Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 38

Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 38
38 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Heldurðu virkilega að svona hýja-lín hafi einhver áhrif á mig,“sagði maðurinn minn hneyksl-aður, þegar ég veifaði framan íhann nýjum, efnislitlum nátt- kjól. ,,Það ert þú sjálf sem hefur áhrif, hvort sem þú kemur utan úr garði með mold í hárinu eða stendur með svuntu bak við elda- vélina, eins og konan hans Guðna Ágústssonar.“ Eftir þessa umbúðalausu yfirlýsingu hef ég ekki fjár- fest í kynæsandi fatnaði og velti stundum fyrir mér hvort flestir eiginmenn líti bara ekki svona á konurnar sínar líka án þess að koma því hnyttilega í orð. Fjölmiðlar, bif- reiðaumboð og jafnvel bankar og sparisjóðir hamast nefnilega við að telja okkur trú um að við séum einskis virði sjálfar nema við keyr- um fína bíla, tryggjum hjá réttu fyrirtæki, séum bráðungar, straumlínulagaðar og sexí. Fleginn bolur geti breytt öskubusku í prins- essu og slitinni hjónasæng í sælureit. Þótt ég hafi stundað ritstörf í rúma fjóra áratugi rekur mig varla minni til að hafa fjallað um kyntöfra og afleiðingar þeirra nema þá undir rós. Mér var líka innrætt í æsku að allt slíkt væri einkamál og nauðsyn- legt að gæta þar orða sinna og slíkt var nokk- urs konar meginregla þegar Ríkisútvarpið, Mogginn, Þjóðviljinn og jafnvel Mánudags- blaðið stóðu ein á fjölmiðlavaktinni. En kynlegar umbúðir virka greinilega sem sölubrella, að öðrum kosti myndi læknir, sem auglýsir tryggingar í sjónvarpi, varla horfa í myndavélina með frygðarglampa í augum eða ritarinn hans negla okkur niður með eggjandi bliki. Fyrirsætur í auglýsingum fyrir ferm- ingarföt í vor litu fremur út sem lífsþreytt og útlifað par en gneistandi af æskufjöri á leið til framtíðar. Sumir telja að þessi markaðssetning hafi engin áhrif á hegðun fólks, og það sem gerist fyrir opnum tjöldum núna hafi átt sér stað í skúmaskotum á dögum Mánudags- blaðsins. Ég er ekki viss. Hún get- ur valdið því að ungt fólk þreyti hvílubrögð eins og leikfimi – löngu áður en það hefur til þess andlegan og líkamlegan þroska. Kynlegar umbúðir geta spillt því sem fólki er kærast eftir langa sambúð, valdið upplausn og sárs- auka. Upphafstexti þessa pistils var ekki sérlega rómantískur. Hann hefði aldrei hrifið sem auglýsingatexti. Hann hreif á mig. Hann kom frá hjartanu – umbúðalaust. HUGSAÐ UPPHÁTT eftir Guðrúnu Egilson Kynlegar umbúðir Margt kemur þeimundarlega fyrirsjónir sem lifaðhafa langan dag ogfylgst grannt með þróuninni frá miðri síðustu öld. Aldrei í sögu mannkynsins hafa tækniframfarir verið jafn örar né mannlífið hólfað jafn rækilega niður og á það ekki síst við um kunnáttu og menntagráður. Svo komið er fátt tekið gilt nema viðkomandi geti státað af svo og svo mörgum ein- ingum á menntabrautinni, um leið mætir hitt, þ.e. eðlisleg hæfni, stöð- ugt meiri afgangi því prófgráður og stofnanir hafa í vaxandi mæli tekið við af blóðrennslinu. Í síðasta pistli hermdi ég af nokkrum arkitektum sem ruddu brautina fram eftir öld- inni án þess að státa af sérhæfðum og viðurkenndum prófgráðum, en sóttu menntun sína í mal fortíðar um leið og þeir rifu niður og byggðu upp. Þeir voru sér mjög vel meðvit- andi um hræringarnar í Evrópu, einkum að hin stigmagnandi iðn- væðing og nýir tímar báru í sér kröfu um gagngert endurmat á öll- um sviðum, ekki síst húsagerð. Samþjöppunin og sívaxandi að- streymi fólks til borgarkjarnanna sem þöndust út til allra átta gerði alveg nýjar kröfur til arkitekta sem vildu fylgja kalli tímans. Vísir að milljónaborgum varð til og þeim fylgdu úthverfi og útborgir og um leið stöðugt ný og spennandi verk- efni, mörg þeirra erfitt að ráða við en bauð upp á ótal möguleika fyrir snjalla og hugmyndaríka arkitekta. Þetta skapaði auðvitað þörf fyrir margfalt