Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 62
62 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Þórhalla Gísladótt-
ir frá Skógargerði,
fyrrum prestsfrú,
lést 18. apríl 86 ára að aldri.
Þórhalla var ein í hópi Skóg-
argerðissystkina, þrettán barna
hjónanna Gísla Helgasonar, bónda
ÞÓRHALLA
GÍSLADÓTTIR
✝ Þórhalla Gísla-dóttir fæddist í
Skógargerði í Fell-
um 11. mars 1920.
Hún lést á hjarta-
deild Landspítalans
þriðjudaginn 18.
apríl síðastliðinn og
var jarðsungin frá
Valþjófsstaðar-
kirkju í Fljótsdal 29.
apríl.
og fræðimanns, og
Dagnýjar Pálsdóttur,
ömmusystur minnar.
Af þeim eru nú sex á
lífi.
Við lát frænku
minnar Þórhöllu leita
hlýjar minningar á
hugann frá löngu
liðnum árum í Fljóts-
dalnum. Þórhalla
giftist sr. Marinó
Kristinssyni, er var
sóknarprestur á Val-
þjófsstað er ég man
fyrst til mín, sat þar í
hartnær tvo áratugi og naut al-
mennra vinsælda sökum ljúflyndis
og mikilla sönghæfileika.
Einhverjar fyrstu minningar
mínar frá Valþjófsstað eru bundn-
ar vorinu 1953 er ég gekk til
spurninga hjá prestinum, eins og
þar var nefnt, eða öllu heldur fór
ég ríðandi frá bernskuheimili mínu
á Droplaugarstöðum, ysta býli í
sveitinni, um 25 km veg. Urðum
við samferða þrjú fermingarbörn.
Síðar æxluðust málin þannig að ég
tók að mér barnakennslu í Fljót-
dalsskólahverfi um tveggja vetra
skeið, þá nýútskrifaður gagnfræð-
ingur frá Eiðaskóla. Þetta var far-
skóli, kennt var á 4–5 heimilum yf-
ir veturinn, í um mánuð á hverjum
stað. Börn gengu frá næstu bæjum
eða var komið fyrir á kennslustað.
Þau prestshjónin tóku skólann á
heimili sitt báða veturna, enda
elsta barn þeirra komið á skóla-
aldur. Þetta var eftirminnilegur
tími en skemmtilegur. Kennarinn
lítið eldri en sum börnin og lék sér
við þau í frímínútum. Kennslurými
og búnaður þætti sjálfsagt ekki
upp á marga fiska í dag, en reynt
var að tjalda því sem til var á
hverjum stað og nýta til hins ýtr-
asta. Á Valþjófsstað voru húsa-
kynni rýmri en víðast annars stað-
ar í sveitinni, en ung börn voru á
heimilinu, sem vissulega þurftu
sitt athafnarými. Ekki minnist ég
þó neinna árekstra í þessu sam-
bandi. Þau hjónin létu sér bæði
einkar annt um að öllum liði vel og
allt gengi snurðulaust fyrir sig.
Þórhalla var lærð ljósmóðir og
sinnti þeim störfum árin á Val-
þjófsstað og síðar í Þórshafnar-
læknishéraði, eftir að þau fluttu að
Sauðanesi árið 1966. Við annasöm
prestkonustörf bættust því ljós-
móðurstörfin, þar sem kallið gat
komið nánast fyrirvaralaust og án
tillits til aðstæðna. Heyrt hef ég að
Þórhalla hafi verið farsæl ljósmóð-
ir. Frændrækin var hún eins og
fleiri af hennar skyldfólki, hafði
sterkar taugar til síns fólks, ekki
síst til bernskuheimilisins í Skóg-
argerði, þar sem hún dvaldi nokk-
uð síðari árin ásamt systrum sín-
um, í húsinu sem þau systkinin
höfðu gert upp af miklum mynd-
arbrag. Heimilið á Valþjófsstað
var rómað fyrir söng og tónlist-
armennt. Sr. Marinó var þekktur
sem söngmaður, hafði afburða-
fagra söngrödd, var annálaður tón-
ari og einsöngvari við margvísleg
tækifæri, auk þess sem hann
stjórnaði kórum og spilaði undir.
M.a. söng hann með Karlakór
Reykjavíkur og tók þátt í söngför
kórsins um Norður-Ameríku
haustið 1946. Þórhalla hafði einnig
fallega söngrödd og söng lengst af
í kirkjukórnum, þar sem þau störf-
uðu.
Síðari kennsluveturinn minn í
Fljótsdalnum, 1957–8, störfuðum
við tveir bræður ásamt móður okk-
ar í kirkjukór sveitarinnar, sem sr.
