Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ LANDIÐ Borgarfjörður | IsNord-tónlistarhátíðin sem haldin er í Borgarfirði um hvítasunnuhelgina tekur mið af þeirri söguvakningu sem nú virðist vera í héraðinu. Áhersla er lögð á tónlist sem tengist fornri tíð, vík- ingum og sérstaklega Egilssögu. Tónleikar verða í Reykholtskirkju á föstudagskvöld og í Borgarnes- kirkju á mánudag og á laugardaginn verða óhefð- bundnir tónleikar og kveðnar rímur í Surtshelli í Hallmundarhrauni. IsNord-tónlistarhátíðin er nú haldin í annað sinn. Jónína Erna Arnardóttir, upphafsmaður hátíðarinnar og listrænn stjórnandi, segir að tilvalið hafi verið að láta sig berast með bylgjunni sem nú væri með opnun landnáms- og Egilssýninga í Borgarnesi og sýningu á einleiknum Mr. Skallagrímsson þar. Ákveðið hafi ver- ið að leita uppi verk sem samin eru við texta Egils- sögu og ljóð sem þar eru lögð í munn Egils Skalla- grímssonar. Hún segir að furðu margt hafi fundist. Jónína getur þess að margt liggi eftir Jón Leifs. En svo hafi fundist verk sem enska tónskáldið Gavin Bryars hafi samið við Höfuðlausn Egils Skallagríms- sonar. Sungið á sögustöðum Verkið verður flutt á tónleikum í Reykholtskirkju á föstudagskvöldið. Flytjendur eru Kammerkór Vest- urlands, félagar úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar og Davíð Ólafsson bassasöngvari sem tekur að sér hlutverk sögupersónunnar, Egils Skallagrímssonar. Þórunn Ósk Marinósdóttir leikur á víólu. Þá verða flutt kór- verk eftir íslensku tónskáldin Jón Ásgeirsson, Jón Leifs og Jón Nordal. Rímur verða kveðnar í Stefánshelli í Hallmund- arhrauni á laugardag klukkan 15 og leikið á langspil og fiðlu. Diddi fiðla, Bára Grímsdóttir og Steindór Andersen koma fram. Síðustu tónleikarnir verða haldnir í Borgarnes- kirkju mánudaginn 5. maí, kl. 16 og verða þeir með nokkru öðru sniði. Yfirskriftin er Íslenskt í öndvegi en gæti allt eins verið Jónarnir fjórir því auk verka eftir Jón Ásgeirsson, Jón Leifs og Jón Nordal er á efnisskránni verk eftir nafna þeirra Þórarinsson. Verkin flytja Gunnar Guðbjörnsson tenór, Eygló Dóra Davíðsdóttir fiðluleikari og Jónína Erna Arn- ardóttir píanóleikari. Kynna norræna tónlist Tónlistarhátíðin IsNord var fyrst haldin í fyrra. „Þegar ég var við nám í Noregi fannst mér athygl- isvert hvað Norðmenn eru meðvitaðir um tónlistar- hefð sína og þekkja mörg verk eftir tónskáld sín. Þetta er ekki eins algengt hér,“ segir Jónína Erna þegar hún er spurð um tildrög þess að efnt var til þessarar tónlistarhátíðar. Hugmyndin er að leika verk sem ekki eru almennt þekkt, í bland við þekktar perlur, og einnig að kynnta norræn tónskáld. Dag- skráin á síðasta ári var norræn en núna er Egill í að- alhlutverki. Jónína segir að hátíðin hafi gengið ágætlega í fyrra. Hún segist auðvitað verða að prófa sig áfram og læra af reynslunni. Hún gefur sér fimm ár til að láta á það reyna hvort þetta geti ekki orðið árleg tón- listarhátíð. „Ekki vantar efnið, ég er þegar komin með hugmyndir fyrir næstu og þarnæstu hátíð,“ segir Jónína Erna Arnardóttir listrænn stjórnandi IsNord. IsNord-tónlistarhátíðin haldin í annað sinn í Borgarfirði Egilssaga sögð í tónum Skipulagning Jónína Erna Arnardóttir píanóleikari er listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar IsNord. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Vesturland | Ferðaþjónustuaðil- ar á Vesturlandi, sem starfa saman undir heitinu All Senses- Awoken – Upplifðu allt á Vest- urlandi, standa fyrir ýmsum uppákomum um hvítasunnuhelg- ina og kynna starfsemi sína í leiðinni. Þar getur öll fjölskyldan fundið eitthvað við sitt hæfi og mörg tilboð bjóðast í veitingum og afþreyingu. Það má nefna gönguferðir að nóttu og degi, hvalaskoðun og siglingar, tónleika, sögustundir, myndlistarsýningar, ratleiki, sveitafitness o.fl. Víða á ferða- þjónustustöðum á Vesturlandi er að finna