Morgunblaðið - 11.06.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.06.2006, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Dyrnar á lyftunni opnastog Masood Kharotistendur brosandi ádyrapallinum. Hann erhávaxinn og þrekinn og tekur þétt í höndina á mér. „Vel- komin, gakktu í bæinn!“ Út um gluggann sést yfir Kópavog og út á sjó. Masood býr á sjöundu hæð í blokk í Engihjalla. Meðleigjandi Masood situr í hæg- indastól inni í stofu. Hann er líka frá Afganistan. Hann hjúfrar sig undir þykku teppi, lítur á rigning- arsuddann út um stofugluggann og kveður sposkur upp úr með: „Það er kalt í kvöld.“ Félagarnir hittust á Íslandi stuttu eftir að Masood kom til landsins árið 2000. Ég spyr hvernig þeir hafi frétt hvor af öðrum. „Reykjavík er nú engin New York …“ Þeir hlæja. Í jafnfámennu samfélagi fréttist fljótt af ein- hverjum frá sama landi, langt í burtu. Félagarnir segja að hér á landi séu samtals sex Afganar. Masood býður sæti í sófanum og lýsir því hvernig hann hafi sigtað einn þeirra út á Borgarbókasafninu. „Ég sá hann og fannst að hann hlyti að vera frá Afganistan, jafnvel þótt fólk í Afganistan sé mjög ólíkt í út- liti. Ég sjálfur er til dæmis past- úni,“ segir hann. Afganar á Íslandi, Íslendingar í útlöndum. Fólk þekkir hvað annað úr fjöldanum. En ég dó augljóslega ekki … „Af hverju ég kom til Íslands? Nú ég var að leita að norðurljósunum!“ segir Masood og brosir. Hann bætir við að í Afganistan séu engin norð- urljós. Masood kann vel við sig á Ís- landi og talar fína íslensku. Raunveruleg ástæða Íslandskom- unnar er þó öllu alvarlegri en norð- urljósaleit. Undir stjórn talibana hafði hann þrisvar sinnum verið settur í fangelsi og þótti sér ekki vært í landinu lengur. „Ef maður var á móti talibönum lenti maður í vandræðum. Og þeir sem voru með mikið vesen voru drepnir,“ segir hann og bætir við: „En ég dó augljóslega ekki!“ Aðspurður um aðbúnaðinn í fang- elsunum svarar Masood glottandi að þau hafi ekki verið eins og þau íslensku „með sjónvarpi og tölvu“. Þetta hafi verið lítil og dimm her- bergi með engu inni í og enginn hafi mátt heimsækja fangana. „Þú varðst bara að vera þarna – og reyna að skemmta þér …“ segir hann og hlær. Ég hvessi augun á Esjuna út um gluggann og á allt í einu erfitt með að sjá Masood fyrir mér í dimmri kompu og á átakasvæði. Maímán- uður í ár var blóðugur í Afganistan. Mikið mannfall varð í suðurhluta landsins og í Kabúl voru óeirðir. Fyrirsagnirnar Með hörðustu bar- dögum frá árinu 2001 og Talib- analeiðtogi handtekinn? lifna skyndilega við í glaðlegum ungum manni sem situr makindalega í sófa í Kópavoginum. Ég geri mér ekki grein fyrir því hve Masood er gamall og spyr hvaða ár hann sé fæddur. „Miðað við hvaða tímatal?“ spyr hann á móti, skellir upp úr og segist vera fæddur árið 1353 í Afganistan. Það sé sama og árið 1975 á Íslandi. Hann sýnir mér að gamni skilríki og ég rek augun í afmælisdaginn 1. janúar. Masood verður sposkur og útskýrir að þegar skilríkin voru bú- in til hafi ekki verið búið að reikna hvað 23. dagur fimmta mánaðar, samkvæmt afganska tímatalinu, þýddi. Því var 1. janúar einfaldlega skrifaður. Seinna kom í ljós að af- mælisdagurinn fellur á 14. ágúst. Foreldrar Masood eru í Afganist- an, sem og bræðurnir tveir og syst- urnar fimm. Sjálfur vildi hann í raun ekki yfirgefa landið en fjöl- skyldan lagði hart að honum að fara. Hún var hrædd um að hann lenti í frekari vandræðum við talib- ana, hrædd um að hann „segði eitt- hvað og það myndi fara illa“, eins og hann orðar það. „Ef maður talar of mikið endar maður á Íslandi!