Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. endurskoðun reikningsskil skattar / ráðgjöf www.ey.is EVRÓPUDÓMSTÓLLINN hefur úrskurðað að samningur ESB og Bandaríkjanna um miðlun upplýsinga um flugfarþega sé ólöglegur. Ekki séu nægar tryggingar fyrir því að persónuvernd evr- ópskra farþega sé tryggð í Bandaríkjunum. Dóm- stóllinn gaf stjórnvöldum í ESB-ríkjum og Banda- ríkjunum frest til 30. september til að gera nýjan samning en heimilt er að veita Bandaríkjunum umræddar upplýsingar þangað til. Upplýsingar um farþega á leið frá Íslandi til Bandaríkjanna eru sendar héðan með rafrænum hætti. Guðjón Arngrímsson, upplýsingastjóri Ice- landair, sagði að þótt Íslendingar hefðu ekki verið beinir aðilar að samningi 34 evrópskra flugfélaga um afhendingu upplýsinga til bandarískra yfir- valda, hefði Icelandair engu að síður þurft að skila upplýsingum um sína farþega. „Þetta er fremur einfalt mál, frá okkar bæj- ardyrum séð,“ sagði Guðjón. „Við fljúgum til Bandaríkjanna og bandarísk stjórnvöld gera kröf- ur um hvernig staðið skuli að því flugi og við verð- um við þeim. Annars værum við ekki að fljúga þangað.“ Krafa sem kemur frá Bandaríkjunum Guðjón sagði að sendar væru upplýsingar úr bókunarkerfum flugfélaganna og upplýsingar úr vegabréfi farþegans. Í stórum dráttum hefðu Bandaríkjamenn aðgang að þeim upplýsingum sem farþegar gæfu við kaup á farseðli, það er nafni, og t.d. tölvupóstfangi og greiðslukortanúm- eri hafi ferðin verið greidd á þann hátt. Við inn- ritun væru auk þess lesnar og sendar upplýsingar úr vegabréfi um heimilisfang og fleira. Guðjón sagði það ekki nýtt að Bandaríkjamenn óskuðu upplýsinga um flugfarþega og minnti á upplýs- ingar sem farþegar hefðu þurft að gefa og gefi við landamæraeftirlit þar vestra. Persónuvernd sendi Flugleiðum bréf 24. maí 2004 þar sem óskað var upplýsinga um hvernig orðið yrði við kröfum bandarískra stjórnvalda um upplýsingar um flugfarþega og áhafnir flugvéla. Samkvæmt frétt á heimasíðu Persónuverndar var þar m.a. farið fram á upplýsingar sem talist geta viðkvæmar eins og hvort farþegi hafi pantað mat að múslíma- eða gyðingasið eða hafi fötlun sem geri það að verkum að hann þurfi sérstaka aðstoð í flugi. Bandaríkjastjórn segir samninginn nauð- synlegan vegna baráttunnar gegn hryðjuverkum og hefur hótað flugfélögum sektum og refsiað- gerðum fari þau ekki að honum. Samningur um miðlun farþegaupplýsinga ólöglegur að mati Evrópudómstólsins Senda póstföng og korta- númer til Bandaríkjanna Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is HARÐAR umræður urðu á Alþingi þegar þingmenn hófu þingstörf að nýju eftir þinghlé. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu stjórnarliða um hrossakaup í sam- bandi við frumvörp um RÚV og Ný- sköpunarmiðstöð. Þessi hrossakaup hefðu teygt sig inn í meirihluta- viðræður í borgarstjórn. Þessu vís- uðu stjórnarliðar á bug. Stjórnar- andstæðingar gagnrýndu einnig skipulag þingstarfa. Kolbrún Hall- dórsdóttir, þingmaður VG, sagði að stjórnarandstaða fengi ekkert að vita og lauk ræðu sinni með því að segja: „Við vitum ekkert!