Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 36
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞÚ ERT ÓGEÐSLEGUR! ÓGEÐSLEGUR OG ÁNÆGÐUR! ÞJÓFUR! AFI SEGIR AÐ TEIKNIMYNDASÖGURNAR Í MOGGANUM HAFI VERIÐ BETRI Í GAMLADAGA ÞEGAR ÞÆR VORU STÆRRI HANN SEGIR AÐ Í DAG SÉ EKKERT PLÁSS TIL AÐ SÝNA HASAR HELDUR BARA EIN- HVERJA HAUSA AÐ TALA SAMAN HONUM FINNST AÐ FÓLK ÆTTI AÐ SENDA BRÉF OG KVARTA AFI ÞINN TEKUR ÞETTA GREINILEGA MJÖG ALVARLEGA JÁ ENDA ÆTLAR MAMMA AÐ SETJA HANN Á STOFNUN SVON NÚ! VAKNAÐU! LÁTTU MIG Í FRIÐI. ÉG RÆÐ Á ÞESSU HEIMILI! MÉR ER SLÉTT SAMA UM ÞAÐ! EF ÞÚ VERÐUR EKKI KOMINN Á LAPPIR EFTIR 30 SEKÚNDUR ÞÁ FÆRÐU ENGAN MORGUN- MAT! AND- VARP! JAFNVEL HÚSBÓNDARVERÐA AÐ FÁ MORGUNMAT VIRÐIST ÉG NOKKRUM KÍLÓUM ÞYNGRI Í ÞESSUM KJÓL? ÉG ÆTTI AÐ FÁ FLEIRI KÚNNA TIL MÍN FYRST AÐ MÉR TÓKST AÐ NÁ Í MIÐA HANDA HENNI Á ÚRSLITALEIKINN ÉG ER MEÐ RÆKILEGT SAMVISKUBIT EN ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ ÞESS VIRÐI HELD AÐ ÉG MUNI FÁ FLEIRI KÚNNA FYRIR ÞETTA TAKK! TAKK! TAKK! ÉG GET EKKI HÆTT AÐ HUGSA UM ÞIG M.J. ERTU BÚIN AÐ GLEYMA ÞVÍ AÐ ÉG ER GIFT? ÉG BIÐST INNILEGRAR AFSÖKUNAR ÉG ÆTLA HEIM STJÓRI! HVAÐ ER AÐ GERAST? ÞETTA ER ÞJÓNNINN SEM HLEYPTI KRÓKÓDÍLUNUM ÚT... Dagbók Í dag er miðvikudagur 31. maí, 151. dagur ársins 2006 Systur sem eru bú-settar í Svíþjóð heilluðust af Kjarval þegar þær flettu veg- legri bók um lista- manninn sem faðir þeirra fékk í afmæl- isgjöf. Konurnar, sem eru af íslenskum ætt- um, ákváðu að slá tvær flugur í einu höggi, heimsækja ættingja sína á Íslandi en megin tilgangur heimsókn- arinnar að þessu sinni var samt að skoða með eigin augum verk listamannsins. Þær lögðu leið sína á Kjarvalsstaði þegar þær voru komnar hingað til lands en þar var engin listaverk hægt að skoða eftir Kjarval. Þær fóru þá á nokkur önnur til að leita uppi verk eftir listamanninn en komu alls stað- ar að tómum kofum hvað það varðar. Hvergi gátu þær fundið safn þar sem verk Kjarvals voru til sýnis. Konurnar voru því vonsviknar þegar þær héldu á ný til Svíþjóðar eftir annars vel heppnaða heimsókn. x x x Víkverji er kátur þessa dagana.Þessi árstími er svo undursam- legur að hans mati. Það er engu líkt að vakna snemma að morgni við fuglasöng og rölta með kaffiboll- ann sinn út í garð og fylgjast með gróðr- inum sem er allur að koma til. Víkverji er þegar farinn að pota niður í garðinn hjá sér krydd- jurtum og grænmeti. Hann hvetur alla þá sem hafa auðan blett í garðinum sínum að setja niður kryddjurtir og grænmeti. Það er orðið of seint að vera með fræ núna en hjá gróðrarstöðvum er hægt að kaupa ýmsar salattegundir og gulrófur, spergilkál, blómkál og hvítkál svo dæmi séu tekin og ekki má gleyma kryddjurtum eins og myntu, stein- selju, kóríander og graslauk. Það er um að gera að leyfa krökk- um á heimilinu að gróðursetja með fullorðna fólkinu og virkja þau í að hugsa um plönturnar og fylgjast með sprettunni í sumar. Þau munu njóta þess að fara í garðinn síðsumars og ná í grænmeti eða krydd í mat- argerðina svo ekki sé nú talað um ef þau fá að vera með puttana í að mat- búa líka það sem þau hafa verið að rækta. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is         Myndlist | Risastórar brúður sem hannaðar voru af spænska myndlistar- manninum Joan Miro árið 1978, halda hér innreið sína í Túrbínusalinn í Tate Modern-safninu í Lundúnum. Skrúðgangan er hluti af hátíðahöldum sem fram fóru um helgina í safninu, sem tileinkuð voru súrrealistum.Gegndu brúðurnar þar veigamiklu hlut- verki, enda eru þær hluti af leiksýningunni Merma deyr aldrei; ádeiluleikriti sem skrifað var til flutnings gegn einræði Francos. Leikritið var sett upp í safninu, en það hefur ekki verið fært upp í Bret- landi í 26 ár. AP Míró-innreið í Tate MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.