Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 2

Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 2
2 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KYNNA TILLÖGUR Nokkur samdráttur verður í veið- um á þorski og ýsu milli ára miðað við tillögur um aflamark fyrir fisk- veiðiárið 2006–2007 sem Hafrann- sóknastofnun kynnti í gær. Gert er ráð fyrir aukinni veiði á síld en litlar breytingar eru á aflamarki í öðrum tegundum. Nærri 90 mál afgreidd Alls 33 þingmál voru afgreidd frá Alþingi fyrri part dags í gær, laugar- dag, ýmist sem lög eða þingsálykt- unartillögur. Daginn áður höfðu 56 þingmál verið samþykkt á Alþingi. Það þýðir að samtals 89 þingmál voru samþykkt á Alþingi síðasta sólarhringinn fyrir þinglok í sumar. Þing kemur næst saman í byrjun október. Íhugar endurkomu Finnur Ingólfsson íhugar nú til- mæli um að hann komi aftur til þátt- töku í stjórnmálum. Í samtali hans við Morgunblaðið kemur fram að eftir sveitarstjórnarkosningarnar á dögunum hafi fjölgað mjög í þeim hópi, sem hvetur hann til að gefa kost á sér í pólitík á nýjaleik. Segja hermenn saklausa Rannsókn Bandaríkjahers hefur leitt í ljós að bandarískir hermenn hafi ekki gerst brotlegir við starfs- reglur þegar á annan tug Íraka féll í áhlaupi á hús í bænum Ishaqi í nóv- ember í fyrra. Hermennirnir höfðu áður verið sakaðir um að hafa myrt fólkið með köldu blóði, nú þegar Bandaríkjaher verst ásökunum vegna rannsóknar á dauða 24 Íraka í bænum Haditha í nóvember. Segja aðkomu hræðilega Tveir íslenskir skiptinemar í Indónesíu segja aðkomuna að skjálftasvæðinu á Jövu, stærstu eyju Indónesíu, hræðilega, en að hjálp sé tekin að berast fórnarlömbum ham- faranna. Að minnsta kosti 6.234 fór- ust og yfir 46.000 slösuðust í skjálft- anum um síðustu helgi, sem mældist 6,2 á Richters-kvarðanum. Íhuga tillögu Manouchehr Mottaki, utanríkis- ráðherra Írans, tilkynnti í gær að stjórnin í Teheran myndi íhuga til- lögu stórveldanna í deilunni um kjarnorkuáætlun landsins, sem lögð var fram á fundi fulltrúa fimm fasta- ríkja öryggisráðsins auk Þýskalands á fimmtudag. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Spennandi fótboltasaga Ómissandi kvöldsaga fyir boltapeyja og -pæjur í HM-mánuðinum. edda.is Afsláttarverð 1.590 kr. Skemmtileg og falleg myndabók! HM-tilboð! BJÖRGUNARSVEITARMENN af suðvestur- horninu fjölmenntu fyrir utan Alþingishúsið í gær til að mótmæla frumvarpi um breytingar á lögum um olíu- og kílómetragjald sem sam- þykkja átti í gær. Fyrir lá að frumvarpið yrði samþykkt en breytingartillaga um að 2. grein, sem fjallar um kílómetragjaldið, yrði felld út var ekki samþykkt. Beið frumvarpið þriðju umræðu þegar Morgunblaðið fór í prentun. Jón Gunnars- son, framkvæmdastjóri Landsbjargar, segir ekki eðlilegt að öll aðflutningsgjöld á ökutækjum björgunarsveita séu gefin eftir en um leið sé notkun þeirra skattlögð. Jón segir að kostnaður við að koma mælum fyrir í bifreiðum sveitanna muni hlaupa á milljónum. Morgunblaðið/Kristinn Mótmæltu frumvarpi um kílómetragjald „ÉG á von á góðri mætingu. Við héld- um vorfund hinn 1. mars og þar mættu gríðarlega margir,“ segir Ragna Ívarsdóttir, skrifstofustjóri Framsóknarflokksins, um fund í mið- stjórn flokksins sem haldinn verður á Hótel Sögu næstkomandi föstudag. Hún segir að fundurinn sem slíkur ákveði hvort hann verði opinn utan- aðkomandi. „Oftast hefur það verið þannig að ræða formanns er opin fjölmiðlum og fundurinn þar á eftir lokaður. Almennar umræður hafa alltaf verið lokaðar síðustu ár.