Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
MIÐASALA HAFIN Á SÝNINGAR Í HAUST!
FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP
Fi 1/6 kl. 20 UPPS. Fö 2/6 kl. 20
Fö 2/6 kl. 22:30 Má 5/6 kl. 20
Þri 6/6 kl. 20 UPPS. Fö 9/6 kl. 20 UPPS.
Fö 9/6 kl. 23 Má 12/6 kl. 20
Þri 13/6 kl. 20
VILTU FINNA MILLJÓN?
Í dag kl. 10 UPPS.
Fö 2/6 kl. 20 UPPS. Lau 3/6 kl. 20 UPPS.
Má 5/6 kl. 20 Fi 8/6 kl. 20
Fö 9/6 kl. 20 Lau 10/6 kl. 20 UPPS.
Su 11/6 kl. 20 AUKASÝNING
Fi 15/6 kl. 20 Sun 18/6 kl. 20
SÖNGLIST
Innritun á sumarnámskeiðin stendur yfir!
Nánari upplýsingar og skráning í miðasölu
Borgarleikhússins.
NAGLINN
Fi 1/6 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING
25 TÍMAR
DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN 2006
9 verk verða frumsýnd sem keppa til
verðlauna.
Fi 8/6 kl. 20
Teldu mig með. Höf. Ólöf Ingólfsdóttir og
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachman.
Elsku bróðir. Höf. Steinunn Ketilsdóttir.
Blind ást. Höf. Rebekka Rán Samper.
Tommi og Jenni. Höf. Elma Backman, Stefán
Hallur Stefánsson ogHalldóra Malín Pétursd.
Boðorðin 10. Höf. Marta Nordal.
Guðæri. Höf. Ólafur Darri Ólafsson og Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir
Dillir dó og Dummi. Höf. Benóný Ægisson.
Shoe size nine months. Höf. Peter Anderson.
Stigma. Höf Andreas Consantinou.
MIÐAVERÐ 2.500. Miðasala hafin.
RONJUVÖRUR
Bolir, sundpokar, nælur, geisladiskur ofl.
Fæst í miðasölu Borgarleikhússins.
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
MIÐASALA OPIN
ALLAN SÓLAR-
HRINGINN Á NETINU.
Litla hryllingsbúðin – aukasýningar í september!
Vegnar mikillar aðsóknar: Aukasýningar í september!
Lau 2/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus
Sun 3/9 kl. 20 AUKASÝNING – nokkur sæti laus
Fös 8/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus
Lau 9/9 kl. 19 AUKASÝNING – nokkur sæti laus
Fullkomið brúðkaup – Borgarleikhúsinu. Sýningar í fullum gangi.
Litla hryllingsbúðin – Íslensku óperunni. Sýningar í fullum gangi.
Leiklistarnámskeið á Akureyri í júní.
tónleikar í háskólabíói
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Einleikari ::: Stefán Ragnar Höskuldsson
FIMMTUDAGINN 1. JÚNÍ KL. 19.30
Lowell Liebermann ::: Flautukonsert op. 39
Atli Heimir Sveinsson ::: Sinfónía nr. 2
FL Group er aðalstyrktaraðili
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga
Símasala kl. 10-18. þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Óperuvefnum allan sólarhringinn
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
LAU. 3. JÚNÍ KL. 19 - UPPSELT
„Besta söngleikjauppfærsla ársins”
S.S - Fréttablaðið
LITLA HRYLLINGSBÚÐIN
Sett upp í samstarfi við Leikfélag Akureyrar
LAU. 10. JÚNÍ KL. 19 - NOKKUR SÆTI LAUS
LAU. 3. JÚNÍ KL. 22 - Aukasýning
FIM. 8. JÚNÍ KL. 19 - Aukasýning
SUN. 11. JÚNÍ KL. 15 - Aukasýning
FIM. 15. JÚNÍ KL. 19 - Aukasýning
YFIR 10.000 eintök af
Þriðja tákninu, saka-
málasögu Yrsu Sig-
urðardóttur, hafa
selst á skömmum
tíma að sögn útgef-
anda hennar, Péturs
Más Ólafssonar hjá
Veröld. Þriðja táknið
kom út í innbundinni
útgáfu á spænsku
þann 3. maí sl. hjá
bókaútgáfunni Suma
og er önnur prentun
væntanleg.