Marinó stjórnaði. Æfingar voru á
heimilum kórfólks, m.a. á Valþjófs-
stað, og oft glatt á hjalla. Ég
minnist þessa vetrar og verunnar í
kirkjukórnum með sérstakri gleði.
Stuttu síðar fluttu þau prests-
hjónin og börn þeirra í Vallanes,
þar sem sr. Marinó þjónaði um 6
ára skeið við góðar vinsældir, uns
þau yfirgáfu Héraðið og fluttust að
Sauðanesi við eftirsjá Héraðsbúa.
Átta urðu börn þeirra, sem til full-
orðinsára komust, hið yngsta fætt
í Vallanesi, gjörvulegt fólk, sem
haslað hefur sér völl á ýmsum
sviðum þjóðlífsins.
Á Sauðanesi beið þeirra enn víð-
ur verkahringur, sem ég þekkti
eigi til, en um 1980 er sr. Marinó
lét af störfum vegna aldurs fluttu
þau til Reykjavíkur og var heimili
þeirra á Bergþórugötu 27 til
dauðadags. Eftir að til Reykjavík-
ur kom vann Þórhalla við aðhlynn-
ingarstörf á Elliheimilinu Grund
og síðar á Hvítabandinu. Hún naut
dágóðrar heilsu framundir hið síð-
asta og eftir lát eiginmanns síns í
júlí 1994 bjó hún ein á Bergþóru-
götunni og naut umhyggju og að-
stoðar barna sinna. Hún var vilja-
sterk kona í orði og verki og vildi
standa á eigin fótum, meðan stætt
var. Það tókst henni.
Nú hefur frænka mín, Þórhalla
Gísladóttir, gengið þann veg á
enda, sem öllum er fyrirbúinn.
Hún kvaddi í hárri elli, en hélt
andlegum kröftum til hinstu
stundar.
Kveðjuorð mín um hana tengjast
óhjákvæmilega þeim ljúfu
bernskuárum í minni fögru fæð-
ingarsveit.
Björt er minning mætrar konu
og þess sem einu sinni var. En það
sem einu sinni var, það er og verð-
ur.
Minningarathöfn um Þórhöllu
fór fram í Hallgrímskirkju 27. apr-
íl að viðstöddu fjölmenni. Tveimur
dögum síðar var hún lögð til
hinstu hvílu við hlið eiginmanns
síns í kirkjugarðinum á Valþjófs-
stað, þar sem þau áttu árin mörgu
í blíðu og stríðu. Römm var taugin
sem batt þau við Héraðið, hún
slitnaði aldrei.
Nú hvíla þau hlið við hlið undir
krónum trjánna í Valþjófsstaðar-
garði, en minningin lifir og Drott-
inn vakir.
Einlægar samúðarkveðjur skulu
fluttar börnum hennar, systkinum
og öðrum aðstandendum. Guð
blessi minningu prestshjónanna á
Valþjófsstað.
Ólafur Þ. Hallgrímsson,
Mælifelli.
Fallinn er frá kær
vinur. Ég man eftir
Pétri svo langt sem ég man eftir
mér sjálfri.
Fyrsta minningin er þegar hann
situr við við eldhúsborðið heima
með vindlastubbinn sinn og með
smurolíu á höndum eftir að hafa
gert við eitthvað af vélunum hans
pabba.
Árin liðu og ég fór í skóla og þar
kynntist ég stelpunum hans Gunnu
og Sossu sem urðu svo mínar vin-
konur í skóla. Það voru margar ferð-
irnar í Brandstaði með stelpunum
og ég fékk að gista. Oft var tekin
ákvörðun í skólabílnum um að fara í
Brandstaði og alltaf var mér vel tek-
ið. Árin liðu og ég flutti í burtu og
sambandið minnkaði, en árið 1991
dó pabbi og mamma og Pétur tóku
saman það ár. sem gerði það að
verkum að ég fór að kynnast honum
miklu betur, þar var glaðvær og
skemmtileg persóna á ferð, Pétur
hafði einstakt lag á að laða að sér
börn, það var engu líkara en settur
væri segull, svo mikið héldu börn
upp á hann, enda hafði hann gaman
af því að leika við þau. Okkar sam-
band var alltaf traust og gott, þegar
ég kom suður til ykkar mömmu í
byrjun febrúar stuttu eftir að hann
fékk úrskurðinn um að hann væri
haldinn þessum illvíga sjúkdómi
sem krabbamein er þá gátum við
setið og rætt allt á milli himins og
jarðar. Það var ekkert undanskilið,
mér fannst vænt um hann og hjá
mér er höggvið stórt skarð í vina-
hópinn með fráfalli Pétri.
