Morgunblaðið - 24.06.2006, Qupperneq 20
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
ÍSLANDS MÁLNING
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
20%
Afsláttur af málningarvörum
Sætúni 4 Sími 517 1500
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.
Fossvogur | Fátt finnst ungum mönnum skemmti-
legra en að leika sér við vötn og læki. Kristján Ingi
Svanbergsson er ef til vill í þeim hópi, en hann brá
sér ásamt félaga sínum, Gunnari Hákoni Unnars-
syni, niður að læknum í Fossvogi og þar áttu þeir
saman góða dagstund. Þeir sulluðu í læknum og
fundu upp á ýmsu, en Kristján fann m.a. þetta for-
láta reiðhjóladekk. Ekki er vitað hvort hann hafði
það með sér heim til síðari nota, en eflaust þótt
nokkur fengur í þessum merka fundi.
Morgunblaðið/Eyþór
Dunda sér við lækinn
Fengur
Akureyri | Árborg | Landið | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310
og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett-
@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ný sveitarstjórn hefur tekið við í Húna-
þingi vestra og samanstendur af D- og B-
listum. Það vekur athygli að leiðtogar
þessara lista eru konur, Guðný Helga
Björnsdóttir og Elín R. Líndal. Munu þær
deila með sér embættum oddvita og for-
manns Byggðaráðs. Gengið hefur verið frá
endurráðningu Skúla Þórðarsonar sem
sveitarstjóra.
Það er hugur í héraðsbúum í uppbyggingu
ferðaþjónustu. Á Gauksmýri í Línakradal
hefur verið byggð upp stóraukin þjónusta
með fjölgun gistiherbergja og stækkun
matsalar. Þar er gestum boðin þjónusta í
sem vistvænustu umhverfi og með fjöl-
breyttri afþreyingu, m.a. fuglaskoðun á
Gauksmýrartjörn. Þá mun Selasetur Ís-
lands verða formlega opnað um þessa helgi
í hinu fagra VSP-húsi á Hvammstanga, en
þar var lengst af verslun Sigurðar Pálma-
sonar kaupmanns. Umhverfi hússins hefur
verið breytt í samræmi við nýjan tilgang.
Sumarið er komið, eftir kalt vor. Veiði-
menn standa á bökkum laxánna, sem eru
nokkrar í héraðinu. Viðskipti með veiði-
leyfi og þjónustu veiðihúsanna veita mikl-
um fjármunum í héraðið og njóta eigendur
þeirra góðs af. Talsvert er um ásókn í
kaup á jörðum sem eiga land að slíkri auð-
lind. Þykir sumum nóg um, en aðrir benda
á að eðlilegt sé að söluverð mótist af eft-
irspurn.
Mikil eftirspurn er eftir íbúðarhúsnæði á
Hvammstanga, og nokkuð um nýbygg-
ingar á staðnum og í sveitunum. Verð á
íbúðarhúsum hefur hækkað verulega á
liðnum misserum og er áberandi að kaup-
endur eru oftast ungt fólk, sem vill búa sér
heimili í barnvænu og streitulitlu um-
hverfi. Leikskólinn verður stækkaður í
sumar og unnið er að endurskipulagi
grunnskólans, sem mun verða í einni bygg-
ingu á Hvammstanga. Jafnframt er unnið
að hugmyndum um nýja starfsemi í Laug-
arbakkaskóla í Miðfirði.
Úr
bæjarlífinu
EFTIR KARL SIGURGEIRSSON
FRÉTTARITARA
HVAMMSTANGI
Forsvar ehf. á Hvammstanga hlauthvatningarverðlaun SSNV-atvinnuþróunar fyrir árið 2006.
Ársæll Guðmundsson, stjórn-
arformaður SSNV, sagði að Forsvar ehf.
væri dæmi um hvernig hægt væri að
byggja upp atvinnurekstur með dugn-
aði, áræði og góðum vinnubrögðum.
Fyrirtækið væri með traustan grunn í
starfsemi sinni og hefði á að skipa góðu
og vel menntuðu starfsfólki. Elín Jóna
Rósinberg, forstöðumaður bókhalds-
deildar, og Elín R. Líndal markaðsstjóri
tóku við verðlaununum.
Forsvar ehf. hefur starfsemi sína í
tveimur deildum; bókhaldsdeild og
markaðsdeild. Félagið var stofnað í des-
ember 1999, hóf starfsemi í janúar 2000
með tveimur starfsmönnum, en nú eru
þeir tólf.
Forsvar fær hvatningarverðlaun
Séra Hjálmar Jóns-son var sæmdurfálkaorðunni á
dögunum. Karl á Lauga-
veginum orti:
Sumir þráðu koss við koss
á koss hjá stúlku bjartri,
en aðrir þiggja kross við kross
á kross í hempu svartri.
Karlinn er mjög áhuga-
samur um enska boltann
og fylgist spenntur með
enska landsliðinu á HM:
Glufu Beckham fljótur fann
fallegt þótti sparkið
þegar Rooney rekur hann
rakleiðis í markið.
Hann fór í apagarð í
Hollandi og til varð:
Þá ég skildi að sækjast sér um líkir
er horfði felmtursfullur ég
á fjögur hundruð apateg.
Koss við
koss
pebl@mbl.is
♦♦♦
FRISBÍGOLF er ný almenningsíþrótt
sem skotið hefur rótum hér á landi.
Leikurinn fer fram á sérhönnuðum völl-
um þar sem takmarkið er að kasta frisbí-
diskum í sérstakar körfur í sem fæstum
köstum. Búið er að setja upp þrjá velli hér
á landi, 18 körfu völl í Gufunesi í Graf-
arvogi en auk þess er 9 körfu völlur á tjald-
svæðinu Hömrum á Akureyri og við Úti-
lífsmiðstöðina á Úlfljótsvatni. Minni vellir
eru komnir á Hólavatni í Eyjafirði og
Vatnaskógi.
Um helgina verður alþjóðlegt mót, Ice-
landair Open haldið á vellinum í Gufunesi
og eru 25 erlendir keppendur skráðir til
leiks, margir þeirra í fremstu röð í Evrópu.
Þar má nefna Bretann Derek Robins en
hann keppti hér líka síðasta haust og Sví-
ann Christian Sandström sem á heimsmet-
ið í lengsta kasti með frisbídiski, 250
metra. Keppt verður alla helgina og eru
áhorfendur velkomnir.
Keppt í
frisbígolfi
Vestfirðir | Meðalatvinnutekjur í að-
alstarfi á Vestfjörðum voru tæplega 2,6
milljónir árið 2006. Athygli vekur mikill
munur á launum eftir kyni en á meðan
meðalatvinnutekjur karla voru tæplega
3,2 milljónir á ári voru meðalatvinnu-
tekjur kvenna ekki nema tæplega 1,9
milljónir á ári. Konur eru því ekki með
nema um 60% af meðalatvinnutekjum
karla. Hæstu meðallaun voru í veit-
ustarfsemi eða tæplega 4,6 milljónir á
ári. .Konur eru með umtalsvert lægri
laun en karlar í öllum starfsgreinum að
undanskildum landbúnaði, en þar eru
einnig langlægstu meðallaunin, 486 þús-
und krónur á ári.
Konur með 60%
af tekjum karla
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111