Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 14
14 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
2
1
6
The Dark Side of the Moon,sem út kom 1973, er ekkibara eitt frægasta verkrokksögunnar – heldurog það mest selda. Tölur
um hver sé mest selda plata í heimi
hafa verið rokkandi undanfarin ár, en
jafnan hafa Dark Side…, Thriller
(Michael Jacksons) og safnplata Eag-
les, Their Greatest Hits, skiptst á
toppsætinu. Þessar plötur eru sagðar
hafa selst í yfir 40 milljónum eintaka.
En auk þessa er tónlistarlegt vægi
plötunnar óumdeilt – hún er einfald-
lega frábær og var á undan sínum
tíma í margvíslegu tilliti. Að „góðar“
plötur seljist í einhverju magni í dag
er sjaldgæfur viðburður, og árang-
urinn enn merkilegri í því ljósi.
Ógrynni greina hafa verið skrif-
aðar um Dark Side of the Moon, fólk
finnur sig nánast knúið til að fara á
bólakaf í rannsóknum sínum. Dulin
skilaboð, alls kyns tilvísanir og tákn
eiga þannig að vera lykluð í plötuna.
Þannig á að heyrast, ofurlágt, í sin-
fóníusveit, leikandi „Ticket to Ride“
með Bítlunum undir hjartslættinum
sem kemur í kjölfar lokalags plöt-
unnar, „Eclipse“. Þetta stendur
heima, og hefur sú raunsæja tilgáta
komið fram að þetta séu hreinlega
mistök. Lagið, eða hjartslátturinn,
hafi verið tekið upp á segulband sem
notað hafi verið við upptökur fyrir
Bítlana. Báðar sveitirnar tóku upp í
Abbey Road hljóðverinu. Dýpra
þenkjandi Floyd-fræðingar (og af
þeim er sko nóg!) halda því hins vegar
fram að þetta hafi verið sett þarna
inn af ásettu ráði. Þá er til öllu víraðri
kenning sem er furðu vinsæl. Sagt er
að ef Dark Side of the Moon er sett í
gang á sama tíma og kvikmyndin The
Wizard of Oz (1939) komi í ljós ótrú-
legar hliðstæður með tónlist og kvik-
mynd, að því gefnu að dregið sé niður
í hljóðinu á kvikmyndinni. Mynd og
tónlist fari það vel saman að ekki geti
verið um tilviljun að ræða. Ítarlega
útlistun á þessu fyrirbæri má nálgast
á en.wikipedia.org/wiki/Dark-
_Side_of_the_Rainbow og á mynd-
bandasíðunni youtube.com má sjá og
heyra þetta með eigin augum og eyr-
um. Meðlimir Pink Floyd harðneita
þessu en kenningin er lífseig.
Það er auðvitað lítið spennandi að
þurfa að horfast í augu við að með-
limum Pink Floyd var ekki umhugað
um merkilegri hlut en að gera næstu
plötu. Víst er þó að þá hefði aldrei
grunað hve ótrúlegum vinsældum
platan ætti eftir að ná. The Dark Side
of the Moon hefur fyrir lifandi löngu
öðlast sjálfstætt líf, er ekki lengur
bara rokkplata sem var gefin út 1973.
The Dark Side of the Moon er THE
DARK SIDE OF THE MOON!, rit-
að með upphleyptu, gullbrydduðu
letri (og hologram-áferð ef hægt er).
Neistinn tendraður
Bæði Waters og David Gilmour,
sem eldað hafa mýgrút af gráu silfri
saman í gegnum tíðina, hafa lýst því
að tónleikar hinnar fullskipuðu Pink
Floyd á Live8 síðasta sumar hafi ver-
ið sálarhreinsandi (hinn lúmskt kald-
hæðni Gilmour lét þess þó getið að
þetta hafi verið eins og að sofa hjá
fyrrverandi konunni sinn). Waters
virtist þó njóta sín í botn og leyfði til-
finningunum að ná tökum á sér. Hann
er sá sem oftast hefur verið málaður
upp sem kölski í umfjöllunum um hin-
ar stríðandi fylkingar Floyd en nú
ereins og andi rósemdar og sátta sé
pikkfastur í Waters. Í fyrsta skipti
eftir að hann hætti í sveitinni hefur
hann viðrað þá ósk að félagarnir fjór-
ir komi saman á nýjan leik. Þessir já-
kvæðu straumar sem léku um Floyd
á Live8 kveiktu neista í Waters en af
þeim fjórum lögum sem leikin voru
komu tvö af Dark Side, „Speak to me/
Breathe“ og „Money“. Restin af
sumrinu og haustið fóru hins vegar í
að ganga frá óperunni Ça Ira sem
Waters hafði verið að semja í heil 16
ár. Hún kom svo út á geisla- og
mynddiski þá í september. Neistinn
varð síðan að báli er talsmenn Form-
úlu 1, af öllum mönnum, fóru fram á
það við Waters að hann flyttiDark
Side í heild sinni á hundrað ára af-
mæli kappakstursins sem haldinn
verður hátíðlegur 14. júlí nk. í bænum
Magny Cours. Waters ákvað að slá til
en þótti synd að æfa þetta upp fyrir
Tunglið,
tunglið,
taktu mig
Roger Waters heldur tónleika á morgun í Egilshöll
þar sem hann flytur meistaraverkið The Dark Side
of the Moon í heild sinni ásamt fleiri lögum.
Fimmtudaginn síðasta lék Waters sama leik í Berlín og
barði Arnar Eggert Thoroddsen dýrðina augum.
Reuters
Roger Waters á upphafstónleikum sínum á Rock in Rio-hátíðinni í Lissabon í Portúgal fyrir skemmstu.