Morgunblaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 42
G
ullpálminn eftirsótti í
aðalkeppni kvik-
myndahátíðarinnar í
Cannes féll þetta árið í
skaut breska leikstjór-
ans Ken Loach fyrir myndina The
Wind That Shakes the Barley sem
fjallar um sjálfstæðisbaráttu á Ír-
landi á 3. áratug síðustu aldar. Kín-
verski leikstjórinn Won Kar Wei,
formaður dómnefndarinnar, sagði
niðurstöðu hennar hafa verið ein-
róma. Myndin hefði snert alla í dóm-
nefndinni djúpt. „Þetta voru fyrstu
verðlaunin sem við ákváðum að gefa.
Svo einfalt er það,“ sagði hann.
Ken Loach sækir nú kvik-
myndahátíðina í Cannes í þrettánda
sinn og er þetta í áttunda sinn sem
hann tekur þátt í keppni á hátíðinni.
Í tvígang hefur hann hlotið sérstök
verðlaun dómnefndar og sagðist
hann eftir að úrslitin voru kynnt í
gær í raun og sanni alls ekki hafa átt
von á að landa Gullpálmanum í ár.
„Ég er agndofa,“ tilkynnti hann og
virtist hálfdofinn. Hann hrósaði val-
inu á kvikmyndum inn í keppnina í
ár. Þær endurspegluðu pólitískan
óróa í heiminum á síðustu árum.
Þau verðlaunin sem mætti túlka
sem annað sætið, Grand Prix, fékk
franska franska myndin Flandres
eftir Bruno Dumont en hann hefur
áður hlotið þau verðlaun auk við-
urkenningar í flokki yfir bestu frum-
raunina.
Sérstök dómnefndarverðlaun
hlaut Andrea Arnold fyrir bresku
myndina Red Road. Það er fyrsta
mynd hennar í fullri lengd en hún
hefur hlotið fjölda viðurkenninga
fyrir stuttmyndina Wasp og við-
urkenndi hún að hafa verið komin til
London en þurft að snúa aftur til
Cannes.
Bölvun Almodóvar
Margir höfðu spáð Pedro Almod-
óvar sigri og hann fór vissulega ekki
tómhentur heim. Verðlaun fyrir
besta handritið féllu honum í skaut
auk þess sem dómnefndin brá á það
ráð að verðlauna allar sex leikkon-
urnar í myndinni hans Volver með
leikkonuverðlaununum. Því hafði
verið spáð að Penelope Cruz fengi
þessi verðlaun en hún sagðist gleðj-
ast yfir því að allur hópurinn hefði
fengið verðlaunin saman. „Þetta er
miklu skemmtilegra en að fá verð-
launin einn,“ sagði Cruz en Almod-
óvar lét þessi orð falla: „Nú líður
mér ekki eins og leikstjóranum held-
ur eins og mömmu þeirra allra.“
Leikstjórinn virtist vonsvikinn á
verðlaunaafhendingunni en hann af-
tók það öllu eftirá. „Ég sá að mynd-
inni minni var spáð sigri alla vikuna
og ég hef verið í þeim sporum áður.
Það er í raun bölvun að fá slíka spá-
dóma hér í Cannes,“ sagði hann og
viðurkenndi að hafa verið mjög
stressaður.
Ár leikaranna
Dómnefnd Won Kar Wei lét ekki
þar við sitja heldur veitti karlleik-
araverðlaunin einnig hópi leikara.
Það voru fimm leikarar í frönsku
myndinni Indigénes eftir Rachid
Bouchareb. Formaðurinn sagði
þetta ekki hafa verið gert til að
halda samræmi heldur endurspegl-
aði þetta einfaldlega þá skoðun
nefndarinnar að árið í ár væri ein-
stakt fyrir leikarana.
Mexíkanska leikstjóranum Alej-
andro González Inárritu hafði verið
spáð Gullpálmanum líkt og Almod-
óvar en fór heim með verðlaunin fyr-
ir bestu leikstjórn í mynd sinni Bab-
el með Cate Blanchett, Brad Pitt og
Gael Bernal í aðalhlutverkum.
