Morgunblaðið - 11.06.2006, Qupperneq 71

Morgunblaðið - 11.06.2006, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 71 DAGBÓK Þjónusta okkar felst í að tengja saman kaupendur og seljendur fyrirtækja. Sem fagfólk í fyrirtækjaviðskiptum erum við í lifandi tengslum við innlendan sem erlendan fyrirtækjamarkað. Tengsl okkar við viðskiptavini eru trúnaðarmál. Upplýsingar um fyrirtæki eru ekki gefnar í síma. Vinsamlega hringið og pantið tíma, síminn er 414 1200 en einnig er hægt að nota tölvupóst: jens@kontakt.is eða brynhildur@kontakt.is. Aðili að Við erum sérfræðingar í fyrirtækjaviðskiptum. TENGINGVIÐ TÆKIFÆRIN H O R N / H a u k u r / 2 4 0 4 A ) • Rótgróin heildverslun með ýmsar vörur. Ársvelta 280 mkr. • Lítið sérhæft þjónustufyrirtæki. Hentar vel til sameiningar við stærra fyrirtæki á auglýsinga- og prentmarkaði. • Þekkt útgáfufyrirtæki. Ágætur hagnaður. • Vertakafyrirtæki með föst verkefni í vinnuvélum. • Meðalstórt fyrirtæki með gluggatjöld. EBITDA 15 mkr. • Lítið sérhæft ræstingafyrirtæki með mikla sérstöðu og vaxtamöguleika. Fastir samningar. • Mjög þekktur veitingastaður í nágrenni borgarinnar. Mikil sérstaða. Góð velta og hagnaður. • Þekkt húsgagnaverslun. Ársvelta 180 mkr. • Traustur meðeigandi/framkvæmdastjóri óskast að góðu fyrirtæki í miklum vexti. Ársvelta 150 mkr. • Stór heildverslun með vélar og tæki. Ársvelta 1400 mkr. • Þekkt þjónustufyrirtæki fyrir viðskiptalífið. EBITDA 20 mkr. • Iðnfyrirtæki með mikla sérstöðu. Ársvelta 230 mkr. • Rótgróið fyrirtæki með tæknivörur. Ársvelta 150 mkr. Góður hagnaður. • Eitt af betri kaffihúsum borgarinnar. Mest dagsala. • Sjötíu ára gamal breskt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir tjöld, skyggni og hlera fyrir glugga. Ársvelta 150M. • Ferðamannaverslun í miðbænum. • Meðalstórt hugbúnaðarfyrirtæki með góða vöru. EBITDA 10 mkr. • Þekkt iðnfyrirtæki með góðri afkomu. Ársvelta 120 mkr. • Þekktur bar í miðbænum. Góður hagnaður. Fáanleg fyrirtæki Höfum traustan kaupanda að heildverslun með matvæli. Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200 www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is Jens Ingi Úlfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is, gsm 820 8658 Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is, gsm 868 8648 Guðni Halldórsson viðskiptalögfræðingur, gudni@kontakt.is, gsm 694 7722 Birgir Ómar Haraldsson verkfræðingur, birgir@kontakt.is, gsm 896 6070 Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is, Lilja Margrét Hreiðarsdóttir framkvæmdastjóri, lilja@kontakt.is, gsm 698 0989 Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Dalbraut 18-20 | Brids mánudaga kl. 14. Félagsvist þriðjudaga kl. 14. Bónus miðvikudaga kl. 14. Morg- unsopi alla daga kl. 10, hádeg- isverður og síðdegiskaffi með heima- bökuðu. Opið kl. 8–16. Uppl. í s. 588 9533. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20. Hljómsveitin Caprí leikur. Þjórs- árdalur – Galtalækur, dagsferð 24. júní. Ekið um Þjórsárdal, komið við á Stöng og fleiri staðir skoðaðir. Ekið um Landveg að Galtalæk. Kaffihlað- boð í Hestheimum. Uppl. og skráning í síma 588 2111. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Þjóðhátíð í Gullsmára. Það stendur til að vera með grillveislu í hádeginu 16. júní. Þið sem hafið áhuga á að borða með okkur grillmat vinsamleg- ast skráið ykkur á blað á töflu eða í eldhúsinu í Gullsmára, eða hringið í síma 564 5260 sem allra fyrst. Eitt- hvað skemmtilegt verður á dagskrá. Félagsstarf Gerðubergs | 13. og 14. júní kl. 13.30: „Mannrækt – trjá- rækt“, gróðursetning í Gæðareit í samstarfi við leikskólann Hraunborg. Á eftir bjóða börnin í kaffi- húsastemmingu í leikskólanum. Á boðstólum eru m.a. „vinakökur“, pönnukökur o.m.fl. Allir velkomnir. Strætisvagnar S4, 12 og 17 stansa við Gerðuberg. Furugerði 1, Norðurbrún 1: | Nest- isferð. 15. júní verður farið í heim- sókn í Vatnsveitu Reykjavíkur og síð- an verður nesti, sem fólk hefur með sér, snætt í Heiðmörk. Lagt af stað frá Norðurbrún kl. 13 og síðan teknir farþegar í Furugerði. Skráning í Norðurbrún í síma 568 6960 og í Furugerði í síma 553 6040. Hraunbær 105 | Miðvikudaginn 14. júní verður farið í Breiðholtskirkju. Kaffiveitingar í boði sóknarnefndar og kvenfélags kirkjunnar. Lagt af stað frá Hraunbæ 105 kl. 13.30. Verð: 300 kr. Skráning á skrifstofu eða í síma 587 2888 fyrir 13. júní. Hraunbær 105 | Grillveisla föstud. 16. júní kl. 13.30. Keppni í boccia og pútti, glæsileg verðlaun. Skráning á skrifstofu. Sigurbjörn Þorkelsson flytur erindi í tilefni af Alþjóðlegum forvarnardegi gegn ofbeldi á öldr- uðum. Grill, happadrætti og tónlist. Verð kr. 500. Skráning í síma 587 2888. Allir velkomnir. Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 568-3132 eða á asdis- .skuladottir@reykjavik.is. Skortur á snyrtiaðstöðu íSkálholti UM hvítasunnuna vorum við hjónin ásamt vinafólki okkar í ágætum sum- arbústað í Minni-Mástungu í Gnúp- verjahreppi, en þar er einnig fyr- irmyndarhótel og svo sérstakt að annað eins finnst varla hér á landi. Ennfremur reka þau hjónin litla en stórglæsilega gjafa- og föndurverslun þar sem vöruúrval er ótrúlega fjöl- breytt. Við fórum víða um sveitina og um næsta nágrenni. Við fréttum fyrir til- viljun af tónleikum í Skálholti – þang- að fórum við og hlustuðum á stórkost- lega góðan söng hjá Guðrúnu Ingimarsdóttur, sem er ættuð frá Kjarnahólum í Biskupstungum. Spil- að var undir á orgel og trompet, sem hljómuðu mjög vel. Eftir þessi formálsorð er ég kom- inn að því sem mér finnst umkvört- unarvert við aðkomu og aðstöðuna í Skálholti. Við komum að austanverðu að kirkjunni og þar stakk í stúf við umhverfið kolryðgað hlið, svo af- spyrnuljótt að það þarf lagfæringar við sem allra fyrst svo það spilli ekki fyrir útliti staðarins. Okkur fannst einnig ótrúlegt að ekki skyldi vera snyrting við kirkjuna í Skálholti, en okkur var sagt að hægt væri að kom- ast á snyrtingu í skólanum, sem er þó nokkurn spöl frá kirkjunni. Þessu þyrfti að koma í lag sem fyrst svo enginn verði úti um hávetur í stórhríð á leið að eða frá snyrtingu. Húni. Kettlingar fást gefins TVÆR 8 vikna gráar læður, mamm- an loðin og tvær 12 vikna læður, önn- ur steingrá og hin svört með drapp og