Morgunblaðið - 11.06.2006, Page 18

Morgunblaðið - 11.06.2006, Page 18
18 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ómar Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, og Guðni Ágústsson náðu fullum sáttum á fimmtudagskvöldið. ’Það verður spennandi, en einsog stendur virðast fjölmiðlar stjórna þróun flokksins og vita meira en við.‘Ragna Ívarsdóttir, skrifstofustjóri Framsóknarflokksins, um fund í mið- stjórn flokksins. ’Þetta var ákveðin vinna, enekki mjög erfið.‘Víðir Smári Petersen, 17 ára nýstúdent, lauk stúdentsprófi á þremur árum með afburðaárangri. ’Sú pressa sem er lögð á krakkana er ósanngjörn og mörg þeirra eru það ung að þau standa ekki undir þessu.‘Magnús Ingvason, forstöðumaður Sum- arskólans í FB, segir fyrirkomulag sam- ræmdra prófa nánast hættulegt ungu fólki. ’Ég tel ekki rétt að fara þá leiðað setja lög um skyldu fyr- irtækja til að hafa hvort kyn í a.m.k. 40% hlutfalli í stjórnum.‘Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráð- herra tók ekki undir ályktun ráðstefn- unnar Tengslanet kvenna 2006. ’Alfreð Gíslason, sem varátrúnaðargoð mitt eins og allra annarra, sagði mér að ég ætti að hætta í fótbolta og ég gerði það bara!‘Heiðmar Felixsson atvinnumaður hjá Burgdorf í Þýskalandi tók handboltann fram yfir fótboltann. ’Ég er með frábæran for-eldrahóp og frábæran bekk sem elskar að sýna sig og sjá aðra.‘Íris Róbertsdóttir kennari fékk Íslensku menntaverðlaunin fyrir að leggja alúð í starf sitt í upphafi kennsluferils. ’Við höfum farið yfir okkar málog erum sáttir.‘Halldór Ásgrímsson um fund hans og Guðna Ágústssonar. ’Við trúum á einingu og frið.‘Guðni Ágústsson eftir sama fund. ’Óli var með dómarana í vas-anum.‘Guðmundur Steinarsson, framherji Kefla- víkur, taldi Ólaf Þórðarson, þjálfara Skagamanna, hafa stjórnað dómum í leik liðanna. ’Ég er greinilega mjög fjölhæfur en þeir eru eðlilega sárir eftir að hafa tapað leiknum.‘Ólafur Þórðarson þjálfari um gagnrýni Keflvíkinga. Ummæli vikunnar Hægindastóllinn í vistarverum Leó-polds Jóhannessonar, fyrrver-andi veitingamanns í Hreða-vatnsskála, er notalegur oggestgjafinn svo háttvís að setja blaðamann þar niður og setjast sjálfur í skrif- borðsstólinn. Svo hallar hann sér ábúðarfullur fram og spyr: – Um hvað eigum við að tala? Það leynir sér ekki að Leópold hefur gaman af því að segja frá og það er honum áreynslu- laust; aldrei þarf að veiða neitt upp úr honum. Hann svarar – og rúmlega það. – Spilarðu oft, spyr blaðamaður. – Já, svolítið, en bara þessa venjulegu vist, svarar Leópold. Og þótt hann hafi spilað út svarinu, þá lætur hann ekki þar við sitja: – Það er vegna þess að í spilavítinu í Vatnsdal var ég alltaf fjósamaður. Húsbændurnir spiluðu, en ég var í fjósinu. Þar var spilað öll kvöld eftir fengitíma á veturna. Þá höfðu þeir tíma, riðu á milli bæja og spiluðu upp á peninga. Þó að það færi lágt, þá var það samt þannig. Líf- ið var frjálslegt og gott í Vatnsdalnum. Við dönsuðum þrisvar í viku! Svona líður tíminn í félagi við Leópold. Orðin raðast saman í skemmtilegar ívitnanir, oft óvæntar. Efniviðurinn ströng ævi og um margt viðburðarík. Helstu sögupersónur á veggjum innan um bækur, lausamuni og innrammaða viðurkenningu fyrir framlag til hestaíþrótta- rinnar: – Ég hef verið svo heppinn að hafa átt góða hesta; það er Guðs lán, segir hann hrærður. En svo verður maður að bera gæfu til að skemma þá ekki. Oft svarar fólk spurningu um hvenær það fæðist með ártali. En ekki Leópold. Það væri úr karakter. – Þú mátt ekki láta þér bregða, segir hann fullur gáska. Ég fór í apótek í gær með lyfseðil og þegar konan rak augun í ártalið hrópaði hún upp yfir sig: „Sautján! Það getur ekki verið. Stelpur, hann segist vera fæddur sautján!