Þá hefur bóka-
forlagið Veröld geng-
ið frá samningi við
Damm í Svíþjóð um
útgáfu á Þriðja tákninu í hljóð-
bókarformi. Sama forlag sendir
verkið á markað þar í landi í inn-
bundinni útgáfu síðar í sumar.
Samningurinn kveður á um að
Damm gefi söguna út á hljóðbók
en einnig verður
hægt að hlaða
henni niður af net-
inu.
Þriðja táknið,
sem nýverið kom
út á kilju hér á
landi, er fyrsta
glæpasaga Yrsu
Sigurðardóttur og
var meðal mest
seldu bóka ársins
2005. Gengið hef-
ur verið frá samn-
ingum um útgáfu
á henni á átján
tungumálum.
Yrsa vinnur nú að
annarri saka-
málasögu sinni og kemur hún út
hjá Veröld í byrjun nóvember
næstkomandi. Nú þegar hefur
verið samið um útgáfu á henni í
Bandaríkjunum, Bretlandi og á
Ítalíu.
Þriðja tákninu vel
tekið á Spáni
Yrsa
Sigurðardóttir
DANSHÁTÍÐ Listahátíðar í
Reykjavík fór fram daganna 27.
og 28. maí í Borgarleikhúsinu.
Þessi hátíð er, eins og danshátíðin
á sl. ári, á vegum Trans Danse
Europe sem er samvinnuverkefni
átta Evrópuþjóða sem hófst með
menningarborgarsamvinnu árið
2000. Verkefninu lýkur á þessu ári
en vonir standa til að hægt verði
að halda samstarfinu áfram. Ís-
lenski dansflokkurinn, sem sér um
íslenska hluta verkefnisins, hefur
flutt verk sín á vegum Trans
Danse Europe víða um álfuna,
bæði einn og nú síðast í samstarfi
við hóp frá Slóveníu, sem er eitt af
löndunum átta.
Íslenskir áhorfendur hafa notið
verulega góðs af verkefninu þar
sem þeim hefur gefist kostur á því
að sjá verk sem annars hefðu lík-
lega ekki verið hér á boðstólum.
Fyrsta sýningin á danshátíðinni
í ár var Obstructsong eftir danska
danshöfundinn Palle Granhøj, flutt
af sex dönsurum úr flokki hans,
Granhøj Dans. Þetta er ákaflega
hlýtt og elskulegt verk með svolít-
illi kímni sem yljar áhorfendum og
fær þá til að brosa góðlátlega.
Upphaf verksins var mjög fal-
legt. Danssvæðið var afmarkað af
stöngum með ljósi efst og á gólf-
inu var þykkt, hvítt ullarteppi.
Dansararnir stóðu í beinni röð aft-
ast þannig að ljós frá stöngunum
sem þar stóðu lýsti niður á andlit
þeirra, aðeins tírði á öðrum ljós-
um. Síðan fór að heyrast örlítið
hvísl frá dönsurunum sem smátt
og smátt varð að söng á einhverju
tilbúnu máli. Öll tónlist í sýning-
unni var þannig flutt af sjálfum
dönsurunum, stundum einum í
einu og þá létu þeir það t.d. ekki
trufla sönginn að aðrir dansarar
hæfu þá á loft og færðu á milli sín
í hinum ýmsu stellingum. Nokkrar
ljósastangir höfðu þann eiginleika
að það var hægt að lengja þær,
sveigja og beygja og þannig beina
ljósi að einstökum dansara eða lík-
amshluta. Það voru dansarnir
sjálfir sem stjórnuðu þessum ljós-
um.
Í leikskrá segir að verkið fjalli
um erótík, daður, átök og þrá.
Mjög léttum höndum var farið um
erótíkina og daðrið var ekki held-
ur áberandi en þrár og langanir
virtust í fyrirrúmi. Danshöfund-
urinn notar nokkuð sem hann kall-
ar mótstöðutækni í danssköpun
sinni og því var mikið um að hald-
ið væri fast í, ýtt og togast á. Sér-
lega áhugaverður var dans tveggja
karldansara, að mestu sitjandi eða
liggjandi á gólfinu, þar sem þeir
tókust á og köstuðu sjálfum sér og
hvor öðrum fram og aftur. Þriðji
karldansarinn bættist í hópinn í
lok atriðisins. Dansararnir voru
tæknilega nokkuð misjafnir, og
sama má segja um gæði raddanna
sem í raun skiptu þó ekki máli.
