Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 37
leiðbeinanda þeirra sem olli eld- inum. Áfengi og önnur eiturlyf voru höfð um hönd þegar tekið var upp á því að fleygja klósettrúllum á eldinn. Skógareldurinn geisaði í viku. Mesta tjónið varð vegna mik- illa rigninga sem fylgdu og ollu gríðarlegu flóði þar sem harður öskuþakinn jarðvegur hlíðanna gat ekki tekið við vatninu. Nítján feta hár flóðveggur skall á húsunum sem stóðu í vegi hans og hreif hann sum þeirra með sér í heilu lagi. Rafmagnsstaurar brotnuðu, bílar ultu og vegir skoluðust burt. Eitur- efnin sem bárust með flóðinu náðu til vatnsbólsins í Denver, sem nauðsynlegt reyndist að tæma og hreinsa. Tjónið var að lokum metið á milljarða dollara auk þess sem tvær manneskjur létust. Eyðilegg- ingin blasti við um allt svæðið og hafði snert alla íbúa þess á ein- hvern hátt. Fyrir tilstilli Vickie komu ungmennin aftur til að horf- ast í augu við afleiðingar gerða sinna. Yfirbuguð af tilfinningum sínum voru viðbrögð flestra að leggjast á sviðna jörðina og gráta. Útsýni hræfuglanna Daginn eftir gekk ég milli brunninna trjánna í kringum nýju slökkviliðsstöðina. Himinninn var dökkblár og jörðin og trén svört. Einstaka blóm uxu upp úr sviðinni og svartri jörðinni. Mér fannst ríkja óeðlileg þögn og var hún að- eins rofin þegar fugl flaug yfir beinagrindur trjánna. Hræfuglar sátu á svörtum greinunum og kunnu vel að meta útsýnið. Þegar ég gekk aftur inn á svart malbikað bílastæðið kom ég auga á unga konu utan við slökkvistöðina og tók ég hana tali. Amy heitir hún og hefur búið í Buffalo Creek alla sína ævi. Hún starfar í slökkviliðinu og býr með eiginmanni sínum, sem er slökkviliðsstjórinn, og tveimur börnum þeirra. Þau hafa glatað hestum, geitum og húsi í skógar- eldum. Svo lengi sem hægt er að tryggja hús gegn skógareldum og vinnu er að fá segir hún að þau vilji hvergi annars staðar búa. Frá- sagnir hennar af baráttunni við eldana sýna skýrt smæð manna þar sem eitt vindstig getur yfir- bugað hundruð slökkviliðsmanna. Hún telur skort á samstarfi og skilningi milli slökkviliðs og skóg- arvarða vera mikla hindrun í bar- áttunni. Slökkviliðið beitir sér fyrir rýmingu og verndun húsa en skóg- arverðir að því að stöðva eldinn. Við upphaf Hayman-eldsins töldu skógarverðir sig myndu ráða við eldinn og gerðu því slökkviliðinu ekki viðvart. Skömmu síðar var ástandið orðið óviðráðanlegt. Fram að því höfðu íbúar Colorado ekki getað ímyndað sér að eldsvoði af slíkum styrkleika gæti átt sér stað. Daginn eftir yfirgaf ég Buffalo Creek í blíðskaparveðri. Þó svo að þennan dag ríkti kyrrð og ró allt í kring vissi ég að framundan væru hættulegustu mánuðir ársins fyrir íbúana. Á keyrslu eftir dölunum sem vegurinn hlykkjast um gaf að líta svartan brunninn skóginn sem vegna stærðar sinnar var nú ráð- andi í þessu umhverfi sem á að vera grænt. Líkt og íbúarnir von- aði ég að fljótlega færi að rigna. Ljósmyndir/Svavar Jónatansson Brunnin trén höfðu fengið skelfilegra útlit þegar aðeins svartar kræklóttar greinarnar voru sýnilegar. Höfundur er ljósmyndari og rithöfundur í hjáverkum. Fleiri greinar frá ferðum hans um þrjár heimsálfur og kynni hans af fólki þar eru væntanlegar. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 37 Pottþétt frí með Starcraft Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is Umboðsmaður á Akureyri: Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2 Starcraft RT. Smellpassar aftan í jeppann þinn. Þú ferð lengra með upphækkað Starcraft RT á off-road grind Centennial og Starcraft series. Hreinn og klár lúxus Starcraft pallhús. Svítan á pallbílnum þínum. Fyrir allar gerðir pallbíla. Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000 Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500 www.terranova.is Terra Nova býður ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Salou í júní. Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmti- garður Spánar. Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða og litríkt næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. kr. 24.995 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð í 5 nætur. Súpersól tilboð, 8., 15., 22. og 29. júní. Aukavika kr. 10.000 á mann. kr. 34.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 5 nætur. Súpersól tilboð, 8., 15., 22. og 29. júní. Aukavika kr. 10.000 á mann. Súpersól til Salou í júní frá kr. 24.995 Síðustu sætin - SPENNANDI VALKOSTUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.