Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
B
jarnarey er ein af
úteyjum Vest-
mannaeyja, sú
næststærsta og
einnig sú hæsta. Í
hundruð ára hefur
eyjan verið nytjuð
sem beitiland fyrir
kindur, lundaveiði og síðast en ekki
síst í eggjatöku á vorin, í fyrstu af
Ofanleitisprestakalli og jörðum í
Heimaey en síðar af Veiðifélagi
Bjarnareyjar.
Fimm síðustu ár hefur greinar-
höfundi hlotnast sá heiður að koma
og taka þátt í eggjatöku í Bjarna-
rey. Fimmtudaginn 18. maí 2006
héldu félagar úr veiðifélagi Bjarna-
reyjar og gestir út í Heimaey og
þaðan var hópurinn síðan ferjaður í
Bjarnarey með Lubbunni, trillu í
eigu Óla Jónssonar. Gekk ferðin út
í eyju stórslysalaust og var farang-
urinn hífður upp með litlum afföll-
um. Í klifrinu upp bjargið í veiði-
húsið er ekki hjá því komist að
hugsa til þeirra sem komu út í eyna
fyrir tíma veiðihúsa. Þá sváfu menn
undir klettum við Vatnsbringina
þar sem þeir höfðu skjól fyrir
mestu rigningunni og vindinum.
Þægindin eru ólíkt meiri núna, vel
búið veiðihús með gufubaði þar
sem menn geta látið líða úr sér
þreytu eftir annasaman dag.
Þegar búið var að koma sér fyrir
fór hluti hópsins niður á Álkustall í
leit að fýlseggjum á meðan aðrir
tóku til kjarngóðan kvöldmat.
Á föstudagsmorgun var hópnum
skipt í tvennt og annar hópurinn
fór norður í Glóra til að tína fýl-
segg og hinn fór á Skítastaði og í
Hrútaskoruna vestan í eyjunni.
Ljósmyndir/Þorvaldur E. Sæmundsen
Suðurlandsundirlendið og Eyjafjallajökull blasir við. Í forgrunni er kross sem reistur var árið 1953 til minningar um Sigurgeir Jónsson sem hrapaði fyrir björg í Bjarnarey 1935. Seinna var bætt við tveimur
skjöldum til minningar um Bjarna Ólaf Björnsson sem hrapaði fyrir björg 1959 og Svavar Þórarinsson sem tók út af skipi 1951, en hann var uppeldisbróðir Sigurgeirs og báðir voru þeir miklir sigmenn.
Ljúft við lifum í Bjarnarey
Bjarnarey er ein af úteyjum
Vestmannaeyja og fór
Þorvaldur E. Sæmundsen
þangað um miðjan maí í
eggjatöku. Bjargsig upp á
gamla mátann er nánast að
leggjast af á Íslandi en í
Bjarnarey hefur hins vegar
verið haldið í gamlar hefðir
og nánast öll handbrögð
eins og áður.
Baldvin Johnsen, félagi í veiðifélagi Bjarnareyjar, fer í sitt fyrsta sig í Hallandanum og
ber sig að eins og alvanur sigmaður.
Undirsetumennirnir Guðmundur T. Ólafsson, Baldvin Johnsen og
Vigfús Gíslason bíða eftir leiðbeiningum í gegnum talstöð frá sig-
manni. Í baksýn sést veiðihúsið og gufubaðið.
Fýllinn situr í mestu makindum á eggjum í þeirri vissu að þeim sé borg-
ið en hættan er handan við hornið. Eggjatökumaðurinn fikrar sig upp
hlíðina og hirðir upp egg sem honum yfirsást á leið sinni niður.