Mamma og Pétur byggðu sér
PÉTUR
GUÐLAUGSSON
✝ Pétur HafsteinnGuðlaugsson
fæddist á Mörk á
Laxárdal í Austur-
Húnavatnssýslu 21.
desember 1941.
Hann lést á líknar-
deild Landspítalans
í Kópavogi 19. maí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Kópavogskirkju 29.
maí.
sumarbústað í Gríms-
nesinu fyrir nokkrum
árum og eyddu þau
öllum þeim frítíma
sem þau áttu í bú-
staðnum að dytta að
hinu og þessu. Ég hef
einu sinni komið
þangað og er hann
einstaklega hlýr og
notanlegur. Ég spurði
Gunnu að því við
kistulagninguna af
hverju mér hefði þótt
svona vænt um hann
og svarið var einfalt:
hann var svo góður, og það voru orð
að sönnu.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég vil þakka Pétri fyrir þau ár
sem við áttum saman.
Þín vinkona
Kristín Hanna.
Föstudaginn 19. maí var hringt í
mig og var þá mamma mín í síman-
um. Jæja, þá er afi þinn kominn í
betri hendur. Ég fékk sting í hjart-
að, en um leið létti, vegna þess að
þér líður betur núna, afi minn.Við
vorum alltaf að fíflast og það var
alltaf stutt í grínið og stuðið hjá þér.
Þú varst mikill fjörkálfur. Ég man
eftir þegar ég var yngri og bjó í
sveitinni að ég var úti í skúr með þér
og þú varst eitthvað að stríða mér
og ég datt beint ofan í olíudall. Þetta
er ein af mínum góðu minningum
um þig. Þú varst alltaf til í að leika
við mig og þú tókst mig oft með þér
í heimsóknir í sveitinni. Mér fannst
alltaf gaman að fá að fara með þér
því þó að við værum ekkert að fara
neitt sérstakt var bara svo gaman
að fá að vera með þér, því að stund-
um fórst þú að syngja.
Þú varst maður fárra orða. Þú
þurftir ekki að segja neitt, því að
maður vissi hvernig þér leið. Þú
vannst mikið og vannst öll þín verk
af alúð. Ég man ekki eftir þér öðru-
vísi en eitthvað að gera. Þú varst
handlaginn. Allt sem þú gerðir,
gerðir þú vel. Þegar þú byrjaðir á
sumarbústaðnum, gastu ekki beðið
eftir að komast upp í bústað og fara
að gera eitthvað. Það var alltaf gam-
an að fara með þér og Dóru upp í
bústað. Þaðan á ég margar góðar
minningar. Mínar helstu minningar
eru samt úr sveitinni þar sem ég
ólst upp. Ég fékk að kíkja inn í þína
fortíð þegar ég vann að ritgerð í
skólanum í fyrra. Það var fullt sem
ég fékk að vita um þig sem ég vissi
ekki. Það var svo gaman hjá okkur
þegar þú varst hjá okkur ein jólin,
þá gafst þú mér dúnsæng og kodda í
jólagjöf. Þetta var æði. Og svo þegar
þú komst heim frá útlöndum komstu
alltaf með eitthvað handa mér, kjól
og fleira. Svo eitt skiptið þegar við
fórum suður gafstu mér bangsa, sel.
Þú fékk að hafa hann í bílnum hjá
þér og sagðir þú að það minnti þig
svo mikið á ferðir okkar saman og
áttir þú að hafa hann þar til þú færir
á æðri staði og þá átti ég að fá hann
til að minna mig á þig. Ég mun
passa vel upp á hann, afi minn, það
var frábært hvernig þú tókst Leif og
hvað þið náðuð vel saman. Gátuð
gert svo mikið saman að maður vissi
ekki af ykkur. Þú þáðir alltaf hjálp
ef hún var fyrir hendi. Þú varst sem
afi litlu stelpunnar hans og þú vildir
alltaf leika við hana.
Elsku afi minn, hvíl þú í friði. Ég
vil kveðja þig í hinsta sinn með þess-
um orðum:
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Við Leifur vottum Dóru, börnum
og barnabörnum okkar dýpstu sam-
úð og gefum þeim okkar styrk í
sorginni.
Brynja Ósk.
Ég á erfitt með að skilja að þú
komir ekki með ömmu í sumar eins
og þú hefur alltaf gert.