“ Svo leit hún á mig og sagði: „Þú keyrir náttúrlega líka.“ „Já,“ svaraði ég, „ég geri allt sem lífið hef- ur upp á að bjóða.“ Leópold er fæddur á Ingunnarstöðum í Múla- sveit í Barðastrandarsýslu, en foreldrar hans fluttu vestur að Ísafjarðardjúpi þegar hann var tveggja ára. – Það vildi svo til að komið var við á Lauga- bóli, þar sem faðir minn ólst upp. Gamli mað- urinn á Laugabóli kom á bæ í Múlasveit, þar sem krakkar voru gengnir til náða, og fannst fá- tæktin mikil. Hann benti á einn strákinn, föður minn, og sagði: „Sendið mér þennan.“ Þegar stórbóndi kom á fátækt heimili og bauðst til að taka barn, þá var það eins og hver annar happ- drættisvinningur. Og sagan endurtók sig. Þegar foreldrar mínir bjuggust til að kveðja bauðst Halla skáldkona á Laugabóli, tengdadóttir gamla mannsins, til að taka eitt barnið. Foreldrar mínir voru fátækir, áttu ellefu börn og móðir mín sagði að úr því hún byðist til að taka eitt þeirra, þá væri best að hún veldi. Halla valdi auðvitað barnið með nöfn barnanna sem hún hafði misst úr barnaveiki, tvö börn sömu vikuna, en þau hétu Jón og Leó- poldína. Ég heiti Jón Leópold og var skírður í höfuðið á þeim. Og ég varð sem sagt eftir á Laugabóli hjá Höllu fóstru minni. Leópold stendur upp og bendir: – Hér sérðu mynd af Laugabóli við Ísafjarð- ardjúp, sem þá var höfuðból. Zimsen ljósmynd- ari á Ísafirði bjó út myndina með húsinu, ellefu afkomendum og grafreitnum sem Halla lét gera fyrir ættingja sína. Hún gerði líka blómagarð og lét skera út boga yfir garðshliðinu með áletr- uninni: „Hér býr ánægjan.“ Við bárum skelja- sand neðan úr fjörum og stráðum í göturnar. Leópold sest, – leggur frá sér skeljasandinn. – Fleira gerðist þarna. Það má alveg bæta því við að börnin sem ég var nefndur eftir, þau fylgja mér. Það er alveg á hreinu. Skyggnar konur segja mér alltaf að börnin séu nálæg. Svona er nú lífið, segir Leópold blátt áfram. – Finnurðu fyrir þeim? – Ég er alinn upp við að hvort sem maður trú- ir á Guð eða ekki, þá er eitthvert almætti til og maður getur vísað bænum sínum á það þegar maður lendir í erfiðleikum. Ég hef legið úti heila nótt uppi á Strandafjöllum. Þetta var í október og snjór yfir öllu. Um hádegið sá ég rofa til sól- ar. Ég tók áttirnar og hagaði göngunni eftir því. Klukkan þrjú gekk ég í vestur, klukkan sex í austur og klukkan níu í norður. Ég kom niður í Skjaldfannardal, hafði verið einn og hálfan sól- arhring að villast og líklega gengið 40 til 50 kíló- metra. Ég var lengi kyrr um nóttina, settist á þúfu og sofnaði. Og eftir eðli málsins átti ég ekk- ert að vakna. En það er kallað skýrum rómi: „Leópold!“ Og ég þýt upp og lít í kringum mig. En þar var enginn. Ekki neitt. Og þá verður hver að svara fyrir sjálfan sig hver kallaði, segir Leópold, brosir og nuddar lærið annars hugar. Leópold bætir við að gömul kona á Laugabóli hafi alltaf vitað þegar hann kom heim. – Ég fór á síld í Siglufirði síldarlausa sumarið 1933 og drottning Alexandrína var send til að sækja fólkið aftur því það átti ekki fyrir farinu heim. Ég var tekinn með póstbátnum frá Ísa- firði inn að Arngerðareyri, næsta bæ við Lauga- ból, og hljóp þaðan heim. Það voru aðeins sex kílómetrar. Þegar leið að hádegi lagði gamla konan á borð fyrir fimm. Og fóstra mín sagði: „Anna mín, við erum bara fjögur.“ Þá svaraði hún: „Hann Polli verður kominn áður en við verðum búin að borða.“ Fóstra mín hváði: „Guð hjálpi þér, það getur ekki verið, hann er norður í Siglufirði!