“ Ragna segir enn ekki liggja fyrir hvað gerist á fundinum. „Fundurinn er fyrst og fremst boðaður til að koma saman og skoða stöðuna. Það verður spennandi en eins og stendur virðast fjölmiðlar stjórna þróun flokksins og vita meira en við.“ Í miðstjórn Framsóknarflokksins eiga sæti um 150 fulltrúar; bæði al- mennir flokksmenn, alþingismenn og ráðherrar, landsstjórnarfulltrúar og framkvæmdastjóri flokksins, for- menn launþegaráða, fyrrverandi þingmenn, sveitarstjórnarráð og sjö fulltrúar kosnir af landsstjórn. Mið- stjórnin fundar tvisvar á ári en aðrir fundir skulu haldnir þegar lands- stjórn flokksins ákveður. Í lögum Framsóknarflokksins seg- ir: „Ef formaður flokksins hverfur úr embætti tekur varaformaður við störfum hans. Miðstjórn skal þá kjósa nýjan varaformann á næsta fundi sínum og gildir kjör hans til næsta flokksþings þar á eftir.“ Þetta þarf þó ekki endilega að þýða að Guðni Ágústsson, nú varaformaður, verði formaður því einnig kemur fram að ef ritari eða varaformaður hverfi úr embætti kjósi miðstjórnin nýjan fram að næsta flokksþingi. Miðstjórn Framsóknar getur skipt um forystu RÓLEGT var hjá lögreglu um land allt í fyrrinótt og skemmtanahald fór víðast hvar vel fram. Nokkur erill var þó hjá lögreglunni í Borgarnesi sem hafði m.a. hendur í hári ungs fíkniefnaneytanda. Var ungi maður- inn stöðvaður við hefðbundið um- ferðareftirlit í bænum og þótti lög- reglu vissara að leita í bifreið hans. Við leitina fundust nokkur grömm af kannabisefnum sem talin voru ætluð til eigin neyslu. Var manninum sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Annar ökumaður var auk þess stöðvaður þar sem öku- lag hans þótti undarlegt og er hann grunaður um ölvun við akstur. Fíkniefni gerð upptæk í Borgarnesi „VIÐ ætlum okkur að virkja betur flokksmenn og ná betur utan um hið almenna flokksstarf,“ segir Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, um þá vinnu sem fram undan er hjá flokknum að loknum sveitarstjórnarkosningum. Flokksstjórnarfundur Samfylk- ingarinnar verður haldinn 10. júní og segir Ingibjörg það hafa verið löngu ákveðið að hittast þá og ræða úrslit kosninganna. „Við í Samfylkingunni höfum verið að vinna að því að skýra betur línur varðandi flokkinn og hins vegar að byggja upp innviðina. Það er mikilvægt fyrir flokka að vera ekki bara með góða frambjóðendur og stefnu heldur að innviðirnir séu sterkir og það hefur okkur vantað.“ Hún segir að skipuleggja þurfi starfið betur. „Í borginni þurfum við að byggja upp hverfafélög og efla tengslanet. Við þurfum að halda bet- ur utan um sjálfboðaliða og koma okkur upp öflugri maskínu, sem get- ur unnið þá miklu vinnu sem fylgir kosningum. Þetta hefur verið vandamál okkar bæði í þessum kosningum og síðustu þingkosn- ingum. Þá sýndu kannanir að við áttum mikil sókn- arfæri sem við náðum ekki alveg að nýta okkur til fulls og alveg sama átti við núna.“ Hún segir það þó villandi að bera saman úrslit þingkosninga 2003 og sveitarstjórnarkosningar í borginni, því Sjálfstæðisflokkur hafi ætíð ver- ið sterkari í borgarstjórnarkosning- um og því minna til skiptanna fyrir aðra. Ef horft sé á úrslit Samfylking- arinnar í sögulegu ljósi hafi aðeins tvisvar áður eftir stríð nokkur flokk- ur á vinstri kanti stjórnmálanna fengið jafnmikið fylgi. Styrkja þarf innviði flokksins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Í dag Sigmund 8 Myndasögur 66 Fréttaskýring 8 Dagbók 66/69 Sjónspegill 38 Víkverji 66 Forystugrein 40 Velvakakndi 67 Reykjavíkurbréf 40 Staður og stund 68 Menning 44/45 Leikhús 70 Umræðan 46/56 Bíó 74/77 Bréf 54/56 Sjónvarp 78 Minningar 58/62 Staksteinar 79 Hugvekja 65 Veður 79 * * *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.