Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 66
Risaeðlugrín
EN HVAÐ ÞETTA ER
FALLEGT
© DARGAUD
MÁ ÉG
LÍKA!
VÁÁ, ALGJÖRT ÆÐI!! ÞETTA VERÐUR
NÆSTA TÍSKUBYLGJA
ÚÚ, ALVEG RÉTT! MÉR FINNST ÞÚ
VERA MEÐ YNDISLEG AUGU SVONA
LÍKAR YKKUR ÞETTA STELPUR! Í RAUN ER ÉG
AÐ PRÓFA NÝTT TÆKI SEM GERIR OKKUR
KLEIFT AÐ SJÁ BETUR
JÁ! MEÐ ÞVÍ AÐ NOTA BETUR PUSSAÐA KRISTALLA
ER HÆGT AÐ BÆTA SJÓNINA EN BETUR
AUÐVITAÐ ER ÞETTA EKKI ALVEG TILBÚIÐ, EN
ÍMYNDIÐ YKKUR HVAÐ ÞETTA GETUR HJÁLPAÐ
MÖRGUM SEM SJÁ ILLA
EN DÍNÓ ERT ÞÚ EKKI MEÐ
AFBRAGÐS SJÓN!
ÁN ÞESS AÐ HAFA ÞESSA
FJÁRANS KRISTALLA FYRIR
AUGUNUM, ... JÁ!!
Kalvin & Hobbes
ERTU MEÐ
SPURNINGU
KALVIN?
JÁ. HVAÐA
TRYGGINGU
HEF ÉG FYRIR
ÞVÍ AÐ ÞETTA
NÁM EIGI EFTIR
AÐ UNDIRBÚA
MIG NÓGU
VEL FYRIR
SAMFÉLAG 21.
ALDARINNAR?
FÆ ÉG ÞÁ ÞEKKINGU SEM ÉG
ÞARF FYRIR ÞANN ÖRT
VAXANDI EFNAHAG SEM 21.
ÖLDIN HEFUR Í FÖR MEÐ
SÉR? ÉG VIL FÁ VEL LAUNAÐ
STARF ÞEGAR ÉG KLÁRA
SKÓLANN! ÉG VIL TÆKIFÆRI!
ÞÁ LEGG ÉG TIL AÐ ÞÚ
FARIR AÐ LEGGJA MEIRA Á
ÞIG, ÞVÍ ÞAÐ SEM ÞÚ FÆRÐ
ÚT ÚR NÁMINU VELTUR Á
ÞVÍ HVERSU MIKIÐ ÞÚ
LEGGUR Í ÞAÐ
Ó!
GLEYMDU
ÞESSU BARA
Kalvin & Hobbes
HVAÐ
ERTU AÐ
GERA?
PABBI ÆTLAR
AÐ SLÁ, ÞANNIG
AÐ ÉG ÞARF AÐ
TAKA UPP ALLT
SPREKIÐ Í
GARÐINUM
HANN VILDI AÐ ÉG FENGI
AÐ FINNA FYRIR GLEÐINNI
SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ GERA
EITTHVAÐ AF HEILUM HUG,
OG GERA
ÞAÐ VEL
OG GEKK
ÞAÐ?
ÉG HELD
ÞAÐ
ÉG HELD AÐ HANN HAFI
ÆTLAÐ AÐ KENNA MÉR AÐ
ÞAÐ FYLGIR ÞVÍ ENGIN GLEÐI
Kalvin & Hobbes
HÉR LIGGUR TÍGRISDÝRIÐ
MITT SOFANDI OG DREYMIR
UM ÞAÐ ÞEGAR HANN
VAR AÐ ELTA DÝR Í
FRUMSKÓGUM INDLANDS
ÞAÐ KEMUR GLAMPI Í AUGUN
Á HONUM OG HANN DREYMIR
UM AÐ STÖKKVA Á HJÁLPAR-
LAUST DÝRIÐ SEM HANN
RÍFUR Í SIG INNAN STUNDAR
Dagbók
Í dag er sunnudagur 4. júní, 155. dagur ársins 2006
Fátt er jafnmik-ilvægt í rekstri
verzlunar- og þjón-
ustufyrirtækja og
símaþjónusta. Það
sparar fólki sporin að
geta hringt og spurt
hvort vara sé til, frem-
ur en að þurfa kannski
að fara fýluferð. Það
eru gömul sannindi og
ný að sá, sem svarar í
símann, er „andlit“
fyrirtækisins og þarf
að vera kurteis og við-
mótsþýður. En það
eru reyndar ekki einu
kröfurnar, sem þarf að
gera. Viðkomandi þarf að geta svarað
spurningum viðskiptavinarins – og
það þarf að vera hægt að ná í hann.
x x x
Víkverja finnst alveg hreint ótrú-lega algengt, þegar hann hringir
í verzlanir til að kanna hvort vara sé
til, að ýmist sé alls ekki svarað í sím-
ann – sem á oft við í litlum búðum –
eða þá að svarað sé á skiptiborði, en
þegar gefa á samband við þann, sem
veit svarið við spurningum við-
skiptavinarins, t.d. Jón í lagnadeild-
inni eða Gunnu í skódeildinni, sé ekki
svarað í símann. Slíkt gerist frekar í
stórum búðum. Þetta getur verið
nógu slæmt út af fyrir
sig, en ennþá verra er
þegar viðskiptavin-
urinn er kvalinn með
vondri lyftutónlist á
meðan.
x x x
Víkverja finnst tilbóta þegar fyrir-
tæki eru með sím-
svara, sem grípur sím-
talið eftir tiltekinn
tíma og ýmist tekur
upp skilaboð, þannig
að hægt sé að hringja
aftur í viðskiptavininn,
eða vísar á vefsíður um
úrvalið í búðinni.
x x x
Skrifari rekur sig líka nokkuð oft áað fyrirtæki, sem segja má að
reyni sitt bezta og hafa kennt síma-
verðinum á lagerkerfið til að hann
geti svarað spurningum um hvort
vara sé til, eiga hana svo ekki þegar
til kemur. Þá er tíma viðskiptavin-
arins sóað margfaldlega. Fyrst gerir
hann sér ferð til einskis og svo bíður
hann á meðan leitað er dyrum og
dyngjum á lagernum að þessu eina
stykki, sem greinilega gleymdist að
skrá út úr búðinni þegar það var selt.
Slík þjónusta er verri en engin.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hafnarborg | Myndhöggvari mánaðarins í Hafnarborg í júní er Sólveig Bald-
ursdóttir. Myndhöggvarar eru kynntir sérstaklega í Hafnarborg í samstarfi
við Myndhöggvarafélagið í Reykjavík. Einn félagsmaður sýnir þá verk á sér-
stöku sýningarrými í anddyri safnsins. Verkið sem Sólveig sýnir er skúlptúr-
verk unnið í marmara „Rosso Verona“.
Myndhöggvari júnímánaðar
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Þú skalt ekki framar hafa sólina til að lýsa þér um daga,
og tunglið skal ekki skína til að gefa þér birtu, heldur skal Drottinn vera
þér eilíft ljós og Guð þinn vera þér geislandi röðull. (Jes. 60, 19.)