“ En gamla konan stóð á sínu: „Hann verður kominn samt.“ Þegar þau voru að borða gekk ég inn um dyrnar! Halla skáldkona, fóstra Leópolds, gaf út tvær ljóðabækur og samdi héraðslæknirinn Sigvaldi Kaldalóns lög við sum kvæði hennar, þar á með- al „Ég lít í anda liðna tíð“. – Allt Laugabólsfólkið var mjög tónelskt og söngvinnt og Jón Ólafsson tónlistarmaður er kominn af því. Þegar ég settist að á Laugabóli var Halla orðin ekkja og ég var mikið hjá henni. En þegar ég var þriggja ára giftist hún aftur og þá fór ég úr holunni hjá þessari ágætu konu og sætti mig aldrei við það. Það var alltaf kalt á milli mín og fóstra míns. Og meðan ég var lítill, þá barði hann mig eins og fisk þegar honum datt í hug. Það þarf ekkert að leyna því. Þetta var misskilningur hans að þetta myndi bæta barnið. En þegar ég var kominn yfir fermingu, þá bauð ég honum birginn. Eftir það var aldrei lagt til mín. Ég held þetta hafi öðrum þræði skemmt mig, en veit ekki hvernig. Þetta hefur mikil áhrif á börn. Löngu síðar talaði ég inn á segulband fyrir dóttur mína og sagði frá þessu. Þá vitjaði hann mín í draumi um nóttina, – og var mjög almennilegur við mig. Eftir stundarþögn bætir Leópold við: – Svona er lífið skrýtið! Að liðnum æskuárunum, sem voru fljótari að líða á fyrri hluta aldarinnar, fór Leópold í vinnu- mennsku að Hvammi í Vatnsdal. – Á heimilinu voru gömul hjón, sem ólu upp unga stúlku á sama reki og ég, og það var Ingi- björg, móðir Ingibjargar Sólrúnar, fyrrverandi borgarstjóra. Hún var alin upp hjá afa sínum og ömmu. Ég sagði við Ingibjörgu þegar ég hitti hana: „Þú ert alveg sami vargurinn og hún langamma þín.“ Það var prýðilega gefin kona. Leópold á þrjú börn með fyrri konu sinni, Maríu Magnúsdóttur. Þegar þau skildu tók hann saman við Olgu Sigurðardóttur og ráku þau Hreðavatnsskála í sautján ár. – Við erum enn góðir vinir, síðast kom hún hingað í gær og á laugardag förum við saman að jarðarför. Við förum allt saman. Við áttum fjög- ur börn, en misstum Leif son okkar fyrir nokkr- um árum þegar hann drukknaði í Kleifarvatni við köfun. Leópold er jafngamall Framsóknarflokknum og hefur kosið hann alla tíð, en er miður sáttur við forystuna og stöðu mála. – Það er alveg makalaust að á síðasta kjör- tímabili hef ég aðeins einu sinni verið boðaður á fund. Enda má ekkert segja lengur. Það hefur komið fyrir að mönnum hafi þótt ég opinskár, en það stóð ekki á að klappa fyrir mér. Salurinn dundi allur! Leópold nam framsögn hjá vini sínum Guð- mundi Hjálmarssyni, kaupfélagsstjóra á Skriðulandi, og síðar Magnúsi Bjarnfreðssyni. – Mér dettur oft í hug þegar ég sé þingmenn- ina tala, lútandi fram á borðið, ríghaldandi sér í borðröndina, að þetta var okkur alls ekki kennt. Við áttum að standa beinir, segir Leópold og sprettur úr sæti sínu – þráðbeinn, bera okkur vel og vera alveg ófeimnir: Hérna er ég! Hann lítur einbeittur á blaðamann: – Fá nóg loft í brjóstkassann og segja hlutina ekki snöggum orðum heldur með áherslu og fylgja því eftir! Ræðuskörungurinn staldrar við og augun hvarfla út um gluggann á meðan hann lagar penna og greiðu í brjóstvasanum. Síðan notar hann báðar hendur til að leggja áherslu á loka- orðin: – Maðurinn sem talar þarf umfram allt að bera virðingu fyrir fólkinu sem hann talar við, þá ber það virðingu fyrir honum. Við áttum að standa beinir! Morgunblaðið/Eyþór LEÓPOLD JÓHANNESSON VEITINGAMAÐUR „Það má alveg bæta við að börnin sem ég var nefndur eftir, þau fylgja mér.“ VIÐMANNINNMÆLT Pétur Blöndal ræðir við Leópold Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.