Morgunblaðið - 11.06.2006, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 55
UMRÆÐAN
Fr
u
m
Opið hús í dag kl.14-16
Stuðlasel 8 – 109 Reykjavík
Stuðlasel 8 – 109 Reykjavík
194,5 fm einbýli á einni hæð m/innbyggðum bílskúr í lokaðri
götu á rólegum stað. Glæsilegt hús, sem hefur verið mikið
endurnýjað.Verð 49,9 milj.
opið
hús
Mjög falleg 69 fm 3ja herb. íbúð á jarðhæð í nýlegu þríbýlishúsi við
Langholtsveg. Íbúðin skiptist í forstofu/gang, opið rúmgott eldhús með
vönduðum tækjum, bjarta stofu með útgengi á timburverönd í suðaust-
ur, 2 herbergi og flísalagt baðherbergi. Sérgeymsla.
Verð 17,9 millj. GÓÐ EIGN Í NÝLEGU HÚSI.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Langholtsvegur 58
3ja herb. íbúð á jarðhæð
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Sími 533 4040
Fax 533 4041
Kristinn Valur Wiium sölumaður s. 896 6913 og Ólafur Guðmundsson sölustjóri s. 896 4090
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf
Opið mán.–fim. frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.
LAXAKVÍSL - ENDARAÐHÚS
Vandað og vel viðhaldið hús á tveimur hæð-
um með innbyggðum bílskúr. Stærð 237,7
fm. Stórar bjartar stofur með arni, útgengi í
fallegan, gróinn garð. Svalir, fallegt útsýni.
Fimm góð herbergi, bað, gestasalerni. Góð
nýting, öll rými rúmgóð. FRÁBÆR STAÐUR
RÉTT VIÐ ÁRBÆJARSAFN OG ELLIÐA-
ÁRDALINN. Verð 51,5 millj.
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali
Barónsstígur 47 - Heilsuverndarstöðin
Fasteignamarkaðurinn ehf. hefur fengið til sölu eða leigu fasteignina að Barónsstíg 47, sem hefur fram að þessu hýst
Heilsuverndarstöðina í Reykjavík.
Fasteignin er samtals að gólffleti 4.625 fm og er byggð á árunum 1949 til 1955, höfundarverk arkitektanna Einars
Sveinssonar og Gunnars H. Ólafssonar og er eitt þekktasta kennileiti í borginni.
Eignin skiptist vegna byggingarlags í þrjár álmur: Aðalbygging hússins liggur meðfram Egilsgötu og er fjórar hæðir, kjallari
og ris, álma við Barónsstíg sem er tvær hæðir og
álma að Egilsgötu, tvær hæðir og kjallari.
Húsið er sniðið að þörfum heilsugæslu en getur
hentað undir hvers konar skrifstofu - og þjónustustarfsemi.
Eignin er laus til afhendingar í ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Jón Guðmundsson.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
TIL SÖLU EÐA LEIGU
UMRÆÐAN um virkjunina hef-
ur heldur minnkað á síðustu mán-
uðum en er þeim mun áhugaverð-
ari. Sem betur fer flytur sjónvarpið
okkur smá fréttaglefsur af og til af
vettvangi framkvæmda, þar sem
Sigurður Arnalds, sá ágæti upplýs-
ingafulltrúi Lands-
virkjunar á staðnum,
fer með fréttamenn og
sýnir þeim og skýrir
margvíslega verkþætti.
Það fer ekki hjá því
þegar svona stór og
margþætt framkvæmd
er hönnuð þá getur
menn greint á um ýms-
ar hönnunarleiðir og
hafa fullt leyfi til að
láta álit sitt í ljós. Fyrir
um tíu árum lét ég þá
skoðun mína í ljós, í
Morgunblaðinu eða
Tímanum sáluga, að það gæti verið
nauðsynlegt þegar jökulvötn væru
virkjuð með geymslu jöfn-
unarvatns í lónum að rétt væri að
búa til nokkurskonar forlón. Í for-
lóninu mundi aurinn verða látinn
botnfalla og veitt úr botni forlóns-
ins í gegnum risa-aursvelg eða
aurgleypi út í gegnum hliðarrás í
þar til gerðan hliðarskurð sem lægi
framhjá í þessu tilfelli Hálsalóninu
í gljúfrið neðan Kárahnjúkastífl-
unnar. Þótt ég þekki ekki aðstæður
að neinu ráði á þessu svæði held ég
samt sem áður, að hægt væri að
nota úr fremsta hluta Hálsalóns
fyrir áðurnefnt forlón.