Það sem þú gast enst til að leika
við mig og allar derhúfurnar sem þú
gafst mér svo ekki sé talað um JCB
gröfurnar sem þú keyptir og þið
amma gáfuð mér í jólagjöf. Það var
alltaf skemmtilegast að opna gjaf-
irnar frá ykkur því þið vissuð alltaf
hvað mig langaði í. Langar til að
segja takk fyrir allar stundirnar,
hefði viljað hafa þær fleiri.
Þú vakir, faðir vor,
og verndar börnin þín,
svo víð sem veröld er
og vonarstjarna skín,
ein stjarna hljóð á himni skín.
(Sigurbjörn Einarsson.)
Tak fyrir allt og allt. Þinn vinur
Tobías Freyr.
Það er gott að eiga góðan vin.
Fyrst þegar ég sá þig var ég bara
patti í sveitinni inni í Blöndudal.
Bograndi í heyskap með bræðrum
mömmu sem töluðu um að þetta
væri nú eitthvað sem Pétur gæti
lagað þegar eitthvað bilaði. Já,
vissulega var það rétt því að við-
gerðir léku í höndum þér og veit ég
fyrir víst að margur bóndinn hafði
notið liðsinnis frá þér í lagfæringum
á tækjum. Sólin skein og allir höm-
uðust við að koma heyi í tóftir, þess-
ir dagar voru dýrmætir og því gátu
þeir orðið langir, því koma skyldi
sem mestu heyi heim. Útundan mér
heyrði ég nefnt að von væri á Pétri á
Brandstöðum til að létta undir. Ég
komst ekki hjá því að líta út eftir
vegi af og til yfir daginn því ég var
afar spenntur yfir því að þú værir að
koma. Nyrst við landamerkin sást
rykbólstur og eftir skamma stund
birtist þú, akandi á hvítri dráttavél
(David Brown). Slíkan grip hafði ég
ekki séð á neinum bæ. Þrátt fyrir að
vera orðinn aðeins lúinn í amstri
dagsins þá endurnærðist maður við
nærveru þína. Léttleiki þinn, hlátur
og hæfileg stríðni var eitthvað sem
mér líkaði. Og síðan var hamast við
heyskap langt fram á kvöld. Þegar
ég var síðan hjá þér á Brandstöðum
var mikið spjallað, unnið og ófáir
kaffibollarnir drukknir. Samtöl okk-
ar voru okkur báðum afar gagnleg
þar sem við ræddum stað og stund
og létum síðan hugann reika með
hæfilegri jarðtengingu þó. Það var
því ekki spurning þegar kom að því
að ég gifti mig hvern ég vildi hafa
fyrir svaramann. Ég hringdi í þig,
spurði og þú hváðir í fyrstu með
smá gríni eins og þér einum var lag-
ið, en svaraðir jafnframt um hæl
auðvitað. Það var ekki að spyrja að
því að ef að þú gast veitt mér lið-
sinni þitt þá gerðir þú það. Um dag-
inn fékk ég síðan símtal þar sem
mér var tjáð að Pétur hefði hringt
og ég var beðinn um að hringja í
hann. Ég hringdi um hæl og mikið
var gott að heyra í þér. Þrátt fyrir
að þú hafir sjálfsagt fundið til af
veikindum þínum þá varstu svo
hress við mig í símann. Við spjöll-
uðum líkt og áður um það sem þú
hafðir verið að gera undanfarið og
um börnin þín og barnabörn. Þú
baðst mig um að líta við næst þegar
ég kæmi suður og endaði okkar
samtal á því. Mikið var ég feginn því
að við heyrðumst, og þakka þér fyrir
að vera svona gefandi í minn garð.
Auðgar líf í öllu fasi,
áttum góðar stundir saman.
Fjarri lífsins leiða þrasi.
Lofa lífið það er gaman.
Dofnar kraftur yfir dynur,
Drottins englakór að sinna
Guð þig geymi góði vinur,
gæfa mín var þig að finna.
Ekki náðum við að hittast undir
lokin. En þú hefur gefið mér góða
minningu, þá sem staðfestir að það
er gott að eiga góðan vin. Ég bið
guð að geyma þá er að þér standa.
Þinn vinur,
Þorbjörn Haraldsson.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR ÖGMUNDSSON,
fyrrverandi formaður
Landssambands vörubifreiðastjóra,
Grímshaga 3,
Reykjavík,
lést á Landspítala við Hringbraut föstudaginn
2. júní.
Ögmundur Einarsson, Magdalena Jónsdóttir,
Ingibjörg Einarsdóttir, Júlíus Sigurbjörnsson,
Ingveldur Einarsdóttir, Trausti Sveinbjörnsson,
Þórunn Einarsdóttir, Frank Jenssen,
afa- og langafabörn.