Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 39
Opel er besta þýska bílategundin skv. gæðakönnun bílatímaritsins Auto Bild.
Á hverju ári bítast Opel Astra og Volkswagen Golf um titilinn mest seldi bíll
Evrópu. Nýja Astran er fallegur bíll, hlaðinn aukabúnaði og einn sá ódýrasti
á götunni. Astran vekur hrifningu þína á hverjum degi, aftur og aftur.
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is
Mánaðargreiðsla 23.061,-*
ÞESSI ER HLAÐIN AUKABÚNAÐI: ESP skriðvörn, útvarpsfjarstýring
í stýri, samlitur og loftkæling. 7 hátalarar, spilar mp3, hiti í sætum,
aksturstölva og margt, margt fleira.
Þýska tímaritið Auto Bild er
eitt af virtustu og vinsælustu
bílatímaritum Evrópu.
Fjölskyldubíll.
Kostar eins og smábíll.
* Bílasamningur miðað við 20% innborgun og eftirstöðvar í 84 mánuði. Aukabúnaður á mynd: Álfelgur.
1.890.000,- Beinskipt - 1.6 l. vél
upp á fræðslu og þjónustu fyrir safngesti.
Þar eru sýningar auk safnbúðar og kaffi-
húss. Opið alla daga kl. 10–17.
Fyrirlestrar og fundir
Askja – Náttúrufræðihús HÍ | Alþjóðleg
ráðstefna og listsýning sem haldin er á veg-
um Háskóla Íslands í samvinnu við Listahá-
tíð dagana 31. maí–2. júní. Viðburðurinn ber
heitið „Sensi/able Spaces: Space, Art and
the Environment“ (Skyn(sam)leg Rými:
Rými, list og umhverfi). Dagskrá er á:
www.sparten.hi.is
Askja v/Sturlugötu | Ráðstefna ICE-TCS
þekkingarseturs í fræðilegri tölvunarfræði
verður haldin í dag kl. 9.30–16.30. Til fund-
arins eru boðnir þrír erlendir gestafyrirles-
arar sem eru þekktir sérfræðingar hver á
sínu sviði. Einnig munu fjórir meðlimir set-
ursins halda styttri fyrirlestra um nýlegar
rannsóknir. Allir velkomnir.
Café Flóran | Aðalfundur Þingeyingafélags-
ins verður haldinn kl. 17.15, á Café Flóru í
Grasagarðinum í Laugardal.
Félag íslenskra háskólakvenna | Árlegur
vorfundur verður haldinn í kvöld kl. 19.30, í
Þingholti, Hótel Holti. Aðalsteinn Ingólfs-
son, listfræðingur, heldur erindi um lífshlaup
Jóhannesar Kjarvals. Snæddur verður
kjarvalskur kvöldverður. Allir velkomnir en
þátttaka tilkynnist í síma 899 3746.
Kennaraháskóli Íslands | Kristín H. Ólafs-
dóttir, lektor við KHÍ og Kristín Karlsdóttir,
lektor við KHÍ, halda fyrirlestur í KHÍ kl.
16.15–17.15. Í fyrirlestrinum verða kynntar
niðurstöður tveggja rannsókna sem fjalla
um nám leikskólabarna samkvæmt Reggio
Emilia.
Maður lifandi | Hláturkætiklúbburinn verð-
ur með opinn hláturjógatíma í Maður lifandi,
Borgartúni 24, 3. maí kl. 17.30–18.30. Um-
sjón hefur Ásta Valdimarsdóttir hlát-
urjógaleiðbeinandi. Allir velkomnir. Að-
gangseyrir 1.000 kr.
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Málstofa
á vegum viðskipta- og hagfræðideildar
verður í Odda stofu 101, 31. maí kl. 12. Ólafur
Ísleifsson flytur erindi um íslenska lífeyr-
iskerfið. Fjallað verður um lífeyriskerfi Ís-
lendinga í alþjóðlegu samhengi og tengsl líf-
eyriskerfisins við innlendan fjármála-
markað.
