Morgunblaðið - 04.06.2006, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það er ekki bara að stíllinn sé orðinn kvenlegur, hann er líka orðinn píkulega slöraður.
Mikill hluti þeirrakvenna og barnasem búið hafa á
virkjunarsvæðinu við
Kárahnjúka eru nú að fara
í sumarleyfi til heimalanda
sinna og sum þeirra koma
ekki aftur í Laugaássþorp-
ið. Ástæða þess er að verk-
efni Impregilo við virkj-
unina er nú á seinni
sprettinum og næsta ár
helgað frágangsvinnu að
mestu leyti.
Um þrjátíu erlendar
konur eru nú í aðalbúðum
Impregilo, voru 40 þegar
mest lét og börnin eru 26 talsins, á
aldrinum þriggja mánaða til 14
ára. Fyrsta barnið sem fæddist
eftir að byrjað var að byggja
Kárahnjúkavirkjun er núna
tveggja ára, drengur að nafni Vla-
dimir. Þá eru í búðunum tvær
þriggja mánaða gamlar stúlkur og
einn níu mánaða piltur.
Lucilla Solazzo er leikskóla-
kennari og hefur um tug barna í
sinni umsjá í leikskólanum.
„Einhverjar kvennanna fara al-
farnar með börnum sínum í haust,
ekki síst til að koma þeim í skóla
fyrir veturinn“ sagði Lucilla í sam-
tali við Morgunblaðið, en konurn-
ar segja unnt að vera á ferðinni
með börnin fram að fermingu, en
þá þurfi að koma á þau festu í
heimahögunum. „Nokkrar fjöl-
skyldur fara á nýja verkstaði
Impregilo með mönnum sínum
þegar líður á árið,“ segir Lucilla
einnig.
Hún lætur vel af dvölinni norð-
an Vatnajökuls. „Þessi vetur hefur
verið algjörlega ólíkur vetrinum
þar á undan. Þá var meiri snjór og
miklu kaldara. Bæði erfitt og
skemmtilegt. En satt að segja er
ég mjög hrifin af þessum stað og
er farið að þykja vænt um hann.
Því fer fjarri að við höfum ekkert
við að vera hér, það eina sem er
kannski mínus er að næsti bær er í
klukkutíma fjarlægð, sem er þó
ekkert skelfilegt. Hér er fagurt og
ég fer með börnin um nágrennið,
m.a. fann ég fallegan foss þar sem
síðar í sumar munu spretta góm-
sæt bláber sem við úðum í okkur.
Auðvitað getur verið kuldalegt að
berjast hér út snemma á morgn-
ana þegar vindasamt er og blautt,
en hvað um það, við leikum okkur
úti og inni og erum dugleg við að
finna okkur ýmislegt til dundurs.“
Lucilla segir samskiptin við ís-
lenskar konur hafa verið allnokk-
ur. „Zoroptimistakonur af Fljóts-
dalshéraði voru hér um daginn í
heimsókn og við slógum upp hátíð
saman, sem var mjög skemmtileg.
Við höfum hitt þær áður, bæði hjá
okkur og þeim.“
Skólahald dregst saman
„Á næsta ári verður skólinn
áfram starfræktur, en þó aðeins
fyrstu fimm kennsluárin,“ segir
Ómar Valdimarsson, upplýsinga-
fulltrúi Impregilo. „Kennarinn
mun áfram verða Francesca Fran-
cesconi. Hefði svo borið við, hefð-
um við stafrækt önnur kennslu-
stig, en fjölskyldur með börn sem
voru á leið í efri deildir grunnskóla
ákváðu að fara. Margar fjölskyld-
ur verða á ferð og flugi, ekki hvað
síst þær sem hafa verið á Kára-
hnjúkum yfir veturinn og vilja
komast til Ítalíu til þess að eyða
sumarfríinu sínu. Eins munu ein-
hverjar fjölskyldur sem verið hafa
á Ítalíu yfir veturinn koma til Ís-
lands í sumar,“ segir Ómar.
Flestar þær erlendu konur sem
búið hafa í aðalbúðum Impregilo
eru þar til að eiga fjölskyldulíf með
eiginmönnum sínum. Þær eru á
ýmsum aldri og með fjölbreyttan
bakgrunn. M.a. er ein þeirra Kól-
umbíumeistari í sundi og lífefna-
fræðingur, en hefur ekki starfað í
sínu fagi síðan hún var í Afríku um
nokkurra mánaða skeið með
Impregilo áður en hún kom til Ís-
lands. Þær tala flestar mörg
tungumál og hafa búið við hinar
fjölbreytilegustu aðstæður víða
um heim á verkstöðum fyrirtæk-
isins. Nokkrar kvennanna vinna
margvísleg störf hjá Impregilo og
eru til dæmis verkfræðingar, ör-
yggisfulltrúar, tæknimenn eða í
skrifstofuhaldi hjá fyrirtækinu.
Margar hafa átt allt sitt líf með
Impregilo, bæði feður þeirra og
eiginmenn hafa unnið hjá ítalska
verktakanum og þær búið í fjöl-
mörgum löndum við allskonar að-
stæður á framkvæmdastöðum.
Risaborarnir fluttir út
TBM1 risaborinn lýkur hlut-
verki sínu seinni hluta júlímánaðar
og verður þá plokkað utan af bor-
hausnum í sérstökum helli, born-
um bakkað út borgöngin og hann
tekinn í sundur og fluttur á Reyð-
arfjörð, þar sem Impregilo hefur
verið úthlutað lóð í útjaðri bæjar-
ins til að safna saman tólum og
tækjum til útflutnings. TBM2
klárar sitt verk seint í september
ef að líkum lætur og þriðji borinn í
nóvember og verða þeir fluttir úr
landi í lok ársins eða í byrjun þess
næsta. Um 200 manns vinna í
kringum hvern bor og fer því
væntanlega einnig að fækka í
mannahaldi hjá Impregilo undir
árslok. Þá fer að þynnast í trukka-
flota fyrirtækisins um leið og
Kárahnjúkastíflu lýkur í haust og
hann fer þá einnig í geymslupláss
á Reyðarfjörð. Impregilo verður
svo í frágangi við virkjunarfram-
kvæmdina fram á sumarið 2007.
Fréttaskýring | Konur og börn á
Kárahnjúkasvæðinu huga að heimferð
Impregilo-fjöl-
skyldur heim
Nú sígur á seinni hluta verkefnis Impr-
egilo og fjölskyldur halda til síns heima
Kárahnjúkafjölskyldur snúa til síns heima.
Konurnar láta vel af vist-
inni á íslenskum fjöllum
Um fjörutíu konur með á
þriðja tug barna og unglinga
hafa búið í aðalbúðum Impregilo,
Laugarássþorpinu við Kár-
hnjúka undanfarin misseri. Þær
koma frá öllum heimshornum,
hafa ýmsan bakgrunn, en eiga
það sameiginlegt að þær, eða
menn þeirra, vinna hjá Impregilo
og flakka um heiminn eftir því
hvernig verk skipast. Þær halda
margar heim hvað líður þar sem
kúfurinn verður brátt farinn af
verkefni Impregilo hérlendis.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is