Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 52
52 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞEGAR barn verður fyrir lík-
amlegu eða andlegu ofbeldi, krefst
samfélagið þess að hinum seka
verði refsað. Samfélagið ætlast til
þess að fulltrúi þess, dómskerfið,
bregðist strax við og
sjái til þess að refs-
ingu verði framfylgt.
En hvernig bregð-
umst við við þegar
okkur finnst dóms-
kerfið bregðast
skyldu sinni?
Er hægt að búast
við skynsamlegum
aðgerðum að hálfu
samfélagsins þegar
lítið virðist aðhafast
eða að það skorti
jafnvel skýra og af-
markaða stefnu í því
hvernig taka eigi á
málum er lúta að ofbeldi á börn-
um?
Hlutverk foreldra og ábyrgð
dómskerfisins
Það er hlutverk foreldra og full-
orðinna að reyna eftir fremsta
megni að gæta barna sinna og
annarra ungviða, að leiðbeina
þeim og forða frá hættum. Því
miður leynast hætturnar hins-
vegar oft þar sem síst er við þeim
búist og ráðast þær að barninu
eins og úr launsátri. Eftir sitja
fórnarlömbin, börnin okkar,
sködduð fyrir lífstíð.
Í hinu vestræna samfélagi er
okkur kennt að treysta dómskerf-
inu, vænta þess að það leysi vand-
ann og beri ábyrgð á að fram-
fylgja réttlætinu á sem bestan
hátt.
Getum við látið kynferðislegt
ofbeldi viðgangast?
Það er sorglegt að vita til þess
að kynferðislegu ofbeldi á börnum
hér á landi sé sýndur sof-
andaháttur af hálfu dómskerfisins
og að útlit sé fyrir að
ekki sé til nægjanlegt
fjármagn til að kosta
markvissa, örugga og
áhrifaríka eftirfylgni
með slíkum ákæru-
málum. Þeir sem vald-
ið hafa sýna engan
vilja til að taka á mál-
efninu, því svo virðist
sem því sé sópað undir
teppi eða gleymt ofaní
skúffu.
Það er því stórkost-
legt að einstaklingar,
sem orðið hafa fyrir
kynferðislegu ofbeldi,
komi sjálfir fram í dagsljósið og
standi berskjaldaðir frammi fyrir
heilli þjóð og segi sögu sína op-
inskátt í þeim tilgangi að hafa
áhrif á dómskerfið og almenning
og reyni þannig að stuðla að úr-
bótum.
Það er vitað að ekki þýðir að
byrgja brunninn þegar barnið er
dottið ofaní. En ef barnið dettur,
þá er það skylda okkar að bjarga
því og það tafarlaust. Ég vil sjá að
á málum sé tekið, að dómskerfið
komi af stað skynsamlegri stefnu í
afgreiðslu á kynferðisafbrotaá-
kærum. M.ö.o. að það endurskoði
vinnubrögð sín á málefnum er lúta
að afbrotum gagnvart saklausum
og bjargarlausum börnum og ung-
mennum, ákærumálin daga oft
uppi í skúffum lögreglunnar og
gerendur ganga lausir, þolendur
eru í enn frekari óvissu um fram-
tíðina og úrlausnir mála sinna.
Með þessu virðist dómskerfið vera
að leggja blessun sína yfir glæpi,
glæpi sem eru svo alvarlegir að
þeir eiga að hafa algjöran forgang.
Greinileg þörf er
á breytingum
Sú háværa umræða sem verið
hefur í fjölmiðlum síðustu daga,
m.a. forsíðuskrift DV, hefði eflaust
getað verið á annan veg ef það
væri almennt vitað að dómskerfið
tæki á markvissan hátt á þessum
málum. „dómstóll götunnar“ þyrfti
ekki að grípa framfyrir hendur
dómstóla og hrópa; úlfur, úlfur,
heldur gæti hann búist við því að
slík mál fengju tafarlausa og rétt-
mæta afgreiðslu. Með þessum orð-
um er ég ekki að réttlæta umrædd
greinaskrif eða vinnubrögð frétta-
miðilsins, heldur einungis benda á
að lögmál frumskógarins gildir
gjarnan þar sem óreiða ríkir þ.e.
þú bjargar þér sjálfur því enginn
annar gerir það.
