Morgunblaðið - 24.06.2006, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞRÍR menn um tvítugt sitja í gæslu-
varðhaldi að kröfu lögreglunnar í
Hafnarfirði vegna rannsóknar á
skotárásinni á raðhús á Burknavöll-
um 10 á miðvikudag. Alls voru átta
manns handteknir vegna málsins,
þar af voru þrír úrskurðaðir í gæslu-
varðhald. Einn úr þeim hópi fékk
sólarhrings varðhald en í gær var
gæslan yfir honum framlengd og
sætir hann því gæslu til 29. júní sem
og hinir tveir.
Bensínsprengju hent að húsinu
Auk skotárásarinnar var bensín-
sprengju kastað að húsinu aðfara-
nótt fimmtudags en þar var á ferð
einn þeirra sem nú eru í gæsluvarð-
haldi. Var hann þá þegar eftirlýstur
vegna málsins en hafði ekki náðst.
Lögregla segir að rannsókninni miði
vel og var farið í húsleit á miðviku-
dag vegna málsins þar sem hand-
teknir voru fimm menn. Í þeirri að-
gerð fundust vopn sem lagt var hald
á. Þá þegar höfðu þrír menn verið
handteknir fyrr um daginn. Einnig
hefur verið leitað í bílum að sönn-
unargögnum vegna rannsóknarinn-
ar. Lögreglan upplýsir þó ekki hvort
hin meinta haglabyssa, sem notuð
var í árásinni, sé komin í vörslur lög-
reglunnar og sömu sögu er að segja
um meint skotfæri. Þegar skotárásin
var gerð voru þrír menn innandyra
og fóru þeir út úr húsinu að sögn lög-
reglu. Ekki fæst staðfest hvort þeir
hafi verið meðal þeirra átta sem
handteknir voru.
Íbúar á Burknavöllum munu
nokkrir hafa orðið vitni að skotárás-
inni en þá var tveim skotum hleypt af
haglabyssunni inn um glugga á jarð-
hæð hússins. Íbúar segja sumir að
óregluástand við húsið hafi verið við-
varandi og hafi þessi uppákoma ekki
verið alveg óvænt. Þá mun ekki hafa
verið sátt um hundahald í húsinu.
Ólíðandi atburður sem
setur óhug að öllum
Gunnar Svavarsson, forseti bæj-
arstjórnar í Hafnarfirði, segir at-
burðinn valda óhug í bænum og sé
árás af þessu tagi ólíðandi. „Auðvitað
setur þessi atburðarás óhug að öllum
og bæjaryfirvöld munu auðvitað
fylgjast grannt með framvindu mála
og vera í góðu samstarfi við lögreglu-
yfirvöld,“ segir hann.
Átta handteknir vegna
skotárásar í Vallahverfi
Þrír í gæsluvarðhaldi til 29. júní vegna málsins að kröfu lögreglu í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Eggert
Glugginn á húsinu er illa farinn eftir skotárásina og bensínsprengjuna.
UNDIR flauti varðskipsins Óðins
afhjúpuðu forseti Íslands og
borgarstjórinn í Hull listaverkið
För (e. Voyage) eftir listakonuna
Steinunni Þórarinsdóttur til
minningar um sjómenn á Íslands-
miðum, í Hull í gærdag. Sam-
bærileg athöfn verður í Vík í
Mýrdal eftir viku, en verkið För
er hugsað sem eitt verk í tveimur
löndum, að sögn listamannsins.
Sá hluti verksins sem afhjúp-
aður var í gær er bronsfígúra,
sem hallar á haf út, líkt og Stein-
unn orðar það, á fjögurra metra
hárri stuðlabergssúlu. Sá hluti
verksins sem verður í Vík er ál-
fígúra á stuðlabergssúlu en litir
þess málms þóttu ríma vel við
svarthvítt umhverfið á svæðinu
að sögn listamannsins á meðan
bronsið í Hull rímar við umhverf-
ið þar, m.a. nærliggjandi sjávar-
dýrasafn, The Deep. Verkið
stendur við höfnina í Hull. Fjöl-
menni var við athöfnina og meðal
viðstaddra var menntamálaráð-
herra Breta, Alan Johnson, en
hann er jafnframt þingmaður
Hull kjördæmis.
Fyrrverandi sendiherra Breta
á Íslandi hafði samband við
Steinunni fyrir um þremur árum
en þá hafði komið upp sú hug-
mynd að reisa minnisvarða um
breska sjómenn í Vík í Mýrdal. „Í
framhaldi af því datt mér í hug
að búa til eitt verk í tveimur
löndum og strax datt mönnum í
hug Hull í ljósi sögunnar,“ segir
Steinunn. „Þó að verkin séu í
raun sjálfstæð listaverk þá spegla
þau hvort annað og tengjast yfir
hafið.“
Fjögur bresk ljóðskáld voru
ráðin til að yrkja um verk Stein-
unnar og voru ljóðin flutt við af-
hjúpunina í gær.
Forseti Íslands afhjúpaði listaverk í Hull til minningar um sjómenn á Íslandsmiðum
Eitt verk í tveimur
löndum í senn
Steinunn Þórarinsdóttir listamaður við verk sitt í Hull í Bretlandi.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð-
herra hefur ákveðið að afnema fóð-
urtoll á hráefni til fóðurgerðar og
lækka um helming toll á fullbúnar
fóðurblöndur. Baldur Helgi Benja-
mínsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands kúabænda, segir þessa
breytingu fagnaðarefni. Hann von-
ast eftir að hún verði til að nýir aðilar
hefji innflutning á kjarnfóðri. Á því
sé full þörf því samkeppni í þessari
grein sé lítil. Hann segist raunar vita
að fyrirtæki hafi verið að íhuga slík-
an innflutning.
