Morgunblaðið - 31.05.2006, Page 37

Morgunblaðið - 31.05.2006, Page 37
50 ÁRA afmæli. Sólmundur Sig-urðsson, stórbóndi í Borgar- gerði í Ölfusi, verður 50 ára 2. júní nk. Hann býður vinum og ættingjum að gleðjast með sér á dúndrandi sveita- hátíð í Ingólfshvoli í Ölfusi á afmælis- daginn frá kl. 19. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 37 DAGBÓK Alþjóðlegur dagur án tóbaks er í dag 31.maí. Af því tilefni munu Samtök hjúkr-unarfræðinga og ljósmæðra gegn tóbakivera með reykleysisráðgjöf fyrir al- menning í Smáralind og Kringlunni milli kl. 15 og 17 í dag. „Við hvetjum alla þá sem vilja hætta að reykja að líta við hjá okkur og fá upplýsingar um hvernig best er að hætta að reykja,“ segir Halla Grét- arsdóttir, formaður samtakanna. Halla mælir með að þeir sem hyggist segja skilið við reykingar leiti sér aðstoðar, enda sýni rann- sóknir að þeir ná frekar árangri sem leita leiðsagn- ar en þeir sem hætta að reykja upp á eigin spýtur. „Meirihluti reykingamanna vill hætta að reykja, og tvöfaldast líkurnar á árangri hjá þeim reyk- ingamönnum sem leita eftir aðstoð og ráðgjöf,“ segir Halla. „Hverjum og einum er veitt sú aðstoð sem best hentar hans aðstæðum. Skilur á milli að fólk er komið misnálægt því að hætta að reykja: sumir að- eins að velta því fyrir sér á meðan aðrir eru harð- ákveðnir að binda sem fyrst enda á ósiðinn.“ Í dag verður einnig hægt að hringja í Reyksím- ann svokallaða, og verða fagmenn við símann frá kl. 10 til 22. „Þetta er símaþjónusta fyrir fólk sem vill hætta að reykja og starfa þar hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu í tóbaksmeðferð. Svarað er í síma 800 6030 en einnig er hægt að fá upplýsingar á heimasíðunni www.8006030.is.“ Dagur án tóbaks er haldinn ár hvert til að minna á skaðsemi tóbaksnotkunar og hvetja þá sem nota tóbak til að nýta daginn til að hætta. Ákveður Al- þjóðaheilbrigðisstofnunin þema dagsins ár hvert og var þannig dagurinn í fyrra sérstaklega helgaður því að efla heilbrigðisstarfsmenn sem fást við reyk- leysismeðferðir. Í ár er þema dagsins sá ávinningur sem fæst af því að hætta að neyta tóbaks: „Fyrir utan þann mikla heilsufarslega ávinning sem hlýst af því að kveðja tóbakið vegur einnig mjög þungt sá fjárhagslegi ávinningur sem fylgir. Það kostar Íslending 208 þúsund krónur á ári að reykja einn pakka af sígarettum á dag,“ segir Halla. „Einnig er svo komið að töluverð fyrirhöfn fylgir því nú orðið að vera ánetjaður reykingum. Reykingar eru víða bannaðar og reynist mörgum mikið frelsi að losna við það amstur sem fylgir reykingum.“ Reykingar hafa dregist saman jafnt og þétt á Ís- landi á síðastliðnum árum. Nefnir Halla sem dæmi að dregið hefur úr reykingum meðal nemenda í 10. bekk um 43% frá árinu 1995. „Fjöldi Íslendinga hefur hætt að reykja, enda ekkert leyndarmál að það að hætta að reykja er það besta sem hægt er að gera til að bæta heilsu og lífslíkur.“ Samtök hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra gegn tóbaki voru stofnuð 7. febrúar 2000. Í félaginu eru um 60 meðlimir og hafa samtökin það að markmiði að efla forvarnir gegn tóbaksnotkun og aðstoða fólk að hætta að nota tóbak. Heilsa | Samtök hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra gegn tóbaki veita ráðgjöf til reykleysis Í dag er dagur án tóbaks  Halla Grétarsdóttir fæddist á Akranesi 1971. Hún lauk stúd- entsprófi frá Flens- borgarskóla 1991 og lauk námi frá hjúkr- unarfræðideild HÍ 1995. Halla var hjúkrunar- fræðingur á Borgar- spítalanum 1995–1999. Þá starfaði hún á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði 1999–2004 en síðan þá sem fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélaginu. Halla hefur setið í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga frá 2003 og er varamaður í Tóbaksvarnarráði Lýðheilsustöðvar. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 80 ÁRA afmæli. Í dag, 31. maí,verður Viggó Brynjólfsson, jarðýtustjóri á Skagaströnd, 80 ára. Vegna vinnu við virkjun Kárahnjúka mun hann þó ekki halda upp á afmælið fyrr en sunnudaginn 11. júní nk. Þá mun hann taka á móti þeim sem vilja samgleðjast honum á þessum tímamót- um í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd frá kl. 16. