Morgunblaðið - 11.06.2006, Page 54
54 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
EITT af því sem hlýtur að vera
nauðsynlegt hverjum stjórn-
málaflokki er að kjósendur viti
nokkurn veginn fyrir hvað hann
stendur. Hver eru
grundvallarsjón-
armiðin og framtíð-
arsýnin? Ekki síst er
þetta mikilvægt í dag
eftir að stjórnmálin
hafa færst nær miðj-
unni. Fylgistap
Framsóknarflokksins
í síðustu sveit-
arstjórnarkosningum
má því að verulegu
leyti skrifast á mjög
óljós grundvallarsjón-
armið hans í íslensk-
um stjórnmálum í
dag, og þar með stór-
skerta ímynd hans meðal kjós-
enda. Þegar þannig er komið fyrir
stjórnmálaflokki er ekki nema
eðlilegt að fylgið við hann fari ört
minnkandi og endi í fylgishruni
eins og nú hefur gerst hjá þessum
elsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar.
Vandamál
Framsóknarflokksins
Vandamál Framsóknarflokksins
eru því mörg og flókin. Bæði hvað
varðar innanflokksvandamál
margskonar og ólík pólitísk sjón-
armið um það hvert beri að stefna.
Skýrasta dæmið og það afdrifarík-
asta eru gjörólík viðhorf formanns
og varaformanns til Evrópumála,
því Evrópumálin eiga eftir að
verða mestu átakamálin í íslensk-
um stjórnmálum á komandi árum.
Því þau höfða til svo
viðkvæmra tilfinninga
þjóðarinnar, enda um
fullveldi hennar og
sjálfstæði að ræða.
Það að Framsókn-
arflokkurinn komi
fram fyrir þjóðina
með tvær gjörólíkar
skoðanir á þessu stór-
máli gengur alls ekki
lengur. Þjóðin og ekki
síst kjósendur eiga
heimtingu á að fá
skýr svör við því hver
sé í raun stefna
Framsóknarflokksins
í þessu stórpólitíska máli nú í að-
draganda þingkosninga.
Framganga formannsins
Framganga formanns Fram-
sóknarflokksins í Evrópumálum
hefur verið undarleg svo ekki sé
meira sagt. Þrátt fyrir að hann sé
í forsvari fyrir ríkisstjórn sem al-
farið hafnar aðild að Evrópusam-
bandinu(ESB), og þrátt fyrir að
vera í forustu fyrir flokk sem alla-
vega formlega hefur ekki sam-
þykkt að Ísland sæki um aðild að
ESB, ítrekar hann sí og æ fram-
tíðarsýn sína um að Ísland gerist
aðili að ESB innan fárra ára. Tillit
hans við samstarfsflokk sinn í rík-
isstjórn eða andstæðinga ESB-
aðildar innan eigin flokks er ekk-
ert. Forherðingin er með eindæm-
um. Og til að bæta gráu ofan á
svart korteri fyrir kosningar er
haldið áfram að ögra. Þá er hvatt
til fjárfestinga útlendinga í ís-
lenskum sjávarútvegi, og þar með
að þeim verði gert kleift að kom-
ast bakdyramegin inn í fiskveiði-
lögsöguna með kaupum á afla-
heimildum. Vantrú hans á íslensku
krónunni kom svo á versta tíma
fyrir skömmu þegar krónan átti
undir högg að sækja, og auðvitað
var það evran sem formanninn og
forsætisráðherrann dreymdi um.
Framganga Halldórs Ásgríms-
sonar í Evrópumálum hefur því nú
komið honum í koll með fylgi-
shruni Framsóknarflokksins. Hið
farsæla ríkisstjórnarsamstarf
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks hefur ekkert með fylg-
istapið að gera eins og stjórn-
arandstaðan heldur fram.
Evrópusambandssýn formannsins,
flokkserjurnar innan Framsókn-
arflokksins og misráðið R-
listasamstarf til 12 ára eru þar
helsti orsakavaldurinn.
Leiðir skilja
Greinarhöfundur hefur stutt
Framsóknarflokkinn og verið fé-
lagi í honum í nær 30 ár. Skömmu
fyrir kosningar skildi leiðir. Úr-
sögn úr Framsóknarflokknum var
óumflýjanleg. Brengluð ímynd
flokksins og tilvistarkreppa blasti
við mér og kjósendum og uppskar
flokkurinn samkvæmt því. Sem
stuðningsmaður núverandi rík-
isstjórnar var hins vegar Sjálf-
stæðisflokkurinn kosinn. Veit ég
að svo fór um marga aðra kjós-
endur Framsóknarflokksins sem
standa vilja vörð um hin þjóðlegu
gildi, sjálfstæði og fullveldi ís-
lenskrar þjóðar.
