Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 21
MINNSTAÐUR
Flughelgi | Hin árlega flughelgi á
Akureyri hófst í gær og stendur
fram á sunnudag. Það er Flugsafn
Íslands sem stendur fyrir uppá-
komunni, sem verður glæsilegri en
nokkru sinni fyrr.
Íslandsmót í listflugi fór fram í
gær, en í dag, laugardag, verður
opnuð sýning um Agnar Kofoed-
Hansen, boðið upp á útsýnisflug í
þyrlu og þá verður happdrætt-
ismiðum dreift úr flugvél yfir Ráð-
hústorg nú í dag kl. 11. Dregið verð-
ur í Flugsafninu sama dag kl. 14 en í
vinning er m.a. utanlandsferð með
Iceland Express.
Á morgun verður aftur farið í út-
sýnisflug, flugmenn sýna listflug og
Fallhlífaklúbbur Reykjavíkur sýnir
fallhlífarstökk.
AKUREYRI
SUÐURLAND
ÞAÐ er ekki að spyrja að gróð-
ursældinni á Akureyri, bænum í
skóginum eins og hann var ein-
hvern tíma kallaður. Sesselía og
vinkonur hennar voru við biðskýli
Strætisvagna Akureyrar við
Merkigil í gærdag, á leið í miðbæ-
inn. Leiðarvísir með áætlun vagn-
anna hangir á staur við biðskýlið,
en ekki er þó víst að allir komi
auga á það. Runnarnir við næsta
hús eru nefnilega svo blómlegir,
hafa vaxið og dafnað í áranna rás
og vafið sig utan um staurinn. Það
þarf því að leita uppi upplýsingar
um áætlun vagnanna, en stelp-
urnar voru ekki lengi að því.
„Hann kemur 39 mínútur yfir,“
upplýsti Sesselía vinkonur sínar.
Þær kváðust mikið ferðast um bæ-
inn með strætó og það væri ágætis
ferðamáti. Þær hlökkuðu því mik-
ið til þegar ókeypis verður að taka
sér far með strætisvögnum bæj-
arins, „verður það örugglega ekki
um næstu áramót?“ spurði ein
þeirra og önnur benti á að við
sama tækifæri yrði hætt að rukka
fargjald í Hríseyjarferjuna Sævar.
Aldrei að vita nema þær myndu af
því tilefni bregða sér bæjarleið og
skoða eyjuna. En fyrst var að bíða
vagnsins.
Kemur 39 mínútur yfir
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Út á stoppistöð Sesselía ýtir runnum frá til að sjá hvenær strætó kemur.
Dalvíkurbyggð | Fyrsta verk nýkjör-
innar bæjarstjórnar í Dalvíkurbyggð
var að lækka leikskólagjöld í sveitar-
félaginu um 20% frá og með næstu
mánaðamótum. Þetta er liður í þeirri
viðleitni að Dalvíkurbyggð verði alltaf
samkeppnisfær þegar kemur að að-
stæðum barnafjölskyldna, segir
Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri í
Dalvíkurbyggð.
Sem dæmi um lækkun gjalda við
þessa breytingu þá lækkar gjald fyrir
8 tíma vistun um 4.759 krónur. Fyrir
einstæða foreldra verður 8 tíma
gjaldið eftir þessa breytingu kr.
14.278 krónur.
Í Dalvíkurbyggð eru þrír leikskól-
ar, Krílakot á Dalvík, Leikbær á Ár-
skógsströnd og Fagrihvammur á Dal-
vík sem er sjálfstætt starfandi skóli á
framlögum frá Dalvíkurbyggð. Leik-
skólabörn eru um 115 og eru í mis-
langri dvöl, allt frá hálfum degi upp í 9
tíma.
Gott samfélag
fyrir barnafjölskyldur
„Það sem við teljum okkur til gildis
sem gott samfélag fyrir barnafjöl-
skyldur er góður skóli og ódýr og góð-
ur tónlistarskóli. Hér eru fjölbreyttir
möguleikar á íþrótta- og tómstunda-
starfi og það sem skiptir miklu máli,
þátttökugjöld fyrir börn eru lág, mun
lægri en á höfuðborgarsvæðinu,“ seg-
ir Svanfríður og benti á að sveitarfé-
lagið styrkti félögin gagngert til að
gera þeim betur kleift að bjóða upp á
gott barna- og unglingastarf.
