Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hafdís Stein-grímsdóttir fæddist á Akureyri 23. september 1956. Hún lést á heimili sínu 18. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar eru Stein- grímur Antonsson, f. á Akureyri 16. febrúar 1935 og Regína Kristinsdótt- ir, f. á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit 19. febrúar 1934. Systkini Hafdísar eru Margrét Alma, f. 15. desember 1957, Bergljót, f. 9. október 1960, Sæþór, f. 7. október 1961, Stein- grímur Hallur, f. 26. febrúar 1964, og Helga Sigríður, f. 9. mars 1965. Hafdís giftist 30. júlí 1977 Ósk- ari Erlendssyni kjötiðnaðarmanni, f. 5. júní 1952. Synir þeirra eru: 1) Elvar, f. 29. janúar 1976, kvæntur Fjólu Björk Karlsdóttur, f. 2. febr- úar 1981, dóttir þeirra er Ásta Þór- unn, f. 13. nóvember 2002. 2) Erlendur Ari , f. 21. desember. 1976, í sambúð með Sonju Róbertsdótt- ur, f. 23. mars 1971. Dóttir Erlends er Hafdís Brynja, f. 18. apríl 2000, börn Sonju eru Arnór Már Hansson, f. 11. mars 1989 og Jón Helgi Tómasson, f. 12. maí 1996. Saman eiga þau Elvar Snæ, f. 13. nóvem- ber 2004. Hafdís lauk prófi frá Gagn- fræðaskóla Akureyrar 1972 og starfaði á ýmsum stöðum á Akur- eyri en seinustu árin var hún heimavinnandi. Útför Hafdísar var gerð á Ak- ureyri 26. maí í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ég var staddur úti á sjó þegar ég fékk tilkynningu um að þú vær- ir dáin. Það var svo ótrúlegt og erf- itt að kyngja því að mamma mín væri virkilega dáin, aðeins 49 ára gömul. Allar minningarnar um þig hrönnuðust yfir mig í þessu sím- tali, allt sem þú hafðir kennt mér og hjálpað mér með. Þú varst alltaf svo góð og elsku- leg og betri mömmu var ekki hægt að óska sér. Ég mun aldrei sætta mig við að hafa misst þig svo unga en ég var samt heppinn að hafa haft þig í 30 ár. Þú varst mikið fyr- ir barnabörnin þín og dóttir mín Hafdís Brynja var svo heppin að fá að kynnast þér vel. Þú passaðir hana svo oft fyrir mig þegar ég bjó heima hjá þér og pabba. Þú varst dugleg að lesa fyrir hana og hjálpa henni að teikna og ef ég kom seint heim á kvöldin þá sváfuð þið saman í mínu rúmi. Þið pabbi voruð svo dugleg með hana. Elvar Snær son- ur minn var rosalega hrifinn af þér og þú passaðir hann líka stundum fyrir okkur Sonju. Hann var fljótur að læra hvar þú geymdir kökurnar þínar og ísinn þótt ungur væri. Það er sorglegt að þau skyldu ekki fá að hafa þig lengur, en ég veit að þú munt fylgjast með þeim þarna uppi. Ég, Sonja og tengdamóðir mín og börnin okkar vorum hjá ykkur pabba í mat á laugardeginum áður en þú lést. Það var yndislegt, en það sem mér þótti best var að ég faðmaði þig að mér og sagði þér að ég elskaði þig af öllu hjarta, það var svo gott. Núna eru erfiðir tímar framundan hjá okkur öllum, þó sérstaklega pabba, því þið voruð svo náin. Amma og afi eiga líka mjög erfitt eins og gefur að skilja. Elsku mamma mín þú munt allt- af eiga hjartað mitt og ég veit að þú vakir yfir okkur. Þinn elskandi sonur. Erlendur Ari. Þú varst sem blómið sem blómstrar þú eins og vorvindur hlýr þú komst með gleði í hjarta kærleik, hlátur og glens. þú þessi fallega frænka þú þetta náttúrubarn þín mun ég ætíð minnast þín verður saknað sárt. Ég mun alltaf muna þegar Haddý kom stundum á sumrin og gisti í sveitinni á Öngulsstöðum. Þá var nú ýmislegt brallað og margar góðar minningar koma upp í hugann. Kæri Óskar, Elli og Lindi, Reg- ína, Steini og systkini Haddýar, ég sendi ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Halla. Elsku Haddý, kynni okkar voru alltof stutt. Ég og strákarnir erum harmi slegin, því manni finnst þetta ekki réttlátt að missa tengda- mömmu sína og ömmu barnanna sinna svo unga. Þín verður sárt saknað og við hefðum viljað hafa þig svo miklu, miklu lengur. Ég veit að Elvar Snær, ömmustrák- urinn þinn, á eftir að spyrja mikið um ömmu í Hraunholti. Þú gafst alltaf kökur og ís og stjanaðir svo í kringum ömmubörnin þín, það var greinilegt