Fóðurtollar hafa skilað ríkissjóð
um 50 milljónum króna á ári und-
anfarin ár. Auk tolls á efni til fóð-
urgerðar er lagður á 7,80 kr/kg tollur
á innfluttar fóðurblöndur, en nánast
allt kjarnfóður sem notað er hér á
landi er blandað hér heima og því
hefur þessi tollur engu skilað í rík-
issjóð. Reglugerð landbúnaðarráðu-
neytisins, sem tekur gildi um næstu
mánaðamót, kveður á um að þessi
fóðurblöndutollur lækki í 3,90 kr.
Búnaðarþing og aðalfundur
Landssambands kúabænda höfðu í
vetur óskað eftir verulegri lækkun
eða afnámi fóðurtolla og er því land-
búnaðarráðuneytið að verða við
þessum áskorunum.
Verð á innfluttu fóðri hefur hækk-
að mikið síðan í vor. Ástæðuna má
rekja til breytinga á gengi krónunn-
ar, hækkunar á heimsmarkaði og
mikillar hækkunar á fiskimjöli. Bald-
ur Helgi segist hins vegar furða sig á
hvað fóðurfyrirtækin séu samstiga í
hækkunum. Samkeppni milli fyrir-
tækjanna sé lítil.
Baldur Helgi segir að síðasta
hækkun fyrirtækjanna upp á 4,5%
hafi verið tilkynnt með eins dags
millibili. Skýringin sem fyrirtækin
hafi gefið hafi verið breyting á gengi
íslensku krónunnar. Baldur Helgi
bendir á að frá þeim tíma þegar Líf-
land hækkaði síðast og fram að nýj-
ustu hækkun hafi gengisvísitalan
hækkað um 1,5%. Hækkun kjarnfóð-
urverðs það sem af er þessu ári sé
hins vegar yfir 15%. Þá hafi sala á
kjarnfóðri aukist um ríflega 20%.
Aukningin ein og sér ætti að koma
vel á móti kostnaðarhækkunum, með
bættri nýtingu fastafjármuna.
Ráðherra afnemur tolla
á efni til fóðurgerðar
Kúabændur gagnrýna verð á fóðri
hjá Fóðurblöndunni og Líflandi.
„VIÐ skiljum það mætavel að Eyja-
menn vilji bættar samgöngur en ég
vil árétta að mikil uppbygging hefur
átt sér stað í þess-
um málum,“ segir
Sturla Böðvars-
son samgöngu-
ráðherra við
gagnrýni sem
lögð hefur verið
fram af ferða-
þjónustuaðilum
og áhugamönnum
um samgöngur í
Vestmannaeyj-
um. „Brugðist var við bráðabirgða-
tillögum starfshóps sem kannað hef-
ur málið. Í kjölfar skýrslu sem
hópurinn hefur skilað förum við nú
að huga að næstu skrefum sem eru
Bakkahöfnin. Þær hugmyndir mun
ég kynna fyrir ríkisstjórninni fljót-
lega.“
Varðandi gagnrýni vegna flug-
samgangna sagði Sturla að fulltrúar
ráðuneytisins hefðu í fyrradag átt
fund með bæjarstjóra og forsvars-
mönnum Landsflugs, sem flýgur til
Eyja. „Tilgangurinn var að greina
stöðuna og reyna að hlutast til um að
flugþjónustan verði aukin,“ sagði
Sturla.
Í frétt um málið í gær þar sem vís-
að var í yfirlýsingu frá samtökum
heimamanna á slóðinni www.eyja-
frelsi.is er rétt að taka fram að rétta
slóðin er www.eyjafrelsi.net.
Samgöngur í Eyjum
Höfn við
Bakka kem-
ur til greina
Sturla
Böðvarsson
DORNIER 328-flugvél sem Lands-
flug/City Star Airlines hefur á leigu
og hlekktist á í lendingu á Aberdeen-
flugvelli í Skotlandi á fimmtudags-
kvöld er nú í skoðun þar ytra, á
heimavelli vélarinnar.
Að sögn Rúnars Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra Landsflugs, mun vél-
in hafa runnið um 350 metra út fyrir
brautina en er nánast óskemmd
þrátt fyrir atvikið. Bresk flugmála-
yfirvöld rannsaka atvikið en búist er
við samvinnu við íslensk flugmála-
yfirvöld vegna rannsóknarinnar.
Ekkert liggur enn fyrir um orsakir
atviksins. Þriggja manna áhöfnin er
öll erlend og voru 16 farþegar um
borð þegar óhappið varð. Allir
sluppu án meiðsla en vélin var að
koma frá Stafangri í Noregi. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær var
greint frá atvikinu í fréttum Sky-
fréttastöðvarinnar og BBC.
Til skoðunar
í Aberdeen
♦♦♦
www.lyfja.is
- Lifið heil
VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR
- ALDREI OF SEINT!
Vectavir
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum
stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar
framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið
á 2 klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við
ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram
ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir
minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
L†
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
3
32
04
06
/2
00
6
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn
Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði
Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd
Selfossi - Laugarási