Morgunblaðið - 11.06.2006, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 59
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Skipholt - efri sérhæð
Sérlega rúmgóð og vel skipulögð efri sérhæð. Birt flatarmál er um 215 fm. Íbúðin hefur
verið mikið uppgerð að innan m.a. er nýtt glæsilegt eldhús, tvö ný falleg baðherbergi og
ný gólfefni. Fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, stofa, borðstofa og stórt eldhús. Sérinn-
gangur. Fyrir aftan húsið er frábært óbyggt svæði og stutt í skóla. Verð 40,9 millj.
Sunnuvegur - HF. - Laus fljótlega
Falleg og vel skipulögð 116 fm efri hæð í þríbýlishúsi ásamt 62 fm bílskúr. Húsið er vel
staðsett, rétt fyrir ofan lækinn og stutt er í skóla og alla þjónustu. Manngengt geymslur-
is yfir íbúðinni og er auðvelt að breyta því í íbúðarrými. Húsið er nýlega málað og lítur vel
út. V. 28,8 m. 5860
Bústaðarvegur
3ja herbergja mjög góð íbúð á jarðhæð með góðu útsýni m.a. til Bláfjalla. Íbúðin skiptist
í mjög rúmgott hol, tvö góð herbergi, stofu, eldhús, bað og geymslu .
Tjarnarból - Efri sérh. + aukaíbúð
Falleg 125 fm efri sérhæð auk stúdíóíbúðar í kjallara og nýs 51,5 fm bílskúrs, á Seltjarn-
arnesi, samtals 232 fm. Eignin skiptist m.a. í forstofu, gang, eldhús, stofu, borðstofu,
baðherbergi og fjögur herbergi. Um er að ræða 2-býlishús. Sérlega fallegur garður. V.
46,9 m. 5870
OPIÐ HÚS - Skógarsel 43, 1. hæð
Alaskareiturinn Glæsileg 133,5 fm 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í litlu nýju fjölbýli.
Auk þess fylgir stæði í bílageymslu. Vandaðar innréttingar og gólfefni úr eik. Þvottahús í
íbúð. Fallegt skógi vaxið umhverfi. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 17-18.
Sérinngangur er í íbúðina (Ragnheiður og Haraldur sýna). V. 32,0 m. 5853
OPIÐ HÚS - Veghús 7, 2. h. h.
MJÖG FALLEG 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Á ANNARRI HÆÐ Í LITLU FJÖLBÝLI. Húsið
lítur mjög vel út og sameign nýlega teppalögð og máluð. Íbúðin skiptist í anddyri, hol,
eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, stofu og geymslu í risi. EIGNIN
VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-15. Bjallan er merkt 2. h. h. Þór-
unn tekur á móti gestum. V. 23,9 m. 5676
Háteigsvegur - Rúmgóð
Falleg neðri hæð með sérinngangi. Íbúðin skiptist m.a. í tvær samliggjandi stofur með
rennihurð á milli, eldhús, tvö herbergi og sjónvarpshol. Út af stofu eru rúmgóðar svalir til
vesturs. V. 30,0 m. 5861
Gullsmári - Kópavogi
Mjög falleg 61,2 fm íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi. Innréttingar í íbúðinni eru úr eik. Dúkar á
gólfi. Svalir til vesturs út af stofu. Fallegt útsýni. Sameiginlegur veislusalur á efstu hæð.
Á 1. hæð er innangengt í þjónustumiðstöð sem bærinn rekur. Þar er hárgreiðslustofa,
fótsnyrting o.fl. Heitur matur í hádeginu. V. 21,8 m. 5877
Melabraut - Seltjarnarnesi
Vorum að fá í sölu fallega og mikið standsetta efri sérhæð og ris í 4-býlishúsi við Mela-
braut. Íbúðin skiptist þannig að á hæðinni er stór stofa, eldhús, tvö herbergi, baðher-
bergi og hol. Í risi er eitt herbergi og þvottahús. Bílastæði fylgir íbúðinni. Stór lóð.
V. 27,7 m. 5867
Neðstaleiti
Mjög falleg 135 fm íbúð á 3. hæð (efstu hæð) í litlu fjölbýlishúsi. Einungis ein íbúð á
hæðinni. Íbúðin skiptist m.a. í rúmgóða stofu og fjögur herbergi. Eitt herbergjanna er
forstofuherbergi með sér inngangi af stigapalli (einnig innangengt úr íbúð). Endurnýjað
eldhús. Þvottahús í íbúð. Stórar svalir til suðurs. Fallegt útsýni. Verð 35,0 millj.
