Morgunblaðið - 04.06.2006, Page 73

Morgunblaðið - 04.06.2006, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 73 15.30 Nortón 16.10 Hermigervill 17.00 Forgotten Lores 17.30 Johnny Sexual 18.20 Bogomil Font 19.20 Kid Carpet 20.40 Dr. Spock 21.40 Ghostigital 22.40 ESG 23.40 President Bongo 00.20 Trabant Tónlist | Reykjavík Trópík Dagskrá sunnudags RAPPARARNIR Christopher „Ludacris“ Bridges og Kanye West voru á fimmtudaginn sýknaðir af ákærum um að hafa stolið hluta af lagi og gert að sínu eigin. Það er lítt þekkt hljómsveit frá New Jersey sem nefnist I.O.F. sem heldur því fram að þeir félagar hafi stolið hluta af lagi þeirra, „Straight Like That“ og notað það í lagi sínu „Stand Up.“ Meðlimir I.O.F., sem stendur fyrir It’s Only Family, dreifðu laginu til plötuútgefenda árið 2003, en þóttust svo heyra brot úr laginu í „Stand Up.“ Lögfræðingar sveitarinnar segjast munu áfrýja mál- inu til æðri dómstiga, en lögfræðingar rapparanna halda því fram að þeir hafi fyrst heyrt lagið í dómsalnum. Að auki segja þeir að orðasambönd á borð við „like that“ sem kemur fyrir í báðum lögum séu ekki upphaflega komin frá I.O.F. Ludacris og Kanye West sýknaðir Reuters Kanye West og Ludacris taka við verðlaunum úr hendi Matts Dillons á Grammy-verðlaunahátíðinni í febrúar. ÓLÁTABELGURINN og söngvari hljómsveitarinnar Babyshambles, Pete Doherty, var enn og aftur á vafa- sömum slóðum þegar öryggislögregla á flugvellinum í Barcelona steig um borð í flugvél Easy Jet þar sem hann var innanborðs eftir að flugþjónar fundu blóðuga sprautunál í ruslafötu á salerni flugvélarinnar. Flug- þjónar höfðu áður veitt því athygli að eitt salernanna hafði verið upptekið í óeðlilega langan tíma og þegar Doherty steig út að lokum, fylltust þjónarnir grun- semdum. Einn þeirra ákvað að grennslast fyrir á sal- erninu og fannst þá blóðug sprautunál falin í ruslatunn- unni innan um bréf og annað rusl. Var umsvifalaust haft samband við flugstöðvarlög- regluna í Barcelona sem síðan steig um borð þegar vél- in var lent. Segja flugþjónarnir að skömmu áður hefði Doherty skotist inn á annað salerni með litla tösku og komið svo tómhentur út. Þegar lögreglan bað Doherty og félaga hans að láta af hendi töskur sína, létu þeir sér það í léttu rúmi liggja og köstuðu þess í stað töskunum á milli sín, lögreglunni og öðrum farþegum til mikillar mæðu. Við leit lögreglunnar fundust þó engin ólögleg fíkniefni á Doherty eða hljómsveitarmeðlimum Baby- shambles og svo fór að öllum farþegum vélarinnar var leyft að fara eftir þó nokkra bið. Í kjölfarið gaf Easy Jet út þá yfirlýsingu að hvorki Doherty né félögum hans í sveitinni yrði leyft að fljúga með flugfélaginu aftur. Sprautunál fannst á salerni Reuters Doherty kom að lokum fram á tónleikunum í Barcelona. Tónlist | Pete Doherty enn við sama heygarðshornið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.