að þau voru þín yndi og ég veit að þú verður verndarengill- inn hans Elvars sem er ekki orðinn tveggja ára og skilur ekki neitt. Hinum tveimur strákunum mín- um úr fyrra sambandi tókstu svo opnum örmum. Jóni mínum gafstu steina sem þú hafðir svo gaman af að safna og hann líka, það var ykk- ar sameiginlega áhugamál. Það var líka alltaf svo að þegar Addó, stóri strákurinn minn, kom þá gátum við verið vissar um að hann sofnaði í hornsófanum. Það var alltaf svo hlýlegt að koma til ykkar og ilm- urinn úr eldhúsinu alltaf svo góður, það hafði þau áhrif á Elvar Snæ að hann kom hlaupandi á harða- spretti, sagði ís og tess, sem er kex, ha, amma tess, og þú gafst honum það og fékkst ævinlega stórt bros í staðinn. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig svona alltof snemma og að við strákarnir og hann Lindi minn skulum ekki eiga eftir fleiri góðar stundir með þér. Þetta eru mjög erfiðir tímar fyrir okkur öll, að sættast við það að þú sért farin burt úr okkar lífi hér, en ég veit að þú munt vaka og vernda okkur sem eftir erum. Minningarnar munum við geyma ævilangt í hjarta okkar. Ég gæti skrifað allar okkar góðu minningar en ég vil eiga þær með mér og mun varðveita þær vel í hjarta mínu og strákanna. Við munum sakna þín hrikalega mikið, elsku tengda- mamma og amma, og megir þú hvíla í friði. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Kveðja frá strákunum, Sonja. HAFDÍS STEIN- GRÍMSDÓTTIR Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA SIGURRÓS GUÐJÓNSDÓTTIR frá Munaðarnesi, Strandasýslu, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 6. júní kl. 15.00. Guðlaug Jónsdóttir, Guðmundur G. Jónsson, Sólveig Jónsdóttir, Guðjón Jónsson, Sigríður Jakobsdóttir, Samúel Jónsson, Bjarney Georgsdóttir, Erla Jónsdóttir, Ágúst Skarphéðinsson, Ragnar Jónsson, Þórey Guðmundsdóttir, Anna Jónsdóttir, Kristján Kristjánsson, Jón E. Jónsson, Antonia Rodrigues, Ólöf B. Jónsdóttir, Reynir Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Systir mín og frænka okkar, HÓLMFRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR frá Hrossholti, Safamýri 52, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 6. júní kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið, Hamra- hlíð 17. Þóra Jenný Pétursdóttir, Sigurrós og Sigríður Helgadætur. Móðir okkar, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Freyjugötu 21, Sauðárkróki, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju miðviku- daginn 7. júní kl. 14.00. Aðstandendur. Vigfús Guðbrands- son íþróttakennari var tæplega 79 ára þegar hann lést. Vigfús var mikill fimleika- maður og átti um tíma mikinn þátt í eflingu áhaldafimleika á Íslandi. Á uppvaxtarárum Vigfúsar var mikið íþróttalíf á Siglufirði. Skíða- kappar Siglfirðinga urðu landsfræg- ir á þeim árum. Áhaldafimleikar festu þar rætur þegar fimleikakapp- inn Björn Jónsson kom þangað 1933. Hann hafði verið í Þýskalandi og lært þar áhaldafimleika og fleiri íþróttir. Strax eftir komuna til Siglu- fjarðar keypti hann fimleikaáhöld frá Þýskalandi og byrjaði að æfa íþrótt sína og kenna öðrum. Vigfús kynntist þá Birni og fimleikum hans. Vigfús náði fljótt góðum tökum á fimleikum og kennarahæfileikar hans komu snemma í ljós. Eftir tveggja ára nám í Reykholti hélt Vigfús til Danmerkur og stundaði nám í íþróttaskólanum í Ollerup, hin- um þekkta skóla sem danski íþrótta- frömuðurinn Niels Bukh stofnaði. Einnig dvaldist Vigfús við nám í Finnlandi. Eftir komuna til Siglu- fjarða tók Vigfús við þjálfun fim- leikamanna bæjarins. Sá hópur sýndi við ýmis tækifæri. Leiðir Vig- fúsar lágu síðar til Reykjavíkur. Árið 1953 tók hann við þjálfun fimleika- manna í Ármanni og gerðist jafn- framt drifkraftur í starfi fimleika- deildar félagsins. Formaður deildarinnar var hann um hríð. Hann sat einnig í stjórn Ármanns 1956– VIGFÚS GUÐBRANDSSON ✝ Vigfús Guð-brandsson fædd- ist á Siglufirði 26. maí 1927. Hann lést á taugalækninga- deild 2B