“ Myndin sýnir viðbrögð þingheims við þess- um orðum þingmannsins. Morgunblaðið/Kristinn Hrossahlátur í þingumræðum AÐEINS einn aðili hefur verið í símaskránni alla tíð frá því hún kom fyrst út fyrir 100 árum en það er Thorvaldsenfélagið. Er félagið enn með sama heimilisfang. Á morgun eru hundrað ár liðin frá því að fyrsta íslenska símaskráin kom út, en bar hún þá nafnið tal- símaskrá. Af því tilefni hefur verið gefin út sérstök afmælisútgáfa af símaskránni 2006, þar sem fyrsta útgáfan er innifalin. Gamla talsímaskráin var sextán síður og hefur m.a. að geyma leið- beiningar um notkun „talfæranna“, auk þess sem símanúmer þjóð- þekktra einstaklinga koma þar fyr- ir. Hannes Hafstein ráðherra var t.a.m. með símanúmerið 5, Bríet Bjarnhéðinsdóttir kvenfrelsiskona var með númerið 111 og Hall- grímur Sveinsson biskup var í núm- eri 19. | 4 Thorvaldsen- félagið í síma- skránni í 100 ár KONUKOT, athvarf heimilislausra kvenna, verður lokað yfir daginn frá og með morgundeginum, 1. júní. Ellý Þorsteinsdóttir hjá Velferð- arsviði Reykjavíkurborgar sagði að það að hafa opið yfir daginn hefði verið til- raunaverkefni og ekki staðið til að það stæði lengur en til 1. júní. Nú sé unnið að því að taka saman öll gögn um reynsluna af dagopnunartíma og eftir að þau liggi fyrir verði tekin ákvörðun um framhaldið. Ástæðu þess að ekki hafi fyrr verið ráðist í skýrslugerð á tilraunatímanum segir hún þá að hann hafi verið svo stuttur að betra hafi þótt að byrja seinna til að geta metið stöðuna. Frá 22. desember sl. hefur Vel- ferðarsvið borið ábyrgð á rekstri dagskýlis fyrir heimilislausar konur frá kl. 10.00–19.00 en Rauði kross- inn rekið næturathvarfið. Ellý bend- ir á að eftir sem áður hafi konurnar aðgang að Gistiskýlinu og Kaffistofu Samhjálpar. Hjá starfsmanni Konu- kots fengust þær upplýsingar að Konukot yrði opnað annaðhvort kl. 19 eða 21 á kvöldin. Konukot lokað yfir daginn SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN og Framsóknarflokkurinn í Árborg hófu í gærkvöldi formlegar við- ræður um myndun nýs bæjarstjórn- armeirihluta. Þórunn Jóna Hauks- dóttir, sem leiðir viðræðurnar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hún sagði ekki hægt að veita frekari upplýsingar um við- ræðurnar að svo stöddu, en flokk- arnir tveir hafa ákveðið að funda að nýju í kvöld. Í gærdag fóru fram óformlegar viðræður milli sjálfstæðismanna og Samfylkingarinnar í Árborg, en upp úr þeim slitnaði. D- og B-listi í við- ræðum í Árborg UNNIÐ er að því að setja íslenska fjölnotendatölvuleikinn Eve Online á markað í Kína og hefur leikurinn all- ur verið þýddur á kínversku í því skyni. Þá er hugsanlegt er að Eve Online verði notaður til kennslu í kín- verskum skólum, að sögn Hilmars V. Péturssonar, forstjóra fyrirtækisins CCP sem gefur út leikinn. „Undanfarið höfum við verið að undirbúa útgáfu leiksins í Kína og hluti af þeim undirbúningi felst í að kynna verkefnið fyrir fjölda opin- berra aðila og fá tilskilin leyfi og vott- orð. Ein slík stofnun sendi erindi til menntamálaráðuneytis landsins með þeim skilaboðum að vel mætti nýta leikinn í skólum.