Þeir dansarar sem dönsuðu mest
voru afar góðir og allir áttu þeir
til það sem dugði til að ná til
áhorfenda sem klöppuðu ákaft í
lok sýningarinnar. Leikmyndin
var falleg og sérstæð og búningar
aðeins venjuleg föt í hlutlausum
litum. Kannski var það vegna
áhrifa frá ullarteppinu á gólfinu
en það var eitthvað hlýtt og ljúft í
þessu verki.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
flokkur Palle Granhøj sýnir hér á
landi. Þó langt sé um liðið eru
undirritaðri enn í minni nokkur
atriði úr sýningu hans í Þjóðleik-
húsinu fyrir u.þ.b. 11 árum. Megi
hann og flokkur hans ávallt vera
velkominn.
Dönsk hlýja og syngjandi dansarar
DANS
Borgarleikhúsið
Granhøj Dans flutti Obstructsong. Dans-
höfundur: Palle Granhøj, útlitshönnun:
Per Victor, dansarar: Aline Sanchez Rodr-
iguez, Anne Eisensee, Dorte Petersen,
Gaute Grimeland, Kristoffer Louis Andrup
Pedersen og Jannik Elkaer Nielsen.
Borgarleikhús, Nýja sviðið, laugardaginn
27. maí kl. 17.
Listahátíð í Reykjavík
Trans Dance Europe 2006
Ingibjörg Björnsdóttir
„Þetta er ákaflega hlýtt og elskulegt verk með svolítilli kímni sem yljar
áhorfendum og fær þá til að brosa góðlátlega,“ segir Ingibjörg Björnsdóttir
m.a. um verkið Obstructsong eftir danska danshöfundinn Palle Granhøj.
MARGRÉT Lára Þórarinsdóttir
sópran og Ólafur Vignir Albertsson
píanóleikari halda einsöngstónleika
í dag, miðvikudaginn 31. maí kl. 20
í Snorrabúð, tón-
leikasal Söng-
skólans í Reykja-
vík.
Margrét Lára
hefur stundað
nám við Söng-
skólann í Reykja-
vík undir leið-
sögn Margrétar
Bóasdóttur, en
tónleikarnir eru
liður í burtfar-
arprófi Margrétar Láru.
Á morgun, fimmtudag heldur
Auðrún Að-
alsteinsdóttir
sópran tónleika
við undirleik
Iwona Aspar
Jagla á píanó.
Auðrún hefur
numið söng und-
ir leiðsögn Sig-
nýjar Sæmunds-
dóttur og eru
tónleikarnir lið-
ur í burtfarar-
prófi Auðrúnar frá Söngskólanum í
Reykjavík. Tónleikar Auðrúnar
verða í Norræna húsinu og hefjast
kl. 20.
Kristín Þóra
Haraldsdóttir
sópran heldur
burtfarar-
tónleika sína á
föstudag og leik-
ur Elín Guð-
mundsdóttir
undir. Kristín
Þóra naut leið-
sagnar Elísabet-
ar F. Eiríks-
dóttur í náminu. Hefjast tónleik-
arnir kl 20 í Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.
Burtfararprófstónleikar
við Söngskólann í
Reykjavík
Margrét Lára
Þórarinsdóttir
Auðrún
Aðalsteinsdóttir
Kristí Þóra
Haraldsdóttir
STÓRSVEITIR FÍH og tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar halda tónleika
í kvöld kl. 20.30 í Hásölum í Hafn-
arfirði. Stórsveitin er skipuð hljóð-
færaleikurum frá 16-25 ára sem
hafa komið víða fram. Stjórnendur
sveitanna eru Edward Fredriksen
sem stjórnar stórssveit FÍH og
Stefán Ómar Jakobsson sem
stjórnar stórsveit Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar. Aðgangur er
ókeypis.
Stórsveitartónleikar