fleiri starfskrafta í faginu, og líkt og skeði í iðnnámi og hönnun fluttist menntunin frá verkstæðum meistaranna í skólastofurnar, arki- tektúr varð námsfag í fagurlista- skólum og seinna jafnvel í almenn- um í háskólum einkum ef þeir höfðu tækni- og listadeildir innan sinna vébanda. Fagurlistaskólarnir, þ.e. aka- demíin, voru auðvitað ígildi háskóla, með prófessorum sem höfðu sjálf- dæmi um hverja þeir tóku náðar- samlegast inn í deildir sínar eftir að hinir sömu höfðu gengist undir inn- tökupróf. Akademíin höfðu gegnt mikilvægu hlutverki allt frá fyrstu árum endurreisnar, hélst í hendur við að hugtakið list var mótað og lagt að jöfnu við æðri vísindi. Stofn- að var til myndhöggvaraakademíu í Flórenz 1490 og Leonardo da Vinci átti frumkvæði að stofnun hinnar svonefndu Akademie Viciana í Flór- enz 1494. En fyrsta málunaraka- demían leit sennilega dagsins ljós í Flórenz 1563, hér var Cosimo de Medici á ferðinni spanaður upp af sjálfum Giorgio Vasari, hinum mikla skrásetjara tímanna. Andstætt því sem margur heldur voru akademíurnar ekki stofnaðar til að viðhalda gefnum forsendum um eðli myndlistar, þvert á móti var hugmyndin að ryðja nýjum sjónar- miðum braut, þó öðru fremur segja skilið við Lúkasargildin sem þýddi skýra aðgreiningu listar, listiðnaðar og handverks. Ómælda þýðingu fyr- ir útbreiðslu fagurlistaskóla víða í Evrópu var stofnun Accademia di S. Luca í Róm 1593 og seinna Academ- ié Royale des peintres et Sculptures í París 1648. Rætur nafnsins aka- demía eru raktar til heimspekiskóla Platóns sem fór fram í helgum lundi utan múra Aþenu, kenndur við hetj- una Akademos (Hekademos). Þetta hef ég að stórum hlutarakið áður og lýst þvíhvernig fagurlistaskólareinn af öðrum risu upp víða um Evrópu og voru ígildi virtustu menntastofnana og oftar en ekki í glæsibyggingum ef ekki höllum í miðbiki stórborga. Mjög athyglis- verð þróun sem fróðlegt væri að fara ítarlega í saumana á hér í blaðinu, raunar ekki vanþörf vegna misskilnings og fáfræði um eðli og tilgang þessara stofnana. Eins og öllum menntastofnunum hætti þeim til íhaldssemi er fram liðu stundir og hart um þær deilt, en skondið nokk viðhéldu þessar reglubundnu senur lífi í listinni. Grunnhugsun Platóns nemanda Sókratesar sígild hvað varðar þýðingu hugvísinda og fagurfræði ásamt frummyndakenn- ingu hans. Innibar að hlutir sem við skynjum séu ófullkomnar og óstöð- ugar eftirmyndir eða skuggar frum- myndanna. Fagurlistaskólarnir drógu dám af henni og héldu fram, en eins og í sjálfu almenna mennta- kerfinu förlaðist mjög fyrir þeim grunnvísindum er fram liðu stundir einkum á síðustu öldum. Í sumum tilvikum stendur varla steinn yfir steini einkum eftir uppstokkanir síðustu áratuga þá prófgráður, mú- gefli og hnattvæðing hafa yfirtekið sviðið og hin háleitu markmið hug- vísinda um þroska einstaklingseðl- isins mæta afgangi. Í raun komin fram ný tegund íhaldssemi í nafni handstýrðra núlista og virkar sem jafn mikill hemill á opinn og heil- brigðan listamarkað og hin svokall- aða salonlist á nítjándu öld, menn geta allt eins skilgreint það sem nýja tegund salonlistar sem vill yf- irgnæfa og vera ríkjandi, um leið útiloka allt annað. Eins og gerðist í París á tímum salonlistarinnar, var hún einnig ráðandi afl í fagurlista- skólunum og hið sama hefur end- urtekið sig á síðustu áratugum. Ein- angrar sig í höfuðdráttum ekki við hin upprunalegu akademíunnar í París sem var hin stóra fyrirmynd, heldur sem viðtekinn sannleikur víðast hvar, og að stórum hluta höfnun þjálfaðs handbragðs. Á skrifari hér við að þjálfun hugar og Próf eða leyfisbréf fárán SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson Þessi snjalla teikning Honoré Daumiers (1808–1879) persónugerir hroka, hofmóð og hinn ósveigjanlega reglugerðarfíkil.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.