“ Segir Hilmar Eve Online snúast að um samskipti og samvinnu milli fólks, stjórnun fyrirtækja, skipulagn- ingu á framleiðslulínum, samn- ingagerð og fleira sem hafi samnefn- ara í raunveruleikanum. „Fræðimenn á Vesturlöndum hafa rannsakað heim Eve Online og þá einkum hagkerfi leiksins, sem sumir vilja meina að sanni ákveðnar kenn- ingar í hagfræðinni. Kínversku emb- ættismennirnir virðast hafa komið auga á þessa möguleika og vilja, eins og áður segir, kanna hvort hægt sé að nota leikinn til að styðja við kennslu í markaðs- og hagfræði til dæmis.“ Leikendur um 80.000 talsins Nú standa yfir lokuð notendapróf, svokölluð beta-próf, á kínversku út- gáfunni, en kínverski leikurinn verð- ur hýstur í Kína og segir Hilmar þetta verða í fyrsta og líklega síðasta skipti, sem settur verði á stofn nýr vefþjónn fyrir leikinn. Eve Online hefur státað af því að leikmenn eru allir hluti af sama heimi, meðan aðrir svipaðir leikir eru leiknir á fjölda vef- þjóna sem hver um sig hýsir sína sér- stöku útgáfu af leiknum. „Fjarlægð Kína frá vefþjónum okkar í London, auk annarra tækni- legra ástæða, gerir það að verkum að nauðsynlegt reynist að leysa málið svona. Þá er útlit fyrir að fjöldi kín- verskra notenda verði mjög mikill og gæti það valdið vandræðum á enska vefþjóninum ef meirihluti leikenda talar annað tungumál en ensku.“ Í lokaða beta-prófinu taka nú um 80.000 kínverskir leikendur þátt og er búist við að allt að 800.000 leik- endur taki þátt í opna beta-prófinu þegar það hefst. Til samanburðar má nefna að í dag leika um 120.000 manns Eve Online víða um heim. Eve Online á Kínamarkað Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is Morgunblaðið/Júlíus Eve Online er orðinn vinsælasti vef- ur á Íslandi, næst á undan mbl.is. SJÁLFSTÆÐISMENN og óháðir og Framsóknarflokkurinn náðu í gær samkomulagi um myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn samein- aðs sveitarfélags Húsavíkur, Keldu- neshrepps, Raufarhafnarhrepps og Öxafjarðarhrepps. Nýlega fór fram skoðanakönnun um nýtt nafn á sveitarfélagið og völdu flestir nafn- ið Norðurþing, en ákvörðun um nafnið verður tekin í júní. Að sögn Jóns Helga Björnssonar, oddvita sjálfstæðismanna, snýst samkomulag flokkanna einkum um þrjú mál. „Við ætlum að ná jafn- vægi í rekstri sveitarfélagsins og vinna að sameiningu þessara fjög- urra sveitarfélaga,“ segir Jón Helgi. Þá verði áhersla lögð á að vinna að uppbyggingu atvinnulífs- ins með því að hagnýta orku í gegn- um stóriðju. Jón Helgi segir að leitað verði að sveitarstjóra út fyrir raðir bæj- arfulltrúa. Nýr meirihluti á Húsavík FLUGVÉL frá Swiss Air-flugfélag- inu lenti á öðrum hreyfli á Keflavík- urflugvelli á tíunda tímanum í gær- kvöldi. Vélin missti afl á öðrum hreyflinum á leið sinni frá Zürich til New Ark í Bandaríkjunum og var beint til Keflavíkurflugvallar. Að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa Flugmála- stjórnar, var viðbúnaðaráætlun sett í gang á flugvellinum. Ekki var um nauðlendingu að ræða heldur ein- ungis það sem kallað er örygg- islending. Ekki er talið að hætta hafi verið á ferð. Hjördís sagði að 61 manns hefði verið um borð í vél- inni, þar af hafi 6 verið í áhöfn. Lenti á öðrum hreyfli í Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.