Morgunblaðið - 24.06.2006, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Geimskip lendir
í Skeifunni
á morgun
Hönnunarsinfónía
Eyjólfs Pálssonar
í Epal
RICHARD Dawkins er þróunarlíffræðingur að
mennt og starfar sem fræðimaður við Oxford-
háskóla. Hann hefur sent frá sér fjölda bóka en
nýju bókina sína, The God Delusion, segir hann
vera árás á trúarbrögð heimsins.
Dawkins er staddur hérlendis á vegum Al-
þjóðasamtaka trúleysingja og Samfélags trú-
lausra á Íslandi en í dag heldur hann fyrirlestur
á trúleysisráðstefnunni Jákvæðar raddir trú-
leysis.
Af hverju kýst þú að vera trúleysingi?
„Trúarbrögð hafa alltaf gert tilraunir til að
svara spurningum okkar um tilveruna og
mannlegt eðli. Það sem hefur nú gerst er að vís-
indin hafa tekið yfir þetta svið með góðum ár-
angri en trúarbrögðin hafa aftur á móti lent í
öngstræti. Ég er alfarið á móti trúarbrögðum
þar sem ég tel að þau letji fólk til þess að hugsa
sjálfstætt. Ég er einnig á móti trúarbrögðum
því þau aðgreina fólk. Við höfum nú þegar svo
marga þætti sem við notum til að aðgreina okk-
ur frá hinum, t.d. kynþátt og tungumál, og trú
er bara enn einn þátturinn sem býr til múra á
milli fólks. Á Norður-Írlandi eru trúarbrögðin
til að mynda það eina sem veldur deilum þar
sem fólkið talar sama tungumál og lítur eins út.
Jafnvel þótt átökin þar séu byggð á trúarlegum
grunni er ekki deilt um trúarbókstafinn sjálfan.
Deilurnar þar á milli kaþólikka og mótmælenda
einkennast mun fremur af hefndum á hefndir
ofan sem rekja má marga ættliði aftur í tímann.
Eini mælikvarðinn sem fólkið á Norður-Írlandi
notar til að ákveða hverjir séu með þér í liði og
hverjir á móti eru trúarbrögðin.“
Þú lítur þá þannig á að trúarbrögð bók-
staflega skapi óeirðir?
„Já, trúarbrögð hvetja fólk til átaka. Hryðju-
verkamennirnir sem réðust á New York, Lond-
on og Madrid voru t.a.m. innblásnir af trúar-
brögðum. Ég tel því öll trúarbrögð vera
hættuleg, ekki síst í uppeldi barna. Börn sem
eru alin upp í blindri trú læra að ekki sé nauð-
synlegt að rökstyðja mál sitt eða færa sönnur á
það. Það eitt nægir þeim að segjast trúa þessu
með skírskotun í sína trú. Þetta leiðir til þess að
þegar fólki sem aðhyllist ólíka trú lendir saman
er ómögulegt fyrir það að rökræða og finna
rökræna lausn á málinu. Því hefur verið kennt
að þeir sem aðhyllast önnur trúarbrögð hafi
rangt fyrir sér og þessi ágreiningur leiðir því til
átaka.“
Hvað með siðferðisboðun trúarbragða, er
hún ekki nauðsynleg kjölfesta fyrir margt fólk?
„Trúarbrögðin boða algilt siðferði til að
mynda hvað fóstureyðingar, samkynhneigð og
líknardráp varðar. Alls staðar þar sem þú finn-
ur algilt siðferði eru trúarbrögð að baki. Það
sem um ræðir er alltaf rétt eða alltaf rangt
vegna þess að hin heilaga bók, hvort sem það er
Biblían, Kóraninn eða einhver önnur, segir svo.
Sjálfur er ég hlynntur siðferði sem er ákvarðað
með röksemdafærslu um hvað það er sem gerir
fólk hamingjusamt og hvað það er sem veldur
þjáningu. Ég tel algilt siðferði því ekki væn-
legt.“
Hvernig lítur þú á þróunina í Bandaríkjunum
og Evrópu hvað ítök trúarbragða varðar?
„Evrópa er á réttri leið að mínu mati en það
sama verður ekki sagt um Bandaríkin og Mið-
Austurlönd þar sem trúarofstæki fer vaxandi.
Bandaríkin undir stjórn Bush eru að verða að
kristnu fasistaríki. Ég veit raunar ekki af
hverju þessi þróun stafar. Ef til vill er ein
ástæða sú að í Bandaríkjunum er engin þjóð-
kirkja. Þjóðkirkjur eins og í Bretlandi og hér á
Íslandi gera trúna leiðinlega. Í Bandaríkjunum
eru kirkjurnar sjálfstæðar og reknar eins og
fyrirtæki. Trúin er markaðssett eins og hver
önnur neysluvara og kirkjur eru reknar eins og
fyrirtæki. Við markaðssetninguna eru notuð öll
þau brögð sem markaðsfræðingar búa yfir.
