Morgunblaðið - 11.06.2006, Qupperneq 84

Morgunblaðið - 11.06.2006, Qupperneq 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi veidihornid.is Veiðihornsblaðið fylgir Morgunblaðinu í dag HLEYPT hefur verið af stokkunum tilraunaverkefni þar sem ófaglærðir, en reyndir, starfsmenn Símans voru metnir inn í Iðnskólann í nám í sím- smíði. Svipað verkefni er í gangi í Borgarholtsskóla, þar sem ófaglærðir með reynslu eru metnir inn í vélvirkj- un. Í báðum tilvikum hafa sumir nem- endur reynst eiga skamma leið í sveinspróf, en aðrir lengri. Tilraunaverkefni þessi eru m.a. af- sprengi starfsemi Fræðslumiðstöðv- ar atvinnulífsins, sem leggur áherslu á mat á óformlegu námi og raunfærni. Þar er horft til þess að fólk lærir þótt það sæki sér ekki formlega menntun, t.d. með ýmsum námskeiðum og þjálfun í starfi, þátttöku í félagsstarf- semi og tómstundastarfi. Ingibjörg E. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðv- arinnar, segir að þessa raunfærni þurfi að vera hægt að meta þegar fólk hyggur á formlegt nám, því oft sé ekki réttlátt að fólk þurfi að byrja á byrjunarreit. „Reynslan sýnir að þetta er gerlegt og það er mikil hvatn- ing fyrir fólk að fara í nám ef það veit að það þarf ekki að fara í gegnum alls konar atriði sem það kann nú þegar, bara til að fá prófið. Oft er auðvelt að staðreyna þekkingu manna, til dæmis í verklegum greinum.“ Nýlega fékk Fræðslumiðstöðin 30 milljóna kr. Leonardo-styrk frá Evr- ópusambandinu til að koma á raun- færnimati til að meta kunnáttu starfs- manna til framgangs í atvinnulífinu. Ófaglærð- ir metnir í nám  Þekking og reynsla | 10 BLÁSIÐ var til fótboltamóts kristinna ungmenna í Safa- mýrinni í gær. Fyrir uppátækinu stóðu sex hollensk ung- menni á aldrinum 18–30 ára úr biblíuskólanum Æska með hlutverk eða Youth with a Mission frá hollenska bænum Heerde. Að sögn Manon Terpstra, eins nemenda biblíuskólans, var mótið eins konar uppskeruhátíð. Nem- endurnir hafa dvalið hér á landi sl. tíu vikur og er dvölin hluti af námi þeirra. Halda þeir heim nk. föstudag. „Markmið mótsins var m.a. að ungmenni úr hinum ólíku kirkjudeildum Reykjavíkur hefðu tækifæri til að kynnast og gera eitthvað skemmtilegt saman,“ segir Terpstra. Aðspurð segir Terpstra námið í biblíuskólanum taka nokkra mánuði. „Fyrstu þrír mánuðirnir samanstóðu af fyrirlestrum heima í Hollandi þar sem við lærðum um Guð, hver hann væri, hver við værum í honum og hvern- ig við skynjuðum kærleik hans. Síðan lá leið hópsins út fyrir landsteinana með það að markmiði að kynnast nýju landi og menningu þess á þeim tíu vikum sem dvalið er í viðkomandi landi,“ segir Terpstra og upplýsir að þriðj- ungur hópsins sem sótt hafi biblíuskólann þennan vet- urinn dvelji hér á Íslandi, annar þriðjungur í Kína og sá þriðji í Rúanda. Áhersla er lögð á að nemarnir leggi sitt af mörkum í viðkomandi landi og nefnir Terpstra í því sambandi að hérlendis hafi nemarnir unnið sjálfboða- vinnu fyrir bæði Samhjálp og Hjálpræðisherinn. Terpstra er afar ánægð með dvölina. „Þetta er undur- fallegt land. Við höfum séð stórkostleg fjöll, norðurljós og hveri. Fólkið er yndislegt, en ég tek eftir því að þið vinnið mjög mikið,“ segir Terpstra. Morgunblaðið/Jim Smart Góð stemning ríkti í Framheimilinu í gær þar sem fjöldi ungmenna tók þátt í kristilegu fótboltamóti. Fótboltamót kristinna ungmenna MASOOD Kharoti kom til Íslands árið 2000 á flótta undan stjórn tal- ibana í Afganistan. Þá hafði hann að tilefnislausu verið látinn dúsa í fangelsi og fjöl- skyldan lagt hart að honum að yf- irgefa landið, enda hrædd um að hann lenti í frekari vandræð- um. „Ef maður talar of mikið endar maður á Ís- landi!“ segir hann. Í viðtali í Morg- unblaðinu ræðir hann lífið í Afgan- istan og dvölina á Íslandi. Masood segir aðbúnaðinn í fang- elsunum sem talibanar settu hann í ekki hafa verið eins og í þeim ís- lensku „með sjónvarpi og tölvu“, eins og hann orðar það. Þetta hafi verið lítil og dimm herbergi og engar heimsóknir leyfðar. Á fótboltaleik í Grindavík Masood man vel fyrst þegar hann kom til Íslands en þá dvaldi hann á gistiheimili í Grindavík. „Um kvöldið heyrði ég bíla aka um og spila tónlist. Ég spurði hvað væri um að vera og þá var fótbolta- leikur í gangi á milli Grindavíkur og Keflavíkur. Ég fór á staðinn og þurfti að ganga yfir eitthvert gras til að ná í miðana og allt í einu fannst mér ég vera á jarð- sprengjusvæði. Ég gleymdi að ég var ekki lengur í Afganistan held- ur kominn langt í burtu, til Íslands og á leiðinni á einhvern fótbolta- leik …“ | 36–37 „Ef maður talar of mikið endar maður á Íslandi!