Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 76
76 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Námsráðgjafar og kennarar skólans verða til viðtals og
geta nemendur innritað sig á staðnum.
Nemendur kynna félagslífið í máli og myndum.
Gestir geta skoðað húsakynni skólans.
Léttar veitingar.
Nánari upplýsingar á www.verslo.is og á skrifstofu
skólans í síma 5 900 600.
•
•
•
•
•
M
yndasöguföfundurinn
Garth Ennis er einn
þeirra Breta (hann
er reyndar írskur)
sem réðust til atlögu
við ameríska myndasögumarkaðinn á
níunda áratugnum. Ásamt Grant
Morrison, Warren Ellis og Alan
Moore gaf hann stöðluðu frásagn-
arformi mátulegt spark í afturend-
ann. Nú er svo komið að þessir menn
eru metsöluhöfundar í hvert sinn sem
þeir drepa niður penna og má því
segja að innrásarherinn, sem upp-
haflega var keyptur til verksins, hafi
náð markmiði sínu. Það sem skóp
þessum höfundum sérstöðu á mark-
aðnum var taumlaus hugmyndaauðgi
og vilji til að takast á við málefni sem
ekki höfðu farið hátt í amerísku
myndasögunni. Þeir brutu á bak aft-
ur þau höft sem bransinn hafði lagt á
eigin herðar og leystu úr læðingi nýja
kynslóð bandarískra höfunda sem
láta fátt sér fyrir brjósti brenna.
Ennis auk Warren Ellis er sá mað-
ur sem hvað harðast hefur gengið
fram í viðleitni sinni til að víkka
ramma þeirra siðferðisgilda sem
meginstraumur bandarískar mynda-
sagna hafði haldið um áratuga skeið.
Hann beitir fyrir sig dónaskap, of-
beldi og hrylling, oft og tíðum á súr-
realískum nótum, í líkingu við það
sem Quentin Tarantino hefur gert í
kvikmyndum sínum.
Ennis er eins og landar sínir uppal-
inn á hugmyndamaskínunni 2000AD
sem gefin er út í Bretlandi og hefur
þróað með sér mikinn kúltstaðal í
gegn um árin. Í upphafi ferilsins
reyndi hann sig við fasísku andhetj-
una Judge Dredd ásamt fleiri minna
þekktum breskum myndasögu-
hetjum við góðan orðstír. Skömmu
eftir lendingu í Bandaríkjunum tók
hann við að skrifa um hinn sjarm-
erandi skíthæl John Constantine sem
sprottinn er úr hugarheimi Alan
Moore en sömuleiðis hafa þeir
Morrison og Ennis spreytt sig á þess-
ari bresku erkitípu svalleika og von-
leysis. Constantine í meðförum Ennis
er eitt sterkasta óslitna höfundarverk
í bandarískum myndasögum síðustu
áratuga. Vert er að minnast á söguna
Heartland þar sem Ennis fjallar um
ástmey Constantine og heimsókn
hennar til æskustöðvanna á Írlandi.
Sú saga, þrátt fyrir að láta lítið yfir
sér og vera gersneidd öllum yfirnátt-
úrulegum tilvísunum, er með því
besta sem myndasagan hefur gefið af
sér.
Niðurtúrinn
Ennis hóf síðan störf við viðamesta
verk sitt hingað til, Preacher. Predik-
arinn og guðleysinginn Jesse Custer
á í heilögu stríði við guð sjálfan al-
máttugan með írsku vampíruna
Cassady og leigumorðingjann og
kærustuna Tulip sér við hlið. Jesse er
ekki sáttur með að guð hafi yfirgefið
hásæti sitt og gefið skít í þegna sína
og heitir því að elta hann uppi og láta
svara til saka. Í Preacher fer fyrst al-
mennilega að bera á mikilli andúð
Ennis í garð skipulagðra trúarbragða
og dregur þau saman og sundur í háði
og heift á þessum blaðsíðum. Preach-
er byrjaði frábærlega og er ein af
fáum myndasögum sem náð hafa hylli
utan myndasöguheimsins. En um
miðbik seríunnar fór að halla undan
fæti að mínu mati. Þá var eins og
Ennis væri orðinn leiður á viðfangs-
efninu og hugmyndaauðgin dofnaði. Í
staðinn hóf hann að nota sífellt öfga-
fyllri rassahúmor og ofbeldisparódíu í
skrifum sínum sem gerði það að verk-
um að ég gafst loks upp á seríunni og
saltaði til seinni tíma sem enn eru
ekki komnir.
Þessi stef í skrifum Ennis urðu sí-
fellt meira áberandi á tímabilinu.
Hann hóf að skrifa sögur sem virtust
einungis beinast að því að toppa fyrri
verk í subbuskapnum og gálgahúm-
ornum. Verk frá þessum tíma á borð
við Just a Pilgrim, The Rifle Brigade
og Fury höfðu fátt til síns ágætis, því
miður.
