Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Á
toppi skógi vax-
innar hæðar lá
ég í hengirúmi
og naut þess að
hlusta á fugla-
sönginn í sumar-
hitanum. Íkornar
þutu upp þykka
trjástofnana og vöktu athygli mína
sem og hundanna þriggja sem lágu
við hlið mér. Að baki mér stóð stórt
tveggja hæða timburhús og hengu
óróar hreyfingarlausir í logninu.
Mér fannst sem ekkert gæti raskað
ró minni. En ólíkt mér þekkja þeir
100 íbúar sem búa í Buffalo Creek
vel hættuna sem því fylgir að búa á
svæðinu.
Úrklippur bæjarins
Fá ummerki eru um skógar-
höggsmenn liðinnar aldar og fjöl-
skyldur þeirra. Mislinga- og tauga-
veikifaraldrar áttu drjúgan þátt í
miklu mannfalli á nítjándu öld og
eru flest gömlu húsanna horfin.
Járnbrautarlestin hefur ekki sést
hér síðan 1933 og teinarnir löngu
horfnir. Miðpunktur samfélagsins
er verslunin Green (Green’s Gene-
ral Store) og stendur hún í grös-
ugum dal sem malarvegurinn ligg-
ur um. Innan dyra vinnur
langafadóttir stofnandans, Dons
Greens, og þjónustar heimamenn.
Fortíðin virðist ríkjandi þegar
gengið er um þetta mikla opna
rými og hillurnar eru hlaðnar nið-
ursuðudósum, kössum utan af
dínamíti, skinnum og öðrum nauð-
synjum. Skærir litir stórmarkað-
anna sjást þar alls ekki. Ásamt
verslun með matvöru og brýnustu
nauðsynjar þjónar búðin hlutverki
kaffihúss, félagsmiðstöðvar og
kjörstaðar ásamt því að vera póst-
hús. Síðan 1877 hafa verið haldnar
kosningar og dansleikir á efri hæð
hússins. Á veggjunum hanga gaml-
ar tímaritsgreinar sem segja frá
þessu litla samfélagi og baráttu
þess. Þrátt fyrir einangrun sína og
smæð eru skógareldar helsta ógnin
og hafa haft víðtæk áhrif á líf allra
sem kjósa að lifa hér. Þegar ég
gekk út á malarplanið fyrir utan
verslunina gaf að líta víðáttumikla
skóga beggja vegna dalsins og var
mér ljóst að eldsmatur er nægur.
Skógarbirnir og fuglasöngur
Þrátt fyrir hættuna á skógareld-
um hefur fólk vafalaust margar
ástæður fyrir því að vilja búa í
Buffalo Creek. Umhverfið í kring
virtist mér á þessum ljúfu sum-
ardögum út af fyrir sig næg
ástæða. Skógarnir eru mikilfeng-
legir og dýralíf mikið og áberandi.
Fuglasöngur vakti mig á morgnana
og ég vissi vel að skógarbirnir ráf-
uðu um á nóttunni nær en mig fýsti
að vita. Ég gisti hjá Vickie systur
vinar míns og sambýliskonu henn-
ar Pat í stóru timburhúsi þeirra
sem stendur á toppi hæðar í skóg-
inum. Þær hafa búið hér saman í
tuttugu ár og starfar Vickie sem
listmálari og Pat rekur verktaka-
fyrirtæki og hefur byggt flest nýju
húsanna á svæðinu. Líkt og flestir
íbúar svæðisins hafa þær upplifað
eyðileggingu skógareldanna, glat-
að eigum og tekið þátt í neyðar-
hjálp og uppbyggingu. Ég sat í eld-
húsinu við sólsetur og hlustaði á
frásagnir þeirra af skógareldunum
meðan skuggar liðu yfir hæðirnar.
Saga af eldi
Frá 1995 til 2002 áttu sér stað
þrír meiriháttar skógareldar á
svæðinu. Eldarnir hljóta nöfn sín
af þeirri slökkviliðsstöð sem fyrst
fær tilkynninguna. Þó svo að High
Meadows- (13.000 ekrur árið 2000)
og Hayman-eldarnir (138.000 ekr-
ur árið 2002) næðu yfir mun stærri
svæði var það Buffalo Creek-eld-
urinn (12.000 ekrur árið 1996) sem
olli mestri eyðileggingu í sögu bæj-
arins. Eldingar eru ein helsta or-
sök skógarelda og fjölmargir litlir
eldar eru slökktir á hverju sumri
án þess að þeir valdi verulegu
tjóni. En í útilegu ungmenna frá
Denver var það ábyrgðar- og
kæruleysi ungmennanna sem og
Hætturnar
í kyrrðinni
Í skógi vöxnum hlíðum Klettafjalla Norður-Ameríku
stendur litla bæjarfélagið Buffalo Creek. Þar komst Svavar
Jónatansson að því að íbúarnir búa ekki aðeins við nátt-
úrufegurð og kyrrð heldur einnig stöðuga hættu á skógar-
eldum yfir sumarmánuðina.
Verslunin Green er miðpunktur þessa litla samfélags og stendur í kyrrlátum dal.
Lífvana landslagið er lengi að taka við
sér í kjölfar skógarelda.
Séð yfir svæði sem brann í Buffalo Creek-eldinum.
Hönnun / bestun
Fjármál / stjórnun
Þróun / nýsköpun
Tölfræði / greining
Efni / varmi
Orka / umhverfi
Stýringar / sjálfvirkni
Hagkvæmni / hagnýting
www.verk.hi.is
Umsóknarfrestur er til 6. júní
VÉLA-
OG IÐNAÐAR
VERKFRÆÐI
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
22
10
2