
ungavetur fyrir ríkisstjórnina,
þjóðina og efnahagslífið ef á að
reyna að láta þetta laskaða fley,
sem ríkisstjórnin er, fljóta allan
næsta vetur. Það er ábyrgðar-
hlutur, að mínu mati, að endurnýja
ekki umboð þannig að nýr þing-
meirihluti og ríkisstjórn geti tekist
á við þau erfiðu verkefni sem fram-
undan eru – að vinda ofan af vit-
leysunni sem þeir eru búnir að
gera.“
Steingrímur taldi að staðan
varðandi nýja borgarstjórn í
Reykjavík væri mjög flókin. „Mér
sýnist að menn séu að þreifa á
hvort einhvers konar samstarf
flokkanna til vinstri við Sjálfstæð-
isflokkinn geti gengið. Ég sé ekki
af hverju menn ættu að útiloka
þann kost. Ég er ekki í þeim hópi
sem gefur sér að þetta hljóti að
snúast um hver vinnur með Sjálf-
stæðisflokknum.“
Ríkisstjórnin í raun búin að vera
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG
með um
m 30%
ur,
Vinstri-
ð hver um
ð má
að
ndi upp,“
Við í
ki að
etta er
ggja sig
um að
ingum.“
sér þykja
hefðu
í röð
n reyndi
í
ta um
t og hann
sínu.
yfir höf-
stans, en
t í beinni
man.
stæður
en hann
tkvæðum
ð lesa út
öfu um að
við í
i rétt
túlkun á vilja kjósenda. Reykjavík-
urlistaflokkarnir eru með meira
fylgi samanlagt en Sjálfstæð-
isflokkurinn,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún.
Hún sagði að Frjálslyndi flokk-
urinn hefði það nokkuð í hendi sér
hvort hann leiddi Sjálfstæðisflokk-
inn aftur til valda í borginni.
Frjálslyndum stæði einnig til boða
að ganga til liðs við flokkana sem
stóðu að Reykjavíkurlistanum.
Um áhrif úrslita sveitarstjórn-
arkosninganna á stöðu ríkisstjórn-
arinnar sagði Ingibjörg Sólrún:
„Ég get ekki ímyndað mér annað
en að Framsóknarmenn séu orðnir
svolítið vansælir í þessu samstarfi
eftir þessa útreið. Sjálfstæðisflokk-
urinn kemur frá þessum kosn-
ingum með svipað eða jafnvel held-
ur meira fylgi en hann hafði í
síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingum.“
Ingibjörg Sólrún kvaðst telja að
niðurstaða kosninganna hlyti að
draga þróttinn úr ríkisstjórninni.
„Það er mjög alvarlegt mál, því
miðað við þær aðstæður sem eru
nú í efnahagslífinu, þá þarf festu í
landsmálin. Mér sýnist að rík-
isstjórnin sé mjög löskuð eftir
þetta og hætt við að hún hafi litla
stjórn á málum.“
nar
g í sessi
Reykjavík biðu eftir
Ráðhúsi Reykjavík-
Eins og sjá má á
myndinni ríkti mikil spenna hjá frambjóð-
endunum. Hér sjást þau Ólafur F. Magn-
ússon, Svandís Svavarsdóttir, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, Dagur B. Eggertsson og Björn
Ingi Hrafnsson bíða eftir birtingu talna í
kosningunum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ráðhúsinu að kvöldi kjördags
Úrslit sveitarstjórnar-kosningnna eruáhyggjuefni fyrirFramsóknarflokkinn,
að sögn Halldórs Ásgrímssonar,
formanns flokksins. Hann segir
að flokkurinn muni fara ítarlega
yfir úrslitin og draga sína lær-
dóma af þeim.
„Það gekk nú sums staðar illa
hjá flokknum í þessum sveitar-
stjórnarkosningum. Við fáum
slæma kosningu víða á suðvest-
urhorninu. Annars staðar á land-
inu er þetta miklu betra eins og
víða á Suðurlandi, Austurlandi,
Norðurlandi og Vesturlandi.
Okkar menn hafa verið mjög víða
í meirihlutasamstarfi og tekið
ábyrgð á rekstri sveitarfélag-
anna. Þeir munu gera það
áfram,“ sagði Halldór.
Kosningabaráttan var fram-
sóknarmönnum erfið og fundu
þeir sérstaklega fyrir því á höf-
uðborgarsvæðinu, að sögn Hall-
dórs. „Það var unnið mikið og
gott starf víða um land. Ég tel að
það hafi verið viss varnarsigur að
við komum manni inn í Reykja-
vík. Okkur var nú ekki spáð mjög
vel í því sambandi. Úrslit þessara
kosninga eru áhyggjuefni fyrir
Framsóknarflokkinn og við mun-
um fara ítarlega yfir málið og
draga okkar lærdóm af því.“
En eru þessi úrslit einhver vís-
bending um hvað kann að gerast
að ári í alþingiskosningum?
„Það er enginn vafi að lands-
málin spiluðu inn í þessa kosn-
ingu að einhverju leyti. Ég er
ekki að segja að þau hafi gert það
um allt land, en þau gerðu það
sums staðar. Það þýðir ekki ann-
að en að taka það með í reikning-
inn,“ sagði Halldór.
