Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Hraunhamar kynnir glæsilegt 23 íbúða lyftuhús á sex hæðum. 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir og bílastæði í bílakjallara. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en þó verða baðherbergi og þvottaherbergi flísalögð. Vandaðar innréttingar frá Brúnás. Vönduð eldhústæki frá AEG, blástursofn og keramikhelluborð með snertirofum. Öll tæki í eldhúsi eru úr stáli. Vandað dyrasímakerfi með myndavél verður í húsinu. Allar íbúðirnar hafa sameiginlegan inngang norðanmegin við húsið. Aðgengi að íbúðunum er annars vegar með lyftu og hins vegar um stigahús. Vandaður frágangur, traustir verktakar. Skoðun í samráði við sölumenn Hraunhamars. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is KIRKJUVELLIR 7 - TILBÚNAR SÝNINGARÍBÚÐIR Magnús Emilsson löggiltur fasteignasali, Bæjarhrauni 10, Hafnarfirði 29.000.000 108,8 fm. einbýlishús ásamt 38 fm. bílskúr á góðum stað á Stokkseyri, eigninni fylgja útihús um 200 fm. 2 LAND- SPILDUR fylgja eigninni sem eru í leigu til 25 ára, sam- tals 23 Ha. Tilvalið til trjáræktar eða beitar. Gott útsýni er til allra átta. Birkihlíð - 825 Árborg Getur losnað fljótlega. 15.900.000 Mjög vandað 88 fm, 4ra-5 herbergja heils- árshús ásamt 10 fm smáhýsi í fallegu um- hverfi í landi Úthlíðar. Djáknavegur - Úthlíð ÁRIÐ 2001 beitti Krabbameins- félag Íslands (KÍ) sér fyrir lands- söfnun á meðal landsmanna undir heitinu „Einn af hverjum þrem- ur“. Eins og kemur fram í grein Guðrúnar Agnarsdóttur, fram- kvæmdastjóra KÍ, dags. 23. mars 2002 var markmið söfnunarinnar að auka stuðning og þjónustu við krabbameinssjúklinga, einkum við endurhæfingu, efla forvarnir og styðja við aðildarfélög KÍ. Eins og áður hefur komið fram söfnuðust 87.558.411. Fram kemur í rekstr- arreikningi árið 2001 að vaxta- tekjur og verðbætur voru 7.459.685. Kostnaður við söfnunina 11.908.217. Til ráðstöfunar 83.109,879. Í fyrrgreindri grein Guðrúnar Agn- arsdóttur (GA) kemur fram að KÍ hafi ákveðið að styðja við end- urhæfingu LSH sem var þá í Kópavogi. Eins kemur fram að KÍ hafi ákveðið að festa kaup á íbúð- um í samstarfi við Rauða kross- inn. Í grein sem birtist í Frétta- blaðinu dags. 15. desember 2003 kemur fram að KÍ hafi ákveðið að veita 3 milljónir til endurhæfingar LSH, en forstjóri LSH hafi ekki kallað eftir fénu. Athygli vekur að grein þessi er skrifuð vegna fyr- irspurnar Hjartar Sveinssonar sem skömmu áður hafði spurt um efndir KÍ vegna söfnunarinnar. Bendir hann rétti- lega á nauðsyn end- urhæfingar og eru greinar hans vand- aðar. Á svipuðum tíma kemur önnur fyrirspurn frá 6 kon- um í Mbl. „End- urhæfing krabba- meinssjúkra í Kópavogi“ sem spyrja þess sama, um efndir. Þuríður Backmann þingmað- ur skrifar grein um „Nauðsyn endurhæfingar krabba- meinssjúklinga“ um svipað leyti og veltir fyrir sér endurhæfing- armálum krabbameinsgreindra. Athyglisvert er síðan að lesa greinar GA „Ráðstöfun söfn- unarfjár“, „Verkefni í þágu þjóð- arinnar“, „Endurhæfing krabba- meinssjúklinga“ svo og litlum pistli „Landssöfnun skilar sér“. Greinar þessar segja ekkert til um það sem fólk spyr um, hvar