“ HEILSUVERNDARSTÖÐIN við Barónsstíg er auglýst til sölu eða leigu í Morgunblaðinu í dag en fyr- irtækið Mark-Hús ehf. keypti hana af ríki og borg í nóvember á síðasta ári fyrir tæpan milljarð króna og fær húsið afhent 1. ágúst næstkomandi. Fram hefur komið að starfsmenn í Heilsuverndarstöðinni eru óánægðir með fyrirhugaðan flutning starfsem- innar upp í Mjódd en Davíð Á. Gunn- arsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu, segir að strax og tekin hafi verið ákvörðun um að selja Heilsuverndarstöðina hafi verið ljóst að flytja þyrfti starfsemina. Húsnæði undir hana hafi verið boðið út og tilboði lægstbjóðanda tekið, þar sem tilboð eigenda Heilsuverndar- stöðvarinnar hafi verið talsvert hærra en tilboð sem barst vegna húsnæð- isins í Mjódd. Í Heilsuverndarstöðinni eru núna til húsa miðstöð heilsuverndar barna, miðstöð mæðraverndar, lungna- og berklavarnadeild, deild atvinnusjúk- dóma og ofnæmisvarna, upplýsinga- tæknisvið, bókasafn og stjórnsýsla Heilsugæslunnar í Reykjavík. Heilsuverndarstöðin auglýst „ÞÓTT ég hafi þurft að ganga í gegnum mikið hef ég ekki gefið mér tíma til að sökkva í þunglyndi,“ segir Margrét Huld- rúnardóttir, sem er ein fárra Íslend- inga sem þjást af cystic fibrosis. Sjúkdómurinn er af- ar sjaldgæfur og stafar af arfgeng- um galla í jónagöngum, sem stað- sett eru í ýmsum slímhimnum líkamans. Margrét var aðeins eins og hálfs árs þegar hún var greind og hefur síðan ótal sinnum þurft að leggjast inn á spítala. Hún lítur þó framtíðina björtum augum. Hún stundar nám við Verkmenntaskól- ann á Akureyri og stefnir að því að ljúka þaðan sjúkraliðaprófi. | 32 Lítur framtíðina björtum augum ♦♦♦ „NÚVERANDI ríkisstjórn hefur fallið á prófinu,“ sagði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, formaður Samfylk- ingarinnar, í ræðu sem hún hélt á flokksstjórnarfundi Samfylkingar- innar í Súlnasal á Hótel Sögu í gær. „Ríkisstjórnin er búin að afsala sér stjórnvaldinu og vísar á aðra. Í efnahagsmálum vísar hún á Seðla- bankann, í velferðar- og kjaramálum á aðila vinnumarkaðarins, í varnar- málum á bandarísk stjórnvöld, í stór- iðjumálum á ál- og orkufyrirtæki. […] Hún sýnir sinnuleysi gagnvart kjörum fólksins í landinu, sinnuleysi gagnvart öryggi þjóðarinnar og getuleysi til að tryggja félagslegan og efnahagslegan stöðugleika,“ sagði Ingibjörg og tók fram að þetta hefði þá þýðingu að þjóðin þyrfti nýja rík- isstjórn með traust og umboð til þess að geta tekið á vandanum. „Best væri ef ný ríkisstjórn hefði getað tekið við sem allra fyrst. Sam- fylkingin er tilbúin til þess að axla þá ábyrgð og boðar skýrar tillögur til lengri og skemmri tíma sem stuðla að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika.“ Ingibjörg sagði að fall Framsókn- arflokksins væri falið í valdsækni hans. Það endurspeglaðist í draumn- um um völd langt umfram það lýð- ræðislega umboð sem flokkurinn hefði. Þetta hefði hins vegar ekki aftrað Sjálfstæðisflokknum frá því að endurnýja sín heit við Framsókn- arflokkinn í ríkisstjórn. „Það er mitt mat að forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafi ákveðið að gefa Framsóknarflokknum svigrúm til þess að reisa sig við og freista þess að halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram eftir næstu kosningar. […] Þetta eru að mínu mati skilaboð um að þessir flokkar ætli sér áfram sam- an eftir næstu kosningar.“ Töpuðu gegn eigin væntingum Ingibjörg sagði að Samfylkingin væri búin að festa sig í sessi sem 30% flokkur og árangurinn í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum hefði í heild verið góður. Þannig væri Hafn- arfjörður nú höfuðvígi jafnaðar- mennsku á Íslandi. Í Reykjavík taldi hún hins vegar að Samfylkingin hefði tapað gegn sínum eigin væntingum. „Núverandi ríkisstjórn hefur fallið á prófinu“ Morgunblaðið/ Jim Smart Ingibjörg Sólrún, formaður Sam- fylkingarinnar, segir ríkisstjórnina hafa afsalað sér stjórnvaldinu. Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.