Evrópumál og brengluð
ímynd Framsóknar
Guðmundur Jónas Kristjánsson
fjallar um stefnu Framsókn-
arflokksins ’Úrsögn úr Framsókn-arflokknum var óum-
flýjanleg. Brengluð
ímynd flokksins og til-
vistarkreppa blasti við
mér og kjósendum og
uppskar flokkurinn
samkvæmt því.‘
Guðmundur Jónas
Kristjánsson
Höfundur er bókhaldari.
Sérlega falleg íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli ásamt bílskýli á þessum vinsæla stað
í Hvarfahverfinu í Kópavogi. Íbúðin er 95,8 fm með geymslu. Lyfta er í húsinu.
Skipting eignarinnar: 2 svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, forstofa, hol,
geymsla og bílskýli. Vönduð gólfefni eru á íbúðinni og gott aðgengi. Eign sem
vert er að skoða. V. 23,9 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Álfkonuhvarf - Kóp.
OPIÐ HÚS
Barmahlíð 14
Sérlega björt, mikið endurnýjuð og
falleg 129,6 fm 3ja-4ra herbergja efri
sérhæð með fallegri sólstofu ásamt
32,2 fm bílskúr. Verð 34,9 m.
Eignin getur verið laus strax.
Gunnur og Guðmundur taka á móti gestum milli kl. 15 og 18 í dag.
EINBÝLI Í KÓPAVOGI ÓSKAST
Mér hefur verið falið að leita eftir einbýli í Smára-
eða Hvammahverfi í Kópavogi fyrir mjög traustan
aðila. Óskað er eftir góðu einbýlishúsi með minnst
fjórum svefnherbergjum. Gott parhús gæti jafnvel
komið til greina. Rúmur afhendingartími er ekkert
mál.
Allar frekari upplýsingar veitir Jón Örn
á Ás fasteignasölu.
Símiar 520-2600 og 898-4588.
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
BJÖRT OG FALLEG 152 FM EFRI SÉRHÆÐ Í ÞRÍBÝLISHÚSI ÁSAMT 31 FM BÍL-
SKÚR. Forstofa. Stór stofa með suðursvölum. Eldhús m. borðkrók. Svefn-
álma/sjónvarpshol, 4 herbergi, svalir út af hjónaherbergi. Þvottahús. Baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf. Eikarparket á allri íbúðinni. Innbyggður bílskúr. Fjögur
sérbílastæði fylgja. Mikið útsýni. Áhv. langtímalán 25 millj. m/hagst.vöxum. Laus
fljótlega.
Málfríður og Sigurbjörn sýna íbúðina í dag, sunnudag, frá kl. 14-17.
Ingibjörg Þórðardóttir lögg. fasteignasali
NÝBÝLAVEGUR 74 - OPIÐ HÚS
Eddufell í Reykjavík
Um er að ræða heilt hús á tveimur hæðum við Eddufell 8, við
Fellagarða í Reykjavík, ásamt byggingarétti. Grunnflötur er 648 fm
(18x 36 m). Gert er ráð fyrir í nýju deiliskipulagi að breyta húsinu í
íbúðarhús og leyfi er til að byggja tvær hæðir ofan á húsið eða alls
fjórar hæðir. Húsið er tvær hæðir í dag, bílahús og verslun á
jarðhæð en innréttað sem dagvöruverslun á 2. hæð. Gert er ráð
fyrir 18 íbúðum í deiliskipulagi með 18 bílastæðum í bílahúsi auk
jafnmargra stæða á lóð. Gert er ráð fyrir að hvor íbúð sé um 80 fm
að stærð. (Gengið er út frá því í nýju deiliskipulagi að byggja ofan
á tvær íbúðarhæðir ofan á hús við hliðina, beggja megin.)
Verð kr. 140.000.000.
Eignin er í einkasölu hjá Einari Gaut Steingrímssyni hrl.,
Borgartúni 33, Reykjavík.
Upplýsingar gefa:
Einar Gautur á skrifstofu í síma 562 9888 og
Finnbogi í síma 897 1212
Hraunhamar fasteignasala er með í sölu
glæsilega 4ra herbergja lúxusíbúð við
Strandveg með einstöku útsýni yfir
Arnarnesvog, Álftanes, Reykjavík,
Kópavog og Garðabæ, fjöruna og
náttúruna í Sjálandinu í Garðabæ.
Íbúðin er samtals 125,7 fm með
geymslu í kjallara. Vandaðar
innréttingar og tæki. Falleg eikar-
plankaparket á gólfum. Eignin skiptist í forstofu, glæsilegt eldhús, stofu, borðstofu, tvö
herbergi með góðum skápum og rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi innaf.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf og vönduð baðtæki. Bílastæði í bílageymslu og
þvottahús í íbúð. Íbúðin er sértaklega vel staðsett á besta stað í Sjálandinu með miklu
útsýni og kvöldsól. Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Strandvegur - Garðabæ
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar
Fréttir á SMS