“ Komdu með byssurnar! Ástæður talibana fyrir fangelsun Masood voru út í hött. „Þeir sögðu kannski við þig: Þú ert með byssu og verður að láta okkur fá hana en þú sagðir nei af því að þú áttir enga byssu. Þá varstu tekinn á lög- reglustöðina og kannski laminn þangað til þú gast ekki gengið. Þá var sagt: Komdu með byssurnar! Og þú sagðir að þú ættir engar byssur, varst þá laminn meira og síðan settur í fangelsi. Þetta var fá- ránlegt,“ segir hann. Fjölskylda hans hafði enga ákveðna hugmynd um hvert Maso- od ætti að fara en vildi einungis að staðurinn væri öruggur. Frá Afgan- istan fór hann yfir til Pakistan og þaðan til Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Eftir ýmsa áfanga- staði endaði hann loks á Íslandi. Kannski er vart hægt að fara á milli ólíkari staða en Afganistans og Íslands. Masood kinkar kolli og seg- ir Ísland vissulega hafa verið allt öðruvísi en það sem hann átti að venjast í Afganistan. „Hér kyssist fólk til dæmis úti á götu. Ég man enn eftir því þegar ég sá það í fyrsta skipti, það var á Hlemmi!“ segir hann og skellihlær. „Hérna vaknar maður líka á morgnana án þess að heyra að svo og svo margir hafi látið lífið. Og það var skrýtið að venjast birtunni og líka verðlaginu. Síðan tók maður eftir því að bílar eru greinilega mjög mikilvægir á Íslandi,“ segir hann og glottir. Fyrst eftir komuna til landsins var Masood á gistiheimili í Grinda- vík. „Um kvöldið heyrði ég bíla aka um og spila tónlist. Ég spurði hvað væri um að vera og þá var fótbolta- leikur í gangi á milli Grindavíkur og Keflavíkur. Ég fór á staðinn og þurfti að ganga yfir eitthvert gras til að ná í miðana og allt í einu fannst mér ég vera á jarð- sprengjusvæði. Ég gleymdi að ég var ekki lengur í Afganistan heldur kominn langt í burtu, til Íslands og á leiðinni á einhvern fótboltaleik …“ Og hvar er þá Osama bin Laden? Masood fékk meðal annars hjálp frá Rauða krossinum hér á landi og var fljótur að fá vinnu eftir að hafa fengið atvinnuleyfi. Hann var ráð- inn hjá Verktökum Magna þar sem hann hefur verið síðan. Masood hef- ur sótt námskeið, unnið sig upp og ekur í dag stærstu flutningabíl- unum sem ferja stórvirkar vinnu- vélar. „Það er mjög gott að vera þarna, vinnufélagarnir eru fínir og enginn greinarmunur gerður á mér og Ís- lendingunum. Það er til dæmis ekk- ert mál að ég sé múslimi,“ segir Talibanar, norðurljós og íslenska sumarið Masood Kharoti frá Afganistan var þrisvar sinnum settur í fangelsi undir stjórn talibana en yfirgaf landið árið 2000, ferðaðist yfir hálfan hnöttinn og settist að hér á landi. Masood er fæddur árið 1353 og sagði Sigríði Víðis Jónsdóttur frá símtölum til Afganistan, felugöngum og fangavist og spurningunni sem hann er ævinlega spurður: Hvar er eiginlega Osama bin Laden? Morgunblaðið/Ásdís Masood Kharoti er frá Afganistan og flúði til Íslands fyrir sex árum. Hann kann vel við lífið hér á landi en segir margt öðruvísi en það sem hann átti að venjast þar, verðlagið hátt og bílar mun vinsælli. Átök í Afganistan  1975 Masood fæðist í borginni Jalalabad í austurhluta Afganistan.  1979 Sovéskur her ræðst inn í Afganistan til að treysta í sessi komm- únistastjórn sem verið hafði við völd um hríð en stóð höllum fæti. Sovéther- inn berst við afganska uppreisnarflokka trúrækinna múslíma sem studdir eru af Bandaríkjunum, Pakistan og fleirum.  1989 Sovétríkin draga herafla sinn til baka eftir tíu ára blóðugt stríð.  1992 Innanlandsátök magnast enn eftir fall kommúnistastjórnarinnar og borgarastyrjöld brýst út.  1996 Talibanar komast til valda.  2000 Masood ákveður að yfirgefa Afganistan.  2001 Bandaríkjaher ræðst inn í Afganistan í leit að Osama bin Laden. Stjórn talibana er steypt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.