Í könnun sem Neytendasamtökin
gerðu í ársbyrjun 2006 á leikskóla-
gjöldum í sveitarfélögum við Eyja-
fjörð kom í ljós að ef miðað er við átta
tíma vistun með fullu fæði voru Ak-
ureyrarbær og Grýtubakkahreppur
með lægsta verðið. Leikskólagjöld á
Akureyri og í Grýtubakkahreppi eru
reyndar með þeim lægstu á landinu,
ef miðað er við nýlega könnun ASÍ.
Hæstu gjöldin reyndust í Hörgár-
byggð, Dalvíkurbyggð og Ólafsfirði.
Munur á hæsta og lægsta verði
reyndist um 33%.
„Við gerum okkur grein fyrir því að
foreldrar horfa til þess kostnaðar sem
er af leikskóladvöl og viljum vera
samkeppnisfær í því sem öðru. Þessi
lækkun núna, sem er bara sú fyrsta á
þessu kjörtímabili því við reiknum
með því að fara yfir þessi mál reglu-
lega, jafnar því stöðu barnafjöl-
skyldna hér í Dalvíkurbyggð nokkuð
gagnvart því sem best gerist,“ segir
Svanfríður.
Fyrsta verk nýkjörinnar bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar
Leikskólagjöld lækkuð um 20%
Ný verslun Ellingsen | Ellingsen
hefur opnað nýja verslun á sviði
útivistar og veiðimennsku á Ak-
ureyri, hún er við Tryggvabraut 1.
Sjóbúðin hefur verið sameinuð
þessari verslun og verður þar á
boðstólum flest það sem Sjóbúðin
hefur haft á boðstólum undanfarin
ár sem og einnig það besta sem
Ellingsen og OLÍS hafa upp á að
bjóða.
AKUREYRARBÆR, sýslumanns-
embættið og fulltrúar 6 veitinga- og
skemmtistaða á Akureyri hafa
skrifað undir samkomulag um aukið
eftirlit með ungmennum á þessum
stöðum.
Fylgst verður náið með því að
ungmenni yngri en 18 ára sæki
ekki vínveitingastaði og skemmti-
staði bæjarins án fylgdar forráða-
manna eftir kl. 20 á kvöldin og að
fólki yngra en 20 ára sé ekki selt
þar áfengi, segir á vef Akureyr-
arbæjar.
Í því skyni munu veitingahúsa-
eigendur herða allt eftirlit með
þessum þáttum og lögreglan mun
fjölga komum sínum á þessa staði
til að fylgja þessu samkomulagi eft-
ir.
Akureyrarbær mun leggja til
starfsfólk sem vinnur með ungling-
um bæjarins til að fara inn á
skemmtistaðina með lögreglunni og
þannig auðvelda henni að þekkja úr
þá unglinga sem kynnu að vera þar
undir aldri.
Undir samkomulagið rituðu
fulltrúar frá Akureyrarbæ, sýslu-
mannsembættinu og veitingahúsun-
um Kaffi Akureyri, Café Amor,
Karólínu restaurant, Rocco/Barn-
um, Vélsmiðjunni og Sjallanum/
Dátanum.
Eftirlitið aukið
Boxið eins árs| Jóna Hlíf Halldórs-
dóttir, Hanna Hlíf Bjarnadóttir,
Dögg Stefánsdóttir og Karen Dúa
Kristjánsdóttir verða með opnun í
galleriBOX í Listagili í dag, laug-
ardaginn 24. júní, kl. 17.
BOX-stelpurnar eru að halda upp
á eins árs afmæli og kveðja Dögg
sem er að fara í barneignarfrí.
Ófétabörn | Sýning á frummynd-
skreytingum úr barnabókinni Óféta-
börnin eftir Rúnu K. Tetzschner
verður í Deiglunni í dag, laugardag,
kl. 15. Lesið verður úr bókinni og
flutt tónlist sem samin hefur verið
um ófétin.
Myndirnar, 27 talsins, eru unnar
með teiknipennum, skrautskrift-
arpennum og vatnstússlitum. Rúna
áritar bækur með skrautskrift frá
kl. 16 til 17 frá því í dag og fram að
30. júní, en sýningunni lýkur 8. júlí.
