Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 39
handar er ekki lengur málið heldur
hefur einöngruð hugmyndafræði
víða tekið við sem fullgildur ef ekki
algildur menntunargrunnur.
Þetta með fullgilda menntagrunn-
inn vill eðlilega vefjast fyrir mörg-
um því hann er í raun réttu ekki til,
ekkert algilt í heimi hér hvorki í
náttúrunni né mannheimi, allt mikið
til háð tilviljanakenndu þróunarferli
og óvæntum stökkbreytingum.
Samt virðist vera til rík hvöt til al-
hæfingar og eru hér prófgráður gott
dæmi og þá einkum hvað varðar
skapandi og óáþreifanlegar athafnir.
Verst þegar sett er samasemmerki
við þær og almenna bóknámsmennt-
un því sjónmenntir eiga að vera sér
á báti í menntakerfinu, eitt er að
lesa og leggja á minnið annað að sjá
og upplifa.
Ekki svo að skrifari sé á móti
prófum, langt í frá, en of mikið má
af öllu gera, fyrr er fullt en út af fló-
ir eins og máltækið hermir, róninn
kemur óorði á brennivínið, átvaglið
sem út þenst matinn og regluger-
ðafíkillinn tilskipanirnar.
Læknavísindin geta lappað upp á
ytra og innra byrði mannslíkamans
en standa að mestu ráðþrota varð-
andi skynheiminn, hið ósýnilega afl
er stýrir sjálfsvitund hvers einstak-
lings, sem aldrei er alveg eins meðal
hinna mörgu milljarða íbúa jarðar-
innar. Að ætla sér að gefa út próf-
gráður út á það óþekkjanlega er
rangsnúin hugmynd en gerist þó í
sívaxandi mæli og þrengir að frelsi
mjúkra gilda. Ekki er spurt um getu
og hæfni heldur markað og ósveigj-
anlegar prófgráður, keppikeflið er
að ná þessum gráðum. Þá vill
gleymast að þeir sem eru smiðir og
höfundar námsgrunnanna höfðu
sumir engar slíkar í malnum eig-
inlega ekkert nema viljann, áhug-
ann og andagiftina. Svo langt gekk
þetta að hér á útnáranum var reynt
að ómerkja og ýta þeim frá í lista-
skólum sem höfðu ekki próf í upp-
eldis- og sálarfræði og var þó um að
ræða vel menntaða höfunda sjálfs
námsefnisins! Má líkja því við að
arkitektarnir sem lögðu grunninn
að nútímahugsun í húsagerðarlist á
síðustu öld væru í dag ómerktir fyr-
ir skort á einhverri tilbúinni há-
skólagráðu til hliðar. Það sem ég
veit gleggst hér um er að próf í upp-
eldis- og sálarfræði hefur ekki kom-
ið í veg fyrir straum óhæfra kenn-
ara inn í skólana og þá ekki síst
myndlistarskóla, bæði hér og er-
lendis. Prófgráðusmiðirnir gera
engan greinarmun hér á, frosnir í
einhverjar handstýrðar kenningar
og ef svo heldur fram kann að koma
sá dagur að gráðufíklarnir krefjist
einhverra prófa frá foreldrum sem
heimili þeim að annast uppeldi
barna sinna! Þó segir sagan að ís-
lenskar mæður kenndu sumar
hverjar börnum sínum að lesa á
þrem mánuðum, sem getur tekið
suma lærða kennara allt að þrjú ár
og er mikill hausverkur í skólum!
Allt þetta og eðlislæg mennt-un í anda frummynda-kenningar Platóns komeinhvern veginn upp í
hugann eftir að hafa lesið viðtal við
enska hjúkrunarfræðinginn Jeanne
Burton hér í blaðinu sunnudaginn
22. maí. Hún flutti fljótlega til lands-
ins með íslenskum eiginmanni sín-
um eftir hina afdrifaríku atburði 11.
september 2001. Burton hefur mikla
menntun í faginu og drjúga starfs-
reynslu en fær ekki starfsleyfi á Ís-
landi þótt mikill hörgull sé á geð-
hjúkrunarfræðingum og ástæðan
sögð ákveðnar reglur sem hjúkrun-
arfræðingar þurfi að hafa lokið sem
fari á milli landa EES-svæðisins.
Viðkomandi yfirvald ekki tilbúið til
að gera afslátt á þeim kröfum nema
að þessum (vanhugsuðu og hallær-
islegu) lögum verði breytt. Grunar
mig að margur hafi svitnað við lest-
ur viðtalsins því hér kemur svo vel
fram að innan handar er að villandi
prófgráður hindri að hæfileikar og
geta nái fram að ganga og blómstra.
Það sem verra er einnig mannúðin
sem maður hélt þó að væri kjarni og
leiðistjarna hjúkrunarfræðinnar …
leikans
Platon (427–347 f. Kr.) yrði naumast
ýkja hress ef honum auðnaðist
að sjá hvernig grunnmál þekkingar-
leitarinnar hafa verið afflutt af
handstýrðum prófreglum.
Fréttir á SMS
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
Terra Nova býður ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Salou í
júní. Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan
Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmti-
garður Spánar. Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða og litríkt
næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
kr. 24.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn í íbúð í 5 nætur.
Súpersól tilboð, 15., 22. og 29. júní.
Aukavika kr. 10.000 á mann.
kr. 34.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
í 5 nætur.
Súpersól tilboð, 15., 22. og 29. júní.
Aukavika kr. 10.000 á mann.
Súpersól til
Salou
í júní
frá kr. 24.995
Síðustu sætin
- SPENNANDI VALKOSTUR