á Landspít- alanum í Fossvogi þriðjudaginn 16. maí síðastliðinn og var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 26. maí. 1957. Í fimleikahópi Ármenninga voru margir af bestu fim- leikamönnum þjóðar- innar. Þeir sýndu oft undir stjórn Vigfúsar frá 1953 og fram á sjötta áratuginn. M.a. fóru þeir í sýningar- ferðir til margra staða á landinu og í fræga för til Færeyja árið 1962. Vigfús gaf út Handbók íþrótta- manna árið 1956 sem var dagbók í litlu broti en með ýmsum upplýsingum um íþróttir. Í henni er rakin saga Ól- ympíuleikanna til forna og frá end- urreisn þeirra 1896 til leikanna í Helsinki 1952. Þar er skrá yfir sig- urvegara á Ólympíuleikunum frá 1896–1952 og Vetrarleikunum 1924– 1952, einnig skrá yfir íslenska kepp- endur á Ólympíuleikunum frá 1908– 1952 og Vetrarleikunum 1948–1952. Líka eru í bókinni skrár yfir Íslands- met í frjálsíþróttum, sigurvegara í Íslandsglímunni 1906–1956 og lands- leiki Íslands í knattspyrnu og fleiri íþróttum. Árið 1963 gekkst Vigfús svo fyrir því að ritið Fimleikamálið eftir Björn Jónsson var gefið út. Þetta orðasafn þýddi Björn úr þýsku árið 1954. Orðasafnið er hið fyrsta um einstaka íþróttagrein sem gefið er út í bók- arformi á Íslandi. Ég kynntist Vigfúsi þegar ég dvaldist ungur á Siglufirði. Hann bauð mér á fimleikaæfingar sem hann stóð þá fyrir. Þar sá ég í fyrsta sinn lipra pilta gera æfingar á tvíslá og svifrá. Ég kom líka til hans á æf- ingar hjá Ármanni í Reykjavík. Oft hittumst við á förnum vegi. Þar var gott að ræða við Vigfús um íþróttir og allt hvaðeina. Hann var einlægur og sannarlega drengur góður. Ég votta dætrum hans þremur og öðr- um aðstandendum samúð mína. Ingimar Jónsson. Skrifuð á blað verður hún væmin bænin sem ég bið þér en geymd í hugskoti slípast hún eins og perla við hverja hugsun sem hvarflar til þín. (Hrafn A. Harðarson.) Með þessum örfáu orðum langar mig til að kveðja góða vinkonu og þakka henni fyrir alla þá hlýju sem hún sýndi mér og fjölskyldu minni í gegnum árin. Fyrstu kynni mín af Jóhönnu voru þegar hún starfaði hjá Einari Sindrasyni, háls-, nef- og eyrnalækni. Yfirleitt fylgdi þessum reglubundu heim- sóknum (sökum eyrnabólgu) heil- mikill kvíði en hann hvarf nánast við móttökurnar hjá Jóhönnu. Allt- af mundi hún eftir mér og sýndi mér og fjölskyldunni mikinn stuðning fyrir hvers kyns aðgerðir sem voru á döfinni. Ég efast ekki um að önnur börn hafi fengið jafn hlýjar móttökur. Ég var líka svo heppin að kynn- ast Jóhönnu utan stofunnar en hún bjó í sama stigagangi og Lufa heit- in frænka, meira að segja á sömu JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR ✝ Jóhanna Krist-jánsdóttir var fædd á Vindási í Eyrarsveit 16. mars 1934. Hún lést á líknardeild Landa- kotsspítala 15. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 22. maí. hæð. Það var því ekki langt að fara þegar skreppa átti í kaffi- sopa. Alltaf var Jó- hanna til í að taka á móti okkur systrun- um og gefa okkur mjólkursopa og kökusneið. Þegar ég sagði Vallý systur frá andláti Jóhönnu þá var hún fljót að rifja upp ýmsar minningar um hana, það fyrsta sem hún nefndi var kötturinn hennar, já og páfagaukurinn. Mér sjálfri fannst einstaklega gaman að fylgj- ast með því þegar Jóhanna setti hann í sturtu í eldhúsvaskinum. Eftir að Lufa dó duttu ferðirnar í Stigahlíðina alveg niður, en í hvert skipti sem ég átti leið um Miklu- brautina varð mér litið upp að blokkinni og hugsaði með mér að nú skyldi ég fara að skreppa í kaffisopa en tíminn hleypur stund- um frá okkur. Næst þegar ég sest niður með mjólkursopa og köku- sneið, minnist ég heimsóknanna til Jóhönnu. Kæra Jóhanna, hjartans þakkir fyrir samfylgdina. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens.) Ég og fjölskylda mín sendum fjölskyldu Jóhönnu okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi algóð- ur Guð vera með ykkur. Inga Rut Ólafsdóttir frá Laugarbakka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.