Fréttir og tilkynningar
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Kentucky, Krossmóa 2, kl. 14–17.
GA-fundir | Er spilafíkn að hrjá þig eða þína
aðstandendur? Hringdu í síma: 698 3888.
Háskólinn á Akureyri | Sigríður Jónsdóttir
ver meistararitgerð sína við heilbrigðisdeild
HA í dag kl. 17, í stofu L101 á Sólborg. Fjallar
hún um iktsýki, streitu og tileinkun bjarg-
ráða eftir áföll. Hvað leysir sjúkdóminn úr
læðingi, áhrif langvarandi streitu og bjarg-
ráð sem sjúklingar tileinka sér eftir áföll. Er
þetta fyrsta meistaravörnin sem fram fer
við deildina.
JCI-heimilið | Frumkvöðlar í verki er sam-
keppni í gerð viðskiptaáætlana og er opin
öllum yngri en 40 ára. Vegleg verðlaun eru í
boði fyrir þrjú efstu sætin sem einnig öðlast
þátttökurétt í alþjóðlegri keppni. Umsókn-
arfrestur er til 1. júní og skal sendast á
frumkvodlar@jci.is. Nánar um verkefnið á
www.jci.is.
LSH við Hringbraut | Árlegur sumarmark-
aður iðjuþjálfunar geðdeildar Landspítalans
við Hringbraut verður 1. júní kl. 12 –15.30.
Markaðurinn er haldinn í anddyri geðdeild-
arhúss LSH við Hringbraut. Vandaðar hand-
unnar vörur á vægu verði.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun á miðvikudögum kl. 14–17 á
Sólvallagötu 48. Sími 551 4349 Netfang
maedur@simnet.is
Útivist og íþróttir
Íþróttahúsið Mýrin | Vatnsleikfimi í Mýrinni
fyrir eldri borgara kl. 9.30–10.30, mánu-
daga og miðvikudaga. Fyrir yngra fólk kl.
7.40–8.20, fjórum sinnum í viku. Skráning
er hjá Önnu Díu íþróttafræðingi í síma
691 5508 Mýrin er við Bæjarbraut í Garða-
bæ.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 39
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handavinna
kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30. Heilsugæsla kl. 9.30–11.30. Spil
kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaaðgerð,
spiladagur. Sameiginlegt vorferðalag
Miðborgar og Hlíða fimmtudaginn 8.
júní. Lagt af stað kl. 12.30, skráning og
greiðsla fyrir 5. júní. Sími 535 2760.
Ath. takmarkaður sætafjöldi.
Bústaðakirkja | Sumarferð verður far-
in laug. 10. júní nk. Ekið verður um
Fljótshlíð að Skógum. Þátttaka til-
kynnist ekki seinna en mið. 31. maí í
síma 568 1568 (Lilja) og 862 3675
(Stella). Ferðanefndin.
Dalbraut 18–20 | Félagsmiðstöðin er
öllum opin kl. 9–16. Félagsvist mánu-
daga kl. 14. Handverksstofa Dal-
brautar 21–27 opin kl. 8–16.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl.
10–11.30. Viðtalstími Gjábakka kl. 13–
16. Félagsvist í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Söngvaka kl. 14, undirleikari Sigurður
Jónsson. Ath. síðasta söngvakan.
Söngfélag FEB, æfing kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.30. Handavinna kl. 10. Félagsvist kl.
13. Söngur kl. 15.15. Bobb kl. 17.
Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 |
Bridshópur spilar brids kl. 13. Heitt á
könnunni, heimabakað meðlæti. Allir
velkomnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Bútasaumshópur í Kirkjuhvoli kl. 13.
Kvennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45 í
Kirkjuhvoli. Opið í Garðabergi kl.