Tilgangur forlónsins getur verið
margþættur; líftími aðallónsins
mundi margfaldast, vatnið færi
hreinna inn á vélar, botnrásin færi
ekki strax að leka vegna mikils
þrýstings og sandnúnings við þétti-
fleti. Auk þessa gæti þörunga-
lífríkið í Héraðsflóa fengið sitt æti
og sína tímgunarhvata eins og það
er vant að fá á réttum tíma.
Í Jökulsá á Dal er svo mikill aur-
burður í sumarhitum að ætla má að
í stærstu toppum flytji hún með
sér áleiðis til sjávar á hverjum sól-
arhring allt að hundrað þúsund
rúmmetra af aur. Sumir segja mun
meira. Brúarárjökull er enginn
smá vatns- og aurframleiðandi og
dætur hennar geta svo sannarlega
yglt sig. Líftími Hálsalóns gæti því
orðið skammur, ef ekkert verður
að gert, sérstaklega
ef veðurfar færi
hlýnandi eins og spáð
er. Þess vegna eru
ekki margir góðir
kostir í stöðunni þeg-
ar litið er til fram-
tíðar. Ekki má Land-
virkjun sætta sig við
lélega viðhaldsfreka
rennslisvirkjun, sem
óhjákvæmilega ylli
því að aur og sand-
mengað vatn mundi
valda gríðarlegu sliti
á leiðiskóflum og
hverflahjólum við slíkan vatns-
hraða, sem þarna verður. Orðspor
fyrirtækisins hefur verið gott til
þessa, að ég tel, því væri afleitt
fyrir þá eins og ásælni þeirra í önn-
ur virkjunarsvæði er mikil, ef sitt-
hvað við Kárahnjúka færi úrskeið-
is.
Mikið vandamál mun skapast
meðfram Jöklu neðan til, þar sem
halli og vatnshraði minnka, því þar
mun aurinn setjast að. Er ekki
sagt að nauðsyn brjóti lög? Þá á ég
við, að varla verður komist hjá því
að sækja vatn í Kreppu um lengri
eða skemmri tíma ár hvert til
nokkurskonar uppfyllingar í Háls-
alón og skolunar á farvegi Jöklu.
Einnig held ég að ekki sé tíma-
bært að fara að hugsa um að
stækka virkjunina í Lagarfossi, því
komið gæti í ljós að nauðsynlegt
yrði, af ýmsum ástæðum, að
byggja farveg úr Leginum ofan við
Lagarfoss norðvestur í farveg
Jöklu til skolunar og lækkunar
vatnsborða beggja ánna. Að vísu
þekki ég lítið til aðstæðna þarna,
en það mætti skoða þetta.
Margir aðrir hönnunarþættir
Fljótsdalsvirkjunar hafa mér fund-
ist orka tvímælis, svo sem sveiflu-
göngin, sem þurfa að vera að
minnstakosti tvískipt og neðsti-
hlutinn loftfylltur með sama þrýst-
ing og heildar-fallþrýstingurinn er.
Hvað ef önnur línan fellur út og
fjögurhundruðþúsund hestöfl
verða munaðarlaus ? Það er allt
annað en ef um gas eða olíu sem
aflgjafa væri að ræða. Eða getur
önnur línan annað sex til sjöhundr-
uð megavöttum? Ég vona bara að
áhyggjurnar séu ástæðulausar
hvað þetta verk varðar. Þegar
svona verk er hannað má það alls
ekki ráða úrslitum hvaða verð fæst
fyrir orkuna, því lítill viðhalds-
kostnaður og líftími eru ekki síður
mikilvæg.
Kárahnjúkavirkjun – dýrasta
og umdeildasta framkvæmd
Íslandssögunnar
Gestur Guðmundsson fjallar
um Kárahnjúkavirkjun ’Þegar svona verk erhannað má það alls ekki
ráða úrslitum hvaða
verð fæst fyrir orkuna,
því lítill viðhaldskostn-
aður og líftími er ekki
síður mikilvægur.‘
Gestur Guðmundsson
Höfundur býr á Blönduósi, er iðn-
fræðingur og áhugamaður um nátt-
úruvernd.
Fréttir í
tölvupósti