Hún er opin alla daga nema mánu-
dag frá kl. 13 til 17.
Oddi | Séra Guðbjörg Arnardóttir var vígð til embættis sóknarprests í
Oddakirkju á Rangárvöllum sunnudaginn 18. júní af herra Sigurði Sigurð-
arsyni, vígslubiskupi í Skálholti.
Myndin var tekin eftir athöfnina og eru séra Guðbjörg og Sigurður
vígslubiskup fremst á myndinni. Fyrir aftan standa séra Gunnar Björns-
son sóknarprestur á Selfossi, séra Sigurður Jónsson fyrrverandi sókn-
arprestur í Odda, séra Halldóra Þorvarðardóttir prófastur í Rangár-
vallaprófastdæmi og séra Arngrímur Jónsson fyrrverandi sóknarprestur í
Odda.
Vígð til embættis sóknar-
prests í Oddakirkju
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Selfoss | Landsmót Forn-
bílaklúbbs Íslands var sett
sett af Guðna Ágústssyni
landbúnaðarráðherra í
gær á Selfossi. Lands-
mótið er haldið í samvinnu
við „Sumar á Selfossi“ sem
verður með ýmiss konar
dagskrá um helgina.
Mótið sjálft og sýning
bíla verður á tjaldsvæðinu
við Engjaveg hjá Gest-
húsum. Á heimasíðu Forn-
bílaklúbbsins kemur fram
að mikill áhugi hefur verið
fyrir mótinu.
Fyrir utan bílasýningu
verður farið í akstur um
Selfoss, bílaþrautir fram-
kvæmdar og fleira gert sér
til gamans. Sameiginlegt
grill verður á laugardags-
kvöldið og félagar
skemmta sér saman.
Mikil dagskrá er síðan
hjá Sumar á Selfossi og
ætti öll fjölskyldan að
finna eitthvað við sitt hæfi
bæði á mótinu og eins dag-
skrá Sumars á Selfossi.
Mótið endar síðan seinni-
runalegt en hefur verið
gert upp,“ sagði Sverrir
sem hefur smíðað húsin á
bílana fyrir eigendurna.
Hann segir alla þá bíla sem
hann hefur gert upp gang-
færa og að þeir séu notaðir
á sunnudögum í sparibílt-
úra.
„Maður er svona einn
vetur að smíða hvert hús,
ég er með mjög góðar
teikningar að húsunum en
Kristinshúsið er hús sem
Kristinn vagnasmiður
smíðaði á sínum tíma og
Stillishúsið heitir eftir fyr-
irtækinu sem smíðaði það á
sínum tíma,“ sagði Sverrir
og benti á að Willysinn sem
er með Kristinshúsinu vær-
ir núna kominn á frímerki.
Núna er Sverrir að fást
við smíði á húsi á Willys-
jeppa fyrir Alexander
Ólafsson, verktaka í Hafn-
arfirði, og fyrir utan húsið
hjá Sverri er Willys 48 með
Stillishúsi, nýkláraður, í
eigu Jóns Karls Snorrason-
ar flugmanns.
gömlum bílum.
Á mótinu verða sex bílar
sem Sverrir hefur gert upp
að einhverju eða öllu leyti.
Um er að ræða allþekktan
bíl sem er eftirlíking af
Thomsensbílnum, fjóra
Willys-jeppa, ’46-, ’47- og
’48-módel, og einn Oldsmo-
bile. „Þessir jeppar eru
hver með sína gerðina af
húsi, einn er með blæju,
annar með Stillishúsi og
Kristinshúsi. Vélarkramið
í bílunum er allt upp-
part sunnudagsins 25. júní
með akstri um Selfoss og
er síðan móti slitið.
Sverrir Andrésson er
einn fjölmargra fornbíla-
áhugamanna á Selfossi
sem hlakka til mótsins.
„Það er von á mörgum bíl-
um hingað og þetta dregur
að fjölda fólks. Það eru
alltaf að koma fram fleiri
og fleiri gamlir bílar,“
sagði Sverrir, sem ekki
hefur tölu á þeim Selfyss-
ingum sem áhuga hafa á
Landsmót FBÍ haldið á Selfossi um helgina
Hefur átt hlut að endurgerð
sex bíla á sýningunni
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sverrir Andrésson með Willys ’48, nýendurgerðan.