12.30–16.30. Brids í Garðabergi eftir
hádegi.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar. Frá hádegi spilasalur
opinn. Kl. 14.15 leggur Gerðubergskór
af stað í heimsókn á Hjúkrunarheimilið
Skjól. Allar uppl. í síma 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður,
postulínsmálun, kaffi, spjall, dagblöðin,
fótaaðgerð. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13
brids. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9–12.
Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hár-
snyrting. Sími 535 2720.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Allar nánari upplýsingar
veittar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 9–16.30
opin vinnustofa, kl. 9 opin fótaað-
gerðastofa, sími 568 3838. Kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 myndmennt.
Kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug). Kl.
11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 12.15–14
verslunarferð í Bónus, Holtagörðum.
Kl. 13–14 spurt og spjallað. Kl. 13–16
tréskurður. Kl. 14.30–15.45 kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, handmennt almenn kl. 10–
16.30. Bókband kl. 10. Morgunstund kl.
10. Verslunarferð kl. 12.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn á
Eyrarvelli kl. 9.30–11.30. Grillveisla.
Áskirkja | Hreyfing og bæn í safn-
aðarheimili II milli kl. 11 og 12 í dag.
Gengið inn um aðaldyr kirkjunnar.
Bessastaðasókn | Foreldramorgnar
eru frá kl. 10–12. Síðasta opna hús eldri
borgara á vormisseri er í dag frá kl. 13–
16. Púttmót, keppt verður við pútthóp
Háteigskirkjusafnaðar á púttvellinum
við Haukshús.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarsal á eftir.
Dómkirkjan | Hádegisbænastund kl.
12.10–12.30. Léttur hádegisverður á
kirkjulofti að lokinni bænastund. Tekið
við bænarefnum í síma 520 9700.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag kl. 10–12.30. Fyrirlestur
mánaðarlega. Gott tækifæri fyrir
mömmur og börn að hittast og kynn-
ast. Allir velkomnir, pabbar og
mömmur, afar og ömmur. Alltaf heitt á
könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni. Prest-
ar safnaðarins þjóna fyrir altari, org-
elleikari Hörður Bragason Allir vel-
komnir.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa alla
miðvikudagsmorgna kl. 8 árdegis.
Íhugun, altarisganga. Einfaldur morg-
unverður í safnaðarsal eftir messuna.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bæna-
stund kl. 12. Allir velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma verð-
ur í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58–60, miðvikudaginn 31.maí kl. 20.
„Varist súrdeig!“ Haraldur Jóhanns-
son talar. Kaffi eftir samkomuna. Allir
eru velkomnir.
Kvenfélag Langholtssóknar | Sum-
arferð fimmtudaginn 8. júní. Að þessu
sinni verður farið út í bláinn og endað
með þriggja rétta málsverði í fallegu
umhverfi. Skráning og greiðsla sem
fyrst. Símar: 520 1300, 553 0856 og
568 4620..
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Beðið
er fyrir sjúkum og hverjum þeim sem
þurfa á fyrirbæn að halda og getur fólk
komið óskum þar um til prestanna.
Einnig er altarisganga. Þessar messur
eru yfirleitt um 20 mínútna langar.
Víðistaðakirkja | Kyrrðarstundir á
miðvikudögum kl. 12. Súpa og brauð í
safnaðarheimilinu á eftir. Opið hús fyr-
ir eldri borgara á miðvikudögum kl. 13.
Spil, spjall og kaffiveitingar.
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Dd6 4. d4
c6 5. Rf3 Rf6 6. Be2 Bg4 7. 0-0 Rbd7
8. He1 e6 9. Bg5 Bf5 10. Rh4 Bg6 11.
g3 Be7 12. Bf4 Db4 13. a3 Da5 14. b4
Dd8 15. Bf3 0-0 16. Rxg6 hxg6 17.
Dd3 Rb6 18. Re2 Rfd5 19. Bd2 Bf6 20.
c4 Re7 21. Had1 Rf5 22. Bc3 Dc7 23.
