Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 25
Voru heimtur nokkuð góðar eða í
kringum 300 fýlsegg samtals.
Eftir það var sigútbúnaðurinn
tekinn til og farið austan til í eyj-
una í gegnum Dauðadalinn og út að
bjargbrún og hafinn undirbúningur
að sigi.
Í Bjarnarey hefur verið sigið á
hverju ári frá því elstu menn muna,
og hefur verið notast við sömu að-
ferðir allt þar til í dag, fyrir utan
að nú er notast við talstöðvar til að
samskipti sigmanns og undirsetu-
manna séu sem best. Að öðru leyti
hafa nýtískuaðferðir ekki verið not-
aðar að neinu ráði, eggjatökumenn
fara saman niður í berg og sitja
undir hvor öðrum. Eggjafötum er
slakað niður til þess sem er í berg-
inu og hann tínir eggin í föturnar
og svo eru menn og fötur hífðar
upp með handafli. Í löngu sigi er
sigmanni slakað beint niður í bát
ásamt þeim eggjum sem hann hef-
ur tínt á leið sinni en lengsta sig er
um 120 m frá brún niður í sjó.
Mjög mikilvægt er að traust milli
sigmanns og undirsetumanns sé
mikið og að báðir þekki bergið vel.
Að þessu sinni var þremur
mönnum slakað niður á Skoru. Það-
an fer sigmaður í bandi inn á
Rassabæli sem hægt er að komast
inn á af Skoru og færir sig eftir
syllunum sitjandi á rassinum sem
skýrir nafnið. Svartfuglinn virðist
hafa verið seinn í ár sem tvö síð-
ustu ár á undan, en úr Rassabæli
sem gefur í góðu ári á milli 150 og
200 egg voru aðeins 18 egg. Eftir
frekar dapra útkomu úr Rassabæli
var farið í sig ofan við göngur sem
gefa í kringum 200 egg í góðu ári
en í þetta skiptið voru tvö egg á
syllunum.
Eftir erfiðan dag er ekkert betra
en að borða kjötsúpu, skella sér í
gufubað og halda svo góða kvöld-
vöku með tilheyrandi gítarspili og
söng.
Á laugardag var sigið í vesturhlið
eyjunnar í Hrútaskoru og Hall-
anda, voru heimtur þar betri en í
austurhliðinni, samtals fengust 200
egg úr þessum sigum. Þessi tvö sig
eiga leikandi að gefa yfir 600 egg.
Eftir þessi sig var ákveðið að láta
annað sig eiga sig þetta árið sökum
þess hvað fuglinn var lítið orpinn.
Áður en gengið var frá sigbún-
aðinum var þó ákveðið að taka eitt
sig niður á fýlabekk í Jónsskoru
(brúðarbekk) og tekin nokkur
hundruð fýlsegg.
Að úteyjasið var góður kvöld-
verður á eftir, gufubað og að lokum
kvöldvaka þar sem tekið var vel
undir og að sjálfsögðu endað með
Bjarnareyjarbragnum:
Ljúft við lifum í Bjarnareyju
Lítill lundi og minna um meyju
Það er tárið sem andann hressir
Við vonum bara að bráðum hvessi
Á sunnudagsmorgun leit nú ekki
vel út með heimferð sökum hvass-
viðris en eftir að hafa ráðfært okk-
ur við skipherrann á Lubbunni var
ákveðið að láta reyna á það. Þrátt
fyrir veðrið og að aldan berði á
Steðjanum komust allir í bátinn og
var eyjan fagra kvödd með trega í
hjarta.
Enn einu Bjarnareyjarævintýr-
inu lokið og er þegar hafinn und-
irbúningur að næsta ævintýri í
lundaveiði síðar í sumar!
Guðmundur T. Ólafsson sígur niður á bæli fyrir ofan göngur. Langvían situr í
bæli og fylgist grannt með, tilbúin að fljúga af syllunni.
Svartfuglseggin eru skyggð og flokkuð í þrjá flokka. Í fyrsta flokki eru ný og
fersk egg, öðrum flokki eru egg sem eru aðeins farin að stropa og eru með sæt-
ara bragði og í þeim þriðja eru vel stropuð egg, aðeins fyrir útvalda. Höfundur er landfræðingur.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 25