Á þessu niðurtúrstímabili hóf Enn-
is einnig fyrir alvöru einkastríð sitt
gegn ofurhetjuímyndinni. Hann hafði
reyndar sýnt skoðanir sínar á þessari
hefð í hinni lýsandi Punisher kills the
Marvel Universe um miðjan tíunda
áratuginn en í upphafi nýs árþúsunds
opnuðust flóðgáttirnar. The Hitman
sá um að stúta hetjum DC (Batman,
Superman og fleiri) og Punisher hélt
áfram sínum óskunda í ofur-
hetjuheimi Marvel auk þess að ganga
milli bols og höfuðs á mafíunni eins og
honum einum er lagið. The Provar
síðan síðasti naglinn í kistuna þar
sem gleðikona sérhæfð í súper-
mönnum var kynnt til sögunnar með
tilheyrandi slátrun hinna heilögu
klaufdýra.
Ennis hefur sagt að hann hafi sér-
lega gaman af því að hræra í þeim
stöðlum sem fylgja ofurhetjunni.
Hann segist hreinlega ekki þola þá
menningu og kreddu sem skapast
hefur í kring um þetta myndasögu-
form og geri sitt ítrasta til að breyta
þeim viðhorfum sem lesandinn hafi til
sögupersónanna bæði með því að
birta fáránleikann og húmorinn í við-
fangsefninu. Ágætis stefnuræða en
ég hefði þó kosið bitastæðari út-
færslu.
Eftir á að hyggja er furðulegt að
útgáfurnar hafi leyft Ennis að fara
jafnilla með persónur þeirra og raun
bar vitni en sögurnar seldust vel og
mæltust almennt ágætlega fyrir og
þótt ég sé ekki mikill aðdáandi þessa
tímabils í skrifum Ennis er líklegt að
hann hafi átt stóran þátt í því að færa
ofurhetjuna frá sínum bláeyga upp-
runa og nær harðneskjulegum nútím-
anum og ber að þakka honum fyrir
það.
Upprisan
Einkastríðið gegn súpermönn-
unum byrjaði í Punisher og þar upp-
hófst einnig næsta tímabil í skrifum
Ennis. Allt frá útgáfu Punisher: Born
sem kom út 2003 hefur Ennis hrein-
lega farið á kostum í höfundastólnum.
Í nýjustu bókinni, The Slavers færir
Punisher einkastríð sitt til austurevr-
ópskra kynlífsþrælahaldara með
mjög blóðugum afleiðingum. Auk
þess að vera sérlega opinská í ofbeld-
islýsingum er þessi bók einnig sú sem
hefur snortið mig hvað mest í raun-
sæjum lýsingum á ömurlegri stöðu
fórnarlamba hins vestræna klám- og
kynlífsiðnaðar. Að Ennis geti vakið
lesendur sína til umhugsunar um
raunveruleg málefni í jafnóraunveru-
legu frásagnarformi og ofur-
hetjusagan er, sýnir hvers megnugur
hann er sem höfundur. Sorglegur
endahnúturinn fær lesandann svo til
að endurmeta það sem hann hefur áð-
ur lesið og skilur eftir myndleif sem
lifir mun lengur en sú ofbeldisspenna
sem sköpuð er í meginmálinu. Hæstu
meðmæli.
Ennis hefur undanfarið einnig gef-
ið frá sér frábærar myndasögur sem
fjalla á mjög raunsæjan og drama-
tískan hátt um seinni heimsstyrjöld-
ina í öllum sínum myndum. Í seríunni
sem kallast einfaldlega War Stories
segir hann sögur hermanna sem
koma að átökunum frá mismunandi
hliðum. Það sést glögglega að hann
hefur kynnt sér viðfangsefnið í þaula
og með seinna bindinu af seríunni
fylgir nákvæm útlistun á þeim sögu-
legu heimildum sem hann notaði við
gerð verksins. Teiknararnir sem ljá
honum hönd sína, hver í sinni sögu,
eru einnig hver öðrum betri og má
þar helsta nefna David Lloyd, Dave
Gibbons og Chris Weston. Bestu
stríðssögur sem ég hef lesið í mynda-
söguformi.
Með War Stories og Punisher stað-
festir Ennis endanlega hæfileika sína
og festir sig enn frekar í sessi sem
einn fjölhæfasti og virtasti mynda-
söguhöfundur sinnar kynslóðar. Nið-
urtúrnum er lokið.
Maðurinn sem
hatar súpermenn
Garth Ennis er víðlesinn og mikilsvirtur mynda-
söguhöfundur. Sögur hans spanna himin og
jörð en fantahúmor, stríðsáhugi og andúð hans á
ofurhetjunni í myndasögum og trúarlegum
kennisetningum virðist liggja sem rauður þráður
í gegnum mörg hans verka eins og
Heimir Snorrason komst að raun um.
Allt frá útgáfu Punisher: Born sem kom út 2003 hefur Ennis hreinlega farið á kostum í höfundastólnum.
Hermenn þurfa að lifa með gjörðum sínum.