Bb2 Had8 24. Db3 Hd7 25. Hd3 Hfd8
26. Hed1 Rc8 27. a4 Rce7 28. a5 b6 29.
axb6 axb6 30. g4 Rh4 31. Bh1 g5 32.
Bc1 Reg6 33. Be4 Rf4 34. Rxf4 gxf4
35. d5 exd5 36. cxd5 cxd5 37. Bxd5 g5
38. Bb2 Bxb2 39. Dxb2 Rf3+ 40. Kg2
Re5 41. Hc3 Db8 42. Dc2
Staðan kom upp í opnum flokki á
Ólympíuskákmótinu í Torínó á Ítalíu
sem stendur yfir þessa dagana. Rúm-
enski stórmeistarinn Vladislav
Nevednichy (2.582) hafði svart gegn
stigahæsta skákmanni Íslendinga, Jó-
hanni Hjartarsyni (2.619). 42. …
Hxd5! 43. Hxd5 Da8 44. Hc6 Dxc6 45.
Dxc6 Rxc6 svartur er nú manni yfir
og með léttunnið tafl. 46. Hxg5+ Kf8
47. Hb5 Hb8 48. g5 Kg7 49. Kh3 Rd4
50. Hd5 Re6 51. Kg4 Hc8 52. h4 Hc4
53. Hb5 f3+ 54. Kg3 Rd4 55. Hxb6
Rf5+ 56. Kxf3 Rxh4+ 57. Kg3 Rf5+
58. Kf3 Rd4+ og hvítur gafst upp. 10.
umferð mótsins fer fram í dag og
hægt er að fylgjast með skákum ís-
lensku liðanna í beinni útsendingu á
heimasíðu mótshaldara en mögulegt
er að nálgast vefslóð hennar á
www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Tæling.
Norður
♠D1043
♥G642
♦KD432
♣–
Suður
♠ÁG5
♥D10
♦–
♣ÁKG108763
Suður er gjafari og vekur á fimm lauf-
um. Enginn býður betur og vestur
kemur út með tígulás. Er einhver vinn-
ingsvon? Vissulega – spaðakóngur gæti
verið blankur og laufdrottningin komið
niður önnur. Annað eins hefur nú sést.
En í alvöru talað, þá eru líkurnar
hverfandi á slíkri draumalegu og betra
að gera út á mannleg mistök í vörninni.
Hvernig væri til dæmis að henda
spaðagosa í tígulásinn?
Norður
♠D1043
♥G642
♦KD432
♣–
Vestur Austur
♠987 ♠K62
♥K985 ♥Á73
♦Á87 ♦G10965
♣D94 ♣52
Suður
♠ÁG5
♥D10
♦–
♣ÁKG108763
Skoðum vanda vesturs ef hann fær
að eiga á tígulásinn. Ekki má hann
spila tígli, og ekki fer hann að spila
trompi frá drottningunni þriðju. Hann
verður því að leggja til atlögu við annan
hálitinn og velur væntanlega litinn sem
suður hendir frá sér – spaða.
Sagnhafi kemst þá inn í borð, hendir
tveimur hjörtum niður í tígulhjón,
trompar hjarta og spilar trompinu. Ell-
efu slagir eru öruggir, en í ljósi fram-
vindunnar er suður í góð skapi og gæti
lagt niður laufás og spilað gosanum
næst! Vestur mun að sjálfsögðu dúkka
og þá er yfirslagur mættur.
Þetta heitir að strá salti í sárin.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Afmælisþakkir
28. mars sl. náði ég þeim áfanga á ævi langlífra
manna að verða áttræður. Guð einn veit hvað úr
aldrinum teygist héðan í frá.
Öllum sem undirbjuggu og sátu samsæti mér til
heiðurs 20. maí sl. og minntust mín með kveðj-
um, árnaðaróskum og góðum gjöfum, þakka ég
af alhug vinsemdina. Lifið heil!
Ingvar Gíslason.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is