Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 33 MINNINGAR FEBK Gjábakka Formlegri vetrarspilamennsku lauk sl. föstudag en þá var spilað á fimm borðum. Feðgarnir Ólafur Lárusson og Lárus Hermannsson unnu N/S-riðilinn með skorina 144 en fast á hæla þeirra komu Rafn Kristjánsson og Oliver Kristófersson með 143. Guðjón Kristjánsson og Magnús Oddsson unnu A/V- riðilinn með skorina 157 og eins og í hinum riðlinum var mjótt á munum en Júlíus Guðmundsson og Óskar Karls- son fengu skorina 155. Sumarspilamennska hefst föstudaginn 2. júní. Spilað er í Gjábakka og hefst spilamennskan kl. 13,15. Umsjón- armaður er Ólafur Lárusson. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 26. maí var spilað á 9 borðum. Meðalskor var 216. Úrslit í N/S Jón Hallgrímss. – Bjarni Þórarinss. 250 Sveinn Jensson – Jóna Kristinsd. 240 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 231 A/V Þorvarður S. Guðm. – Jón Sævaldsson 254 Sverrir Gunnarss.– Oddur Halldórsson 254 Björn Björnsson – Sigríður Gunnarsd. 241 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson ✝ Haraldur ElíasWaage fæddist í Reykjavík, 7. ágúst 1953. Hann lést 22. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Arn- björg Jónsdóttir, f. á Eskifirði 19.8. 1923 en ólst upp á Seyðisfirði og Markús Waage, f. á Tjaldanesi í Auð- kúluhreppi í Arn- arfirði 5.6. 1921, d. 14.7. 1995. Systur Haraldar eru a) Guðbjörg Hall- fríður, f. 23.3. 1945, b) Ágústa, f. 2.1. 1947, maki Ingólfur Tryggvason, sonur hennar Markús, f. 4.4. 1965, d. 23.4. 1976, c) Guðný, f. 12.9. 1960, börn hennar Arnbjörg Kristín, f. 16.1. 1992 og Markús Helgi, f. 30.6. 1995. Haraldur út- skrifaðist frá Vél- skóla Íslands árið 1982, vann mestan hluta starfsævi sinnar við vélsmíð- ar en síðustu árin sem vélgæslumað- ur hjá Actavis. Útför Haraldar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hann Haraldur er dáinn. Það er komið að kveðjustund, sem okkur óraði ekki fyrir að væri í vændum. Það er fátt um orð á stundum sem þessum. Hann bróðir okkar var oft- ast sjálfum sér nógur, hann gat virkað fálátur, en var bæði kátur og ræðinn í góðra vina hópi. Hjartahlýr og tryggur þeim sem honum þótti vænt um, og naut þess að spjalla um heimspeki, trúmál og bókmenntir. Einnig hafði hann gaman af tré- skurði. Haraldur elskaði Vestfirði, þaðan sem hann átti ættir að rekja. Bæði var að mamma og pabbi bjuggu á Ísafirði í nokkur ár á unglingsárum hans og að fyrstu tólf sumur ævinn- ar dvaldi hann á Hrafnseyri við Arn- arfjörð hjá Jöggu frænku og Garðari frænda. Þaðan átti hann sínar bestu minningar. Okkur finnst gott að minnast þess að fyrir tveim- ur árum, þegar mamma varð átt- ræð, þá dvöldum við systkinin ásamt henni í viku við Úlfljótsvatn. Sú vika færði okkur óm af ljúfum æsku- stundum. Við eigum eftir að sakna Haraldar bróður okkar sárt, hann skilur eftir sig tómarúm í lífi okkar. Adda Stína og Markús Helgi missa kæran frænda. Halla, Ágústa og Guðný. Allar minningar okkar systkin- anna um Harald frænda eru bjartar og góðar. Það var alltaf ánægjulegt að rabba við hann um bækur og fólk, hugmyndir og hversdagsannir en skemmtilegast af öllu var að leggj- ast í minningar, gamansögur og æv- intýri. Haraldi var lagið að sýna lif- andi áhuga á því sem um var rætt hverju sinni og hann var einstaklega viðræðugóður á sinn notalega hátt. Jafnframt var hann flinkur sögu- maður, enda kímnigáfan með ágæt- um og af nógu að taka. Leiðinleg umræðuefni komust aldrei á dag- skrá, enda skorti Harald greinilega áhuga á því sem ljótt er og lítils vert. Hann hafði listrænt auga og haga hönd og dálæti hans á fallegum hlutum birtist vel í þeim gjöfum sem hann færði ættingjum sínum og bjó um af augljósri smekkvísi. Haraldi var það mjög fjarri að trana sér fram og láta fyrir sér fara. Víst er að við erum mörg sem minn- umst hans með mikilli hlýju og vild- um svo gjarnan að samverustund- irnar hefðu getað orðið fleiri. Hans er sárt saknað. Elsku Öddu, Höllu, Gústu og Guðnýju vottum við inni- lega samúð. Góðan og kæran frænda kveðjum við með þökk fyrir sam- fylgdina og ósk um Guðs blessun okkur öllum til handa. Heiðrún, Gunnhildur, Bryndís og Ásgeir. HARALDUR ELÍAS WAAGE Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, JÓHANN EGGERT JÓHANNSSON vélstjóri og pípulagningameistari, Lerkihlíð 9, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 2. júní kl. 13.00. Unnur Guðmundsdóttir, Guðjón Jóhannsson, Auður Inga Ingvarsdóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Jón Þór Sigurðsson, Ægir Jóhannsson, Gróa Másdóttir, barnabörn og barnabarnabörn, Valdimar Jóhannsson, Jóhanna Þ. Aðalsteinsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, MAGNÚS S. JÓSEFSSON bóndi, Fremri Hrafnabjörgum, Dalasýslu, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli miðviku- daginn 24. maí, verður borinn til grafar frá Snóks- dalskirkju laugardaginn 3. júní kl. 11.00 árdegis. Ólafía Hjartardóttir, Hinrik Hinriksson, Ólafía Bjargmundsdóttir, Ólafía Magnea Hinriksdóttir, Halldóra Guðrún Hinriksdóttir, Páll L. Sigurðsson, Bjargey Una Hinriksdóttir, Róbert Jensson, Hinrik Ingi Hinriksson. Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞORGERÐAR GUNNARSDÓTTUR fyrrv. bankastarfsmanns, Hörðalandi 10, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 24. maí fer fram frá Foss- vogskirkju föstudaginn 2. júní kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Hrefna Þórarinsdóttir, Gústaf Gústafsson, Þorsteinn Friðriksson, Svanhildur Skúladóttir, Ingibjörg Friðriksdóttir, Friðrik Friðriksson, Nanna Leifsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför SIGRÚNAR I. SIGURÞÓRSDÓTTUR frá Eiðum. Ingibjörg Þórarinsdóttir, Guðmundur S. Jóhannsson, Þórarinn Þórarinsson, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Stefán Þórarinsson, Helga Jóna Þorkelsdóttir, Sigurður Þórarinsson, Margrét Jónsdóttir, Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, Hans U. Vollertsen, Hjörleifur Þórarinsson, Bergþóra Baldursdóttir, Halldór Þórarinsson, Sigríður Wöhler, Ingibjörg Einarsdóttir, Jóhann Grétar Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför eiginkonu minnar, MARGRÉTAR VALLÝJAR JÓHANNSDÓTTUR, Bragagötu 36, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Páll Magnússon. Hún er mætt í rauð- um vindfötum í rign- ingu við Digraneskirkju. Það er fimmtudagur. Hún er þétt, sterkleg, sterk. Hún er eins og valkyrja, ein- hvern veginn þannig að manni finnst eins og ekkert haggi henni. Að ekk- ert geti lagt hana. Glaðleg. Brosmild. Við vissum ekki þá um stormana sem hún hafði staðið af sér. Hún var þarna mætt í fyrsta sinn í gönguhóp Krafts; í stormfötum. Hún var greinilega ekki komin til að væla. Við vældum hins vegar yfir rign- ingunni og rokinu og ákváðum að ekkert yrði af göngutúr í þetta sinn heldur yrði kaffispjallið því lengra. Og settumst niður á kaffihúsið í Hamraborginni. Jóhanna var ein af hópnum. Eins og gömul vinkona; enda var hópurinn þannig. Orð sögð í trúnaði, fullu trausti, einlægni og hreinskilni. Heilu lífin, lífshlaupin, ævivegir, fjallgöngur, sambönd, ást- ir, sorgir og örlög voru lögð á kaffi- borðið. Jóhanna lék á als oddi. Tjáði okk- ur drauma og dró upp úr okkur eigin draumfarir sem hún túlkaði. Hló, JÓHANNA HELGA HAFSTEINSDÓTTIR ✝ Jóhanna HelgaHafsteinsdóttir fæddist í Reykjavík hinn 21. nóvember 1976. Hún lést af völdum krabba- meins á heimili sínu, Birkihlíð 42 í Reykjavík, hinn 1. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkj- unni 8. maí. gantaðist, hafði ekkert að fela. Sagði okkur líka sögur af stormum lífs síns. Nú geisaði stormur- inn; krabbamein inni í líkama hennar og ógn- aði ytra lífinu líka hjá allri fjölskyldunni. Við fögnuðum henni og hún okkur. Samt hefðum við viljað hafa það þannig að hún hefði ekki verið þarna í þessum hópi og í raun engin okkar. En fyrst svo var komið þá glöddumst við allar af nærveru hver annarrar. Krabba- meinið leiddi okkur saman. Verkefni sem engin okkar bað um að fá. Verk- efni sem hefur verið eins og þjálf- unarbúðir fyrir þol og æðruleysi, verkefni sem hefur knúð okkur til að sjá og skilja hversu mikil áhrif við getum haft með því að reyna að velja mildi og gleði þennan eina dag í einu sem við fáum að lifa. Brosið hennar Jóhönnu lifir með okkur. Við munum ófeimnar nefna nafnið hennar þegar við hittumst og hlæja hátt í hennar anda og glaðar og þakklátar erum við yfir því að hafa fengið að kynnast henni. Högg- ið er stórt að missa en gjöfin yfir því að kynnast er einnig stór. Að þykja vænt um, að tengjast, að elska felur ávallt í sér áhættuna á að missa. Þannig er það. En áhættan er ávallt þess virði. Ég trúi því að gnægtaborðið bíði Jóhönnu, veislan stóra þar sem allir eru samankomnir, sem hún talaði um í síðustu kaffihúsaferðinni okkar saman á Kaffi Nauthól. Daginn áður hafði hún fengið dóminn stóra, dóm- inn um að sjúkdómurinn væri ekki eins viðráðanlegur og björtustu von- ir stóðu til. Þá var grátið og líka brosað í gegnum tárin, litið yfir farinn veg og praktísku mál framtíðarinnar urðu fyrirferðarmikil. Gústi var þegar far- inn að læra að flétta og hnýta teygj- ur í stelpuhár. Við vottum fjölskyldu Jóhönnu, aðstandendum og vinum dýpstu samúð okkar. Minning okkar um hana er minn- ing um góða nærveru, styrk, gleði og hlátur. Fyrir hönd gönguhóps Krafts. Anna Ingólfsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd- ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.