Ekki virðist vera hægt að lesa
ákveðið mynstur út úr kosn-
ingaúrslitunum nú um hvort
Framsóknarflokknum hafi farn-
ast vel eða illa þar sem hann átti
hlut að samvinnu við aðra flokka,
að sögn Halldórs. „Á nokkrum
stöðum var ákveðið að fara í sam-
eiginlegt framboð með öðrum
flokkum. Mér finnst það ekki hafa
gefist neitt sérstaklega vel. Við
vorum t.d. í sameiginlegu fram-
boði með sjálfstæðismönnum síð-
ast á Húsavík og nú varð breyt-
ing þar á sem skilaði báðum
flokkunum góðri útkomu. Síðan
var ákveðið að vera í sameig-
inlegu framboði með Samfylking-
unni bæði í Garðabæ og Reykja-
nesbæ, sem mér sýnist ekki hafa
skilað þeim árangri sem menn
væntu.“
Halldór kvaðst ekki geta sagt
neitt á þessu stigi um myndun
nýs borgarstjórnarmeirihluta í
Reykjavík. „Ég veit að það eru
þreifingar í gangi og auðvitað
hefur Framsóknarflokkurinn þar
aðeins einn mann. Þannig að það
er mjög erfitt sýnist mér að spá
um það á þessari stundu.“
Halldór var spurður hvort
hann, sem forsætisráðherra, teldi
að úrslit sveitarstjórnarkosning-
anna hefðu einhver áhrif á stöðu
ríkisstjórnarinnar. „Kosn-
ingaúrslitin hafa áhrif á stöðu
Framsóknarflokksins á lands-
vísu,“ sagði Halldór. „En við
munum að sjálfsögðu sinna okkar
skyldum í þessu ríkisstjórnar-
samstarfi eins og til var stofnað
og halda áfram að rækja þær út
kjörtímabilið.“
Halldór Ásgrímsson,
formaður Framsóknarflokksins
Úrslitin áhyggju-
efni fyrir Fram-
sóknarflokkinn
rnar-
ýna að
kkurinn
gið mjög
um sín-
Kristjáns-
nda
i annað
ðningur
i farið
ninganna
átt við
svona
ti sárt að
ði á átta
heldur
a í Ísa-
ldum að
ramboðið
fylkingar,
græns
og
a fylgi
úr um
k erum
anum
a er að
di nið-
urstaða; þó að við höfum ekki náð
inn manni í Skagafirði og í Vest-
mannaeyjum erum við með 7,5–8%
í hvoru sveitarfélagi um sig. Heild-
arniðustaða mín er sú að við höf-
um styrkt stöðu okkar í þessum
sveitarstjórnarkosningum þar sem
við buðum fram.“
Guðjón kvaðst líta svo á að nið-
urstaða kosninganna styrkti
Frjálslynda flokkinn á landsvísu og
kvaðst vona að það myndi skila sér
þegar kæmi til alþingiskosninga og
heldur aukast en hitt. Hann var
spurður hvort hann teldi kosning-
arnar hafa áhrif á stöðu rík-
isstjórnarinnar. „Framsókn-
arflokkurinn fer skelfilega út úr
þessum kosningum. Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur frekar sínu, þó
að það sé svona upp og ofan. En
ríkisstjórnin sem heild kemur ekki
vel út úr þessum kosningum þegar
lögð er saman staða Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks.“
Guðjón kvaðst ekki á þessu stigi
vita neitt um hvernig myndun nýs
borgarstjórnarmeirihluta í Reykja-
vík gæti farið. „Sjálfstæðisflokk-
urinn er í þeirri stöðu að vera
stærstur og geta rætt við marga.
Ég held að það sé ekkert hægt að
fullyrða um það á þessari stundu
til hvers viðræður allra flokkanna,
annarra en Sjálfstæðisflokksins,
geti leitt. Við höfum lýst því yfir,
bæði í ræðu og riti, að það væru
fyrst og fremst málefnin sem réðu
því með hverjum við vildum starfa.
Við höfum ekkert hafnað samstarfi
við Sjálfstæðisflokk eða aðra
flokka. Við höfum fyrst og fremst
sett málefnin á oddinn í því sam-
bandi.
Það ræðst eingöngu af mál-
efnasamningum hvernig menn ná
samkomulagi um að starfa saman í
sveitarstjórnum. Það á jafnt við
um Reykjavík og aðra staði á
landinu hvað okkur varðar. Við
höfum alltaf haft það sem okkar
leiðarljós að vinna að málefnum og
styðja málefni, sama hvort þau
koma frá stjórn eða stjórnarand-
stöðu í þinginu til dæmis, ef við
höfum talið að málefnin væru góð.
Þá höfum við ekki lagst gegn mál-
um ef við teljum þau til fram-
dráttar og heilla. Ég á von á að
það verði gegnumgangandi stefna
hjá okkar við samræður um stjórn
borgar og bæja að það verði fyrst
og fremst málefnastaðan sem ræð-
ur því með hverjum við vinnum, ef
við förum einhvers staðar inn í
samstarf.“
m styrkt stöðu okkar
istjánsson, formaður Frjálslynda flokksins