Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DREGUR ÚR HIV-SMITI Svo virðist sem nýjum tilfellum af HIV-smiti sé hætt að fjölga milli ára. Kemur það fram í nýrri skýrslu UNAIDS, þeirrar stofnunar Sam- einuðu þjóðanna sem berst gegn al- næmi. Talið er að nú séu um 38,6 milljónir manna smitaðar af alnæm- isveirunni og 2,8 millj. létust af hennar völdum á síðasta ári. Fimm lentu í snjóflóði Fimm fjallgöngumenn lentu í snjóflóði í gær á Hvannadalshnúk og slösuðust þrír þeirra þegar flóðið hreif þá um 300 metra leið niður hlíðina. Einn rifbeinsbrotnaði, annar ökklabrotnaði og sá þriðji tognaði á ökkla. Ekki var um lífshættulega áverka að ræða. Ólöglegur samningur Evrópudómstóllinn, æðsti dóm- stóll Evrópusambandsins, hefur úr- skurðað að samningur sambandsins og Bandaríkjanna um miðlun upp- lýsinga um flugfarþega sé ólöglegur. Ekki séu nægar tryggingar fyrir því að persónuvernd evrópskra farþega sé tryggð í Bandaríkjunum. Eve Online í Kína Unnið er að því nú að setja ís- lenska fjölnotendatölvuleikinn Eve Online á markað í Kína. Hefur leik- urinn allur verið þýddur á kín- versku. Þá er hugsanlegt er að Eve Online verði notaður til kennslu í kínverskum skólum. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 26/28 Fréttaskýring 8 Bréf 28 Viðskipti 16 Minningar 30/33 Erlent 13/15 Myndasögur 36 Minn staður 16 Víkverji 36 Akureyri 20 Dagbók 36/39 Höfuðborgin 18 Staður og stund 38 Landið 18 Leikhús 40 Suðurnes 19 Bíó 42/45 Daglegt líf 20 Ljósvakamiðlar 46 Menning 22 Veður 47 Forystugrein 24 Staksteinar 47 * * * Kynningar – Morgunblaðinu fylgir blaðið Átökin um auðlindina. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %        &         '() * +,,,                       Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is DÓMARI við Héraðsdóm Reykja- víkur hefur úrskurðað að dómkvadd- ir sérfræðingar skuli meta hvort haf- ið sé yfir vafa að tölvupóstar sem lagðir hafa verið fram sem sönnun- argögn í Baugsmálinu séu ófalsaðir, að beiðni verjenda sakborninga. Í úrskurði dómsins frá því í gær segir m.a. að þó að annað mat hafi verið unnið fyrir settan ríkissak- sóknara á þessum gögnum hafi fals- leysi gagnanna ekki verið kannað. Féllst dómari þannig á rök verjenda Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Krist- ínar Jóhannesdóttur og Tryggva Jónssonar, en hafnaði málflutningi setts ríkissaksóknara í málinu, sem taldi rétt að fjallað yrði um fals eða falsleysi fyrir dómi en ekki í sér- stakri matsgerð. Málið varðar sönnunargögn í upp- haflegu máli, þar sem sakborningar voru sýknaðir í héraðsdómi og sækj- andi áfrýjaði til Hæstaréttar, en einnig það mál sem tilkomið er vegna endurákæru, segir Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs. Settur ríkissaksóknari hefur nú þrjá daga til að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar. Geri hann það ekki verður málið tekið fyrir á ný í hér- aðsdómi og kvaddir til matsmenn. Sönnunargildi tölvupósta Kristín Edwald, verjandi Kristín- ar Jóhannesdóttur, segir mikilvægt að þetta mat fari fram því það hafi ekki áður reynt á sönnunargildi tölvupósta fyrir dómi með þessum hætti. Málið sé svo sérhæft að ekki dugi til almenn þekking dómara og lagaþekking heldur þurfi sérfræði- álit til viðbótar. „Falsleysi gagna eins og þessara er klárlega mjög sérfræðilegs eðlis, það er enginn venjulegur lögfræð- ingur sem getur verið dómbær á það hvenær rafræn samskipti eru hafin yfir allan vafa og hvenær er hægt að leggja þau til grundvallar. Það er mjög tæknilegs eðlis,“ segir Gestur. Hann segir að matið geti tekið ein- hverja mánuði, en það þurfi þó ekki að tefja dómsmálið. Sá hluti þess sem áfrýjað hafi verið til Hæstarétt- ar verði í fyrsta lagi á dagskrá í októ- ber. Falsleysi tölvupósta í Baugsmálinu kannað ÞESSIR hressu krakkar létu sér fátt um finnast þó það væri kalt úti og rok og busluðu í sjónum uppi á Langa- sandi á Akranesi í gær. Þetta var skólaferðalag hjá 7. bekk í Selásskóla í Reykjavík. Á