Glæsikerran athyglisverð
Kínverski leikstjórinn Wang Chao
nældi sér í fyrstu verðlaun fyrir
Luxury Car í flokki mynda sem
ástæða þykir að vekja sérstaka at-
hygli á, Un Certain Regard. Sá
flokkur þykir sá næst mikilvægasti á
hátíðinni á eftir aðalflokknum sem
keppir um Gullpálmann. Myndin er
sú síðasta í röð þriggja kvikmynda
leikstjórans og keppti hún við á
þriðja tug mynda í Un Certain
Regard-flokknum. Þeirra á meðal A
Scanner Darkly eftir Richard
Linklater, sem einnig átti myndina
Fast Food Nation í aðalkeppninni og
Paris je t́aime, safn tuttugu stutt-
mynda eftir jafnvel fleiri leikstjóra,
sem vakið hefur athygli.
Sérstök dómnefndarverðlaun í
þessum sama flokki voru veitt ástr-
alska leikstjóranum Rolf de Heers
fyrir Ten Canoes, sem fjallar um líf
frumbyggja Ástralíu.
Í flokknum Cinéfondation, sem
ætlað er að koma á framfæri kvik-
myndum nýrrar kynslóðar kvik-
myndagerðarmanna, bar argentíska
myndin Ge & Zeta sigur úr býtum.
Lognið á undan storminum
Besta stuttmyndin í hliðarkeppni
á hátíðinni var valin Sniffer eftir
Bobbie Peers. Dómnefndarverðlaun
í þeirri keppni fékk Primera nieve
eftir Pablo Aguero og dómnefndin
minntist einnig sérstaklega á teikni-
myndina Conte de quartier eftir
Florence Miailhe. Þá var besta
frumraunin valin A fost sau n-a fost?
eftir Rúmenann Coreliu Porumboiu.
Það er mál manna að stjörnubirt-
an hafi verið með dauflegasta móti á
hátíðinni í ár og vantað í bæinn mörg
risastóru nöfnin sem prýða þær
myndir sem voru sýndar. Má vera að
þetta gefi vísbendingu um lognið á
undan storminum en á næsta ári ku
verða mikið um dýrðir í Cannes
enda verður kvikmyndahátíðin þá
haldin í 60. sinn.
Loach hirti Gullpálmann
Reuters
Ólíkt því sem spáð hafði verið
hreppti Pedro Almodóvar ekki
Gullpálmann fyrir mynd sína
Volver, en allar sex leikkonur
myndarinnar deildu með sér verð-
laununum sem besta leikkona. Frá
vinstri: Yohana Cobo, Blanca Port-
illo, Lola Duenas, franski leikarinn
Jean Rochefort sem var kynnir,
Penelope Cruz og Carmen Maura.
Eftir Soffíu Haraldsdóttur í Cannes
Ken Loach var sigurreifur eftir að hafa hreppt Gullpálmann fyrir myndina
The Wind that Shakes the Barley.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Dómnefndin ákvað að veita öllum karlleikurum myndarinnar Indigénes
verðlaun besta karlleikara. Frá vinstri: Jamel Bebbouze, Samy Naceri,
Roschdy Sem, Sami Bouajila og Bernard Blancan.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Dómnefnd veitti Bruno Dumont
„annað sæti“, Grand Prix, fyrir
myndina Flandres.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
42 MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
X-MEN 3 kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
The DaVinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
X-Men 3 kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Da Vinci Code kl. 4, 5, 7, 8, 10 og 11 B.i. 14 ára
Da Vinci Code LÚXUS kl. 5, 8 og 11
Cry Wolf kl. 10 B.i. 16 ára
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 6 og 8
Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 3.50
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 4
LEITIÐ SANNLEIKANS - HVERJU TRÚIR ÞÚ?
www.xy.is
200 kr afsláttur
fyrir XY félaga
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
VINSÆLASTA MYND Í HEIMI!
eee
S.V. MBL.
eee
VJV - TOPP5.is
LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI.
NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS