Morgunblaðið - 29.05.2006, Page 38
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG SÁ SVO SÆTA STELPU Í
KOSSABÁSNUM Í TÍVOLÍINU...
...SVO ÉG KEYPTI ALLA MIÐANA STUTTU SEINNA FÓR HÚN Í MAT OG
OFUR APINN MARGRÉT TÓK VIÐ
ER ÞETTA
BANANA
LIKT?
ÞAÐ ER VÍST
MIKILVÆGT AÐ
KUNNA AÐ
LESA
ÞEGAR MAÐUR ER BÚINN
AÐ LÆRA ÞAÐ ÞÁ VILJA
MENN AÐ MAÐUR FARI Á
BÓKASAFNIÐ
EN EF MAÐUR TÝNIR BÓK
AF SAFNINU ÞÁ VILJA ÞEIR
DREPA MANN!
ÉG SAGÐIST
ALDREI VILJA LÆRA
AÐ LESA!!!
HANN NÁLGAST
ÓÐFLUGA! EIGUM VIÐ
AÐ HENDA TIL HANS
MATARLEIFUNUM
OKKAR?
NEI, HANN VIRÐIST NÓGU
PIRRAÐUR FYRIR!
STAÐA ÞÍN ER AÐ
VEIKJAST PABBI
JÁ?
JÁ, ER ÞAÐ
HVAÐA
DRUSLA ER
ÞETTA Á
MYNDINNI
MEÐ ÞÉR?
ÞESSI
„DRUSLA“ ER
HÚN MAMMA
ÞÍN!
HVER ER
DRUSLA!!!
SKRÍTIN
HÁR-
GREIÐSLA
,MAMMA
SAMKVÆMT NÝJUSTU
KÖNNUN SEM GERÐ VAR Á
MEÐAL SEX ÁRA KRAKKA Á
ÞESSU HEIMILI ÞÁ ER ÞAÐ
HEIÐARLEIKI ÞINN SEM
SKIPTIR MÁLI EN EKKI KOS-
NINGA LOFORÐ
ÞÚ VINNUR OF
MIKIÐ, ÞÚ
VERÐUR AÐ GEFA
ÞÉR TÍMA TIL AÐ
SLAKA Á OG ÞEFA
AF BLÓMUNUM
ÉG VERÐ AÐ FINNA LEIÐ TIL AÐ VINNA
HANA Á MITT BAND SVO HÚN BEINI FLEIRI
KÚNNUM TIL MÍN
HVERJU ÆTLI
HÚN HAFI
GAMAN AF?
ÞAÐ ER ALL-
SKONAR ÍÞRÓTTA
DÓT Á BORÐINU
HENNAR
ÉG VILDI AÐ ÉG
ÆTTI MIÐA Á
ÚRSLITALEIKINN!
ÞAR
KOM ÞAÐ!
HELDURÐU AÐ ÞEIR LOKI
STAÐNUM ÚT AF
KRÓKÓDÍLUNUM?
NEI, BÆJARSTJÓRNIN VILL
ENDILEGA AÐ ÉG TAKI UPP
MYNDINA MÍNA HÉR
EN ÞAÐ SEM SKIPTIR MIG MESTU
MÁLI ER ÞÚ
ÚTI Á SVÖLUM...
Dagbók
Í dag er mánudagur 29. maí, 149. dagur ársins 2006
Alveg er Víkverjihiminlifandi yfir
því að hagfræðingar
eru farnir að vekja at-
hygli á því hvernig
bankarnir notfæra sér
miskunnarlaust sinnu-
leysi okkar neytenda
varðandi vexti. Tug-
þúsundir karla og
kvenna nýta sér yf-
irdráttinn án þess að
reikna saman ár hvert
hvað þessi lán kosta.
Það gerði Víkverji um
árið og fékk áfall sem
dugði til þess að hann
hætti að nota þessi
einstæðu tækifæri til að hjálpa aum-
ingja bönkunum. Vextir upp á 21%,
takk! Þetta er rán fyrir opnum tjöld-
um.
Vafalaust segja einhverjir að við
getum sjálfum okkur um kennt, eng-
inn þvingi okkur til að gleypa við
svona tilboðum. Það er nokkuð til í
því en bankarnir bera ekki síður
ábyrgð en önnur fyrirtæki á því sem
þeir gera. Þeim ber skylda til að
benda á bæði kosti og galla við yf-
irdráttarlánin. Það gætu þeir til
dæmis gert með því að reikna út hvað
það kostar að vera með 300 þúsund
króna yfirdrátt í gangi allt árið. Og
síðan gæti þjónustufulltrúi spurt með
geislandi tannbursta-
brosi: Það er þetta sem
þú vilt, er það ekki, ha,
ha, ha? Víkverji yrði
ánægður með þannig
þjónustu.
x x x
Víkverji er einn afþeim kjósendum
sem vilja helst geta not-
að bæði bílinn sinn og
reiðhjólið og er þess
vegna ekki neitt skelk-
aður við þá tilhugsun að
sjálfstæðismenn í
Reykjavík stjórni henni
í samvinnu við Vinstri-
græna, nú eða Frjálslynda. Líklega
er fyrri kosturinn sá heppilegasti. Þá
myndu bæði bílahatarar og bílabrjál-
æðingar í flokkunum tveimur verða
að slaka til og niðurstaðan gæti orðið
Víkverja að skapi.
Þar sem R-listaflokkarnir flestir
sleikja nú sárin er allt í lagi að hrósa
þeim fyrir eitt af því fáa sem vel var
gert í tíð þeirra. Reynt var að gera
betur við hjólreiðamenn þó að víða,
einkum í úthverfum, væri of mikið
lagt undir bílamannvirki. Síðan mætti
nefna umbæturnar í Nauthólsvík,
sem eru til fyrirmyndar, og ljóst á
góðum sumardögum að Reykvík-
ingar eru sáttir við staðinn.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Kirkjulist | Í gær var opnuð sýning í Hallgrímskirkju á 50 íkonum frá
Balkanskaga. Á sýningunni eru verk eftir núlifandi viðurkennda listamenn
frá fjórum þjóðlöndum, sem vinna verk sín í ólíkum stíl eftir þremur mismun-
andi hefðum í íkonagerð innan rétttrúnaðarkirkjunnar í dag.
Sýningin er haldin í tengslum við vortónleika Mótettukórs Hallgríms-
kirkju sem verða annan dag hvítasunnu, 5. júní, kl. 17. Þá mun Mótettukór
Hallgrímskirkju flytja stórbrotna kórtónlist frá Austur-Evrópu, m.a. þætti
úr hinum vinsæla Vesper eftir Rachmaninoff. Kórinn er með þessari efnis-
skrá að fara inn á slóðir í efnisvali sem hann hefur ekki kannað áður. Sungið
verður á rússnesku, kirkjuslavnesku, grísku og latínu.
Sýningin í Hallgrímskirkju stendur til 24. júní. Verkin á sýningunni eru til
sölu.
Íkonar í Hallgrímskirkju
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Ofmetnaður hjartans er undanfari falls, en auðmýkt er
undanfari virðingar. (Orðskv. 18, 12.)