veggspjöld með nánari útlistun á dagskránni og sömu- leiðis á heimasíðum fyrirtækj- anna 15 og á west.is. Uppákomur á Vesturlandi og kynning á ferðaþjónustu Sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Fullbúið 200 fm sérbýli á tveimur hæðum með innbyggðum 25 fm bílskúr. Glæsileg- ar vandaðar innréttingar, tæki og gólfefni. Fjögur góð svefnherbergi, tvennar svalir, 60 fm sólpallur. Húsið stendur neðan götu í enda á einstökum útsýnisstað. Sjón er sögu ríkari. BERGÞÓRUGATA - MIÐBÆR Smekkleg 51,1 fm, 3ja herbergja íbúð í kjallara. Nýtt fallegt baðherbergi, eldhús með hvítri innréttingu. Endurnýjaðar dren- og skolplagnir. STRAUMSALIR - KÓPAVOGI Ný, fullbúin 150 fm endaíbúð á efstu hæð í sex íbúða fjölbýlishúsi. Þrjú stór svefn- herbergi, vandað eldhús og stór stofa. Suðvestursvalir og mikið útsýni yfir borg- ina og víðar. Stutt í verslun, skóla, sund- laug o.fl. DALHÚS - GRAFARVOGI Vandað 192 fm raðhús á 2 hæðum með innb. 26 fm bílskúr. 2 svalir, mikið útsýni, hellulagt bílaplan og afgirt verönd í suð- vestri. 4-5 svefnherb. Gott hús í rólegu barnvænu hverfi. Stutt í barna- og leik- skóla, verslun, félags- og íþróttaaðstöðu. TUNGUSEL - BREIÐHOLTI Góð, vel skipulögð 3ja herb., mikið endur- bætt 90 fm íbúð á 3. hæð. Suðursvalir og mikið útsýni yfir borgina og víðar. Laus við kaupsamning. ÞORLÁKSGEISLI 1-3 OG 5-7 Vandaðar 3ja og 4ra herb. íbúðir frá 101 fm - 140 fm í 4ra hæða fjölbýlishúsum með lyftu. Íbúðunum fylgir stæði í bílskýli. Íbúðirnar afh. fullbúnar, innr. með eik og flísum á þvottahúsi og baðherbergi en annars án gólfefna. Íbúðir í húsi 1-3 til afh. strax og hús 5-7 afh. í sept 2006. Teikningalíkan á www.heimili.is PERLUKÓR Vel hannaðar 3ja herbergja íbúðir á jarð- hæð í litlu fjölbýlishúsi á góðum útsýnis- stað í Kórahverfi í Kópavogi. Íbúðirnar eru vel skipulagðar og innréttaðar með vönd- uðum innréttingum frá Innex. Flestum íbúðunum fylgir stæði í bílageymslu. Til af- hendingar í ágúst 2006. Teiknilíkan á www.heimili.is Fullinnréttuð sýn- ingaríbúð til sýnis í samráði við sölumenn. HLÍÐARVEGUR - KÓPAVOGI Nánari upplýsingar og myndir um hverja eign má finna á www.heimili.is og á skrifstofu í síma 5306500. NÝR göngustígur, meðfram Hafnarfjarðarvegi sem tengir saman sveitarfélögin Garðabæ og Kópavog, var formlega tekinn í notkun sl. föstudag. Gunnar Ein- arsson, bæjarstjóri í Garða- bæ og Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, klipptu á borða á nýrri göngubrú yfir Kópavogs- lækinn, sem er hluti af stígn- um og opnuðu þannig stíg- inn formlega fyrir gangandi og hjólandi umferð. Við opnunina lýstu bæjar- stjórar Garðabæjar og Kópavogs því hversu mikil samgöngubót stígurinn er fyrir íbúa sveitarfélaganna tveggja og annarra íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Gunn- ar Einarsson lagði til að sá hluti stígsins sem er í landi Garðabæjar yrði nefndur Laufeyjarstígur, eftir Lauf- eyju Jóhannsdóttur, for- manni skipulagsnefndar, sem ásamt öðrum bæjar- fulltrúum hefði lagt þunga áherslu á að stígurinn yrði að veruleika. Nýr göngustígur milli Kópavogs og Garðabæjar Morgunblaðið/RAX Bæjarstjórnarfulltrúar Garðabæjar og Kópavogs mætast á miðri leið á brú milli bæjanna. NEMENDUR í Fossvogsskóla verða með tónleika undir stjórn Guðmundar Norðdahl í Bústaða- kirkju fimmtudaginn 1. júní kl. 17.30. Þessir tónleikar verða loka- tónleikar 7 ára nemenda sem lært hafa á blokkflautu hjá Guðmundi í vetur. Einnig munu nokkrir núver- andi og fyrrverandi nemendur skólans koma fram. Kórstjóri er Helga Baldurs- dóttir, tónmenntakennari í Foss- vogsskóla. Undirleikarar eru Ragnheiður Eyjólfsdóttir, Tómas I. Eggertsson og Guðmundur Norðdahl. Miðaverð er kr. 1.000 á fjöl- skyldu. Öllum ágóða af tónleik- unum verður varið til kaupa á flygli fyrir Fossvogsskóla. Fjáröflunar- tónleikar í Bústaðakirkju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.