Ljósvallagata - Íbúð og herb. í útleigu
Góð 3ja herbergja íbúð ásamt aukaherbergjum í risi í fallegu steinhúsi. Íbúðin skiptist í
tvær samliggjandi stofur, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Þar fylgja þrjú lít-
il herbergi, sem eru undir súð og með þakglugga og aðgangur að sameiginlegri snyrt-
ingu. Herbergi í risi hafa verið í útleigu og gefið góðar tekjur.
V. 22,9 m. 5830
Rauðalækur - Standsett
Falleg og mikið standsett 81,4 fm 3ja herb. íbúð í kjallara í 4-býlishúsi. Sérinngangur.
Stór stofa og tvö rúmgóð herbergi. Miklir skápar. Húsið var málað að utan fyrir um ári
síðan. V. 18,9 m. 5872
Á FÖSTUDAGSEFTIRMIÐDEGI
2. júní sit ég á veröndinni fyrir
framan Thorvaldsens á Aust-
urvelli. Sólin skín og himinninn er
bjartur. Íslenski fáninn blaktir við
hún á Alþingishúsinu.
Það er fjölmennt á svæðinu, allir
eru að njóta sumarblíðunnar.
Vegna þess hve margir eru á
ferðinni hefði maður átt von á því
að sjá lögregluna á ferli en í mið-
bænum er hana hvergi að sjá.
Þrír dauðadrukknir menn þvæl-
ast um og ónáða almenning. Rétt
fyrir framan mig sé ég einn þeirra
stela fjallahjóli og hjólar hann í
burtu í annarlegu ástandi, en hann
er ekki í því ásigkomulagi að geta
hjólað „Tour de Reykjavík“. Rétt
við Alþingishúsið hjólar hann á bíl
og dettur. Hann reynir að standa
upp, sem honum tekst að lokum,
og heldur áfram sínum hjólreiðat-
úr.
Ég hef fengið nóg af þessu og kl.
17:11 hringi ég í 112 og segi sögu
mína; bið um aðstoð og býðst til
þess að bíða eftir lögreglunni og
veita henni frekari upplýsingar.
Eftir að hafa beðið í hálftíma ber
ekkert á lögreglunni svo ég ákveð
að yfirgefa staðinn.
Hinn 27. júní sl. kusu Reykvík-
ingar til sveitarstjórnarkosninga.
Vonandi tekst komandi borg-
arstjórn að gæta betur öryggis al-
mennings. Borgin ykkar á það svo
sannarlega skilið.
„Gerum gott betra.“
GERARD VAN KLAVEREN,
Hollandi.
Á sólríkum
eftirmiðdegi
í Reykjavík
Frá Gerard van Klaveren
ÉG ÞARF að vera mættur til
vinnu kl. 07:30 í Austurhrauni í
Garðabæ. Sjálfur bý ég í Ástúni
12 í austurbæ Kópavogs. Til þess
að ná takmarki mínu þarf ég að
vakna u.þ.b. 06:00 og halda fót-
gangandi í átt að Mjóddinni hálf-
tíma síðar til að ná fyrsta vagni kl.
7:00 nr. 24 suður til Garðabæjar.
Þar hoppa ég út á Víðistaðavegi
og geng þvert suður yfir hraunið
að vinnustaðnum mínum. 15 mín-
útna gangur er þó skárri heldur
en að halda áfram niður að Ás-
garði og skipta yfir í vagn 22 sem
hleypir mér út hjá Góu við Kapla-
krika og sér til þess að ég mæti 8
mínútum of seint til vinnu.
Hvora leiðina sem ég fer, tekur
það mig 50 til 60 mínútur að
ferðast til og frá vinnu með
strætó. Fyrir breytingu tók það
mig 25 til 30 mínútur með leið
114. Svipaðan tíma og það tekur
mig að hjóla til og frá vinnu. Með
bifreið er ég tíu mínútur á leið-
inni.
Nýja strætókerfið hefur orðið
mér hvatning til að hjóla til vinnu
og/eða að kaupa mér bíldruslu til
að vera tímanlega á ferðinni. Mig
grunar nefnilega að nýja kerfið
hafi verið hannað til að leggja
sjálft sig niður og þar með allar
almenningssamgöngur á höf-
uðborgarsvæðinu. Rétt eins og
nýja Hringbrautin var til þess
gerð að tryggja veru flugvallarins
í Vatnsmýrinni um ókomna tíð.
EDVARD KR. GUÐJÓNSSON,
iðnverkamaður og
bráðum fyrrverandi
farþegi Strætó b/s.
Almennings-
samgöngur
hafa gefið
upp öndina!
Frá Edvard Kr. Guðjónssyni