Peningar spila auðvitað stóran þátt, meðlimir
kirknanna gefa peninga til starfsins og söfnuðir
keppa því sín á milli. Stór hluti Bandaríkja-
manna trúir algerri vitleysu hvað þróun heims-
ins varðar vegna styrks hins trúarlega áróðurs.
Þetta fólk er ekki í neinum tengslum við veru-
leikann. Það er eitthvað að kerfi sem elur fólk
upp í slíkri fáfræði.“
Margir segja að trúarbrögð leiði vissulega af
sér slæma hluti en góðu hlutirnir séu mun fleiri
og við ættum að einbeita okkur að þeim. Hverju
svararðu þessu?
„Jú vissulega eru ákveðnir kostir sem fylgja
trúarbrögðum en þeir eru ekki eins mikilvægir
og allt hið slæma. Við þurfum heldur ekki
trúarbrögð til að geta verið góðar og hamingju-
samar manneskjur. Þetta eru því ekki nægilega
sterk rök til að hvetja fólk til að trúa einhverju
sem ekki hafa fengist neinar sönnur fyrir. Sem
vísindamaður tel ég æskilegt að fólk byggi
skoðanir sínar á rökum. Nú á 21. öldinni búum
við yfir gríðarlegu magni þekkingar og það er
sorglegt að milljónir manna fæðast, lifa og
deyja án þess að kynnast þessari þekkingu þar
sem þeim er kennd tóm vitleysa vegna trúar-
legs uppeldis.“
Hafa trúarbrögð þá slæm áhrif á uppeldi
barna?
„Já tvímælalaust. Þegar börn fæðast eru þau
merkt einhverri ákveðinni trú, trú foreldra
sinna. Við tölum um múslimskt barn eða kaþ-
ólkst barn sem er ekki nema fjögurra ára gam-
alt og því alltof ungt til að hafa skoðanir á um-
heiminum. Þetta er mjög slæmt. Við tölum
aftur á móti aldrei um marxískt barn, það væri
talin alger vitleysa. Trúarbrögðin virðast und-
anskilin þessari gagnrýni. Ég tel þessa trúar-
legu merkimiða á börnum vera andlega mis-
notkun. Slíkt uppeldi stuðlar að óvild á milli
samfélaga og býr til gífurlega flokkadrætti.
Hatrið á milli ólíkra trúarhópa er víða gífurlegt.
Þetta er uppskrift að stríðsátökum sem munu
halda áfram þar til við hættum að aðgreina fólk
eftir trúarbrögðum.“
Einn þekktasti trúleysingi heims heldur erindi
Trúarbrögð eru
hvati átaka
Morgunblaðið/Sverrir
Richard Dawkins er þróunarlíffræðingur
og yfirlýstur trúleysingi.
Richard Dawkins er líklega einn þekktasti trúleysingi heims og
er þeirrar hyggju að trúarbrögðin séu hvati átaka. Auður Magn-
dís Leiknisdóttir ræddi við Dawkins um skoðanir hans og lífssýn.
Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður.
TENGLAR
...........................................................
www.samt.is
www.atheistalliance.org
www.samt.is/conference
„RÍKIÐ hefur gert ágæta hluti í forvörnum en við vilj-
um sýna ábyrgð og taka forystu og gera miklu meira
en áður hefur tíðkast,“ sagði Þór Sigfússon, forstjóri
Sjóvár, í gær, við opnun forvarnahúss sem fyrirtækið
hefur sett á laggirnar við Kringluna í Reykjavík. For-
varnahúsinu er ætlað að vera þekkingarsetur um
slysavarnir og miðla upplýsingum og fræða almenn-
ing.
Búist er við mörgum heimsóknum í húsið og auk
þess mun fyrirtækið ferðast um landið og fræða fólk
um starfsemina.
Í húsinu er sýning þar sem fólki gefst tækifæri á að
fræðast um hvernig best verði komið í veg fyrir tjón.
Þar eru tæki sem menn geta prófað til að finna með
áhrifamiklum hætti hvernig slys bera að. Í sumar verð-
ur þema sýningarinnar „öryggi fjölskyldunnar á ferða-
lagi“ en stefnt er að því að skipta um þema eftir því
sem líður á. Húsið er opið hópum sem sækja um að
koma í heimsókn. „Ég vil sjá þúsundir gesta, ökunema,
félagasamtök, fjölskyldur og starfsmenn fyrirtækja
heimsækja húsið,“ sagði Þór einnig í ræðu sinni.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var við-
staddur og í ávarpi sínu fagnaði hann átaki Sjóvár í
forvarnamálum og óskaði þeim velfarnaðar í þeim
störfum. Lögreglukórinn söng einnig lög við opnunina.
Sjóvá rekur forvarnahúsið í samvinnu við Glitni,
Bílanaust, Securitars, Útilíf, 112 og bindindisfélagið
Brautina.
Morgunblaðið/Eggert
Karl Wernersson, stjórnarformaður Sjóvár, og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra klipptu á borðann við opnun
forvarnahússins og Herdís L. Storgaard, forstöðumaður hússins, fylgdist með.
Sjóvá opnar forvarnahús
við Kringluna í Reykjavík