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Næturgalar og Evróvisjón SYLVÍA Nótt er vel leikin persóna. Hún getur kallað á sjálfsskoðun. Hvers vegna elska ég eða hata Sylvíu Nótt og kannski eitthvað þar á milli? Hvers vegna líkar okkur vel við sum- ar persónurnar á leiksviðinu en aðrar ekki? En átti þessi vel leikna persóna erindi í hina árlegu söngvakeppni Evróvisjón, sem margir Íslendingar elska en sumir menningarvitarnir líta hornauga? Mér finnst Evróvisjón- söngvakeppnin oft ágætis skemmtun og hún hefur enn ekki verið orðuð við mansal. En forkeppni fyrir þátttakendur hérna heima þetta árið minnti um margt á ævintýrið Næturgalann eftir H.C. Andersen. Kínakeisari átti í ríki sínu frábæran söngfugl, næturgala, sem hann lét dvelja hjá sér í höllinni og syngja fyrir sig. Japanskeisari frétti af fuglinum og sendi Kínakeis- ara að gjöf eftirlíkingu hans, upp- dreginn gervifugl, gulli og gim- steinum settan. Á meðan sendiboðinn og hirðin voru að dást að fuglinum og sannfæra keisarann um ágæti hans og kenna honum á gripinn, hvarf hinn grái, lifandi fugl út í víðáttuna. Íslendingar sendu sinn gullfugl til Aþenu, en engar leiðbeiningar eða heimspekilegur fyrirlestur fylgdi með. En Grikkir og fleiri kunnu ekki að meta þennan ósvífna, bölvandi gullfugl, vildu heldur hafa gráa næt- urgala. Og Íslendingar fundu óðara sökudólga, Austur-Evrópubúa og fleira slæmt, sem kemur alltaf í veg fyrir að þeir komist áfram, en töluðu minna um að þeir hefðu kannski ekki haft vit á að velja sér næturgala. En eins og Sylvía orðar það sjálf í viðtali, þá „er það í höndum Guðs“ hvað verður, og þar með að botna þetta ævintýri. Og þar sem hún er gullfugl, gæddur sál, þagnar hann varla eins og sá sem H.C. Andersen skapaði. Sennilega munu þeir halda áfram að syngja sá gyllti og hinn grái og leita þá uppi sem þarfnast söngs þeirra. Þuríður Guðmundsdóttir. Óþrif MIG langar að taka undir með því fólki sem var að kvarta yfir sóða- skapnum í þessari borg. Maður sér hundaskít hér og þar og talandi um drasl þá vekur það furðu hversu mik- ið drasl er á göngustígum borg- arinnar. Þvílíkur sóðaskapur. Ólafur Jónas Sigurðsson. Um endursýningar á Stöð 2 ÉG var í Bandaríkjunum í vetur og var vön góðu sjónvarpi þar. Þegar ég kom heim fékk ég mér áskrift að Stöð 2. Er alveg gáttuð á öllum þessum endursýningum á Stöð 2, þetta er hundleiðinlegt. Alltaf verið að sýna þætti um Strákana - og Stelpurnar. Ég bíð spennt eftir föstu framhalds- þáttunum - en þá er bara verið að sýna gamla þætti. Finnst ekki hægt að bjóða manni upp á svona. Ellilífeyrisþegi. Leki-göngustafir týndust TVEIR gylltir Leki-göngustafir með korkhandföngum týndust á bílastæði við rætur Esju laugardaginn 27. maí sl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 565 2178 eða 898 1278. Fund- arlaun. Morgunblaðið/Eggert EINS og fram hefur komið hlaut Þjóðminjasafn Íslands á dögunum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Með þessu er Þjóðminja- safninu skipað í flokk glæsilegustu safna og telst nú meðal þeirra bestu í Evrópu. Á því sést kannski best hve gríðarleg breyting hefur orðið á safninu frá því sem var fyrir endur- opnun þess 2004. Nú gefst tækifæri til að líta inn í Þjóðmenningarhúsinu þar sem stendur yfir sýningin: Þjóð- minjasafnið – svona var það. Á þeirri sýningu má sjá hvernig umhorfs var í Þjóðminjasafninu fyrir breyting- arnar miklu. Gestum gefst óvenju- legt tækifæri til að bera hið nýja saman við hið gamla en það eru þó að verða síðustu forvöð. Þann 6. júní nk. verður sýningin í Þjóðmenning- arhúsinu tekin niður. Sú viðurkenning sem Þjóðminja- safnið hlaut er ekki aðeins viður- kenning á sjálfri grunnsýningunni heldur einnig á öllum öðrum þáttum í starfsemi þess. Auk grunnsýning- arinnar er boðið upp á fjölbreyti- legar sérsýningar, jafnt á hinu forna sem hinu nútímalega. Alls konar skemmtilegir viðburðir eru á dag- skrá og leiðsagnir eru í boði. Nýja og gamla Þjóðminja- safnið JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér nýja bók eftir Pál Kristin Páls- son sem ber heitið Það sem þú vilt. Bókin hefur að geyma sex smásögur. Þær eru í senn fjöl- breyttar og samstæðar hvað varðar stíl og efni, en í þeim öllum er spurt áleitinna spurninga um bröltið á okkur mannfólkinu – og eins og vera ber er lesandanum látið eftir að svara fyrir sig: „Leikur Halldór Skiljan hjóna- bandsráðgjafi tveimur skjöldum? Sjáum við lengra en nef okkar nær? Er lífið það sem við viljum að það sé?“ Nýjar bækur Saab 3.150.000 kr. Klassi, öryggi, stíll! Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 E N N E M M / S ÍA / N M 2 17 4 7 Saab 9-3 Sport Combi Linear, 2.0 lítra, 150 hestafla. Klassík á viðráðanlegu verði* Það er klassi yfir Saab 9-3 Sport Combi bílunum, enda á Saab sér áratugalanga sögu sem einn stílhreinasti og öruggasti bíll sem völ er á. Saab 9-3 er margverðlaunuð nýjung í klassíska Saab stílnum þar sem öryggi og mýkt í akstri er í fyrirrúmi. Stórkostleg hönnun, öflug vél og ríkulegur staðalbúnaður gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum. *Og verðið er algert einsdæmi fyrir lúxusbíl í þessum gæðaflokki!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.