Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Kvikmynda-stjörnurnar Angelina Jolie og Brad Pitt leituðu til hebresku og frönsku þegar þau völdu nýfæddri dóttur sinni nafnið Shiloh Nouvel, en Shiloh er hebr- eska og þýðir „hin friðsama“ og Nouvel er franska og þýðir „nýtt“. Þá er orðið Shiloh notað yfir „Messías“ á hebresku. Móðir Jolie er hinsvegar frönsk og er talið að hún hafi valið seinna nafnið henni til heiðurs. Ekki er talið að namibíski ætt- arhöfðinginn Samuel Nuuyoma hafi átt þátt í að velja nöfnin, eins og talað var um í fjölmiðlum að hann myndi gera. Fyrir eiga leikararnir tvö ætt- leidd börn; Maddox, sem er fjögurra ára og Zahara, sem er 16 mánaða.    Fólk folk@mbl.is Breskir útvarpshlutstendur eruorðnir leiðir á James Blunt. Út- varpsstöðin Essex FM, sem sendir út í S-Englandi, hefur tilkynnt, að tvö lög eftir tón- listarmanninn verði hér eftir bönnuð á stöð- inni. Þetta eru hin vinsælu lög „You’re Beauti- ful“ og „Goodbye My Lover“. Chris Cotton, stjórnandi stöðvarinnar, tekur fram að að- standendur hennar hafi ekkert á móti söngvaranum en hlustendur hafi einfaldlega fengið nóg. Mikill þrýstingur er á útvarps- stöðvar frá plötuiðnaðinum um að leika vinsæl lög, sem þýðir að sama tónlistin er oft endurtekin í sífellu svo mörgum finnst nóg um. Cotton segir að stöðin sé einfaldlega að bregðast við ábendingum frá hlust- endum og hvetur aðrar stöðvar til að fylgja fordæminu.    Fullyrt er í sænskum fjölmiðlumað sænska verslunarkeðjan Hennes &Mauritz eigi í viðræðum við poppdrottninguna Madonnu um að hún sýni fatnað fyrirtækisins. H&M vildi ekki staðfesta þessar fréttir. Blaðið Expressen segir að við- ræður standi yfir við Madonnu um þetta verkefni. „Hún er stórstjarna og tískufyrirmynd – og umdeild. Nú gæti Madonna orðið næsta fyrirsæta H&M,“ sagði blaðið. Áður hefur fyrirtækið m.a. fengið fyrirsæturnar Naomi Campbell, Cindy Crawford og Önnu Nicole Smith til að sýna föt. Á síðasta ári rifti H&M samningi við fyrirsætuna Kate Moss eftir að ásakanir komu fram um að hún hefði notað kókaín. EIN þeirra erlendu sveita sem munu troða upp á sumarhátíðinni Reykjavík Trópík er systkinabandið ESG frá Suður-Bronx. Hljómsveitin var stofnuð árið 1978 og er eitt besta dæmi tónlistarsögunnar um naíviska (næfa, „barnslega“) aðkomu að list- inni. Sveitin samanstóð upprunalega af fjórum systrum sem byrjuðu að spila saman tónlist eftir að móðir þeirra keypti handa þeim hljóðfæri. Það gerði hún til að forða þeim frá vandræðum, enda ekkert grín að alast upp í suðurhluta Bronx á þess- um tíma (og er það ennþá). ESG átti eftir að hita upp fyrir P.I.L. og A Certain Ratio, var slengt í hóp með áhrifamestu síðpönksveitum New York borgar og þykir í dag hafa haft áhrif á tónlistarform eins og hipp hopp og hústónlist. Þessu umtali og þessum yfirlýsingum komu ESG á, einfaldlega með því að fylgja eigin tilfinningu og sannfæringu. Syst- urnar lærðu á hljóðfærin án þess að vita neitt um tónlistarlega tísku- strauma stórborgarinnar og útkom- an er berstrípuð og takföst tónlist, borin uppi af bassa og trommum og stöku söngröddum. Víst er að grúv- bundin tónlist sveitarinnar á eftir að smellpassa í sumarstuð Trópíkhátíð- arinnar. Brjálað „Halló!,“ svarar Renee Scroggins glaðværri röddu . Þessi systir sér um gítarleik og söng og gegnir auk þess hlutverki talsmanns sveit- arinnar. Hún er stödd í bækistöðv- um ESG í Bronx er blaðamaður hringir. Það er nokkuð þykkur götu- hreimur í skrækróma röddinni. Scroggins reynist auk þess einkar kurteis og stælalaus viðmælandi, er þægilega blátt áfram líkt og tónlistin sem hún býr til. „Það var einhver frá hátíðinni sem hafði samband við Soul Jazz Re- cords, útgáfufyrirtækið okkar,“ seg- ir hún þegar hún er spurð út í ástæð- ur heimsóknarinnar. „Soul Jazz hafði svo samband við okkur og við slógum til, enda erum við á leiðinni til Evrópu að spila hvort eð er (hlær stelpulega).“ Tónleikarnir á Íslandi verða þeir síðustu í stuttu ferðalagi sveitarinnar um Evrópu sem farið er til að kynna spánnýja plötu, Keep on Moving, sem út kemur í júlí. Ný smáskífa, „Insane“, kom út í gær. ESG mun svo heimsækja Japan og Bretland síðar á árinu. Renee upp- lýsir blaðmann um að ESG hafi aldr- ei lagt niður störf opinberlega þó að langt hafi liðið á milli útgáfna. „Okkur finnst mjög gaman að spila á tónleikum og búa til okkar tónlist – og erum loksins búin með nýja plötu sem við erum mjög ánægðar með. Síðasta plata kom út fyrir ca þremur árum [Step Off, október 2002].