peningarnir eru sem söfnuðust frá þjóðinni. Greinaskrif GA eru endurtekningar og forðast hún að virðist vera að nefna hvar peningana er að finna. Og með því að hafa lokaða aðalfundi, enga upplýsingaskyldu gagnvart þjóðinni sem studdi KÍ svo duglega hefur GA komist upp með að hafa peningana þar sem henni sýnist. Nú á árinu 2006, 5 árum eftir söfnunina, nefnir hún í ársskýrslu sinni að „það sem eftir er af söfn- unarfénu“ verði notað til að setja upp endurhæfingu og þjónustu- miðstöð í húsi KÍ. Ég hef ekki lengi verið í hópi krabbameins- greindra, en með ofangreindum vinnubrögðum verður ekki séð annað en GA „sái fræjum vantrúar á meðferð fjármuna hjá KÍ“ hjá þeim hópi krabbameinsgreindra og annarra sjálfboðaliða sem þátt tóku í vinnu við söfnunina á sínum tíma og gáfu flestir vinnu sína. Eins og ég gat um áður í greinum mínum er velta KÍ umtalsverð. Íbúðakaup sem ekki er opinbert á hvern hátt kostnaður skiptist á milli KÍ og RKÍ, er vandalaust að halda fram að hægt sé að greiða með veltufjármunum KÍ. Á hverju ári veltir KÍ hundruðum milljóna eins og ég benti á. Það hlýtur að vera réttmæt krafa krabbameins- greindra og annarra landsmanna að fá að vita hvers vegna fjár- munum, sem safnað er saman með dramatískum sjónvarpsþætti og tókst vel á árinu 2001, er ekki enn búið að nota til endurhæfingar og þjónustumiðstöðvar eins og lofað var. Eins er athyglivert að á sama tíma og KÍ fjárfestir söfnunarfénu annars staðar, eru aðildarfélög að safna milljónum króna í sjóðum sínum með sölu armbanda, penna og áheita. Peninga sem með réttu ætti að nota til hagsbóta fyrir krabbameinsgreinda. Starfsemi KÍ er ekki stjórnað af krabbameinsgreindum/notendum heldur af læknum, hjúkrunarfræð- ingum, bankastjóra og öðrum. Sér þess merki að miðað við umræðu undanfarna daga að öll umræða er stjórn KÍ erfið og til vandræða. Fjármál KÍ eru ekki einkamál stjórnenda. Þeir sem halda það eru búnir að vera of lengi, vernd- aðir af vinasamfélaginu og í stað þess að berjast fyrir bættum hag krabbameinsgreindra er barist fyrir að viðhalda vinasamfélaginu. Opin umræða um KÍ og kröftug hagsmunabarátta fyrir bættum hag okkar er nauðsynleg þegar haft er í huga aðstöðuleysi okkar í heilbrigðiskerfinu. Og eins og for- maður stjórnar KÍ og yfirlæknir LSH bendir á er Skógarhlíð 8 þjóðargjöf sem stendur öllum op- ið, þ.e.a.s húsið sjálft. Það er þess vegna skrýtið að mínu mati að ekki skuli vera rekin sú starfsemi, sem fyrir 5 árum var lofað, heldur virðist húsið vera notað sem „tóm- stundahús“ vinasamfélagsins. Að endingu vil ég ítreka fyrri orð mín, hvernig má það vera að KÍ safni peningum til endurhæfingar okkar en noti síðan féð til rekst- urs? „Noti dramatíkina í kringum krabbameinsumræðu til að næla sér í rekstrarfé.“ Ja, spyr sá sem ekki veit. Fjármál og landssöfnun Krabbameinsfélags Íslands Haukur Þorvaldsson fjallar um starfsemi Krabbameinsfélags Íslands ’Starfsemi KÍ er ekkistjórnað af krabbameins- greindum/notendum heldur af læknum, hjúkr- unarfræðingum, banka- stjóra og öðrum.‘ Haukur Þorvaldsson Höfundur er krabbameinsgreindur öryrki. Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.