organs, fást gefins. Kassavanar, fjör- ugar og blíðar. Upplýsingar í síma 564 3236 og 692 4052. Stóra strætómálið — leiðrétting ÞVÍ miður misminnti mig í grein minni í Velvakanda 3. júní sl. Þar seg- ir að fyrrverandi stjórnarformaður Strætó hafi á fundi sagt starfs- mönnum að hafa ekki áhyggjur af börnum, öryrkjum og eldri borgurum því nú skyldi ná í nýja farþega. Rétt er, að þeirri spurningu var beint til hans hvort hann hefði engar áhyggjur af afdrifum t.d. ofan- greindra hópa. Svar formannsins var: „Við ætlum að ná í nýja farþega.“ Á þessu er munur og vil ég því biðjast afsökunar á þessu. Nokkuð er um lið- ið og svona refsast fyrir að punkta ekki niður. Þá vil ég taka fram að greinin var skrifuð af einskærri væntumþykju fyrir vinnunni, samstarfsfólki, far- þegum og útsvarsgreiðendum. Lifið heil. Ökuþjónn. Simbi týndist í Garðabæ SIMBI týndist frá Arnarási í Garða- bæ 31. maí sl. Hann er bröndóttur, með hvíta bringu, fimm ára. Hann var með gula ól og merki. Merktur í eyra. Hann gæti verið á leið í Hafn- arfjörð þar sem hann bjó áður. Þeir sem gætu gefið upplýsingar vinsam- lega hafi samband í síma 840 3080 eða 565 1019. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 d6 4. 0–0 Bd7 5. He1 a6 6. Bf1 Bg4 7. c3 d5 8. d3 e6 9. Rbd2 Rf6 10. Db3 dxe4 11. dxe4 Dc7 12. a4 0–0–0 13. Dc2 Bd6 14. h3 Bh5 15. Be2 Bf4 16. Rf1 Kb8 17. b3 Bxc1 18. Haxc1 Df4 19. Rg3 Bxf3 20. Bxf3 Hd2 21. Db1 Re5 22. He3 Staðan kom upp í opnum flokki á ól- ympíuskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Tórínó á Ítalíu. Vladimir Akopjan (2.706) tefldi vel fyrir ar- menska liðið og hér með svörtum sýndi hann fram á færni sína gegn Níger- íumanninum Joel Adebayo (2.251). 22. … Hxf2! 23. Kxf2 Rfg4+ 24. hxg4 Rxg4+ 25. Kf1 Rxe3+ 26. Ke2 Dxg3 27. Kxe3 g5! svartur vinnur nú mann- inn til baka með dágóðum vöxtum. 28. b4 g4 29. bxc5 gxf3 30. gxf3 Dg5+ 31. Ke2 Dxc5 32. Db4 Dc7 33. Hd1 Ka8 34. Hd6 h5 35. Dd4 Hc8 36. Hd7 Dh2+ 37. Kd3 f5 38. exf5 exf5 39. Dd5 Db2 40. c4 Db3+ 41. Kd4 f4 42. Ke5 Hxc4 43. Hxb7 Dc3+ 44. Kd6 Hd4 og hvítur gafst upp. Akopjan fékk hvorki meira né minna en níu vinninga af 12 mögu- legum og samsvaraði frammistaða hans 2.778 stigum. Hann ásamt Aronj- an og Sargissjan lagði grunninn að glæstum sigri armenska liðsins í opn- um flokki en síðastnefndi stórmeist- arinn varð sigurvegari Reykjavík- urmótsins sl. vor. Sargissjan tefldi í öllum umferðunum þrettán og fékk 10 vinninga sem þýddi að árangur hans samsvaraði 2.736 stigum. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjórn@mbl.is Svartur á leik. 80 ÁRA afmæli. Í dag, 11. júní, erValdís Ármann frá Skorrastað áttræð. Af því tilefni býður Valdís vin- um og vandamönnum til kaffisamsætis á heimili sínu, Hátúni 17 á Eskifirði, klukkan 17 þann sama dag. 60 ÁRA afmæli. Í dag, 11. júní,verður sextug Gíslína Gunn- arsdóttir, Lálandi 23, Reykjavík. Af því tilefni býður hún vinum og vanda- mönnum að gleðjast með sér í Lækjar- ási við Stjörnugróf kl. 14.30–17 á af- mælisdaginn. Árnaðheilla ritstjórn@mbl.is Fréttir í tölvupósti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.