Það er löngu tímabært að sýna
þeim einstaklingum viðeigandi
virðingu sem þurfa að leita á náðir
hins opinbera með kærur af þessu
tagi og afgreiða kynferðisafbrota-
mál skjótt og vel. Börnin eru
framtíð okkar, gleymum þeim
ekki. Gerum vel við þau, því þau
eru varnarlaus.
Tekur dómskerfið á kynferðis-
afbrotum af skilvirkni?
Ása María Björnsdóttir-Togola
fjallar um kynferðislegt ofbeldi
gagnvart börnum ’Það er löngu tíma-bært að sýna þeim ein-
staklingum viðeigandi
virðingu sem þurfa að
leita á náðir hins op-
inbera með kærur af
þessu tagi og afgreiða
kynferðisafbrotamál
skjótt og vel.‘
Ása María
Björnsdóttir-Togola
Höfundur er nemi í listasögu
og næringarfræði.
Sérlega falleg íbúð á 3. hæð (efsta hæð) í litlu fjölbýli á þessum góða stað í Víkur-
hverfinu í Grafarvogi. Íbúðin er 96,3 fm með geymslu. Skipting eignarinnar: For-
stofa, þvottahús, hol, eldhús með borðkróki, 2 svefnherbergi, baðherbergi, stofa,
svalir og geymsla auk sameignar. Þetta er góð eign sem vert er að skoða. Mikið
útsýni. V. 21,9 millj.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur í síma 698-2603.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Ljósavík - Rvík
Til sölu einstaklega vel staðsett og stórglæsilegt, mikið endur-
nýjað hús. Húsið er skráð 302,5 fm með 36 fm tvöföldum bíl-
skúr. Mögulegt er að hafa tvær íbúðir í húsinu en stöðugar end-
urbætur hafa verið gerðar á því undanfarin ár. Nýlega endurgerð
lóð með 78 fm palli og nuddpotti. Verð 59,5 millj.
María sýnir áhugasömum eignina í dag milli kl. 15 og 17
Grjótasel 3 - Einbýli - Opið hús kl. 15-17
Skrifstofur okkar í
Reykjavík og Hafnarfirði
eru opnar alla virka daga
frá kl. 9-17
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali
Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali
Sími: 533 6050 www.hofdi.is
Njásgata - Glæsilegt - Laus strax
Höfum fengið í einkasölu lítið sjarmerandi fjölbýli með þremur algjörlega nýuppgerðum íbúðum í hjarta Reykjavíkur. Hús-
ið hefur verið gert upp í heild sinni á mjög vandaðan og smekklegan hátt. Mögulegt er að kaupa heildar húseign eða
stakar íbúðir.
2ja herb. 57,9 fm íbúð í kjallara v.14,9 m.
4ra herb. 87,4 fm íbúð á 1. hæð. v. 24,9 m.
4ra herb. 87,4 íbúð á 2. hæð og 19 fm ris (gólflötur 60 fm) v. 34,9 m.
Hægt er að útbúa sér ósamþykkta íbúð/vinnustofu í risi, með stórum gluggum.
V. 14,9 m. 5843
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Í einkasölu glæsileg, vel skipulögð efri
sérhæð og ris í þessu fallega
tvíbýlishúsi sem er staðsett á mjög
góðum útsýnisstað. 4 svefnherbergi, 2
baðherbergi. Risið var byggt ofaná
1980-82. Stórar stofur. Rúmgóð eign.
Glæsilegt útsýni. Góður bílskúr. Eignin
getur losnað mjög fljótlega. Samtals
stærð eignarinnar er 219,4 fm.
Verð aðeins 37,5 m.
Kambsvegur 7 – efri hæð og ris
Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 16.30 - 18.30
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Sími 588 4477
Jónína tekur á móti fólki
frá kl. 16:30 – 18:30
í dag sunnudag.
OPIÐ HÚS
Hraunbæ 170
Falleg, björt og vel skipulögð 88,9 fm íbúð
á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi með vestur-
svölum. Sameign er góð og húsið nýlega
tekið í gegn að utan. Verð 16,9 m.
EIGNIN ER LAUS OG TIL
AFHENDINGAR STRAX.
Ragnheiður tekur á móti gestum í dag sunnudag milli kl. 14 og 16.
Tveir menn hagnast hvor á öðrum.
Þrír menn hagnast hver á öðrum.
Þrjú börn hagnast hvert á öðru.
Bændur og sjómenn hagnast hvorir á öðrum.
Bændur, sjómenn og iðnaðarmenn hagnast hverjir á öðrum.
Allt fólkið hagnast hvað á öðru.
Gætum tungunnar