síðasta ári fór 7. bekkur einnig í skólaferð upp á Akranes og þá skelltu krakkarnir sér líka niður að sjó, en þá var reyndar sól og blíða. Nemendur í þessum bekk gátu náttúrlega ekki verið eftirbátur þeirra og gerðu slíkt hið sama. Aldan lék á krakkana því að sumir þeirra urðu hundblautir af gönguferðinni á Langasandi. Það dró þó alls ekki úr kátínu þeirra því að þeir sneru til baka brosandi út að eyrum. Skólastarfi í grunnskólum landsins er almennt að ljúka þessa dagana. Að loknum prófum fara sumir í skólaferðalag ásamt kennurum sínum. Mjög víða verða skólaslit nk. föstudag. Fengu bað á Langasandi Morgunblaðið/Eyþór FERÐAFÉLAG Íslands stendur fyrir árlegri hvítasunnuferð félags- ins á Hvannadalshnúk um næstu helgi. Fararstjóri í ferðinni segir að fylgst verði vel með snjóflóðahættu, en hann reiknar með að ferðin verði farin þrátt fyrir snjóflóð sem féll á fimm göngumenn í gær. Reiknað er með að yfir 100 manns taki þátt í ferðinni um helgina, segir Haraldur Örn Ólafsson fararstjóri. „Við höfum fylgst vel með og erum að meta stöðuna, en í þessum töluðu orðum hefur engu verið breytt ennþá. Það er mikilvægt að menn átti sig á því að það er engin snjó- flóðahætta á Sandfellsleiðinni, sem við ætlum að fara, það er bara á hnúknum sjálfum. Við ætlum að skoða þessi mál fram á laugardag og svo aftur þegar að hnúknum er kom- ið.“ Hvannadalshnúkur er vinsæll áfangastaður fjallgöngumanna og segir Haraldur að reikna megi með að vel á annað hundrað manns gangi á fjallið um hvítasunnuhelgina, alger sprenging hafi orðið undanfarið í fjölda göngumanna. Haraldur segir að sér finnist þessi aukna ásókn ekki vera að fara úr böndunum. „Mér finnst aðalatriðið vera að menn fari ekki að vanmeta hnúkinn, en er ekki þar með að segja að það hafi verið gert [í gær]. Menn þurfa að gera sér grein fyrir því að þetta er mikil fjallganga og mikil- vægt að hafa öll öryggisatriði í lagi. Mér finnst hið besta mál að sem flestir fari á fjöll, en það er kannski ekki alltaf best að byrja á toppnum, það er mjög gott að vinna sig upp í þetta hægt og rólega, fara á smærri fjöll fyrst,“ segir Haraldur. Fylgjast vel með snjóflóðahættu Besta mál að sem flestir gangi á fjöll ANNAR mann- anna sem létust í brunanum um borð í Akureyr- inni ES-110 á laugardag hét Birgir Bertelsen. Hann var til heimilis í Skessugili 9 á Akureyri og var ókvæntur og barnlaus. Að svo stöddu er ekki unnt að greina frá nafni hins mannsins sem fórst. Mennirnir fórust þegar eldur varð laus í vistarverum skipverja á laugardag, en eldurinn kviknaði út frá ljósabekk sem var í frí- stundarými skipsins. Lést í bruna um borð í Akureyr- inni á laugardag Birgir Bertelsen ÍSLENSKA liðið í opnum flokki tapaði, 1,5:2,5, fyrir sveit Bangla- desh í 9. umferð ólympíuskákmóts- ins, sem fram fór í gær. Jóhann Hjartarson vann sína skák og Helgi Ólafsson gerði jafntefli. Hannes Hlífar Stefánsson tapaði sinni skák og það gerði Stefán Kristjánsson einnig. Íslenska liðið hefur 19,5 vinninga. Íslenska kvennaliðið keppti einnig gegn Bangladesh og gerði jafntefli, 1,5:1,5. Öllum skák- um liðsins lauk með jafntefli. Kvennaliðið hefur alls hlotið 13 vinninga. Íslenska karlaliðið í opnum flokki mætir sveit Kasakstan í 10. umferð mótsins á morgun. Þá mun íslenska kvennaliðið etja kappi við b-sveit Ítala. Íslenska karlaliðið tapaði á ÓL í skák SAMKVÆMT upplýsingum frá yf- irkjörstjórn Árborgar strikuðu 340 kjósendur Sjálfstæðisflokksins yfir nafn Eyþórs Arnalds, efsta manns á lista flokksins, á kjörseðlinum. Þetta eru um 20% kjósenda flokks- ins. Til þess að yfirstrikanir hafi einhver áhrif verða 51% kjósenda að strika yfir frambjóðanda þannig að hann færist til á listanum. Flokk- urinn fékk 1.689 atkvæði í kosning- unum í Árborg. Eyþór sagði sjálfur fyrir kosningarnar að hann vildi frekar að kjósendur strikuðu yfir nafn hans á kjörseðlinum en að þeir hættu við að kjósa flokkinn. Um 20% strikuðu yfir nafn Eyþórs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.