“ Yngri hlustendur fréttu fyrst af ESG í gegnum safn- plötuna A South Bronx Story, sem út kom árið 2000. Sú plata endurnýj- aði áhuga fólks á sveitinni, og rætt var um að einföld tónlistin hefði ver- ið langt á undan sinni samtíð, og elektróklass-stefnan t.a.m. tók ESG opnum örmum. Þessi hamagangur allur varð til að blása systrunum kraft í brjóst, og varð Step Off til vegna þessa en auk þess hefur ESG verið dugleg við spilamennsku und- anfarin ár. Sveitinni hefur þá bæst liðsauki, en ekki þurfti að sækja hann langt. „Já,“ segir Renee og hlær. „Dætur mínar tvær eru nú með okkur, þær Nicole og Christelle og spila þær á bassa og gítar. Þetta er fjölskylduiðnaður (hlær inni- lega).“ Renee segir marga kosti fylgja blóðböndunum þó að auðvitað kastist í kekki við og við. Áhrif mömmu „Megnið af tímanum er þetta af- skaplega skemmtilegt og ég nýt þess að vinna með fjölskyldu minni á þennan hátt. Stundum getur þetta þó tekið á taugarnar, en það gerist ekki oft.“ Eins og áður segir spratt ESG upp úr ákveðinni forvarnarstarf- semi, sem móðir þeirra setti í gang. „Já, hún var ekki hrifin af því að við værum að hangsa úti á götu, komandi okkur í vandræði.“ segir Renee. „Þannig að hún keypti handa okkur hljóðfæri. Við höfðum séð fólk spila á hljóðfæri í sjónvarpinu og hugsuðum því með okkur að við gæt- um það þá líka. En í hönd fór mikil vinna (hlær).“ Renee segir ástandið enn ansi slæmt í Suður-Bronx, efna- hagurinn sé bágur og það sé ekki auðvelt að skapa sér álitlega framtíð þar. Síðpönkarar síns tíma og allra handa grúskarar og pælarar hafa lengi vel ekki getað á heilum sér tek- ið vegna ESG og hinna gríðarlegu áhrifa sem sveitin hafði og átti eftir að hafa. ESG stóðu hins vegar langt utan við þetta. Vissu ekkert hvað þær voru að gera, þannig séð. „Okkar hljómur var bara okkar hljómur. Við vissum ekkert hvað síð- pönk var og höfðum aldrei heyrt minnst á þessar hljómsveitir. Við vorum bara heima hjá okkur, að vinna í okkar tónlist. Okkar goð var James Brown, ef eitthvað var. Pabbi spilaði líka mikið af djassplötum.“ Tony Wilson, hinn sjarmerandi og á stundum snarvitlausi forstöðumaður Factory Records í Bretlandi, bauð ESG plötusamning og Renee segir að þær systur hafi verið í skýjunum yfir því. „Hann sagði: „Hvernig líst ykkur á að gefa út plötu?“ Við sögðumst þvílíkt vera til í það. Þetta var á mið- vikudegi og á laugardegi vorum við komnar í hljóðver. Við unnum með Martin Hannett [upptökustjórnanda Joy Division m.a.] og allir voru að tala um hvað hann væri mikill brjál- æðingur. Ég vissi ekkert hvaða mað- ur það var. Hann var mjög svalur og reyndist hinn mesti herramaður.“ ESG var ein af þeim sveitum sem lentu illilega í lagaflækjum vegna ólöglegrar notkunar á hljóðbútum. Sírenuvælið í upphafi lagsins „UFO“, sem finna má á fyrstu út- gáfu sveitarinnar, var t.d. notað í mýmörgum rapplögum og sveitin fékk sjaldnast greitt fyrir það. „Við stöndum enn í því stappi,“ segir Renee. „Þetta er mjög óþægilegt. Mér er sama þó að fólk noti tónlist- ina mína en ef það er fá greitt fyrir notkunina þá vil ég fá greitt líka. Ég þarf að eiga fyrir salti í grautinn eins og aðrir. Þetta er stuldur á eigum og ekkert annað.“ Tónlist ESG hefur lítið breyst í áranna rás, Renee segir textana helst vera öðruvísi enda sé hún nú búin að upplifa ýmislegt sem ekki var til staðar er ævintýrið hófst. Tónlist | ESG spilar á hátíðinni Reykjavík Trópík sem fram fer 2.–4. júní ESG var stofnuð í Bronx af systrum sem fóru í tónlist að áeggjan móður þeirra sem vildi forða þeim frá vandræðum. Bláeygð snilld Miða á Reykjavík Trópík má nálg- ast í Skífunni, BT Akureyri, BT Sel- fossi og á www.midi.is Allar nánari upplýsingar er að finna á www.reykjaviktropik.com Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Sími - 564 0000Sími - 462 3500 X-MEN 3 kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára The DaVinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára X-Men 3 kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Da Vinci Code kl. 4, 5, 7, 8, 10 og 11 B.i. 14 ára Da Vinci Code LÚXUS kl. 5, 8 og 11 Cry Wolf kl. 10 B.i. 16 ára Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 6 og 8 Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 3.50 Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 4 LEITIÐ SANNLEIKANS - HVERJU TRÚIR ÞÚ? www.xy.is 200 kr afsláttur fyrir XY félaga MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ? eee S.V. MBL. eee VJV - TOPP5.is LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI. NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS eee V.J.V.Topp5.is eee D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM eee S.V. MBL.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.